Morgunblaðið - 19.01.2006, Page 38

Morgunblaðið - 19.01.2006, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN VIÐ það að vera greindur með krabbamein tekur lífið óvænta stefnu. Stefnu sem enginn einstakl- ingur er undirbúinn fyrir. Allar að- stæður einstaklingsins gerbreytast. Félagslegar aðstæður krabbameinsgreindra Krabbameinslækningar taka mikið á einstaklinginn og tekur meðferð mislangan tíma. Það sem hefur aftur á móti komið mér á óvart er hvernig hlúð er að félags- legri hlið krabbameinssjúklinga. Þar sem ég hef ekki átt erfitt með að aðlaga mig sjúkdómi mínum brá mér þegar ég fór að kynna mér bet- ur félagslegar aðstæður krabba- meinssjúkra hér í landinu. LSH býður sem spítali upp á endurhæf- ingu, sjúkraþjálfun, næringarfræð- ing, félagsráðgjafa og sálfræðinga. Öll þessi þjónusta er meira og minna vannýtt. Margar ástæður liggja að baki en fyrst og fremst er um að kenna að sjúklingar eru ekki hvattir til að nota sér þjónustu LSH nema í litlum mæli. Það er staðreynd að mikið af sjúklingum dettur niður í þunglyndi ásamt því að berjast við kvíða og ótta. Eftir því sem sjúklingurinn er eldri eru meiri líkur en ella til þess að hann einangri sig. Mikið er um að krabbameinsgreindir einstaklingar mæti sínum sjúkdómi með hörku og um leið og þeim gefst færi á fari þeir á fullt í vinnu. Það andlega áfall sem sjúkdómsgreiningin er reynir sjúklingurinn að loka inni í hugskoti sínu. Oft ber á bitur- leika og reiði. Eins og ég gat um fyrr er erfitt að sætta sig við breyttar aðstæður. Krabbamein, bara orðið, er í huga flestra dauðadómur. Stafar það að- allega af vanþekkingu almennings. Einstaklingur sem greinist þarf ekki bara að stríða við sjúkdóm sinn, heldur stríðir hann líka við vanþekkingu aðstandenda. Símtöl frá fólki og sögur um hinn og þenn- an sem höfðu fengið sjúkdóminn herja á einstaklinginn. Eins er mjög mismunandi hvernig hinir nánustu taka fregnum um sjúkdóm- inn. Það er engin tilviljun að þung- lyndi skuli sækja að einstaklingnum ásamt því að vera haldinn kvíða og ótta, ekki síst þar sem í fyrstunni er fræðslan um sjúkdóminn af skorn- um skammti. Nóg er áfallið við greininguna. Þess vegna er nauð- synlegt að bæta úr fé- lags- og sálfræðistuðn- ingi við sjúklinga og aðstendendur. Og þess vegna vil ég benda á tvo viðburði sem ég mæli með og verða í þessari viku. Námskeiðið Að lifa með krabbameini Námskeiðið er hald- ið á vegum Krabba- meinsfélags Reykja- víkur og krabbameins- deildar LSH í Skógarhlíð (húsi Krabbameinsfélags Íslands) og hefst fimmtudagskvöldið 19. janúar kl. 20. Námskeiðið er betur kynnt á heimasíðunni krabb.is og fólk getur einnig skráð sig á krabbameins- deild LSH. Vel er látið af námskeiði þessu en það hefur verið haldið síð- an 2001 og er að erlendri fyrir- mynd. Námskeiðið stendur í átta vikur. Það er þátttakendum að kostnaðarlausu. Stofnfundur Ljóssins Síðan í haust hefur hópur krabbameinssjúkra tekið sig saman og rekið félagsaðstöðu í safnaðar- heimili Neskirkju. Þar hefur tekist að hafa starfsemi fjóra daga vik- unnar þar sem fólk hefur komið saman og skipst á skoðunum og Að lifa með krabbamein Haukur Þorvaldsson fjallar um félagslegar aðstæður krabbameinssjúkra Haukur Þorvaldsson ENDURNÝJAÐUR Reykjavík- urflugvöllur í