Morgunblaðið - 21.01.2006, Side 18
18 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÚR VERINU
Hjá Braga
Sumum finnst hann dularfull-
ur náungi, hann Bragi Krist-
jónsson, og telja til „lifandi goð-
sagna“ í bæjarlífinu í Reykjavík
á morgun
BJÖRG Jónsdóttir ÞH 321 kom í
morgun með fyrstu loðnu ársins til
Neskaupstaðar í frystingu. Loðnan
fékkst á loðnumiðunum norður af
Langanesi, en góð veiði hefur verið
hjá þeim skipum sem hafa verið á
miðunum síðustu daga.
Sigurður Bjarnason, skipstjóri á
Björginni, segir að þeir hafi verið
um 45 sjómílur norðnorðaustur að
Langanesinu og þar hafi verið tölu-
vert að sjá. „Hún skilar sér. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem hún kem-
ur seint. Mér lízt ágætlega á þetta
og nú er bara að fá fleiri skip á mið-
in til að kanna stöðuna almenni-
lega. Við verðum að fá að vita betur
hvernig staðan er,“ segir Sigurður.
Rannsóknarskipið Árni Frið-
riksson var á Seyðisfirði í gær og
hélt aftur til loðnurannsókna með
kvöldinu og ætti að vera á slóðum
veiðiskipanna um helgina.
Um þetta var fjallað á heimasíðu
síldarvinnslunnar í gær og sagði
þar meðal annars: „Það er ekki óal-
gengt að þorrinn og loðnan fylgist
að og vonum við að óábyrgar hrak-
spár einstakra þingmanna um
loðnustofninn breyti engu þar um.
Það er alveg ljóst að mikið er í húfi
hjá þeim fyrirtækjum sem byggja
afkomu sína á loðnustofninum.
Hundruð starfa eru í uppnámi og
eiga mörg byggðarlög mikið und-
ir.“
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Kemur loðnan
með þorranum?
LAXELDISFYRIRTÆKIÐ Salar
Islandica er með töluvert af laxi í
kvíum sínum í Berufirði og er gert
ráð fyrir að þar verði slátrað 2.000
tonnum af laxi á þessu ári. Eggert B.
Guðmundsson, forstjóri HB Granda,
sem er stærsti hluthafinn í fyrirtæk-
inu, segir að um tilraunaverkefni sé
að ræða og miðað við núverandi að-
stæður muni laxeldið verða minnkað
en þorskeldi aukið.
Eggert segir að settir hafi verið út
tveir nokkuð stórir árgangar seiða,
eða 400.000 seiði í hvorum árgangi.
Auk þess hafi verið byggð upp að-
staða til slátrunar á Djúpavogi,
keyptur svokallaður brunnbátur til
flutnings á lifandi fiski og fóðurbátur
til að sjá um fóðrun í kvíarnar. Slátr-
un hafi svo hafizt á haust og verið
slátrað ríflega 300 tonnum til ára-
móta.
Hann segir að verð á laxi sé al-
mennt gott en á því séu ætíð nokkrar
sveiflur og það hafi lækkað lítillega
upp á síðkastið. Það sé hins vegar
gengið sem sé afar óhagstætt. „Þeg-
ar menn fara út í svona rekstur
leggst til töluverður kostnaður í
nokkurn tíma meðan á uppbyggingu
stendur. Slík uppbygging er byggð á
rekstrarumhverfi þegar farið er út í
hana og þeim hugmyndum sem
menn hafa um framvinduna. Þegar
svo kemur að því að menn ætla að
njóta ávaxtanna af fjárfestingunni
eins og núna, hefur gengið gjör-
breytt rekstrarumhverfinu og dæm-
ið gengur ekki upp,“ segir Eggert.
Hann segir að þetta hafi verið til-
raunaverkefni og að því loknu sjái
menn hvernig útkoman sé. Í ljósi
þess verði teknar ákvarðanir um
framhaldið, en eins og staðan sé nú,
sé það ætlunin að draga úr laxeldinu
og auka þorskeldi þess í stað. Mann-
virkin verði því notuð áfram og
áfram skapist atvinna við eldið þó af
öðrum toga sé.
Auka eldi á þorski
en draga úr laxeldi
Salar Islandica á
Djúpavogi slátrar
um 2.000 tonnum
af laxi á þessu ári
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Fiskeldi Laxi slátrað hjá Salar Islandica á Djúpavogi. 300 tonnum var
slátrað þar síðasta haust, en 2.000 tonnum á þessu ári.
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
ÓHÆTT er að segja að mikið hafi
gengið á í viðskiptakerfi Kauphallar
Íslands við opnun markaðar í gær.
