Réttur - 01.10.1979, Síða 52
INNLEND ■
VÍÐSJÁ ■ M 2
Kosningarnar 2. og 3. desember sl.
í alþingiskosningunum 2.-3. desember
1979 fór um fylgi aðalflokkanna fjögurra,
sem hér segir:
Alþýðubandalagið (G-listinn) fékk
24.390 atkv. eða 19.7%. Þingmenn urðu
10 kjördæmakjörnir og 1 landskjörinn.
Við kosningarnar 1978 fékk Alþýðu-
bandalagið 27.962 atkv. eða 22.9%.
Alþýðuflokkurinn (A-listi) fékk nú
21.575 atkv. eða 17.4%. Þingmenn hans
urðu alls 10, 7 kjördæmakjörnir og 3
landskjörnir.
Framsóknarflokkurinn (B-listi) fékk
30.871 atkv. eða 24.9%. Þingmenn 17. —
í kosningunum 1978 fékk hann 20.466
atkv. eða 16%.
Sjdlfstœðisflokkurinn (D-listinn) fékk
43.841 atkv. eða 35.4%. Þingmenn alls
21, 15 kjördæmakjörnir og 6 landskjörn-
ir. — I kosningunum 1978 fékk flokkur-
inn 39.978 atkv. eða 32.3%.
Verkalýðsflokkarnir, sem 1978 fengu
til samans 44.9%, — hæstu tölu, sem þeir
hafa nokkru sinni fengið samanlagt, —
hrapa nú niður 37.1% sökum þess að Al-
þýðuflokkurinn sprengdi þá stjórn, er þá
var mynduð, í stað þess að nota þá tæki-
færið til að skapa órofa samvinnu við Al-
þýðubandalagið, sem tvímælalaust liefði
gefið þessum alþýðuflokkum meirihluta
á Alþingi í kosningum, ef afturhaldið, —
Reykjavíkurvaldið í Framsókn — hefði
sprengt vinstri stjórnina 1978 að vanda.
ÞingræSisstjórn?
Það hafa verið miklir erfiðleikar eftir
jressar kosningar að mynda starfhæfa rík-
isstjórn. Formenn allra flokkanna hafa
reynt hver á fætur öðrum í næstum tvo
mánuði, þegar þetta er skrifað (3. febr.)
og enginn árangur fengist. Hefur Al-
þýðuflokksstjórnin setið í skjóli Sjálf-
stæðisflokksins sem bráðabirgðastjórn og
virðist Alþýðuflokknum síst vera að
skapi að mynda nokkra róttæka stjórn
með Alþýðubandalaginu. I janúarlok var
hætta á að forseti sæi sig máske nauð-
beygðan til að mynda utanjringsstjórn -
og reynslan af slíkri er að hún gæti orðið
bandarísk leppstjórn.
Kom jrá upp sú hugmynd að Gunnar
Thoroddsen reyndi að mynda ríkisstjórn
ásamt Framsókn og Aljrýðubandalaginu,
ef honum tækist að fá nógu marga þing-
menn Sjálfstæðisflokksins með til að
styðja þá st jórn eða verja vantrausti. Mun
á það reyna næstu daga hvort það tekst.
,,Réttur“ mun í næsta hefti skýra ýtar-
lega frá afstöðu Alþýðubandalagsins í
þessum stjórnarsamningum öllum.
252