Réttur


Réttur - 01.10.1979, Page 40

Réttur - 01.10.1979, Page 40
Liu-Sjaó-Sí (t. v.), Wang, kona hans (í miðið), og kona Sukarnos, Hartini (t. h.), í Peking 1962. ánægjuleg og fróðleg viðtöl, hreinskilni og skarpskyggni Liús naut sín vel og oft brá fyrir „humor", er viss viðkvæm mál voru rædd. Liú var snemma sjálfstæður hugsuður, sem strax á árunum 1943—47 sýndi fram á að Mao væri að aðlaga marxismann þörfum kínverskrar bændabyltingar og svo þjóðfrelsisbyltingarinnar — og rök- studdi nauðsyn þess. Árið 1959 varð Liú forseti kínverska alþýðulýðveldsins og gengdi því heiðurs- starfi allmörg ár, uns „menningarbylt- ing“ vinstri ofstækismannanna hóf of- sóknir sínar gegn honum sem fleiri ágæt- um brautryðjendum byltingarinnar (— eins og Stalín forðum á árunum 1936-38). í október 1968 var hann rekinn úr mið- stjórninni og úr flokknum, brennimerkt- ur sem „endurskoðunarsinni“ og svikari. Átti Mao á þessu sök að sínu leyti. Lit'i mun hafa látist nokkru síðar, mér er enn ekki kunnugt ártalið. Kona hans Wang lifði hins vegar þess- ar ofsóknir af og er nú mikils metin í Kommúnistaflokki Kína. 240

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.