Réttur


Réttur - 01.07.1983, Blaðsíða 56

Réttur - 01.07.1983, Blaðsíða 56
10. október 1868 hófst uppreisn á Kúbu og brátt logaði allt í stríðsátökum. Petta var upphaf tíu ára stríðsins svonefnda, sem var fyrsti áfanginn í sjálfstæðisbarátt- unni gegn Spánverjum. Nýlenduherrarnir brugðust hart við uppreisn hinna inn- fæddu. Þetta ástand markaði þáttaskil í lífi José Martí. Þótt hann væri aðeins fimmtán ára og þar að auki Spánverji átti málstaður Kúbumanna hug hans allan. Hann fór að gefa út leynilegt blað ásamt félögum sínum, þar sem m.a. voru birt baráttuljóð eftir hann. Mendive var handtekinn fyrir skoðanir sínar, fangels- aður og síðar sendur í útlegð, en skóla hans var lokað. Skömmu síðar brutust spænskir hermenn inn á heimili vinar Martí og fundu þar bréf frá honum, þar sem hann lét í Ijósi skoðanir sem Spán- verjum þóttu hættulegar. Fyrir þetta var unglingurinn handtekinn og dæmdur í sex ára fangelsi. I apríl 1870 var hann settur í þrælkunarvinnu og þrælaði í sex mánuði, en þá fékk faðir hans því framgengt að hann var fluttur í fangelsið á Furueynni. Þaðan var hann svo sendur í útlegð til Spánar. í janúar 1871 kom José Martí til Spánar, þar sem hann dvaldi í útlegð næstu fjögur árin. Þennan tíma notaði hann til að verða sér úti um menntun: lauk stúdentsprófi og las síðan lögfræði, heimspeki og bókmenntir við háskólana í Madrid og Zaragoza. Jafnframt vann hann fyrir sér með kennslu og skrifaði ótal blaðagreinar um kúbönsk málefni. Frá Spáni lá leiðin til Mexico, þar sem hann fékkst við blaðamennsku og list- gagnrýni, og þaðan suður á bóginn, til Guatemala, þar sem hann var kennari um hríð, og Venezuela þar sem hann gaf út bókmenntatímarit. 1878 fór hann aftur til Kúbu. Tíu ára stríðinu var þá lokið með ósigri þjóðfrelsisaflanna. Spánverjar réðu enn yfir Kúbu, þótt þeir yrðu að vísu að afnema þrælahald í áföngum eftir að stríðinu lauk. Martí fékkst við lögfræði- störf í Havana og tók virkan þátt í stjórn- málabaráttunni, sem leiddi til þess að hann var aftur dæmdur í útlegð 1879. Enn fór hann á flakk, en settist að í New York 1881. Þegar hér var komið sögu var José Martí 28 ára. Á Spáni hafði hann drukkið í sig spænska menningu sem hann mat afar mikils. En hann gerði sér grein fyrir því að menning Rómönsku Ameríku var ekki spænsk, og að hann tilheyrði Amer- íku, þeirri Ameríku sem hann kallaði „Okkar Ameríku“ til að aðgreina hana frá Norður-Ameríku, sem var evrópsk. Einsog Símon Bólivar dreymdi hann um að sameina Suður-Ameríku. Eftir því sem hann kynntist Bandaríkjunum betur komst hann að raun um að það sem hann mat mest þar í landi, lýðræðishefðin, frelsishugsjónin, var á hröðu undanhaldi og Bandaríkin voru að breytast í stórveldi sem brátt færi að teygja arma sína útum heimsbyggðina. Þá yrði „Okkar Amer- íka“ í hættu, ef hún héldi áfram að vera sundruð og veik, ofurseld spilltum ein- ræðisherrum. Með pennann á lofti barðist José Martí ákaft gegn þeim öflum sem voru nokkuð sterk á Kúbu á þessum tíma og vildu að Kúba hætti að vera spænsk nýlenda til þess eins og verða innlimuð í Bandaríkin. Stærsta verkefnið á þessum tíma var þó vitaskuld baráttan gegn Spánverjum, því Kúba var enn spænsk nýlenda. Ári eftir að tíu ára stríðinu lauk blossuðu bar- dagar upp á nýjan leik, en þeir stóðu ekki lengi í það skiptið, enda var þjóðin þreytt og vonsvikin eftir árangurslaust blóðbað í áratug. Enn var ekki tímabært að blása 184
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.