Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gísli AðalsteinnHjartarson fæddist á Ísafirði 27. október 1947. Hann lést þriðju- daginn 10. janúar síðastliðinn. For- eldrar Gísla voru Hjörtur Bjarnason frá Stapadal, f. 1913, d. 1998, og Svanfríður Sigrún Gísladóttir á Ísa- firði, f. 1917, d. 2003. Systkini Gísla eru: 1) Viðar, f. 1937, kvæntur Guðrúnu Bóel Guð- jónsdóttur, þau eiga tvö börn og þrjú barnabörn. 2) Hilmar, f. 1940, kvæntur Sigríði Sigurðardóttur, þau eiga þrjú börn og fjögur barnabörn. 3) Ína, f. 1941, d. 1942. 4) Sigurður Bjarni, f. 1951, kvænt- ur Kristínu H. Karvelsdóttur, þau 1974–75, Grunnskóla Súðavíkur 1975–76, Grunnskóla Bolungar- víkur frá 1977–79 og síðar við Grunnskóla Ísafjarðar. Gísli starf- aði í áratugi sem fararstjóri á Vestfjörðum, aðallega á Horn- ströndum. Gísli var varabæjar- fulltrúi Alþýðubandalagsfélags Ísafjarðar 1970–74, formaður Al- þýðubandalagsfélags Ísafjarðar 1969–75 og í stjórn þess til 1977. Þá var hann formaður Æskulýðs- fylkingarinnar á Ísafirði 1968–69 og formaður og stjórnarmaður í Sjálfsbjörg um árabil. Gísli var formaður heilbrigðisnefndar Ísa- fjarðar 1971–74 og formaður hús- stjórnar Alþýðuhússins á Ísafirði frá 1974. Gísli var ritstjóri Vest- firðings um tíma og einnig rit- stjóri Skutuls, blaðs Alþýðuflokks- ins í Vestfjarðakjördæmi, í mörg ár auk þess sem hann skrifaði í ýmis blöð og tímarit. Þá gaf hann út átta bækur í bókaflokknum 101 vestfirsk þjóðsaga. Gísli var ókvæntur og barnlaus. Útför Gísla fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. eiga tvö börn og fimm barnabörn. 5) Hjördís, f. 1959, gift Björgvini Guðjóns- syni, þau eiga fimm börn og eitt barna- barn. Gísli lauk gagn- fræðaprófi frá Brú- arlandsskóla í Mos- fellssveit árið 1968 og stundaði næstu árin nám við undir- búnings- og raun- greinadeild Tækni- skóla Íslands og Iðnskóla Ísafjarðar. Gísli gegndi ýmsum störfum á yngri árum, m.a. stundaði hann sjómennsku og var skrifstofustjóri Rafveitu Ísa- fjarðar 1970–73. Hann var skóla- stjóri Grunnskóla Fellshrepps á árunum 1973–74 og 1976–77 og kennari við Grunnskóla Þingeyrar Ég átti bróður sem er farinn í aðra tilveru, en hann fór þó ekki alfarinn í burtu frá mér, því ég geymi minn- inguna um hann í fallegum ramma í hjarta mínu. Gísli var náttúrubarn, alinn upp á heimili þar sem hann kynntist snemma sjómennsku og lærði að nýta það sem náttúran gaf. Faðir okkar bræðra kenndi okkur að fara með skotvopn, og umgangast þau með virðingu. Gísli stundaði handfæraveiðar með föður okkar að- allega fyrir Hornströndum, einnig fór hann í egg í björgin með vinum sínum. Er ekki að orðlengja það að hann féll fyrir fegurð strandanna, og urðu þær að hluta til starfsvettvang- ur hans eftir að hann gerðist farar- stjóri í óteljandi ferðum um óbyggðir þessara furðustranda, þar var Gísli bróðir á heimavelli. Eftir að hafa ótal sinnum flutt hann norður í einhverja víkina ásamt glaðværum ferðafélögum, sé ég hann fyrir mér standa í fjörunni veifandi bless tilbúinn að leiða hópinn yfir tor- færurnar. Gönguskórnir fast reimað- ir, legghlífarnar, rauði útivistarjakk- inn, göngustafurinn, bakpokinn, allt í réttum skorðum, skiltið „fararstjóri“ í barmi. Þarna var bróðir minn að leggja í hann FLOTTUR. Minningarnar um góðan bróður hrannast upp. Siglt fyrir Straumnes, röstin uppi, talsverður gutlandi, Gísli sitjandi á kappanum fyrir framan stýrishúsið með sígarettuna í munn- inum, það brýtur uppá ströndina, Fljótavíkin