Ástæðan er sú að gærdagurinn var
fyrsti viðskiptadagur með hlutabréf
Avion Group en skráning félagsins
er stærsta nýskráning í Kauphöllina
frá upphafi. Reyndar var búist við
miklum látum og hafði Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Kauphallar Ís-
lands, orð á því að vonandi myndi
það sama ekki eiga sér stað og gerð-
ist í kauphöllinni í Tókýó nýlega þeg-
ar tölvukerfi hrundi eins og greint
var frá í Viðskiptablaði Morgun-
blaðsins í fyrradag. Það sýnir ber-
lega hversu mikill lætin voru að á
fyrstu 30 mínútum viðskiptadagsins
fóru um 300 viðskipti með bréf Avion
Group fram.
Viðstöddum var ljóst nokkru fyrir
opnun að gengi bréfanna væri mun
hærra en útboðsgengið enda mátti
sjá á tölvuskjám að tilboð sem höfðu
borist í bréfin voru mun hærri en út-
boðsgengi. Gengi í fyrstu viðskiptum
var 49,1 króna/hlut en útboðsgengi
var 38,3 krónur/hlut. Þannig hefði sá
sem skráði sig fyrir einni milljón
hluta í útboðinu getað selt sömu hluti
með 10,8 milljón króna hagnaði strax
á fyrstu mínútu viðskipta. Gengið
hækkaði svo snöggt upp í 50,9 krón-
ur/hlut en tók svo að lækka, sem
verður að teljast eðlilegt. Í lok við-
skipta var gengi bréfa Avion Group
45,4 krónur/hlut og jókst markaðs-
virði bankans því um 12,74 milljarða
miðað við útboðsgengi.
Haldið áfram á sömu braut
Þegar blaðamaður ræddi við
Magnús Þorsteinsson, stjórnarfor-
mann og aðaleiganda Avion Group,
var hann skiljanlega glaður í bragði
og sagðist mjög ánægður með þær
viðtökur sem fjárfestar hefðu veitt
félaginu. „Þetta sýnir okkur að við
höfum verið að gera eitthvað rétt og
við ætlum að halda ótrauð áfram á
sömu braut,“ sagði Magnús.
Þórður Friðjónsson var einnig af-
ar ánægður með þær viðtökur sem
markaðurinn veitti félaginu. Hann
sagði það hafa mikla þýðingu fyrir
Kauphöllina að fá inn svo öflugt félag
sem Avion Group en jafnframt hefði
það mikla þýðingu fyrir Kauphöllina
að viðtökurnar hefðu verið svo góðar
sem raun ber vitni. „Það er gríðar-
lega gott fyrir okkur að fá svona
sterka byrjun. Þetta sýnir að mark-
aðurinn er öflugur,“ sagði Þórður og
bætti við að þetta hjálpaði Kauphöll-
inni í því starfi að reyna að fá erlend
fyrirtæki til þess að hafa Kauphöll
Íslands í huga þegar leitað væri að
nýjum mörkuðum til þess að skrá
hlutabréf.
Læti við skráningu
Avion Group
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
FRONTLINE Holding, sem er í
eigu Magnúsar Þorsteinssonar, er
langstærsti hluthafi í Avion Group
samkvæmt meðfylgjandi hlut-
hafalista sem var birtur á vef Kaup-
hallar Íslands í gær. Magnús er
jafnframt stjórnarformaður Avion
Group.
!"! #$! % &
'
()
*
* +
*!,"-!
'./
01
2& 3 3
243
5 6!)
(7
)
8 !/
9"!
:;.
# 3 !
%
.!. 3
"
!"
#
#
Magnús
stærsti
hluthafinn
STRAUMUR-Burðarás Fjárfest-
ingarbanki fær lánshæfiseinkunn-
ina BBB- á langtímalánum hjá al-
þjóðlega matsfyrirtækinu Fitch
Ratings. Ennfremur fær bankinn
skammtímaeinkunnina F3, óháða
einkunn C/D og stuðningseinkunn
3. Horfur lánshæfismatsins eru
stöðugar. Þetta kemur fram í til-
kynningu til Kauphallar Íslands.
Þar er vitnað í tilkynningu frá
Fitch sem segir langtíma-, skamm-
tíma- og stuðningseinkunnina end-
urspegla sterkan eiginfjárgrunn,
öran vöxt í nettó vaxta- og þókn-
anatekjum og lágt kostnaðarhlut-
fall. „Á móti kemur að bankinn hef-
ur tiltölulega mikla hluta-
bréfaáhættu, einsleitt lánasafn og
stutta sögu innan fyrirtækjaráð-
gjafar og lánamarkaðarins þar sem
bankinn hefur verið að skapa sér
sess,“ segir í tilkynningu Fitch.
Þórður Már Jóhannesson, for-
stjóri Straums-Burðaráss, segir í
samtali við Morgunblaðið að láns-
hæfismatið hafi afar mikla þýðingu
fyrir bankann. „Þetta er mikilvæg-
ur áfangi í uppbyggingu bankans
og gerir aðgang okkar að fjár-
magni mun auðveldari sem er mik-
ilvægt fyrir frekari vöxt og sókn
bankans.“
Straumur-Burðarás fær BBB-