Morgunblaðið - 19.01.2006, Síða 60

Morgunblaðið - 19.01.2006, Síða 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga Jóhanna Thorsteinson – þinn liðsmaður 2. sætiðwww.johanna.is Framboð til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi 21.janúar 2006 ÁHUGINN á Olíufélaginu Esso ehf. er í takt við væntingar fyrir- tækjaráðgjafar Íslandsbanka, eða jafnvel meiri, að sögn Arnar Gunn- arssonar, forstöðumanns fyrir- tækjaráðgjafar Íslandsbanka. Hann segir að bæði innlendir og erlendir aðilar hafi sýnt félaginu áhuga. „Það kemur okkur hins vegar á óvart hvað áhuginn er mikill erlend- is frá,“ segir Örn. Ef miðað er við niðurstöður í af- komuspá Greiningar Íslandsbanka fyrir félög í Kauphöll Íslands, sem birt var hinn 9. janúar síðastliðinn, má ætla að heildarverðmæti Olíufé- lagsins geti verið í kringum 15–20 milljarðar króna. | B6 Útlendir aðilar sýna Esso áhuga ÉG MAN nú fyrst og fremst eftir fyrsta heljarstökkinu sem bíllinn tók. […] Ég rankaði við mér og bíllinn var á hjólunum í gangi á árbakkanum,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, við blaðamenn á sjúkra- stofu sinni á Landspítalanum við Hringbraut í gær. Eins og kunn- ugt er lenti hann í alvarlegri bíl- veltu á mánudagskvöld. Öll mik- ilvægustu líffæri sluppu en þrettán rifbein brotnuðu m.a. og þarf hann að dveljast á sjúkrahúsi næstu daga og vikur. „Það eina sem ég vil fá að segja af pólitískum toga er að það gleð- ur mig sem hefur verið að gerast í Þjórsárveramálinu undanfarna daga. Mér finnst að það vanti bara herslumuninn að klára mál- ið,“ sagði Steingrímur. „Það er augljóst mál að það á ekkert að gera annað en að fá málið end- anlega út af borðinu. Það myndi gleðja mig mjög hér á sjúkra- sænginni að fá þær fréttir, þó ég segi ekki meira.“ Margbrotinn en brattur þó Morgunblaðið/Brynjar Gauti Man eftir | 6 EFTIR kuldakast undanfarinna daga hækkaði hitastigið í höfuðborginni í gær svo um munaði með tilheyrandi hláku. Nokkuð var um minnihátt- ar vatnsleka af þessum sökum samkvæmt upplýs- ingum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Ökumenn voru þó enn að festa bíla sína í snjó- sköflum í gær enda töluverður snjór enn í fá- farnari götum sem ekki var búið að ryðja. En hvað tekur nú við? Von er á suðlægri átt í dag og 3–8 metrum á sekúndu, skúrum eða slydduéljum, en snjóéljum eftir hádegi. Hiti verður á bilinu núll til þrjú stig. Á morgun mega Sunn- lendingar hins vegar eiga von á því að frysta fari á ný. Á það reyndar við um mest allt land, þegar vindur snýst í norðlæga átt, það bætir í vind og kólnar nokkuð. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fengum hláku í kjölfar hálku MIKIL aukning hefur orðið á heita- vatnsnotkun á veitusvæðum Orku- veitu Reykjavíkur vegna kuldakasts- ins sem hefur ríkt undanfarna daga. Í fyrradag kl. 18.40 dældi Orkuveitan 13.785 tonnum af heitu vatni inn á veitusvæðin á klukkustund, sem er mesta magn til þessa í vetur. Að sögn talsmanna Orkuveitunnar samsvarar þetta um 850MW af rafmagni, sem er meira en Kárahnjúkavirkjun fram- leiðir, ef hitað væri með rafmagni. Til samanburðar er rafmagnsframleiðsl- an á Nesjavöllum 120 MW. „Að jafnaði á venjulegum vetrar- degi dælum við um 10 þúsund tonn- um af vatni, svo þetta er veruleg auk- ing,“ segir Helgi Pétursson, verkefnastjóri hjá Orkuveitunni. „Til fróðleiks má miða við að á góðum sumardegi í ágúst fellur notkunin niður í um 3.000 tonn á klukku- stund.