opnast og Rekavíkin sil- ast undan. Hann þessi sagnarbrunn- ur að segja „litla bróður“ sögur af lífsbaráttu þessa harðgera fólks er bjó þar fyrrum, jafnharðan sem vík- urnar opnuðust á leiðinni austur og kennileitin komu í ljós. Gísli hafði ríka frásagnargáfu, mannanöfn og ártöl kryddaði hann inn í sögurnar af því fólki sem byggði þessar fallegu víkur. Allar ferðirnar í selinn, tófuna og silunginn. Gísli var ótrúlega sjálf- bjarga þrátt fyrir fötlun sína, atriði eins og að kveikja á eldspýtu með stokkinn í lófanum var honum leikur einn. Tófa á harða hlaupum úr færi, bróðir með haglabyssuna á milli hnjánna, hlóð óvart með Magnum í æsingnum. Byssunni brugðið, að sjálfsögðu vinstri handar vink og auð- vitað féll sú lágfætta og brói ansi aumur í öxlinni. Stóri útselsbrimillinn skotinn á svo löngu færi að jafnvel Peter Frauchen hefði ekki getað gert betur og allur hamagangurinn við að innbyrða skepnuna, veiðigleðin og adrenalínkikkið. Svona atvik gátum við setið og rifjað upp tímunum sam- an. „MANSTU ÞEGAR …“ Nú á ég þessar minningar einn og held fast utanum þær. Eitt atvik átti ég erfitt með að fyr- irgefa Gísla bróður en það gerðist fyrir áratugum síðan, þá sátum við bræður saman með flösku af rúss- neskum vodka á milli okkar og reynd- um að ráða lífsgátuna. Þá tókst hon- um af sinni alkunnu rökvísi að fá mig til að ganga í Alþýðubandalagið en svo daginn eftir þegar rússavodkinn var hættur að virka gekk ég snarlega úr því aftur, ég var kommúnisti einn dag, slapp sem sagt byssubrenndur en þetta fyrirgaf ég að sjálfsögðu mínum góða bróður. Með árunum fækkaði ferðum okk- ar saman, en við héldum samt alltaf góðu sambandi einkum gegnum síma, og það var gott að koma í Fjarðarstrætið þegar ég var að er- inda á Ísafirði, þá hellti brói uppá könnuna og síðan var spjallað um heima og geima. Gísli var búinn að kaupa sér lítinn bát ásamt vini sínum Gísla og Aðalsteini föður hans. Bát- urinn heitir Stapinn í virðingarskyni við látinn föður okkar. Leitaði Gísli bróðir mikið til mín um útbúnað bátsins og reyndi ég að hjálpa hon- um eins og ég gat. Nú siglir elskulegur bróðir og vin- ur á öðrum miðum stefnan tekin á furðustrandir handan við sól og sunnan við mána. Guð geymi Gísla bróður. Sigurður B. Hjartarson. Það var mikið áfall að fá tilkynn- ingu um skyndilegt fráfall bróður míns langt um aldur fram, nokkuð sem tekur hugann langa stund að trúa að slíkt sé raunveruleiki. Svo vaknar maður að lokum við sannleik- ann og skynjar að engu verður breytt. Þrátt fyrir að við værum ekki í daglegu sambandi, var alltaf svo gaman þegar við hittumst eða rædd- um saman í síma. Ég fylltist ein- hverju ólýsanlegu bróðurstolti sem er svo erfitt að lýsa en ég veit að var gagnkvæmt. Forlögin höguðu því þannig að Gísli er fæddur á Ísafirði 1947, en ég norður í Árneshreppi á Ströndum 1940, þannig að á þeim tíma var óravegur á milli okkar. Smátt og smátt kviknaði hjá mér löngun til hitta systkini mín fyrir vestan og föður, sem ég hafði heyrt af nokkrar þjóðsagnakenndar frá- sagnir er skópu í huga mér þrá til að fá að vera örlítið með í ævintýrinu. Svo gerðist það 1962 að ég fékk fregnir af að Gísli bróðir minn sem þá var til sjós með föður okkar hefði farið í spilið um borð og stórslasast, þannig að hann missti alveg hægri handlegginn. Ég held að þetta atvik hafi kveikt þann neista að hugurinn fór á flug í þá átt að reyna að nálgast föðurfólk mitt. Draumurinn rættist 1963 þegar ég vogaði