Morgunblaðið - 21.01.2006, Síða 76

Morgunblaðið - 21.01.2006, Síða 76
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Jóhanna Thorsteinson – þinn liðsmaður 2. sætiðwww.johanna.is Framboð til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi 21.janúar 2006 MARKAÐSVIRÐI Avion Group hækkaði um tæpa 13 milljarða króna á fyrsta við- skiptadagi með hlutabréf félagsins í Kaup- höllina. Skráning félagsins mun vera stærsta nýskráning í Kauphöllina. Það er ekki ofsög- um sagt að mikill handagangur hafi verið í öskjunni enda voru um 300 viðskiptafærslur gerðar strax á fyrsta hálftímanum. Heildar- viðskipti dagsins með bréf félagsins voru tæplega 3,3 milljarðar og alls skiptu bréf í fé- laginu um hendur 866 sinnum. Til sam- anburðar má geta þess að viðskipti með öll hlutabréf námu um 6,3 milljörðum og heild- arfjöldi viðskipta var 1.375 og má því með sanni segja að dagurinn hafi verið dagur Av- ion Group. Í samtali við Morgunblaðið sagði Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group, að löngu og ströngu en jafnframt skemmtilegu ferli væri lokið með skráning- unni. Hann sagði jafnframt að viðbrögðin sýndu greinilega að starfsfólk og stjórn- endur Avion Group væru að gera eitthvað rétt og að því yrði haldið áfram. | 18 Morgunblaðið/Kristinn Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group, og Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, skála fyrir skráningu Avion í Kauphöllina. Dagur Avion Group í Kauphöllinni LÆGSTU laun starfsmanna sveitarfélaganna verða hækkuð, að því er fram kom að lokinni launamálaráðstefnu sveitarfélaga í gær. Sam- þykkt var á ráðstefnunni að beina því til launa- nefndar sveitarfélaga að fara yfir tillögur og hugmyndir um leiðir til lausna í kjaramálum starfsmanna sveitarfélaganna. Launanefndin á að kynna sveitarstjórnunum niðurstöður sínar ekki síðar en 10. febrúar næstkomandi. Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, formaður launanefndarinnar, sagði: „Við viljum mjög gjarnan láta það gerast í þetta skiptið að það verði raunverulega lægstu launin sem hækka.“ Laun leikskólakennara voru einnig rædd á ráð- stefnunni, að sögn Gunnars. Hann sagði að eng- um hafi dottið í hug annað en að þau þyrfti að ræða, en menn væru ekki sammála um hvaða Það urðu ekki mikið fleiri uppsagnir frá þeim tíma til dagsins í dag. Nú er mér ómögulegt að svara því hvað fólk gerir. Hvort það hefur þol- inmæði til að bíða. Það má segja að það sé ákveðin viljayfirlýsing sem kemur út úr ráð- stefnunni, að gera eitthvað. Ég vænti þess að þeir hafi séð að ástandið er óviðunandi.“ Kjarasamningar leikskólakennara eru lausir í lok september. Björg sagði að félagið hafi ein- blínt á bókun sem fylgdi kjarasamningnum, en ekki hafi náðst sátt um túlkun á bókuninni á þann hátt sem leikskólakennarar töldu viðun- andi. Samninganefnd leikskólakennara kemur saman næstkomandi mánudag. Björg sagði að félagið væri tilbúið að skoða þá leið að launa- nefnd gæfi sveitarfélögunum heimildir umfram kjarasamninga sem í gildi eru, líkt og formaður launanefndar hefur bent á. leiðir ætti að fara. Gunnar sagði að launabreyt- ingarnar ættu ekki að hleypa kjarasamningum í uppnám. „Við ætlum að heimila sveitarfélögum að greiða hærri laun en núgildandi kjarasamn- ingar segja til um.“ Leikskólakennarar væntu meira „Ég tel að leikskólakennarar hafi vænst meira,“ sagði Björg Bjarnadóttir, formaður Fé- lags leikskólakennara, um niðurstöðu ráðstefn- unnar. Björg sagði að ráðstefnan hafi ekki svarað neinum spurningum og staðan væri því óbreytt. „Fólk er enn beðið um að bíða átekta og sjá hvað komi út úr vinnu sem á að hefjast hjá stjórn launanefndar og taka ríflega hálfan mánuð.