“          !!!            ! ! "   !"! ! "!   @  #$ Heitavatns- notkunin rýkur upp FÉLAG í eigu Jóns Helga Guðmunds- sonar, sem kenndur er við BYKO, hefur keypt og fengið afhentan 51% hlut í lettn- eska bankanum JSC Lateko Banka. Einnig keypti Ice-Balt Invest, félag í eigu Þorsteins Ólafssonar og Vitalij Gavrilov, 9% hlut í bankanum. Kaupverðið er trún- aðarmál en heildar- eignir bankans eru metnar á um 30 millj- arða króna og er bank- inn sá tíundi stærsti í Lettlandi. Starfs- menn eru um 550, útibú eru 10 og starfsstöðvar 67. Jón Helgi segist í samtali við Við- skiptablað Morgunblaðsins telja að miklir vaxtarmöguleikar séu á fjármálamark- aðnum í Lettlandi enda muni miklar breytingar eiga sér stað þar. | B2 Kaupir lettneskan banka Jón Helgi Guðmundsson FJÓRIR af hverjum tíu íslenskum karl- mönnum á aldrinum 45 til 75 ára lenda í vandræðum með stinningu til lengri eða skemmri tíma, samkvæmt nýlegri könn- un, sem Gallup hefur gert á kynlífs- hegðun íslenskra karlmanna að frum- kvæði fjögurra íslenskra lækna. Sama könnun leiddi í ljós að einungis einn af hverjum fjórum karlmönnum, sem eiga við risvandamál að etja, leitar sér að- stoðar sérfræðinga. 85% þeirra karl- manna, sem það gerðu, reyndust mjög ánægðir með þá meðferð, sem þeir fengu. Ekki óumflýjanlegt Að sögn Guðmundar Vikars Einars- sonar, þvagfærasérfræðings, liggja lík- amlegar orsakir ekki síður en sálrænar að baki stinningarvanda hjá karlmönn- um. „Þó tíðni risvandamála aukist með hækkandi aldri, er stinningarvandi þó ekki eðlileg og óumflýjanleg afleiðing þess að eldast. Miklu fremur er um að ræða afleiðingu sjúkdóma eða aðstæðna, sem fylgja hækkandi aldri,“ segir Guð- mundur Vikar.|24 Kynlífshegðun 45–75 ára íslenskra karla könnuð Ristruflanir hrjá 40% svarenda FINNUR Árnason, forstjóri Haga, segir að félagið hafi tapað 700 millj- ónum króna í því verðstríði sem geisaði á matvörumarkaði í fyrra. Hann telur að enn ríki mikil sam- keppni á matvörumarkaði og að ekki sé hægt að sakast við smá- vöruverslunina í landinu þegar leit- að sé skýringa á háu matvöruverði á Íslandi. Þetta kemur fram í viðtali við Finn í Viðskiptablaði Morgunblaðs- ins í dag. Finnur segir að ofurskatt- lagning á matvöru á Íslandi valdi því hversu hátt verðlag sé. Hann segir að skattlagning ríkisins sé í formi almennra tolla, magntolla, vörugjalda og virðisaukaskatts og fjölmörg dæmi séu um að tugir pró- sentna leggist ofan á innkaupaverð þegar vara er flutt inn. Finnur telur að búast megi við einhverjum verðhækkunum á næstunni á matvöru því helstu kostnaðarliðir smávöruverslunar- innar, laun og leiga, hafi hækkað undanfarið líkt og verðlag almennt. Hann segir hækkanirnar þó ekki verða umfram aðrar hækkanir í landinu, um 2–3%. Finnur bendir í þessu sambandi á að verðkannanir frá ASÍ síðan í desember 2002 og janúar og maí 2003 sýni að verð í Bónus sé um 10% lægra í dag en þá var. Að mati Finns er nauðsynlegt að leyfa sölu á léttvíni og bjór í mat- vöruverslunum til að ná fram hag- ræðingu á matvörumarkaðnum og hann telur að ef áfengissala verði leyfð muni matvöruverð á Íslandi lækka. Forstjóri Haga segir félagið hafa tapað 700 milljónum í verðstríðinu Spáir 2–3% hækkun á matvöru á næstunni  Hagar | B12–13 ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.