að hringja til föður míns og tilkynna honum að mig langaði að renna vestur, ég hefði ákveðið að taka mér ferð á hendur það sumar til Ísafjarðar með vini mínum. Pabbi sagði mig velkominn en best væri fyrir mig að hitta Gísla er við kæm- um vestur og hann myndi lóðsa mig á Hlíðarveginn. Það var stíll yfir okkur vinunum að renna inn á Ísafjörð í Ford Fearline 1955 módeli, það jók nokkuð á sjálfstraustið sem lítið var af þá stundina. Innst inni var ég hel- tekinn kvíða yfir væntanlegu stefnu- móti að hitta bróður minn í fyrsta sinn. Við hittum Gísla eins og um var talað og var það áhrifarík stund og þá ekki síður að koma á Hlíðarveg- inn þar sem okkur var tekið með kostum og kynjum. Fyrir vestan þekkti Gísli allt og alla og þarna gerðist hann okkar leiðsögumaður, fór með okkur í nærliggjandi bæj- arfélög og kynnti okkur staðina. Strax á unga aldri var Gísli orðinn uppfullur af fróðleik. Hann drakk í sig þekkingu hvar sem hana var að finna og hún nýttist honum vel síðar í starfi fararstjóra, kennara og við skriftir. Hornstrandir voru hans uppáhald, og þekkti hann þar hverja hundaþúfu. Alþekkt er mögnuð frá- sagnarsnilld hans, af mönnum og málefnum horfinna kynslóða eða ör- nefnum. Gísli hafði einstaklega líf- legan frásagnarstíl og kunni að færa í búning þegar það átti við. Fyrir nokkrum árum fóru dætur okkar hjónanna með vinum sínum í göngu- ferð um Hornstrandir og lentu þar í grenjandi slagviðri sem gerði ferðina önugri. Í Hornvík hittu þær Gísla bróður, sem fagnaði þeim mjög og sagðist afar stoltur af að hitta bróð- urdætur sínar þarna norðurfrá. Þær voru hraktar og kaldar við þessar að- stæður, en þá bauðst Gísli til að bjarga þeim um húsaskjól, sem hann og gerði í læknabústaðnum á Hest- eyri. Þær hafa oft minnst þessarar stundar en þarna fundu þær sterkt fyrir fjölskylduböndunum í tryggð og greiðvikni föðurbróður síns. Þá er ekki síður minnisstætt þegar haldið var ættarmót fyrir nokkrum árum að Núpi í Dýrafirði þar sem föðurættin kom saman. Gísli bauðst til að aka mér og mínum út í Stapadal á æsku- slóðir föður okkar. Sú ferð var virki- leg upplifun, þar sem Gísli leiddi okkur á myndrænan hátt um slóðir forfeðranna sagnfræðilega sem og sjónrænt. Stoltið leyndi sér ekki. Árið 2002 var haldið landsmót harmonikuunnenda á Ísafirði, þá bað ég Gísla að koma á tjaldsvæðið og kynna gamansagnabækur sínar meðal gesta, hann fór á kostum í frá- sagnarstíl sínum, fann sig fullkom- lega og geislaði af lífsgleði. Í síðasta skiptið sem við hittumst vorum við hjónin á leið norður í Ár- neshrepp, og rétt sunnan við Hólma- vík mættum við bíl, sem bar nafn á númeraplötunni og eftir nokkra stund kviknaði á perunni. Var þetta ekki nafnið Stapi? Jú, eftir nokkra stund fannst símanúmerið og við hringdum. Hjá Gísla var engin spurning að snúa við þótt bilið væri orðið drjúgt á milli bílanna. Gísli brunaði til Hólmavíkur þar sem við sátum lengi og styrktum bræðra- böndin. Gísli var á yfirreið um Strandir að afla gamansagna í bók sína; Hundrað og ein ný vestfirsk þjóðsaga, sem náð hefur miklum vin- sældum. Gísli leitaði gjarnan fanga á æskuslóðir mínar norður í Árnes- hrepp þar sem hann kunni vel að meta staðhætti og þá ekki síður íbúana. Það er ljúft að finna bróðurþel en nú hefur verið höggvið skarð í systk- inahópinn. Fallinn er frá hæfileika- ríkur maður á besta aldri sem margt átti eftir að gefa okkur. Það er þó mikil huggun að finna stuðning og hryggð vina og vandamanna sem, ásamt