Morgunblaðið - 19.01.2006, Page 2

Morgunblaðið - 19.01.2006, Page 2
FJÓRFALDAR LÍKUR Konur sem hafa stökkbreytingu í geninu BRCA2 eru fjórfalt líklegri í dag til að fá brjóstakrabbamein fyrir sjötugt en þær voru fyrir áttatíu árum. Áhætta íslenskra kvenna á brjóstakrabbameini hefur einnig fjórfaldast frá árinu 1920, eða úr 2,6% í 10,7%. Aukin sala á alifuglakjöti Heildarsala á kjöti jókst um 2,8% á síðasta ári frá árinu á und- an en skv. bráðabirgðatölum voru seld 22.728 tonn af kjöti. Hlutfalls- lega var mest aukning í sölu á ali- fuglakjöti eða um 14,9% á milli ára. Samdráttur varð hins vegar í sölu á svína-, nautgripa- og hrossakjöti. Evrópuríki gagnrýnd Í nýrri skýrslu mannréttinda- samtakanna Human Rights Watch eru Evrópuríki sökuð um að taka viðskiptahagsmuni og samstarf í baráttunni gegn hryðjuverkum fram yfir mannréttindi. Samtökin segja t.a.m. að bresk stjórnvöld hunsi mannréttindabrot í Rúss- landi og Sádi-Arabíu til að tryggja Bretum ábatasama viðskiptasamn- inga. Livni utanríkisráðherra Ehud Olmert, starfandi forsætis- ráðherra Ísraels, skipaði í gær Tzipi Livni í embætti utanrík- isráðherra. Verður hún önnur kon- an í sögu Ísraels til að gegna því embætti.                                    Yf ir l i t VERIÐ er að stofna Félag tónlistarnema (FTN), hagsmunasamtök tónlistarnema sem undirbúa nú kæru til umboðsmanns Alþingis vegna meintrar ólöglegrar skerðingar sveitarfélaganna á niður- greiðslum með tónlistarnemendum. Telja þeir að með skerðingu brjóti sveitarfélögin gegn jafnræð- isreglu stjórnarskrárinnar og krefjast þeir þess að þau leysi deilur sínar við ríkið og sín á milli án þess að það bitni á tugum eða hundruðum tónlistarnema. Að mati nemanna setja nýjar reglur Menntaráðs um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar við tón- listarskóla tónlistarlíf landsins í hættu og bitnar á stórum hluta tónlistarnema. Með reglunum miðast þjónustukaup borgarinnar m.a. við nemendur á aldrinum 4–25 ára en söngnem- endur upp að 27 ára aldri. Er þetta gagnrýnt af tón- listarnemum sem segja þetta merkja að skólagjöld fyrir einn vetur þrefaldist frá því sem verið hefur, eða frá 350 þúsund kr. upp í 600 þúsund þegar nem- inn er kominn yfir 25 ára aldur eða 27 ára í tilfelli söngnemans. Ekki sé óalgengt að lengra komnir nemar séu að læra á annað hljóðfæri með aðalhljóð- færi og hækkar þá kostnaður til muna. Leiða megi líkum að því að margir efnilegir tónlistarmenn þurfi að lúta í lægri haldi og snúa sér að öðru vegna breyt- inganna. Tónlistarnemar hyggjast stofna hagsmunasamtök Undirbúa kæru vegna skerðingar 2 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kópavogsbúar! Tryggjum Ármanni Kr. Ólafssyni, forseta bæjarstjórnar Kópavogs örugga kosningu í anna› sæti› til áframhaldandi forystu. Kosningaskrifstofa Bæjarlind 4 - Símar: 586 9090 og 899 9490 - Opi› frá kl. 16.00 ÁRÆ‹I OG UMHYGGJA ÁRMANN KR. ÓLAFSSON X-D, prófkjör í Kópavogi laugardaginn 21. janúar www.armannkr.is Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir Fasteignablað Miðborgar. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " # $ %          &         '() * +,,,                    Í dag Fréttaskýring 8 Viðhorf 32 Úr verinu 14 Umræðan 32/39 Erlent 16/17 Bréf 40 Minn staður 18 Minningar 40/43 Höfuðborgin 20 Myndasögur 48 Akureyri 20 Dagbók 48/53 Suðurnes 23 Staður og stund 50 Landið 23 Leikhús 52 Daglegt líf 24/25 Bíó 54/57 Neytendur 26/27 Ljósvakamiðlar 58 Menning 28/29 Veður 59 Forystugrein 30 Staksteinar 59 * * * GUÐRÚN Zoëga, formaður kjara- nefndar, segir að í frumvarpi ríkis- stjórnarinnar um kjaradóm og kjara- nefnd sé gert ráð fyrir því að laun þeirra sem undir kjaranefnd heyra verði fryst út árið. „Það er afar óheppilegt,“ segir hún. Í frumvarpi ríkisstjórnarinnar er m.a. kveðið á um það að úrskurðir kjaranefndar skuli, út árið, taka mið af samningsbundnum hækkunum kjarasamninga á hinum almenna