Morgunblaðið - 19.01.2006, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
Yamaha píanó.
Yamaha píanó og flyglar
með og án SILENT búnaðar.
Veldu gæði – veldu Yamaha!
Samick píanó.
Mest seldu píanó á Íslandi!
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 357.000 kr.
Goodway píanó.
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 238.000 kr.
15 mán. Vaxtalausar greiðslur.
Estonia flyglar.
Handsmíðuð gæðahljóðfæri.
Steinway & Sons
Fyrir þá sem vilja aðeins það besta.
Til sýnis í verslun okkar.
H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð
Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350
Fjórir af hverjum tíu karlmönnum áaldrinum 45 til 75 ára lenda í vand-ræðum með stinningu til lengri eðaskemmri tíma, samkvæmt nýlegri
könnun, sem Gallup gerði á kynlífshegðun ís-
lenskra karlmanna. Sama könnun leiddi í ljós
að einungis einn af hverjum fjórum körlum með
ristruflanir leita sér aðstoðar. 85% þeirra, sem
kusu að fara þá leið, reyndust mjög ánægðir
með þá meðferð, sem þeir fengu.
Kynlífshegðunin kortlögð
Könnunin var gerð að frumkvæði fjögurra ís-
lenskra lækna, þvagfæraskurðlæknanna Guð-
mundar Vikars Einarssonar og Guðmundar
Geirssonar, Gests Þorgeirs-
sonar hjartasérfræðings og
Óttars Guðmundssonar geð-
læknis. Markmið könnunar-
innar var einkum að kort-
leggja kynlífshegðun
íslenskra karlmanna á aldr-
inum 45 til 75 ára. Nið-
urstöðurnar hafa verið
kynntar á fundum með
læknum.
„Í stuttu máli má segja að
niðurstöður íslensku könn-
unarinnar séu mjög áþekkar sambærilegum
könnunum á Vesturlöndum, bæði í Evrópu og í
Bandaríkjunum. Ljóst er að stór hluti karl-
manna í þessum aldursflokki á við veruleg kyn-
lífsvandamál að stríða og eftir því sem aldurinn
færist yfir, aukast vandamálin. Á hinn bóginn
kom í ljós að íslenskir karlmenn stunda senni-
lega meira kynlíf en við áttum von á, en karl-
menn á aldrinum 65–75 ára virðast hafa sam-
farir að jafnaði einu sinni til fimm sinnum í
mánuði,“ segir Guðmundur Vikar Einarsson,
þvagfærasérfræðingur, í samtali við Daglegt líf.
Afleiðing sjúkdóma og aðstæðna
Hér áður fyrr var almennt talið að risvanda-
mál mætti helst rekja til sálrænna orsaka. Nú
er öldin önnur enda telja sérfræðingar að lík-
amlegar orsakir eigi ekki síður hlut að máli en
þær sálrænu.
Í mjög fáum tilvikum er beinlínis um að
kenna samskiptavanda við maka þó vandamálið
geti auðveldlega haft neikvæðar afleiðingar á
sambúð og hjónaband. Þó tíðni risvandamála
aukist með aldri, er stinningarvandi þó ekki
eðlileg og óumflýjanleg afleiðing þess að eldast,
segir Guðmundur Vikar. „Miklu fremur er um
að ræða afleiðingu sjúkdóma eða aðstæðna,
sem fylgja hækkandi aldri. Greinileg fylgni er
til dæmis á milli stinningarvanda og ákveðinna
sjúkdóma á borð við hjarta- og æðasjúkdóma,
þunglyndis og annarra geðsjúkdóma. Æðakölk-
un er til að mynda algeng þegar kemur að ris-
vandamálum karlmanna, en við æðakölkun
þrengjast æðar og eru ekki eins teygjanlegar
og áður auk þess sem blóðstreymi minnkar.
Risvandi getur svo líka tengst ákveðnum lyfj-
um.“
Til eru sex meðferðarúrræði
Meðferðarmöguleikum hefur fleygt fram á
síðustu árum og því er engin ástæða til að sætta
sig við viðvarandi stinningarvanda. Að sögn
Guðmundar Vikars eru sex mismunandi með-
ferðarúrræði til gegn vandamálinu sem öll geta
brotið upp ákveðinn vítahring, sem pör eru að
fást við í kynlífinu.
Langalgengasta meðferðarformið nú til
dags eru lyf í töfluformi sem ýmist ganga undir
heitinu Viagra eða Cialis. Þær fást afhentar
gegn lyfseðli og þarf kynlöngun að vera til stað-
ar svo að lyfin virki.
Í öðru lagi eru til lyf í sprautuformi sem
sprautað er í liminn fyrir samfarir með mjórri
sprautunál. Stinning verður jafnvel án kynörv-
unar og virkar lyfið hjá um sjö karlmönnum af
hverjum tíu.
Í þriðja lagi er þeim karlmönnum, sem
eiga við risvanda að etja sökum þunglyndis eða
annars sálarstríðs, oft vísað í viðtalsmeðferðir
til sálfræðinga, geðlækna eða kynlífsráðgjafa.
Í fjórða lagi geta orsakir fyrir risvanda
verið minnkaðir karlkynshormónar og þá eru
karlkyns hormónar gefnir í sprautu- eða krem-
formi.