Vatnsmýrinni mun gegna mikilsverðu hlutverki um ókomin ár. F-listinn er eina aflið í borgar- stjórn, sem beitir sér fyrir því að Reykjarvíkurflugvelli verði tryggð staðsetning í Vatnsmýrinni. Þar liggja til grundvallar öryggis- og hagkvæmnissjónarmið fyrir lands- menn í heild. Áróður gegn Reykjavíkurflugvelli Því miður hefur einhliða áróður gegn núverandi staðsetningu Reykjavíkurflugvallar og fyrir mikilvægi þess að flugvöllurinn víki fyrir annarri starfsemi yfirskyggt alla umræðu um hvað vegi þyngst við val á staðsetningu flugvallarins. Engin tilviljun réði, þegar vellinum var upphaflega valinn staður. Þeir sem skyn báru á tæknilega hlið flugmála og hún skiptir höfuðmáli þegar flugvallarstæði er valið, gerðu sér ljósa grein fyrir yfirburð- um Vatnsmýrarinnar yfir alla aðra staði sem til greina komu. Staðsetn- ing Reykjavíkurflugvallar er niður undir sjávarmáli og í mestri mögu- legri fjarlægð frá fjallgörðum næst Reykjavík. Hún var jafnframt í næsta nágrenni miðju Reykjavíkur þess tíma. Taki menn eftir að í flest- um tilfella er skyggni skást yfir Reykjavíkurflugvelli, löngu eftir að súld nær niður í fjalla- og heiðaræt- ur næst Reykjavík. Allt tal um að rétt sé að kanna möguleika á flutningi vallarins austur fyrir Reykjavík upp í allt að 200 m hæð yfir sjávarmáli er því slíkt óráð, að engu tali tekur. Einnig að vit- legt sé að staðsetja hann á útskerjum. Verðmæti Vatnsmýrar Hávær umræða hef- ur ríkt á undanförnum árum um að Vatns- mýrin sé svo verðmæt og mikilvæg til frekari vaxtar hins gamla mið- bæjar Reykjavíkur að Reykjavíkurflugvöllur verði að víkja. Megin- orsök útþenslu Reykjavíkur til aust- urs á undanförnum áratugum sé alfarið að kenna staðsetningu flugvallar í Vatnsmýr- inni. Hér er því miður um mikla einföldun á þróun byggð- ar í Reykjavík að ræða. Í bæj- arstjórnarkosningum 1946 var tek- ist á um hvernig haga skyldi uppbyggingu Reykjavíkur til fram- tíðar litið. Sósíalistar vildu leggja áherslu á uppbyggingu innan Hringbrautar (Snorrabraut – Hringbraut) en stefna Sjálfstæðis- flokksins um einbýlishúsahverfi í Smáíbúðarhverfinu varð ofan á. Engum kom til hugar að besti bygg- ingarkosturinn væri í mýrum bæjarlandsins. Menn lögðu eðlilega áherslu á að byggja á hinum fjölmörgu hæð- um þess. Ef flugvöllur- inn hefði ekki verið til staðar, hefði að sjálf- sögðu komið að því að Vatnsmýrin, þrátt fyr- ir djúpa og dýra grunna, yrði nýtt. En það hefði ekki verið fyrir lágreista smá- hýsabyggð, eins og nú er rætt um, heldur stórar blokkir. Við megum því kall- ast heppin að hafa sloppið við slíka upp- byggingu Vatnsmýrar- innar. Hér á norðurhjara, þar sem sól skríður rétt yfir sjóndeildar- hring um miðjan vetur, skiptir höfuðmáli að hafa lágreist hús á flat- lendi í syðsta hluta borgarlandsins. Íslendingum hlotnaðist því ekki einungis frábærlega staðsettur inn- anlands- og millilandaflugvöllur að gjöf frá Bretum að aflokinni síðari heimsstyrjöld, heldur varð flugvöll- urinn til þess að við eigum nú ein- stakt svæði til ráðstöfunar sem miklu skiptir að vel takist til um nýtingu á. Reykjavíkurflugvöllur Sveinn Aðalsteinsson segir frá afstöðu F-listans til Reykjavíkurflugvallar Sveinn Aðalsteinsson ’F-listinn ereina aflið í borg- arstjórn, sem beitir sér fyrir því að Reykja- víkurflugvelli verði tryggð staðsetning í Vatnsmýrinni.