Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 26
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Acidophilus
FRÁ
Fyrir meltingu og maga
Sterkur acidophilus
Hella | „Féló“ á Hellu er komin
í gagnið á ný eftir tvöföldun á
stærð í á þriðja hundrað fer-
metra gólfflöt ásamt gagn-
gerum breytingum og end-
urbótum. Félagsmiðstöðin er í
kjallara Verkalýðshússins og
hefur verið starfrækt frá árinu
1991 undir stjórn þeirra hjóna
Guðnýjar Rósu Tómasdóttur
forstöðumanns og Bjarna Jó-
hannssonar.
Fjölmörg tæki og búnaður til
afþreyingar hafa bæst við og
m.a. er á staðnum, „hljóð-
herbergi“ sem er einangrað
rými þar sem hljómsveitir og
önnur starfsemi getur haft eins
hátt og þörf er á án þess að
trufla umhverfið. „Við höfum
svolítið saknað þess að hafa ekki
félagsmiðstöðina okkar síðustu
mánuði, en nú er gaman,“ sagði
ein stúlkan sem var í billjardi á
opnunardaginn, en mest er mið-
stöðin sótt af 10 til 12 ára krökk-
um.
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Nú er gaman í „Féló“
Félagsstarf
Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs-
dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114.
Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds-
dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi-
@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Ekki hefur af því frést að nokkurs staðar
á landinu sé lengur í heiðri höfð sú gamla
venja, sem sagt er frá í Sögu daganna, að
fagna þorra á þann hátt að húsbændur
færu út í dagrenningu á bóndadagsmorgni
léttklæddir um sig neðanverða og fremdu
sérstakan gjörning til farsældar þennan
mánuð, enda ef til vill eins gott miðað við
veðurfar og heilsu landsmann undan-
gengna daga.
Hins vegar gleyma menn ekki að halda
vel til sín í mat og drykk þennan ágæta
árstíma, þó að stutt sé frá ofneyslu
jólanna. Skagfirðingar eru engir eftirbátar
annarra í þessum efnum, og með samein-
ingu sveitarfélaganna hefur opnast alveg
nýr möguleiki fyrir það mat- og gleðifólk
sem ekki lætur uppákomu eins og gott
þorrablót framhjá sér fara. Áður hélt hver
hreppur sitt blót, en með sameiningu urðu
blótin fjölmennari og viðameiri og málefni
líðandi stundar stundum viðkvæmari, þar
sem nágranninn sem áður var dreginn
sundur og saman í háði var nú orðinn sam-
sveitungi. Þessum vanda var mætt með því
að gömlu hrepparnir halda líka sitt blót
upp á gamla mátann og því ljóst að þessum
menningarsamkomum hefur fjölgað þann-
ig að hverja helgi á þorranum eru tunnur á
stokkum á fleiri en einum stað samtímis.
Þrátt fyrir að margt sé Skagfirðingum
mótdrægt nú um stundir, meðal annars að
á nokkrum mánuðum hafa þrjár virtar og
vinsælar verslanir hætt, en það eru tísku-
verslunin Ísold, Bókabúð Brynjars og nú
síðast verslunin Rafsjá og einnig það að
íbúum sveitarfélagsins hafi fækkað á síð-
asta ári um 31 þá eru menn bjartsýnir og
fullákveðnir í því að með hækkandi sól bíði
bjartari dagar. Virðist líka að ásókn í lóðir
á Króknum hafi aukist og þannig var nú
eftir áramót úthlutað lóðum undir fjögur
einbýlishús og eitt parhús til fyrirtækisins
Hús og hönnun ehf. í Reykjavík en á sl. ári
var meira byggt á Sauðárkróki en mörg
undanfarin ár.
Úr
bæjarlífinu
SAUÐÁRKRÓKUR
EFTIR BJÖRN BJÖRNSSON FRÉTTARITARA
kvöld. Aðalrétturinn eru
kúttmagar framleiddir á
ýmsan máta.
