Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 33 DAGLEGT LÍF Í JANÚAR PRAG er heimaborg rithöfund- arins Franz Kafka og næstu tíu árin verður hægt að skoða sýn- ingu helgaða skáldinu í gamla bænum í Prag. Samband Kafka við Prag var nokkurs konar ást- ar-haturssamband, eins og fram kemur í grein í Dagens Nyheter fyrir skömmu. Kafka skrifaði á þýsku og það var ekki fyrr en eft- ir dauða hans að verk hans komu út á tékknesku. Sýningin sem nú er sett upp í Prag, var fyrst sett saman í Barselóna og hefur líka verið sett upp m.a. í New York. Eitt sinn horfði Franz Kafka ásamt kennara sínum út um glugga sem sneri að Gamlabæj- artorginu (Starometske namesti) í Prag. Kafka gerði hring með fingrinum á gluggann og sagði að allt hans líf væri innan þessa hrings. Húsið stendur á horni við torgið og götuna Parizska og þar bjó Kafka ásamt foreldrum sínum og systkinum á fjórðu hæð, en það hefur nú verið gert að safni um Kafka. Líf skáldsins og verk hans Í kringum þetta hús og í gamla bænum í Prag er hægt að ganga um og sjá margt sem minnir á Kafka. Kafka-göngutúra er hægt að fara í um gamla bæinn og allt að götunni Na Porici, rétt utan við gamla bæjarhlutann. Í gulu húsi við þá götu er nú hótel en áð- ur var þetta vinnustaður Kafka. Herbergi 214 var áður vinnu- herbergi Kafka. Sýningin stendur yfir í safninu nýopnaða sem áður var heimili Kafka. Í máli, mynd- um og hljóði er hægt að skyggn- ast inn í líf skáldsins og verk hans, auk þess að upplifa Prag fyrir einni öld, en Kafka fæddist árið 1883 en lést árið 1924. Kafka- göngutúrar og sýning Morgunblaðið/Ómar Staromestske namesti, eða Gamlabæjartorgið í Prag.  PRAG www.czeckitout.com/info.htm www.praginfo.com/ www.guide-prague.cz/eng/tour/ franz-kafka_ VALUR Arnarson er maður hand- verksins og segist fyrst og fremst hafa farið á námskeiðið vegna al- menns áhuga á handverki og hefur hann víða komið við í þeim efnum. „Þegar ég bjó í Borgarfirðinum þá var ég í Handverksfélaginu Hnokka og þar kom ég líka við í Ullarsel- inu.“ Aðspurður sagði hann vini sína ekkert kippa sér upp við það að hann færi á svona námskeið, því þeir væru vanir því að hann tæki upp á fáránlegustu hlutum. Vali kom helst á óvart hversu gerð bún- ingsins reyndist vera tímafrek. „Ég hef ekki haft nægan tíma til sinna saumaskapnum, enda bæði í fullri vinnu og í skóla. En þetta bjargast allt saman. Ég held reyndar að kon- urnar sem eru að kenna okkur séu alveg að springa á seinlæti okkar karlanna og þeim finnst við ekki taka þetta nógu alvarlega. Þeim finnst við vera hér af einhverri létt- úð, en það er ekki rétt. Við tökum þessu alveg mátulega alvarlega.“  VALUR ARNARSON Mátuleg alvara Morgunblaðið/Kristinn Valur tekur til við verkið af mikilli einbeitingu. JÁRNSMIÐURINN Bjarni Þór Kristjánsson var nokkuð ánægður með að hafa innt af hendi alla þá heimavinnu sem honum hafði verið uppálagt að skila af sér fyrir þenn- an tíma. „Þetta er mun meiri vinna en ég hélt. Ég er líka svo óvanur svona fínni vinnu. Þótt ég hafi feng- ist við margskonar handverk og jafnvel saumað áður, þá er þetta allt öðruvísi. Fingurgómarnir mínir eru svo grófir að þeir slíta tvinnann stundum úr nálarauganu hjá mér og það tefur fyrir mér. Ég verð að játa að það er dálítið mikið mál fyr- ir mig að venja mig á að halda svona fínt á hlutum og sjónin er kannski ekki alveg nógu góð fyrir svona nákvæmnisvinnu. Þegar ég þarf að sauma með rauðum þræði í rautt þarf ég að setja upp gler- augun svo ég hitti nákvæmlega á réttan stað með nálina. Ég á eftir að gera fimmtíu og tvö hnappagöt og þau eiga öll að vera handgerð. Ég áætla að ég verði klukkutíma með hvert gat, þannig að vinnu- stundirnar verða orðnar ansi marg- ar þegar ég verð búinn að fullgera búninginn.“ Fyrstu sparifötin frá fermingu Bjarni stefnir að því að klára búninginn í sumar, fyrir mikla há- tíð sem þá verður í Árbæjarsafni, en hann hefur oftsinnis komið þar fram og sýnt hvernig tálga skal og skera út í tré. „Þá ætla ég að vígja þau, því mér er uppálagt að vera í fötum frá fyrri tíma og hingað til hef ég tínt eitthvað saman sem er náttúrulega ekki svona alvöru eins og þessi sem ég er að sauma núna. Auk þess hef ég ekki keypt mér spariföt síðan ég fermdist, svo það er kominn tími til að koma sér upp einum almennilegum fötum og ég ætla að klæðast þeim við hvert há- tíðlegt tækifæri sem til fellur.“ Og það eru hæg heimatökin hjá járn- smiðnum Bjarna að smíða sér silf- urhnappa í fötin sín.  BJARNI ÞÓR KRISTJÁNSSON Grófir fingurgómar tefja fyrir Morgunblaðið/Kristinn Bjarni vandar sig við saumaskapinn. Prófkjör sjálfstæðismanna fer fram í dag, laugardaginn 21. janúar að Hlíðarsmára 19. Tryggjum Sigurrós öruggt sæti Kjósum Sigurrós Þorgrímsdóttur bæjarfulltrúa í 3. sæti og tryggjum henni örugga kosningu í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kópavogi, í dag, 21. janúar. Sigurrós er góður fulltrúi í forystusveit sjálfstæðismanna. Hún býr yfir reynslu og þekkingu í málefnum Kópavogsbúa, sem tryggir sterkari lista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar næsta vor. Stuðningsfólk. Opið hús á kosningaskrifstofu Sigurrósar að Löngubrekku 3, sími 554 3780, sigurros@kopavogur.is „Við sem gefum kost á okkur í sveitarstjórn þurfum ætíð að hafa íbúa sveitarfélagsins í fyrirrúmi og vinna stöðugt að vellíðan þeirra og öryggi“ Bæjarfulltrúi í Kópavogi. 3 . SÆTIÐ IGURRÓS ÍS Íbúð óskast í febrúar Breskur tónlistarmaður óskar eftir íbúð til leigu á stór Reykjavíkursvæðinu frá 1. febrúar til 28. febrúar til að ljúka við frágang á tónverki fyrir sinfóníuhljómsveit. Góðri umgengni heitið, svigrúm til píanóleiks að nóttu sem degi er nauðsynlegt. Nánari upplýsingar í síma 869 0962.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.