Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 73 Í KVÖLD verða haldnir tónleikar á NASA við Austurvöll til styrktar Maritafræðslunni, sem er sam- starfsverkefni Samhjálpar, Lög- reglunnar í Reykjavík og Reykja- víkurborgar og miðar að því að fræða unglinga um skaðsemi fíkni- efna. Árangur fræðslunnar var metinn síðastliðinn vetur og kom þá mjög vel út. Til dæmis töldu aðeins 4,4% þeirra sem fengið höfðu fræðsluna mjög miklar líkur á því að þeir segðu já við fíkniefnum, en 11% þeirra sem höfðu ekki fengið fræðslu töldu mjög miklar líkur á því að þeir segðu já, væru þeim boðin fíkniefni. Til þess að halda starfinu lifandi ákváðu samtökin að halda fjáröfl- unartónleika. Þeir listamenn sem fram koma á tónleikunum, og vilja með því leggja starfinu lið eru Egó, Jakobínarína og Dóri DNA. Einnig mun Silvía Nótt verða með nokkur skemmtiatriði. Kynnir á tónleik- unum verður Jón Gnarr. Allur ágóði af tónleikunum mun renna óskiptur til Maritafræðslunnar. Tónleikar | Fjáröflunartónleikar fyrir Maritafræðsluna Jakobínarína, Egó og Dóri DNA á NASA Morgunblaðið/Sverrir Jakobínarína leggur málefninu lið í kvöld. Tónleikar á NASA í kvöld til styrktar Maritafræðslunni.  Fram koma: Egó, Jakobínarína, Dóri DNA og Silvía Nótt.  Miðaverð 2.000 kr.  Húsið verð- ur opnað kl. 18.30 og tónleikarnir hefjast kl. 19.00. Morgunblaðið/Sigurjón Guðjónsson Bubbi Morthens kemur fram ásamt hljómsveitinni Egó. S.V. / MBL *** UPPLIFÐU STÓRFENGLEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI OLIVER TWIST kl. 12 - 3 - 6 - 9 B.i. 12 ára. CHRONICLES OF NARNIA kl. 12 - 3 - 6 - 9 HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 12 - 3 B.i. 10 ára. DOMINO kl. 6 B.i. 16 ára. KING KONG kl. 8.30 B.i. 12 ára. PRIDE AND PREJUDICE kl. 2 - 5:20 - 8 - 10:40 PRIDE AND PREJUDICE Lúxus VIP kl. 8 - 10:40 OLIVER TWIST kl. 2 - 5 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára. JARHEAD kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára. RUMOR HAS IT kl. 1:50 - 3:50 - 6 - 8:10 DOMINO kl. 10:40 B.i. 16 ára. CHRONICLES OF NARNIA kl. 2 - 5 CHRONICLES OF NARNIA Lúxus VIP kl. 2 - 5 KING KONG kl. 6 - 9:30 B.i. 12 ára. Litli Kjúllin m/Ísl. tali kl. 2 - 3:50 Frá Óskarsverðlaunaleikstjóra „AMERICAN BEAUTY“ Mögnuð stríðsmynd með Jake Gyllenhaal og Óskarsverðlaunahöfunum Jamie Foxx og Chris Cooper. eee H.J. MBL DÖJ, Kvikmyndir.com „Sam Mendez hefur sannað sig áður og skilar hér stórgóðri mynd.“ „...mjög vönduð og metnaðarfull mynd...“ e e e e VJV, Topp5.is kvikmyndir.is *** m.m.j / KVIKMYNDIR.COM **** S.V / MBL Byggð á sönnum orðrómi. 400 KR MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR KL. 12 Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNIHÁDEGISBÍÓ HLUSTENDUR Rásar 2 völdu Garðar Thór Cortes óperusöngvara kynþokka- fyllsta karlmann Íslands í gær en slík kosn- ing hefur um árabil farið fram á bónda- daginn í upphafi þorra. Þórhallur Gunn- arsson, ritstjóri Kastljóss Sjónvarpsins varð í öðru sæti í kjörinu. Garðar Thór kynþokka- fyllstur KVIKMYNDIN Voksne menn- esker eftir Dag Kára Pétursson er tilnefnd til sex verðlauna á dönsku Robert-verðlaunahátíðinni, sem kalla mætti hin dönsku Eddu- verðlaun. Voksne mennesker er til- nefnd sem besta myndin, Bodil Jørgensen er tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir leik sinn í myndinni, Nicolas Bro fyrir bestan karlleik í aukahlutverki, þeir Dagur Kári og Rune Schjøtt eru tilnefndir fyrir besta handritið og Daniel Dencik fyrir bestu klipp- inguna. Þá er hljómsveitin Slow- blow tilnefnd fyrir bestu kvik- myndatónlistina. Fleiri Íslendingar eru tilnefndir til verðlauna á hátíðinni, en Karl Júlíusson er tilnefndur fyrir bestu leikmyndahönnun í myndinni Dear Wendy. Aðrar myndir sem tilnefndar eru í flokknum besta myndin eru Adams Æbler (Epli Adams) eftir Anders Thomas Jensen, Drabet (Morðið) eftir Per Fly, Manderlay eftir Lars von Trier og Fluerne på Væggen (Flugurnar á veggnum) eftir Åke Sandgren. Drabet fékk flestar tilnefningar, alls 14. Verðlaunin verða afhent í Kaupmannahöfn hinn 5. febrúar. Kvikmyndir | Dönsku Robert-verðlaunin framundan Voksne mennesker með sex til- nefningar Atriði úr Voksne mennesker eftir Dag Kára Pétursson. Drabet er tilnefnd til 14 Robert-verðlauna en leikstjóri myndarinnar, Per Fly, kom hingað á Októberbíófest.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.