Réttur


Réttur - 01.07.1983, Blaðsíða 62

Réttur - 01.07.1983, Blaðsíða 62
Grenada Árás voldugasta herveldis heims, her- nám valdaklíku Bandaríkjanna á smárík- ið Grenada í nóv. sl. bætir enn einu níð- ingsverki við langa, blóðuga árásarskrá þeirrar klíku: Guatemala, Vietnam, Chile etc. — Er árás á Nicaragua næst á skránni? Fara íslendingar að horfa opnum aug- um á það hervald, er hernumið hefur land vort? Hungur og herbúnaður Það deyja um 14 miljónir barna á ári í heiminum úr hungri og sjúkdómum, sem lækna mætti. 500 miljónir manna svelta að staðaldri. 1500 miljónir í þróunarlönd- unum skortir alla læknishjálp. 1000 milj- ónir manna þar lifa við ægilegustu fátækt. 800 miljónir manna í þróunariöndunum hafa undir 150 dollara árstekjur á mann (þ.e. undir 4050 ísl. kr. á ári á mannn). 81% fullorðinna í þróunarlöndunum eru ólæsir og óskrifandi. 200 miljónir barna þar geta ekki sótt skóla. 2000 miljónir manna þar skortir gott vatn. Nato, þessi hernaðarsamtök, sem „hernaðar- og stóriðjuklíka“ Bandaríkj- anna ræður og stórgræðir á, hefur m.a. 1000 eldflaugar til að skjóta heimsálfa á milli, 440 aðrar eldflaugar, 8000 orustu- flugvélar, þar af bera yfir 2000 kjarnorku- sprengjur, ca. 2000 herskip og yfir 20000 skriðdreka. Síðan Nato var, stofnað hafa herútgjöld þess 13-faldast og eru nú meir en 3 biljónir dollara eða um 450 dollarar á hvert mannsbarn í Nato-löndunum. Með afnámi herbúnaðar í heiminum væri hægt að útrýma öllu hungri, sjúk- dómum og fátækt. Hámark hræsninnar Bandaríkjastjórn réðst á Vietnam-þjóð að tilefnislausu 1955 eftir að hafa í meir en 7 ár borgað Frökkum fyrir að reyna með árásarstríði að gera Vietnam aftur að nýlendu. í meir en 7 ár lét Bandaríkja- stjórn meira sprengjumagni rigna yfir þetta eitt fátækasta land heims en kastað var á alla Evrópu í síðasta heimsstríði. Og þar að auki vörpuðu Bandaríkjamenn eitri yfir engi, skóga og almenning í Viet- nam, svo gereyðing gróðurs um áratugi hlýst af og vansköpuð börn fæðast æ fleiri fyrir eituraðgerðir þesar. Þegar banda- ríski árásarherinn varð að snauta burt sig- raður 1975, töldu margir að Bandaríkja- menn myndu greiða Vietnam skaðabætur fyrir vísvitandi níðingsverk, er ollu dauða miljóna og gereyðingu stórra landsvæða. Bandaríkjastjórn hefur aldrei greitt eitt „cent“ í skaðabætur. En þessi níðingsstjórn er nú að heimta skaðabætur af öðrum, ef ein flugvél er skotin niður yfir herstöð annars lands. Er ekki best fyrir Bandaríkjastjórn að byrja að borga skaðabæturnar sjálf, sem hún skuldar einni fátækustu þjóð verald- ar, — ef koma á einhverri siðgæðisreglu á í slíkum „viðskiptum“? 190
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.