stórum hluta þjóðarinnar, leggjast á árar og minna á að aðgát skal höfð í nærveru sálar. Hafðu þökk kæri bróðir. Hilmar Hjartarson. Síðustu áratugina lágu leiðir okkar Gísla Hjartarsonar saman á ýmsum vettvangi. Árum saman vorum við samstarfsmenn á héraðsfréttablaði. Í aðdraganda kosninga til þings eða sveitarstjórnar unnum við jafnan hvor við sitt framboðið og litum þá í kaffi og kjaftagang á skrifstofunni hvor hjá öðrum, hvað sem allri pólitík leið. Undanfarin átta ár áttum við góða samvinnu ár hvert við undirbún- ing útgerðar á bókavertíð. Að leiðarlokum vil ég þakka Gísla Hjartarsyni fyrir langa og góða við- kynningu. Ég votta systkinum hans og öðrum aðstandendum innilega hluttekningu mína. Hvíldu í friði, Gísli minn. Hlynur Þór Magnússon. Gísli Hjartarson er fallinn frá. Með fáeinum orðum langar mig að senda honum hinstu kveðju. Við Gísli vorum búnir að þekkjast nokkuð lengi. Ekki vorum við tengdir fjölskylduböndum, en þó lágu leiðir sama þar sem Hilm- ar Hjartarson, hálfbróðir Gísla, er náfrændi minn og uppeldisbróðir. Engum gat dulist það, sem þekkt- um hann, að hann fékk ekki gott veganesti út í lífið. Ungur að árum varð hann fyrir slysi, sem hann bar menjar af alla ævi. Mótunarár ungs manns voru framundan, og hann gat ekki gengið til starfa eins og jafnaldr- ar hans. Við fötlun sína varð hann að glíma og finna sér farveg í lífinu. Þó margir hafi sjálfsagt rétt þar hjálp- arhönd, varð byrðinni ekki varpað á aðra. Einn varð hann að bera meg- inþunga hennar. Gísli lét ekki árar falla í bát. Hann fann sér verkefni við sitt hæfi. Ekki verða þau rakin hér, en nefni ég þó, að hann var frum- kvöðull í að opna paradís Horn- stranda fyrir þjóðinni. Hin síðari ár fékkst hann við bóka- útgáfu, sem virtist í fyrstu nokkuð sérstök og margir, og ég einn af þeim, töldu að ekki mundu endast lengi. Gísli afsannaði það fljótt. Ég á við bækurnar, sem hann nefndi Vest- firskar þjóðsögur. Gísli fór að leita til mín með efnisöflun í bækur sínar, og mér til ánægju gat ég svolítið aðstoð- að hann. Við þessa efnisöflun þurfti mikinn dugnað og til margra að leita og engin leið að vinna þetta nema eiga góðan aðgang að fólki. Þetta tókst honum, og það segir nokkuð um vinsældir hans. Þessar sögur eru sér- stakar að því leyti, að þær eru sprottnar upp í daglegri önn fólksins. Ekkert er þar undirbúið fyrirfram. Þær eru góður vitnisburður um skop- skyn og minni Íslendinga. Bækur eru fljótar að verða sagnfræði, og svo er um þessar. Þær munu verða settar í hillur með öðrum sagnfræðiritum. Að lokum þökkum við hjónin Gísla fyrir vináttu gegnum árin. Síðasta kveðja hans til okkar hjónanna var stuttorð, en kom því til skila sem ætl- að var, „Vinarkveðja að vestan“. Við snúum þessari kveðju við, sem eru þá lokaorðin. „Vinakveðja vestur.“ „Að fara vestur“, er samkvæmt okkar málvenju að fara til Ísafjarðar. Við hjónin sendum ættingjum hans innilegar samúðarkveðjur við þessi tímamót. Blessuð sé minning Gísla Hjartar- sonar. Margrét og Gunnsteinn Gíslason. Mig langar til að minnast fyrrver- andi kennara míns í fáum orðum. Gísli minn, mér þykir sárt að heyra að þú hafir yfirgefið þennan heim við þessar sorglegu aðstæður. Veröldin er grimm. Ég á margar góðar minningar um þig. Þú varst góður við okkur krakk- ana þegar þú kenndir okkur í Grunn- skóla Bolungarvíkur. Þú stóðst fyrir vorferðum yfir á Hesteyri í Jökul- fjörðum og leiddir okkur þar um fjöll og firnindi og fræddir okkur um sögu