‘ Höfundur er viðskiptafræðingur og varafulltrúi F-listans í skipulagsráði. ÖRYRKJABANDALAGIÐ sem á að hafa manngæsku og kærleika í fyrirrúmi, er í vondum málum, svo vondum að forustumenn þess eru ekki marktækir eins og á stendur, því það mannhatur og fyr- irlitning, lítillækkun og dónaskapur sem þeir hafa sýnt „fráfar- andi“ framkvæmda- stjóra Öryrkjabanda- lagsins, Arnþóri Helgasyni, með brott- vikningu hans úr starfi er á þann veg að ég er sannfærður um að þorri Íslend- inga er agndofa af hryggð. Þótt aðeins helm- ingurinn væri réttur af mögnuðu og ein- lægu viðtali við Arn- þór Helgason í Kast- ljósinu sl. sunnudags- kvöld, hafa honum verið sýnd vinnu- brögð og viðmót, sem gengur ekki í sið- menntuðu og fá- mennu samfélagi. Ætli mönnum sé ekki nóg brugðið af mannáti á Íslandi að undanförnu og síð- ustu ár hefur það að- eins verið tímaspurs- mál hvenær þeir sem allt vita og smíða einn sannleika gengju of langt í mannlegum samskiptum sam- félags sem um aldir hefur talsvert virt þá íslensku lífs- speki að aðgát skal höfð í nærveru sálar. Það hlaut að koma að því að venjulegir borgarar þessa lands gætu ekki lifað af atlöguna þegar fjölmiðlamóðursýkin fer úr öllum böndum, slúðrið, illgirnin, lygin, öf- undin. Þótt margt gott megi segja um Sigurstein Másson getur hann ekki með neinu móti styrkt stöðu Öryrkjabandalagsins í framtíðinni með þeim vinnubrögðum sem hann stendur í forsvari fyrir. Hvorki Öryrkjabandalagið sjálft, né aðild- arfélög, hvað þá Blindrafélagið eitt sér geta staðið að slíkum ódreng- skap og lítilsvirðingu sem Arnþóri Helgasyni hefur verið sýnd. Það kann að vera að augu Sigursteins sjái hlutina í öðru ljósi en augu Arnþórs, en það skyldi þó aldrei vera að augu blinda mannsins sæju meiri víðsýni, von og virð- ingu en þess alsjáandi. Forustumaður hvort sem er í félagi, fyrir- tæki, eða stofnun, sem grætir starfsmenn við skyndilegan brott- rekstur án nokkurra skýringa sem hægt er að taka gildar, hann hefur slegið virki úr ís í kring um það sem hann ætlaði hugs- anlega til að skapa hlýja strauma út í þjóðfélagið. Arnþór Helgason hefur aldrei verið allra, en hann er besti drengur og hefur alla tíð verið sjálfum sér samkvæmur og rök- fastur. Allir sem ætla að ná árangri verða að þola skiptar skoðanir til þess að von sé til ár- angurs og það gengur ekki að henda manni fyrir borð, út í sortann, eins og hér hefur verið gert. Það eina sem Öryrkjabandalagið getur gert er að biðj- ast afsökunar á þess- um herfilegu mistök- um, bæði Arnþór Helgason og íslensku þjóðina, og ráða hann aftur til starfa á viðunandi hátt. Sigursteinn Másson væri maður að meiri og Öryrkjabandalagið getur ekki tekið þátt í þessum hráskinnsleik þegar atburðarásin liggur á borðinu. Það hefur örugglega hent margan land- ann eins og mig í nótt að eiga erfitt með að sofna eftir viðtalið í Kast- ljósi á sunnudagskvöldið. Í slíkri andvöku er þessi pistill skrifaður. Ráðið Arnþór Helgason aftur Árni Johnsen skrifar um lítils- virðingu Öryrkjabandalagsins við starfsmann sinn Árni Johnsen ’HvorkiÖryrkja- bandalagið sjálft, né aðildarfélög, hvað þá Blindrafélagið eitt sér geta staðið að slíkum ódrengskap og lítilsvirðingu sem Arnþóri Helgasyni hefur verið sýnd.