Réttur


Réttur - 01.07.1983, Blaðsíða 64

Réttur - 01.07.1983, Blaðsíða 64
NEISTAR Loforð Bandaríkjastjórnar! „Við skýrðum rækilega sér- stöðu okkar sem fámennrar og vopnlausrar þjóðar, sem hvorki gæti né vildi halda uppi her sjálf, og mundum aldrei sam- þykkja að erlendur her né her- stöðvar væru í landi okkar á friðartímum. Dean Acheson utanríkisráðherra og starfs- menn hans skyldu fyllilega þessa afstöðu okkar. Er því all- ur ótti um það, að fram á slíkt verði farið við okkur, ef við göngum í bandalagið, gersam- lega ástæðulaus." Bjarni Bendiktsson: Morg- unblaðið (viðtal) 22. mars 1949. (Um inngönguna í Nato, sem kveðst hafa tryggt frið hér í 30 ár!) Bertolt Brecht um „þriðja stríðið“ Prófessor Dr. Hans Pischner, einn stjórnandi ríkisóperunnar í Berlín, sneri sér til ýmissa starfs- bræðra sinna utan þýska Alþýðu- lýðveldisins út af hættunni á ger- eyðingu í kjarnorkustríði og minnir í bréfi sínu á eftirtektarverð orð Bertolt Brechts: „Hin mikla Kartago háði þrjú stríð. Kartago var enn voldug eftir fyrsta stríðið. Það var hægt að búa í þeirri borg eftir annað stríðið. En hana var hvergi að finna eftir þriðja stríðið." Aðvörun ættjarðarvinar „Ég veit ekki, hverju okkur kann að vera heitið gegn því að Ijá er- lendu stórveldi fangastaðar á landi okkar. En ég veit, hvað við missum, ef við gerum það. Við missum traust og virðingu allra þjóða, fyrst þeirrar manndóms- þjóðar, sem æskir ítaka í landi okkar, og síðan allra annarra. Við missum allt tilkall til þess, að fyrr- verandi samþandsþjóðir okkar og önnur Norðurlönd liti á okkur öðru- vísi en sem pólitíska skrælingja. Við missum sjálfstraust og sjálfs- virðingu. Við missum, slítum úr okkur þann hjartastreng, sem tengir okkur þrautum og sigrum, sárum og sælu, draumum og dáð- um horfinna íslenzkra manna. Við missum Einar Þveræing, Árna Oddsson tárvotan í Kópavogi, missum Jón Sigurðsson, því að við höfum svikið þá alla. Við miss- um 17. júní 1944, því við umvherf- um því, sem þá gerðist, í skrum og skrípaleik. Við missum nú þeg- ar yfirleitt allt, sem verðmætast er og með öllu óbætanlegt, en ávinn- um í mesta lagi í staðinn það eitt, sem mölur og ryð eyðir og þjófar stela. Hverju við kynnum að ræna óborna íslendinga, vitum við ekki. En það þarf ekki að minna okkur á, hver kostnaður hlauzt af þeim fríðindum, sem keypt voru fyrir réttindaafsals árið 1262. Sjálfan sig selur enginn nema með tapi, hvað sem líður hagfræði þessara gróðatíma. Gömlu mennirnir köll- uðu það að verzla við fjandann að meta æru sína til peninga og leggja framtíð sína ævarandi í veð fyrir stundarávinning, hvort sem það var gert af ótta eða ágirnd. Og þeir höfðu þá trú, aö slík viðskipti horfðu til lítils ábata.“ Sigurbjörn Einarsson: Úr ræðunni „Á krossgötum“ í „Draumar landsins", bls. 98-99. Flutt á útifundi í Reykjavík 31. mars 1946. Birt fyrst i „ Vér mótmælum allir", 2. tbl. Að fela sólina íhaldsmenn í borgarstjórn Reykjavíkur vilja byggja gríðarhá stórhýsi á lóðum „Völundar" o.fl. sem myndu skyggja mjög jafnt á Esjuna sem sólina fyrir íbúa hins forna Skuggahverfis, sem íhalds- menn nú vilja gera að sannnefndu Skuggahverfi, svo eigendur Morg- unblaðsins o.fl. fái hátt verð fyrir lóðir sínar. Manni kemur þá í hug það, sem Halldór Laxness reit um þá menn fyrir 50 árum: „Mennirnir, sem barist hafa með oddi og egg gegn Ijósinu í bænum og toga mundu sólina niður af himinhvolfinu til þess að fela hana fyrir alþýðu suður f Skildinganesi, ef þeir væru þess umkomnir..." Úr „ Þeir koma til yðar í sauðarklæðum" (Réttur 1930) (Skýring: Skildinganes var þá utan Reykjavíkur og þangað flúðu stóreigna- menn undan útsvörum etc.) 192
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.