Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 67
DAGBÓK
götu 15 en hún fjallar um þróun og upp-
byggingu byggðar í Þórshöfn í Færeyjum.
Bókasafn Garðabæjar | Upplestur og
bókakaffi í Bókasafni Garðabæjar. Í dag
laugardaginn 21. janúar les Viðar Eggerts-
son leikari upp úr úrvali bóka sem komu út
fyrir jólin. Bækurnar sem lesið verður upp
úr eru af ýmsum toga s.s. ævisögur, skáld-
sögur og ljóð. Allir velkomnir.
Duus hús | Sýning Poppminjasafnsins í Du-
ushúsum Sagt er frá tímabilinu 1969 til
1979 í máli og myndum. Rifjuð upp tískan
og tíðarandinn. Opið daglega kl. 13–18.30
til 1. apríl.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Myndirnar á
sýningunni Móðir Jörð gefa óhefðbundna
og nýstárlega sýn á íslenskt landslag þar
sem markmiðið er að fanga ákveðna
stemmningu fremur en ákveðna staði.
Skotið er nýr sýningakostur hjá Ljós-
myndasafni Reykjavíkur og er myndum er
varpað á vegg úr myndvarpa.
Þjóðmenningarhúsið | Í tilefni þess að 50
ár eru liðin frá Nóbelsverðlaunaveitingunni
til Halldórs Laxness hefur Gljúfrasteinn
sett upp sýningu í bókasal Þjóðmenning-
arhússins.
Þjóðmenningarhúsið | Sýnishorn af ár-
angri fornleifarannsókna sem njóta stuðn-
ings Kristnihátíðarsjóðs eru til sýnis í and-
dyri Þjóðmenningarhússins.
Þjóðminjasafn Íslands | Boðið upp á fjöl-
breytta fræðslu og þjónustu fyrir safn-
gesti. Þar eru nýstárlegar og vandaðar
sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 11–17.
Dans
Klúbburinn við Gullinbrú | Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar með dansleik í
kvöld.
Þjóðleikhúskjallarinn | Tangóball. DJ
Tangomaster leikur tangótónlist af diskum.
Aðgangseyrir 500 kr. Nánar á tango.is
Skemmtanir
Cafe Catalina | Hörður G. Ólafsson spilar
og syngur í kvöld.
Kringlukráin | Hljómsveitin Tilþrif spilar í
kvöld.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Sér-
sveitin leikur fyrir dansi í kvöld. Frítt inn til
miðnættis.
Mannfagnaður
Broadway | Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins
verður haldið í Broadway á Hótel Íslandi
27. janúar nk. Veislustjóri: Ólafur Helgi
Kjartansson. Bjarni Ara og Helgi Björns
skemmta. Ræðumaður: Elín Alma Arthúrs-
dóttir, Saga Class leikur fyrir dansi. Forsala
aðgöngumiða verður á Broadway, í dag kl.
14–16.
Þingeyingar í Reykjavík | Þingeyingar í
Reykjavík halda þorrablót í Félagsheimili
Seltjarnarness í kvöld. Húsið opnað kl. 19
og skemmtunin hefst kl. 20. Skráning og
upplýsingar hjá Hildi í síma 691 6045 og
Kristjönu í síma 844 4912.
Styrkur | Þorrablót Styrks verður í Vík-
ingasal Hótel Loftleiða í kvöld kl. 19. Séra
Bjarni Karlsson og séra Jóna Hrönn Bolla-
dóttir ræða um samskipti kynjanna. Heiða
Árnadóttir söngkona, Hjörleifur Valsson
fiðlul. og hljómsveitin Caprí leikur. Miðar
fást hjá Steinunni í síma 896 5808, pönt-
un fyrir kl. 15 19. jan.
Fyrirlestrar og fundir
Þjóðmenningarhúsið | Árni Bergmann, rit-
höfundur, hefur tekið saman dagskrá sem
Arnar Jónsson, leikari, flytur með honum
og fjallar um þá rithöfunda sem voru sam-
ferða Halldóri Laxness upp á Nób-
elsverðlaunapall á sjötta áratug síðustu
aldar. Fer fram í dag kl. 14.
Fréttir og tilkynningar
Heimilisiðnaðarfélag Íslands | Kynning
verður á íslenskum þjóðbúningum; karl-
mannabúningnum og faldbúningnum frá
um 1800, kl. 11–13 í dag að Laufásvegi 2.