‘ Höfundur er stjórnmálamaður, blaða- og tónlistarmaður. TÖLUVERÐ umræða hefur verið í þjóðfélaginu undanfarnar vikur um áhrif þeirra kerfisbreytinga sem urðu með setningu nýrra raf- orkulaga fyrir einu ári. Nú er fyrsta árið liðið og hægt að bera saman raunverulegan kostn- að. Staðreynd málsins er sú að árið 2004 greiddi Orkuveitan Landsvirkjun 2.942 milljónir fyrir 805 milljón kWst eða 3,65 kr/kWst og innifól það bæði orku og flutning. Á sl. ári greiddi Orku- veitan Landsvirkjun 3,22 kr/kWst fyrir orku og Landsneti 0,86 kr. fyrir flutning á sömu orku eða samtals 4,08 kr/kWst sem er 11,7 % hærra verð en árið áð- ur. Þar sem bæði Landsvirkjun og Landsnet eru undir forræði ríkisvaldsins, trúi ég ekki að neitt annað en bein þörf vegna nýrra aðstæðna, eins og mun víðfeðm- ara flutningskerfi, sé forsenda þessara hækkana. Kostnaðar- aukning Orkuveitunnar af þessari 11,7% hækkun var 200 milljónir á sl ári. Orkuveita Reykjavíkur þarf nú einnig að borga fyrir flutning á eigin orku yfir eigin línur til Landsnets, flutningsfyrirtækis raforkumark- aðarins, sem hefur skv. nýjum raf- orkulögum einkaleyfi á flutningi raf- orku. Þannig greiddi Orkuveitan 388 milljónir fyrir flutning á eigin orku- framleiðslu inn á almennan markað sinn á sl. ári en á móti greiddi Landsnet Orkuveitunni 130 milljónir í leigu fyrir flutningsmannvirki hennar. Kostnaðarauki Orkuveit- unnar af flutningi á eigin orkufram- leiðslu fyrir almennan markað er því 258 milljónir á sl. ári. Samtals var því kostnaðarauki Orku- veitunnar milli áranna 2004 og 2005 vegna kerfisbreytinga 458 milljónir króna. Þar sem heildarsmásölu- markaður Orkuveit- unnar var um 6300 milljónir á sl. ári hefði þurft 7,3 % hækkun á almenna markaðnum á veitusvæði hennar ein- göngu til að mæta auknum greiðslum til ríkisfyrirtækjanna Landsnets og Lands- virkjunar. Orkuveitan ákvað hins vegar að mæta þessum verð- hækkunum með því að fullnýta Nesjavalla- virkjun og lækka arð- semiskröfur eigin virkjana verulega og nota það lag til að lág- marka hækkun á raf- orku til viðskiptavina Orkuveitunnar. Því hækkaði raforka hjá Orkuveitunni einungis innan við helming af því sem kostn- aðaraukinn hafði í för með sér, eða um 4% að meðaltali hjá viðskipta- vinum OR. Auk þessa frestaði Landsvirkjun 10 aura hækkun á kWst fyrir ári en sú ákvörðun á að taka gildi um þess- ar mundir. Ef af þeirri hækkun verður leiðir það til um 60 milljóna kostnaðarauka fyrir Orkuveituna sem veldur 1% hækkun á raforku- verði viðskiptavina hennar. Til við- bótar við þær beinu kostnaðarhækk- anir sem Orkuveitan varð fyrir, þurfti að gera breytingar á verð- flokkum raforkudreifingar, þar sem ekki er lengur heimilt að takmarka ákveðnar gerðir verðflokka við til- tekna notkun. Þetta leiddi til þess að sum iðnfyrirtæki urðu fyrir mun meiri hækkun en meðaltalið segir til um, en að sama skapi varð hækkunin minni hjá almenningi og minni fyrir- tækjum. Kostnaður hjá Orkuveitu Reykjavíkur hækkaði um 12% Guðmundur Þóroddsson fjallar um orkuverð ’Auk þessafrestaði Lands- virkjun 10 aura hækkun á kWst fyrir ári en sú ákvörðun á að taka gildi um þessar mundir. ‘ Guðmundur Þóroddsson Höfundur er forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.