Morgunblaðið - 19.01.2006, Síða 39
styrkt hvert annað. Föstudaginn
20. janúar nk. kl. 13 er ætlunin að
halda formlegan stofnfund fyrir fé-
lagsskapinn og kynna einnig starf-
semi Ljóssins. Fundurinn er opinn
öllum krabbameinssjúkum og að-
standendum þeirra. Þar sem ég hef
undanfarið kynnt mér og tekið þátt
í starfsemi félagsins vil ég eindreg-
ið hvetja sem flesta til að mæta og
gerast stofnfélagar með okkur.
Forstöðumaður Ljóssins er Erna
Magnúsdóttir iðjuþjálfi sem hefur
til margra ára séð um iðjuþjálfun
við endurhæfingu krabbameins-
deildar LSH. Tilgangur okkar er sá
að krabbameinsgreindir og að-
standendur þeirra geti á einum stað
fengið alla þá þjónustu og ráðgjöf
sem þörf er á.
Aðstandendur krabbameins-
sjúkra hvet ég til að ýta við sínu
fólki og taka þátt í skapandi endur-
hæfingu ásamt góðu félagsstarfi í
uppbyggjandi umhverfi.
’Þar sem ég hef undan-farið kynnt mér og tekið
þátt í starfsemi félags-
ins vil ég eindregið
hvetja sem flesta til að
mæta og gerast stofn-
félagar með okkur.‘
Höfundur er öryrki.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 39
UMRÆÐAN
JÓN Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs, notaði leppana Gunnar
Smára Egilsson og Ragnar Tómas-
son lögfræðing til að stofna sumarið
2002 útgáfufyrirtæki sem tók yfir
gjaldþrota Fréttablað.
Viðskiptahugmynd Jóns Ásgeirs
var að láta verslanir í eigu Baugs;
m.a. Bónus, Hagkaup og Deben-
hams, kaupa auglýsingar í Frétta-
blaðinu til að festa blaðið í sessi.
Baugur var almenningshlutafélag á
þessum tíma og óeðlilegt, ef ekki
ólöglegt, að forstjóri Baugs myldi
undir einkafyrirtæki sitt með því að
láta Baug kaupa þar auglýsingar.
Ári eftir að Jón Ásgeir fékk leppa
til að stofna fyrir sig útgáfufélag var
í Fréttablaðinu hinn 2. maí 2003 til-
kynnt hverjir væru eigendur útgáfu-
félagsins. Auk leppanna tveggja,
Gunnars Smára og Ragnars, áttu fé-
lagið Jón Ásgeir, sambýliskonan
Ingibjörg Pálmadóttir og Jóhannes
faðir hans, Árni Hauksson í Húsa-
smiðjunni og viðskiptafélaginn
Pálmi Haraldsson. Það var engin til-
viljun að eignarhaldið var fyrst upp-
lýst eftir að Baugur var afskráður
sem almenningshlutafélag. Eftir að
feðgarnir og viðskiptafélagar þeirra
eignuðust félagið gat enginn fett
fingur út í auglýsingastreymið frá
Baugsversluninni til Fréttablaðsins.
Á meðan leynd hvíldi yfir eign-
arhaldinu stundaði Jón Ásgeir rógs-
herferð gegn þáverandi forsætisráð-
herra, Davíð Oddssyni. Þann 1. mars
2003 birti Fréttablaðið tölvupósta og
fundargerðir Baugs í forsíðufrétt
sem átti að renna stoðum undir þá
skoðun Jóns Ásgeirs að forsætisráð-
herra stæði að baki rannsókn lög-
reglu á bókhaldi Baugs. Í fréttinni
var vitnað beint í Jón Ásgeir og
langlíklegast er að hann hafi lagt til
trúnaðargögn Baugs, þótt hann
þræti fyrir. Tveir stjórnarmenn í al-
menningshlutafélaginu Baugi, þau
Þorgeir Baldursson, forstjóri prent-
smiðjunnar Odda, og Guðfinna
Bjarnadóttir, rektor Háskólans í
Reykjavík, sögðu sig úr stjórninni
vegna trúnaðarbrests.
Jón Ásgeir hefur frá fyrstu tíð
verið með puttana í fréttastefnu og
áherslum fjölmiðla í sinni eigu og
beinlínis lagt þeim til efni. Hann er
réttnefndur yfirritstjóri Baugs-
miðla.
Jón Ásgeir yfirritstjóri
Baugsmiðla
Pál Vilhjálmsson fjallar
um Fréttablaðið
Páll Vilhjálmsson
’Jón Ásgeir hefur fráfyrstu tíð verið með
puttana í fréttastefnu og
áherslum fjölmiðla í
sinni eigu …‘
Höfundur er blaðamaður.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IS
P
31
01
7
0
1/
20
06
www.postur.is
Fljúgandi hálka?
Á veturna er allra veðra von. Við hjá Póstinum beinum þeim
vinsamlegu tilmælum til þín að halda aðgangi greiðum að húsinu
þegar snjóar og strá salti eða sandi á hálkubletti. Aðstoð þín og
tillitssemi auðvelda okkur að koma póstinum til þín hratt og
örugglega hvernig sem viðrar.
Með fyrirfram þökk.
Innihaldið skiptir máli