Sýning á vinnubrögðum þeim tengdum og
veittar upplýsingar um hvernig skal klæð-
ast búningunum og upplýsingar um nám-
skeið. Ókeypis aðgangur.
Frístundir og námskeið
Alþjóðahúsið | Námskeið í arabísku hefst
23. janúar og lýkur 27. febrúar. Kennt verð-
ur á mánudögum kl. 16.30–18, í Alþjóða-
húsinu, Hverfisgötu 18. Kennari er Amal
Tamimi. Takmarkaður fjöldi. Skráning á
amal@ahus.is eða í síma 530-9308. Verð:
25.000,- kr.
Maður lifandi | Námskeið í hláturjóga með
styrkjandi ívafi verður kl. 11.30–13. Kennari
er Ásta Valdimarsdóttir hláturjógaleið.
Upplýsingar og skrán. í síma 8990223 og
tölvup. asta.valdimarsdottir@c2i.net
Mímir-símenntun ehf | Mímir-símenntun
og Menningarmiðstöðin Gerðubergi halda
námskeið um höfundarverk Thors Vil-
hjálmssonar. Námskeiðið fer fram næstu
fjóra þriðjudaga kl. 20–22 og hefst 24. jan.
Umsjón hefur Ástráður Eysteinsson ásamt
Hörpu Björnsdóttur. Skráning hjá Mími-
símenntun í síma 5801800 eða á
www.mimir.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Félagsstarf
Barðstrendingafélagið | Félagsvist í
Konnakoti í dag, laugardag, kl. 14.
Dalbraut 18–20 | Fastir liðir eins og
venjulega. Minnum sérstaklega á
Tungubrjóta alla mánudaga kl. 13.30,
félagsvist alla þriðjudaga kl. 14, söng
alla fimmtudaga kl. 14. Skráning er
hafin á myndlistarnámskeið sem
hefst. 31. jan kl. 9–12. Þorrablótið er
3. feb. Dagskráin send heim sé þess
óskað. Sími 588-9533.
FEBÁ, Álftanesi | Æfum boccia
undir leiðsögn Denna, í íþróttahús-
inu alla laugardaga kl. 12–13. Allir
eldri borgarar velkomnir, engin kunn-
átta nauðsynleg. Boccia-kúlur á
staðnum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20.
Caprí-tríó leikur. Skemmtun og kynn-
ing á FEB haldinn í félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi miðvikud. 25. jan. kl.
16. Dagskrá: Ávarp, bæjarstjórinn á
Seltjarnarnesi, Jónmundur Guð-
marsson. Kynning á FEB, Margrét
Margeirsd. Gamanmál og söngur.
Veitingar í boði bæjarins.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Myndskreytt ljóðasýning stendur yf-
ir í Garðabergi á ljóðum Magnúsar
Hagalínssonar og Sólveigar Öldu
Pétursdóttur. Sýning stendur til og
með 16. febrúar. Opið er alla virka
daga nema þriðjudaga kl. 12.30–
16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13–16
opin myndlistarsýning Sólveigar
Eggerz. Fimmtud. 26. jan. kl. 13.15
„Kynslóðir saman í Breiðholti“, fé-
lagsvist í samstarfi við Seljaskóla.
Miðvikud. 25. jan. er farið í heim-
sókn á listsýningar í Gerðarsafni í
Kópavogi, lagt af stað frá Gerðu-
bergi kl. 13.30, skráning á staðnum
og í síma 575 7720.
Hraunbær 105 | Föstudaginn 27.
janúar verður þorrablót. Húsið opn-
að kl. 17.30. Þorrahlaðborð hefst kl.
18. Verð kr. 3.000. Skráning í síma
587 2888 og á skrifstofu fyrir 25.
janúar. Fjölmennið og takið með ykk-
ur gesti.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir þeir
sömu. Minnum á námskeið í ljóða-
gerð sem hefst mánudag 23. jan. kl.
16. Framsagnarhópur þriðjudaga/
opinn tími og miðvikudags/
framhaldshópur kl. 10–12. Tölvu-
námskeið kl. 13 laugard. Þorrablótið
er 27. jan. Sendum dagskrána í
pósti eða netbréfi sé þess óskað.
Síminn okkar er 568 3132.