Auk kúttmaganna eru
ótal fiskréttir á boð-
stólum. Meðan setið er
að snæðingi eru svo flutt
heimagerð skemmtiefni
og að lokum stiginn
dans. Þessi sömu félög
hafa staðið fyrir svona
veisluhöldum mörg und-
anfarin ár. Félögin ann-
ast allan undirbúning,
Þrjú félög í Snæ-fellsbæ, Lions-klúbbur Nesþinga
á Hellissandi, Leikfélag
Ólafsvíkur og Slysa-
varnadeildin Helga
Bárðardóttir á Hellis-
sandi, standa sameig-
inlega að því að bjóða fé-
lögum sínum og eldri
borgurum bæjarfélags-
ins til veglegrar fisk-
réttaveislu í félagsheim-
ilinu Röst á Hellissandi í
matargerð og þjónustu
til borðs. Félagarnir
voru að undirbúa kvöldið
með því hreinsa kútt-
maga í vinnslusal Hrað-
frystihúss Hellissands
þegar myndin var tekin.
Þetta er allt þekkt á
staðnum, meðal annars
þrír fyrrverandi skip-
stjórar úr Rifi, þeir Jón á
Hamri, Sigurður á
Skarðsvíkinni og Sævar
á Saxhamri.
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Kúttmagakvöld undirbúið
Í Ólafsvík er tekinntil starfa nýr sál-nahirðir, séra
Magnús Magnússon.
Helgi Kristjánsson býður
hann velkominn og hvet-
ur hann til að horna-
marka strax alla sína
nýju sauði að góðum
bændasið
Séra Magnús sauði á,
sálir allra lita.
Á vinstra horni hann vill sjá
hangfjöður og bita.
Rúnar Kristjánsson yrkir að
gefnu tilefni:
Ort að gefnu tilefni:
Slær nú á mín hressu hrif,
hryggist ég með sanni.
Það eru brotin þrettán rif
í þingsins besta manni.
Árshátíð lestrarfélags-
ins Krumma er haldin í
dag og því vel við hæfi
að birta dróttkvæða vísu
Kristjáns Eiríkssonar:
Víst er kalsöm vistin veður
geisa meðan svöl um syrg-
isdali, sól skín dauf við pól-
inn. Svartur berst í sortasolt-
inn hrafn í holti, rífur dauðan
ræfilrefur og hann grefur.
Af sálnahirði
pebl@mbl.is
Garður | Forystumenn F-listans sem hef-
ur meirihluta í bæjarstjórn Garðs leggjast
á móti tilraunum Sjálfstæðisfélagsins
Garðs til að sameina sjálfstæðismenn í
Garði undir merkjum D-listans í komandi
sveitarstjórnarkosningum. F-listinn hefur
hafið undirbúning að vali á framboðslista.
Fyrir fundi í Sjálfstæðisfélaginu Garður
sem haldinn var í Samkomuhúsinsu síðast-
liðinn þriðjudag lá tillaga um að bjóða fram
undir merkjum D-lista við kosningar til
bæjarstjórnar í vor. Samkvæmt fréttatil-
kynningu frá félaginu var hugmyndin að
reyna að sameina sjálfstæðismenn í Garði
sem hafa verið sundraðir síðustu 8 ár og
boðið fram undir merkjum tveggja lista, F-
lista og H-lista. F-listinn hefur haft meiri-
hluta í bæjarstjórn á undanförnum árum
en H-listi verið í minnihluta.
Fram kemur í tilkynningunni að for-
svarsmenn F-lista ákváðu að taka ekki þátt
í fundinum og sendu út bréf til Garðbúa
þar sem sjálfstæðismenn voru hvattir til að
styðja F-listann og mæta ekki á fundinn.
Niðurstaða fundarins var að fresta
ákvörðun um málið.
Tilraun til
sameiningar
undir merkj-
um D-lista
mistókst
Vestfirðir | Stjórn Lögreglufélags Vest-
fjarða hefur sent frá sér ályktun þar sem
lýst er yfir fullum stuðningi við tillögur
dómsmálaráðherra um að gera Vestfirði að
einu lögregluumdæmi. Þá fagnar stjórn
LV þeirri tillögu ráðherra að lögreglu-
stöðvar verði áfram opnar í Bolungarvík, á
Hólmavík og Patreksfirði í hinu nýja emb-
ætti. Væntir stjórn LV að tillögur ráðherra
nái fram að ganga og verði til þess að efla
löggæslu á Vestfjörðum.
Í annarri ályktun er tekið undir mót-
mæli Landssambands lögreglumanna
vegna frumvarps til breytinga á umferð-
arlögum. Samkvæmt frumvarpinu er
starfsmönnum Vegagerðarinnar veitt
heimild til að stöðva ökutæki og sinna
margþættu eftirliti.
Styðja tillög-
ur dómsmála-
ráðherra
♦♦♦
ATVINNA
mbl.is