vinnumarkaði. „Það felur m.a. í sér að kjaranefnd er ætlað að líta framhjá launaskriði og umsömdum launa- hækkunum Bandalags háskólamanna í maí nk.,“ segir Guðrún. Hún segir að samkvæmt samningi frá því í fyrra sé gert ráð fyrir kerf- isbreytingum hjá þeim BHM-fé- lögum, sem starfa hjá ríkinu, sem leiði til 3,8% launahækkana að með- altali. Fulltrúar þeirra aðila sem heyra undir kjaranefnd gengu á fund efna- hags- og viðskiptanefndar þingsins í gær, til að ræða frumvarpið um kjara- dóm og kjaranefnd. Í þeim hópi voru fulltrúar forstöðumanna ríkisstofn- ana og fulltrúar ráðuneytisstjóra. Ólafur Þ. Hauksson, formaður Sýslumannafélags Íslands, var einnig í þessum hópi. Hann segist gjalda varhug við því að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. „Við gjöldum var- hug við því að gripið sé inn í störf óháðra úrskurðaraðila, kjaranefndar og kjaradóms, með þeim sérstaka hætti sem felst í frumvarpinu.“ Hann segir að í maí sé gert ráð fyrir að laun opinberra starfsmanna hækki um u.þ.b. 3,8%. Það þýðir, segir hann, að þeir opinberir starfsmenn sem heyra undir kjaranefnd muni sitja á hakan- um, nái frumvarpið fram að ganga. Formaður kjaranefndar um frystingu launa í frumvarpi um kjaradóm „Þetta er afar óheppilegt“ Formaður Sýslumannafélagsins geldur varhug við samþykkt frumvarpsins Eftir Örnu Schram arna@mbl.is JÓHANN Pétursson var á leið frá Ólafsvík út á Hellissand, er hann kom auga á sérkennilegan fugl sem sat á grjótgarðinum undir Ólafsvík- urenni. Stoppaði Jóhann bifreið sína og fór að athuga með fuglinn og sá hann strax að þetta var fálki. Honum til mikillar undrunar var fálkinn hinn spakasti. Ekki tókst Jóhanni þó með góðu móti að fanga hann. Gylfi Scheving Ásbjörnsson kom honum til aðstoðar og tókst Gylfa að handsama fálkann. Fóru þeir félagar síðan með fuglinn í verbúð á Rifi og gaukuðu að honum matarbita. Ekki vildi fálkinn þiggja kræsingarnar en tók samt fljótlega að hressast. Var fálkinn slappur og skítugur er hann náð- ist, og sennilegast hefur múkki ælt á hann, enda er mikið um múkka undir Ólafsvíkurenni. Lík- legt er að lýsið hafi gert hann slappan. Verður fálkinn færður í Náttúrufræðistofnun til nánari athugunar. Morgunblaðið/Alfons Gylfi Scheving Ásbjörnsson með fálkann ásamt Jóhanni Péturssyni og Pétri Steinari Jóhannssyni. Með fálka í fóstri VINNUHÓPUR borgarstjóra um kjaramál leikskólakennara, sem myndaður var fyrir ára- mót, komst ekki að sameig- inlegri niðurstöðu og mun því ekki leggja fram sameiginleg- ar hugmyndir um kjarabætur fyrir launamálaráðstefnu sveitarfélaga sem fram fer á föstudag. Björg Bjarnadóttir, formað- ur félags leikskólakennara, segir eðlilega viss vonbrigði að ekki skyldi nást eining innan hópsins því væntingar hafi verið bornar til hans. Hún seg- ir að nú verði að treysta á sveitarstjórnarmenn. Aðspurð hvar viðræðurnar hafi strandað segir Björg ágreining fyrst og fremst hafa verið um túlkun bók- unar í kjara- samningum leikskóla- kennara Hún bendir þó á að margar leiðir hafi verið ræddar en samstaða hafi einfald- lega ekki náðst. „Ég vona að sveitarstjórnarmenn átti sig á þessum vanda, því hann er gríðarlegur, og hvaða afleið- ingar það getur haft ef ekkert verður að gert fyrr en í haust,“ segir Björg og vísar til yfirlýsinga félagsmanna sinna um uppsagnir. Samstaða náðist ekki innan vinnuhópsins Björg Bjarnadóttir KOSTNAÐARAUKI Orkuveitu Reykjavíkur milli áranna 2004 og 2005 vegna kerfisbreytinga í kjöl- far setningar nýrra raforkulaga, fyrir rúmlega ári, nam samtals 458 milljónum króna, samkvæmt grein Guðmundar Þóroddssonar, sem birt er í Morgunblaðinu í dag. Þar segir m.a. að árið 2004 hafi Orkuveitan greitt Landsvirkjun 3,65 krónur á kílówattstund og fól það í sér bæði orku og flutn- ing. Á nýliðnu ári greiddi OR Landsvirkjun hins vegar 3,22 kr./kWst fyrir orku.| 38 Breyting kostaði OR 458 milljónir ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.