Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 35
Á hverjum degi er eitthvert svæð- anna jafnframt opið til kl. 19 og dug- legustu skíðamennirnir geta því flakkað á milli og skíðað tíu tíma á dag ef þeir vilja. Barnafólki dugar venjulegi tíminn yfirleitt vel, e.t.v. með lengri skíðadögum inni á milli, og börnin geta gert ýmislegt sér til dundurs eftir skíðadaginn. Keilusal- ur er t.d. í Lindvallen og sums stað- ar er boðið upp á „after-ski“ barnanna með ís, leikjum og þraut- um, á meðan foreldrarnir fá sitt eig- ið „after-ski“. Risasnjókarl í 7. viku Fyrir vetrarleyfið í viku 7 er bú- inn til risasnjókarl í Lindvallen og til þess notaðar stórvirkar vinnuvélar. Snjókarlinn vekur athygli hjá ung- um og öldnum og brekkurnar í ná- grenni hans eru vinsælar. Fyrir ut- an skíðaiðkun, afslöppun og fjölskyldusamveru, er hægt að finna sér ýmislegt til dundurs í Sälen, og sem dæmi má nefna ísklifur eða hundasleðaferð. Opið er í Sälen út apríl og undir lok tímabilsins má oft fá gistingu á góðu verði. Ekki er hægt að panta ferð fyrir næsta vetur á vefnum enn sem komið er, en það er hægt með því að hafa beint samband við hótel í síma eða tölvupósti. Ef pantað er tímanlega fyrir næsta tímabil er hægt að fá skemmtilega skíðaferð á góðu verði. Hótel Ski Lodge í Lindvallen er nýjasta hótelið á svæðinu. Þegar skíðað er á milli Högfjället og Lindvallen er ekki óalgengt að rek- ast á hundasleða. www.skistar.com (upplýsingar um öll fjögur svæði Skistar í Sälen; verð, gistingu o.s.frv.) www.skilodgelindvallen.se www.topeja.se (Högfjällshotellet og Gammelgården vöfflustofa, veitingastaður og gisting) MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 35 DAGLEGT LÍF Í JANÚAR Hugsum stórt Framtíðin er björt Samfylkinginætlar að sigra í borgarstjórnarkosningunum í vor. Stefán Jón Hafstein nýtur persónufylgis meðal borgarbúa vegna víðtækrar reynslu og dugnaðar. Hann hefur öflugan stuðning innan Samfylkingarinnar, þar sem hann hefur unniðmikið og gott starf frá upphafi við uppbyggingu nýs flokks. Hann er sá forystumaður sem andstæðingarnir hafa ástæðu til að telja hættulegastan. Hann setur óhikað fram nýjar hugmyndir, hefur staðið sig ákaflega vel í borgarstjórn og er þaulreyndur að fylgja málum eftir í umræðum. Stefán Jón er talsmaður lýðræðis, jafnréttis og frjálslyndrar jafnaðarstefnu. Byggjum á því sem best hefur verið gert undanfarin ár! Kjósum Stefán Jón í fyrsta sæti! Opið prófkjör Samfylkingarinnar þar sem allir mega kjósa verður 11.-12. febrúar. Allir eru velkomnir á samkomu í IÐNÓ í dag kl.15. Stefán Jón Hafstein oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík ávarpar gesti. Tónlist, hirðskáld, kaffi og kleinur, blöðrur fyrir börnin. Túlkað á táknmáli. Kveðjur úr borgarlífinu flytja Edda Þórarinsdóttir leikkona Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur Margrét Pálmadóttir söngstjóri Hildur E. Einarsdóttir stjórnmálafræðingur Hildur Hafstað skólastjóri Kosningaskrifstofan er á Laugavegi 103. Sjálfboðaliðar óskast til vinnu og geta skráð sig í síma 824-3390. Stefnumálin eru á www.stefanjon.is / netfang stefanjon@stefanjon.is Sigríður Arnardóttir verður fundarstjóri. Í FERÐ til London gæti verið gaman að skella sér á söngleik. Á ferðavef Svenska Dagbladet er bent á fimm söngleiki sem verða á fjölunum í höfuðborg Bretlands í vor og eru taldir líklegir til að njóta vinsælda. Nýr söngleikur eft- ir Andrew Lloyd Webber, The woman in white, verður settur upp í Palace-leikhúsinu á Shaftesbury avenue. Um er að ræða glæpasögu með rómantísku ívafi. Í Piccadilly- leikhúsinu við Denman street hef- ur söngleikurinn Guys and dolls verið á fjölunum í vetur. Ewan McGregor lék eitt af aðalhlutverk- unum en sápuóperustjarna hefur reyndar tekið við af honum. The producers er söngleiksuppfærsla á samnefndri kvikmynd Mel Brooks í Royal Drury lane-leikhúsinu við Catherine street. Ferðamönnum er einnig boðið að skyggnast bak við tjöldin að degi til. Kvikmyndin Billy Elliot er vel þekkt en sam- nefndur söngleikur byggist á henni og hefur notið mikilla vin- sælda. Elton John samdi tónlistina og leikararnir þykja standa sig vel. Söngleikurinn er sýndur í Victoria Palace-leikhúsinu við Victoria street. Mary Poppins flýg- ur í Prince Edward-leikhúsinu við Old Compton street. Richard Eyre leikstýrir en hann hefur mikla reynslu af leikstjórn söngleikja í London. Mary Poppins-söngleik- urinn fer senn á fjalirnar í New York einnig og getgátur eru uppi um að ný kvikmyndaútgáfa af sög- unni sé á leiðinni.  LONDON Morgunblaðið/Ómar Fimm nýir söngleikir SAS-flugfélagið tekur brátt í notkun kerfi sem les fingraför farþega. Tilgangurinn er að hraða öllu ferli og einnig að ganga úr skugga um að farþeg- inn sem tékkar sig inn sé sá sami og flýgur með vélinni. Norræna flugfélagið verður því það fyrsta í heiminum sem nýtir líffræðileg gögn til að bera kennsl á farþega, eins og fram kemur í sænska neytendablaðinu Råd och Rön. Tæknin verður fyrst tekin í notkun á innanlands- leiðum í Noregi, Svíþjóð og Dan- mörku nú í vor og hefur í för með sér að þumalfingur kemur í stað brottfararspjalds. Fyrst er þumalfingurinn skannaður þeg- ar viðkomandi tékkar inn og fingrafarið er svo lesið aftur þegar viðkomandi yfirgefur vél- ina. U.þ.b. 70% farþega SAS ferðast með rafrænum flugmiða og nota sjálfsala til að tékka inn. Með þessu kerfi verður strangari reglum um öryggiseftirlit mætt, að sögn Peters Söderlunds, verk- efnisstjóra hjá SAS.  FERÐALÖG SAS lætur lesa fingraför farþega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.