SÁÁ félagsstarf | Fluguhnýting-
arnámskeið verður haldið í Síðumúla
3–5 föstudag, laugardag og sunnu-
dag og hefst kl. 17. Verð kr. 4000.
Félagsstarf SÁÁ.
Kirkjustarf
Bústaðakirkja | Miðvikudaginn 25.
janúar verður haldin þorragleði í
starfi eldri borgara í Bústaðakirkju.
Dagskráin hefst kl. 12.30. Heið-
ursgestur dagsins er Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra. Skráning
fer fram hjá kirkjuverði til hádegis
nk. þriðjudag í síma 553 8500.
Þátttökugjald kr. 1.900.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Brúðkaup | Gefin voru saman 6. nóv-
ember 2004 í Hvítasunnukirkjunni í
Kirkjubæjarkirkju í Fljótshlíð af
Heiðari Guðnasyni þau Auður Krist-
jánsdóttir og Roger Olofsson.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Ljósmyndastofa Erlings
FJÖLDI spænskunema hér á landi
hefur þrefaldast á undanförnum ár-
um en ekki er til orðabók sem stenst
nútímakröfur, að sögn Margrétar
Jónsdóttur, dósents við við-
skiptadeild Háskólans í Reykjavík og
vararæðismanns Spánar á Íslandi.
Margrét hefur tekið að sér ritstjórn
nýrrar spænsk-íslenskrar orðabókar
en í gær fór fram ahtöfn í HR þar
sem Bentína Björgólfsdóttir og
Helga Theódórsdóttir, fulltrúar
Minningarsjóðs Margrétar Björg-
ólfsdóttur, og Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra,
afhentu styrk vegna gerðar bók-
arinnar. 15 milljóna styrkur fékkst úr
minningarsjóðnum og mennta-
málaráðuneytið lagði einnig til 15
milljónir króna. Margrét kveðst ætla
að í heild verði kostnaður við verkið
um 80 milljónir króna, en um er að
ræða samstarfsverkefni Eddu útgáfu
og Háskólans í Reykjavík. „Við höf-
um keypt gagnagrunn frá Harper
Collins, sem er virtasta orðabók-
arfyrirtæki í heiminum í dag og verð-
um því með frábæran grunn til þess
að byggja orðabókina á,“ segir Mar-
grét en bókin á að koma út árið 2008.
„Þetta er afar ánægjulegt vegna þess
að leiðarljós Háskólans í Reykjavík
er að vera í nánum tengslum við at-
vinnulífið og vinna vel með opinber-
um aðilum og einkaaðilum. Þarna
höfum við glæsilegt dæmi um sam-
starf opinberra aðila og einkaaðila á
sviði menningarmála,“ bætir hún við.
Allir njóta góðs af
Hún segir ritun nýrrar orðabókar
nauðsynlega, enda sé slík bók verk-
færi allra þeirra sem eiga samskipti
við hinn spænskumælandi heim, en
þar séu nýjar samskipta- og við-
skiptaleiðir að opnast Íslendingum.
„Um 400 milljónir manna í um 25
löndum í heiminum eru spænsku-
mælandi. Þá eru Bandaríkin að verða
tvítyngd, en 40 milljónir Bandaríkja-
manna tala spænsku sem fyrsta mál.“
„Þar fyrir utan lætur það Íslend-
ingum mjög vel að læra spænsku.
Það eru engin hljóð í spænskri tungu
sem Íslendingar geta ekki borið
fram,“ segir Margrét. Íslendingar
sæki ekkert annað land jafnmikið
heim og Spán. „Með þessum styrk er
ekki bara verið að styðja við skólafólk
því í raun og veru munu allir lands-
menn njóta góðs af þessu,“ segir hún.
Vinna við gerð orðabókarinnar
hófst í október. Auk Margrétar vinna
að bókinni þær Sigrún Á. Eiríks-
dóttir, fyrrverandi lektor við Háskóla
Íslands, Guðrún Tulinius, þýðandi og
Ragnheiður Kristinsdóttir, en þær
hafa allar mastersgráðu í spænsku.
Styrkur til gerðar spænsk-íslenskrar orðabókar
Þörf á orðabók sem
stenst nútímakröfur
Morgunblaðið/Þorkell
Margrét Jónsdóttir tekur við styrknum frá Bentínu Björgólfsdóttur og
Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.