staðanna. Þessar ferðir voru ógleym- anlegar. Síðar fengum ég og Rún tækifæri til að fara með þér í gönguferð á Hornstrandir þar sem þú varst far- arstjóri yfir stórum hóp. Það stóð til að við Rún myndum aðstoða þig við að elda en það endaði þannig að við feng- um námskeið í matreiðslu í óbyggðum hjá þér. Ferðin endaði í mikilli vosbúð þar sem tjöldunum hreinlega rigndi burt og 30 manna hópurinn þurfti að flýja inn í skipsbrotsmannaskýlið í Hornvík. Daginn eftir skiptir þú hópnum í tvennt og fylgdir öðrum hópnum í húsaskjól á Hornbjargsvita. Þú hélst mjög vel utan um hópinn og stjórnaðir aðgerðum með sóma. Seinna meir brást þú yfir mig húsa- skjóli yfir sumartíma þegar ég, brott- fluttur Bolvíkingur, vildi fara í sveita- sæluna að vinna í fiski, eina húsaleigan sem ég þurfti að borga var að þrífa heimilið annað slagið. Þú varst öðlingur, takk fyrir það sem þú gerðir fyrir mig. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég öllum ættingjum og vinum sem eiga um sárt að binda. Valdís Brynjólfsdóttir. Síðastliðnir dagar hafa verið und- arlegir. Tómleiki og sorg hafa verið í hugum okkar. Við áttum ekki von á öðru en að við ættum eftir að eiga endurfundi með Gísla vini okkar. Þar myndi skemmti- leg frásagnargleði Gísla njóta sín, þar yrði hlegið saman, pólitíkin rædd og vissulega myndi alvara lífsins eiga sitt sæti þar. Nú er ljóst að þeir endurfundir verða ekki,að minnsta kosti ekki í þessari jarðvist. Lífið hefur hendur kaldar, hjartaljúfur minn. Allir eiga sorg í sefa, sárin blæða inn. Tárin falla heit í hljóði, heimur ei þau sér. Sofna vinur, svefnljóð meðan syng ég yfir þér. (Kristján frá Djúpalæk.) Við sendum systkinum Gísla og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Með bestu vina- og saknaðarkveðj- um, sofðu rótt kæri vinur. Þorkell, Gunnþóra og Þorkell yngri. Gísli Hjartarson var órjúfanlegur hluti Ísafjarðar í okkar huga. Iðulega var hann með þeim fyrstu sem heils- aði þegar maður kom í bæinn. Hann hafði enda óslökkvandi áhuga á pólitík og raunar mannlífinu öllu. Þannig birtist hann á þvottaplaninu við bens- ínstöðina eða á hafnarbakkanum þeg- ar bátur lagði að bryggju til að fylgj- ast með og spjalla, enda var hann ávallt á höttunum eftir gamansögum. Eins og alkunna er, gaf Gísli síðustu árin út vinsælar skemmtisögur úr mannlífinu í ritröðinni ,,Hundrað og ein vestfirsk þjóðsaga“ þar sem hann hagræddi textanum lítillega til að skemmta lesendum eins og honum var einum lagið. Það var glatt á hjalla síðast þegar fundum okkar bar saman. Það hefði sannarlega verið ástæða til að spjalla meira og tæma eina ölkönnu í viðbót ef einhvern hefði grunað að fleiri yrðu sögurnar ekki. Gísli var líka sérstaklega fróður um það fjölbreytta en jafnframt erfiða GÍSLI AÐALSTEINN HJARTARSON Í júlí síðastliðið sumar komu saman í Hornvík vinir og fé- lagar Gísla úr gönguferðum um Hornstrandir síðasta ald- arfjórðunginn, ferðalangar úr ferðum á vegum Ferðafélags Íslands og Ferðafélags Ak- ureyrar. Margir höfðu farið í fjölda ferða með Gísla, aðrir voru að kynnast Horn- ströndum í fyrsta skipti. Und- irbúningur hófst þarna að gönguferð í Reykjafjörð sum- arið 2007 í tilefni af 40 ára leið- sagnarafmæli Gísla um þessar slóðir. Minningin frá þessu sumri mun seint hverfa úr hugum okkar, þakklæti fyrir frábær kynni og ógleymanlegar stundir á ströndunum í sumar og á liðn- um áratugum. Hornvíkurfarar 2005. HINSTA KVEÐJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.