Í fimmta lagi geta sumir karlmenn haft
gagn af svokallaðri risdælu sem pumpar upp
liminn og samanstendur af sívölu röri, dælu og
teygju. Þessi aðferð er gömul og ekki algeng nú
á tímum.
Í sjötta og síðasta lagi eru gerðar tvenns
konar aðgerðir, annaðhvort æðaaðgerðir eða
ísetning svokallaðra risstólpa, en slíkum að-
gerðum hefur fækkað mjög með tilkomu töflu-
formsins.
Hollir lífshættir hjálpa til
Eins og með svo margt annað eru hollir lífs-
hættir í beinum tengslum við farsælt kynlíf og
geta karlmenn gripið til ýmissa fyrirbyggjandi
ráðstafana. Þeir geta t.d. lagt sig eftir því að
borða hollan mat, hreyft sig reglulega, drukkið
mikið vatn og haft fulla stjórn á neyslu áfengis.
Þeir geta að sama skapi slökkt í síðustu sígar-
ettunni, reyki þeir, enda er beint orsaka-
samband milli reykinga og ristruflana. Þeir
geta líka slakað á og minnt sig reglulega á að
aldrei er of seint að taka upp heilbrigðari lífs-
hætti.
Risvandamál eru algengustu ástæður fyrir
því að karlmenn leita aðstoðar sérfræðinga, að
sögn Guðmundar Vikars, en á hinn bóginn geta
fjölmargir þættir spilað inn í ef vart verður
minnkandi kynlífslöngunar og áhuga.
„Kynlífsvandamál valda karlmönnum oft
miklu hugarangri og vanlíðan og því viljum við
læknar endilega hvetja menn, sem eru að
burðast með sín vandamál úti í horni, til þess að
leita sér aðstoðar. Það er algjör óþarfi að láta
ástandið líðast enda er margt vinnandi fyrir
gott og heilbrigt kynlíf,“ segir Guðmundur Vik-
ar.
KYNLÍF | Ristruflanir hrjá 40% íslenskra karlmanna á aldrinum 45–75 ára
join@mbl.is
maka. Þó að risvandi kunni að bitna á sam-
förum, þýðir það ekki að karlmaðurinn sé
ófrjór og geti ekki haft sáðlát eða fengið full-
nægingu. „Margir karlmenn meta að hluta til
eigin verðleika út frá hæfileikum sínum á sviði
kynlífsins. Ef þeir ná ekki stinningu eða tekst
ekki að viðhalda henni getur það haft sálræn
áhrif á þá. Vonbrigði geta komið fram, tauga-
titringur og áhyggjur af frammistöðu, einnig
reiði, þunglyndi og öryggisleysi. Vandamálið
getur einnig kallað fram viðlíka sterkar tilfinn-
ingar hjá konum, sem margar fara að ímynda
sér að þær séu ekki nógu aðlaðandi og kven-
legar ef karlinn á í vandræðum með stinningu.
Stinningarvandi getur þannig smátt og smátt
farið að orka á aðra þætti sambúðarinnar með
spennu og tilfinningalegri fjarlægð. Pör, sem á
hinn bóginn vinna saman að því að ná góðu
kynlífi, uppskera vel í flestum tilvikum,“ segir
m.a. á nýja upplýsingavefnum.
Á GLÆNÝJUM upplýsingavef lyfjafyrirtæk-
isins Pfizer, www.ristruflanir.is, er m.a. að
finna spurningalista, sem á að hjálpa mönnum
að finna það út hvort þeir eigi við ristruflanir
að etja eða ekki áður en farið er af stað í leit
að viðhlítandi meðferð hjá læknum eða öðrum
sérfræðingum. Próf þetta hefur verið notað af
heilbrigðisstarfsfólki víða um heim með góð-
um árangri enda er um að ræða viðurkenndan
staðlaðan kvarða, sem gefur vísbendingu um
hversu mikil ristruflunin er. Slóð vefjarins er
www.ristruflanir.is.
Að sögn Örnu Hansen, markaðsfulltrúa hjá
Pfizer, sem Vistor hf. er umboðsaðili fyrir hér
á landi, var fyrirmynd að vefnum sótt til
Dana, en fram hefur komið í könnunum að
langflestir karlmenn vilja leita eftir haldgóð-
um upplýsingum á Netinu. Hægt er að senda
inn fyrirspurnir um hvaðeina er við kemur
kynlífsvandamálum karlmanna og verður
Guðmundur Vikar Einarsson þvagfæra-
skurðlæknir til svara.
Vefurinn hefur jafnframt að geyma ráð til
Staðlað próf metur vandann
Nýr upplýsingavefur um ristruflanir
„Óþarfi er að láta ástandið líðast“
Líkamlegar orsakir liggja ekki síður
en sálrænar að baki stinningarvanda
hjá karlmönnum. Guðmundur Vikar
Einarsson, þvagfærasérfræðingur,
sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur að
íslenskir karlmenn veigruðu sér
við að leita aðstoðar sérfræðinga
því aðeins fjórðungur af þeim,
sem ættu við risvanda að etja,
bæði um hjálp.
Guðmundur Vikar
Einarsson, þvag-
færasérfræðingur
TENGLAR
..........................................................
www.ristruflanir.is