“ Björg sagðist ekki vita hvenær þolinmæði leikskólakennara þryti. „Við borgarstjóri báð- um þá í lok desember að sýna þolinmæði fram yfir launamálaráðstefnu og þeir urðu við því. Leitað verður leiða til að hækka lægstu launin  Lægstu laun | 4 Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is Í TILEFNI bóndadagsins var boðið upp á þorramat auk þess sem börnin komu með hluti frá fyrri tímum í leikskólann Garða- borg í gær. Að sögn Kristínar Ein- arsdóttur, leikskólastjóra, er markmiðið söngurinn langt undan. Kristín sagði að börnunum hefði líkað vel við hangikjötið og slátrið. Hákarlinn og súrmaturinn var ekki eins vinsæll en þó voru einhverjir sem borðuðu af bestu lyst. með þessu að kynna börnunum þennan þjóðlega mat, auk menningar fyrri tíma. Nokkrir leikskólakennarar skörtuðu upp- hlut og komu börn með hluti að heiman á borð við ask og prjónastokk og ekki var Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjörugur bóndadagur á Garðaborg SLAKT gengi í laxeldi hefur leitt til þess að eldisfyrirtækið Salar Islandica á Djúpavogi hefur ákveðið að auka þorskeldi, en draga úr laxeldi. Verð á laxi á heimsmarkaði hefur verið tiltölu- lega hátt, en hátt gengi íslenzku krónunnar hefur étið þann ávinn- ing upp. „Þegar menn fara út í svona rekstur leggst til töluverður kostnaður í nokkurn tíma meðan á uppbyggingu stendur,“ segir Eggert B. Guðmundsson, for- stjóri HB Granda, sem er stærsti hluthafinn í Salar Islandica. „Slík uppbygging er byggð á rekstrar- umhverfi þegar farið er út í hana og þeim hugmyndum sem menn hafa um framvinduna. Þegar svo kemur að því að menn ætla að njóta ávaxtanna af fjárfestingunni eins og núna, hefur gengið gjör- breytt rekstrarumhverfinu og dæmið gengur ekki upp,“ segir Eggert. Hann segir að þetta hafi verið tilraunaverkefni og að því loknu sjái menn hvernig útkoman sé. Í ljósi þess verði teknar ákvarðanir um framhaldið, en eins og staðan sé nú, sé það ætlunin að draga úr laxeldinu og auka þorskeldi þess í stað. Mannvirkin verði því notuð áfram og áfram skapist atvinna við eldið þó af öðrum toga sé. | 18 Þorskur í stað lax á Djúpavogi Morgunblaðið/Andrés Skúlason Laxi slátrað á Djúpavogi. HAGNAÐUR Baugs Group á árinu 2005 nam 28 milljörðum króna. Þar af eru 15 milljarðar innleystur hagnaður. Heildar- eignir Baugs voru bókfærðar á 145 millj- arða í lok desember 2005. Eigið fé var 62,9 milljarðar og arðsemi eigin fjár nam 78,7% á árinu 2005. Baugur er kjölfestufjárfestir í hátt í 30 fyrirtækjum í Bretlandi, Danmörku og á Ís- landi. Velta þeirra á árinu 2005 var um 950 milljarðar króna. Til samanburðar má nefna að tekjur ríkissjóðs samkvæmt fjár- lögum fyrir árið 2006 eru áætlaðar liðlega 330 milljarðar króna. Í eigu þeirra fyrirtækja sem Baugur er kjölfestufjárfestir í eru um 3.500 verslanir og hjá þeim starfa um 62 þúsund manns, sem jafngildir um þriðjungi alls vinnumark- aðar á Íslandi. Árið 2004 var velta þeirra fyrirtækja sem Baugur var þá kjölfestufjár- festir í um 180 milljarðar, verslanir í eigu þeirra voru í árslok 2004 um 1.400 talsins og hjá þeim störfuðu þá um 17 þúsund manns. Mikil hækkun á veltu og fjölda verslana og starfsmanna milli ára skýrist að stærstum hluta af því að breska fyrirtækið Big Food Group bættist í eignasafn Baugs á fyrri hluta ársins 2005. | 20 ' U")3 31  5 2 " $ !!  243!32& 3 9 D  " 2 )   2  3"  ) *!) !     Um 62 þúsund manns hjá fyrir- tækjum Baugs UM 150 farþegar Icelandair urðu strandaglópar þegar Kastrupflug- velli í Kaupmannahöfn var lokað í gærkvöldi vegna vonskuveðurs. Biðu þeir í nokkurn tíma eftir tilkynningu um flug, en um kl. 20.30 lá ljóst fyrir að ekki yrði flogið, enda beið vél Ice- landair þá enn á Keflavíkurflugvelli eftir því að geta lagt af stað. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, segir ástandið á Kastrup vissulega hafa verið slæmt, enda ekki skrýtið þegar umferð stöðvast á alþjóðaflugvelli. Myndist þá langar biðraðir og allt sé í óvissu. Félagið hafi beðið um stund með að aflýsa flugi, en ákvörðunin hafi að lokum verið tekin kl. 20.30. Strandaglóp- ar í Kaup- mannahöfn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.