Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 31 MINNSTAÐUR VIÐ VITUM ÝMISLEGT UM TENNUR eftir 60 ára reynslu Þér er boðið í ókeypis tannskoðun á opnu húsi tannlæknadeildar Háskóla Íslands Deildin fagnar 60 ára afmæli laugardaginn 21. janúar Sérfræðingar á öllum sviðum tannlækninga veita góða ráð Hollar veitingar á boðstólum Kynning á tannheilsuvörum Skoðunarferð um húsnæði deildarinnar Gestir spreyta sig á að bora í plasttennur Kynning á rannsóknum og kennslu Tanntækninemar leiðbeina um tannhirðu og hollar matarvenjur Nemendur Tannsmíðaskóla Íslands sýna vinnu sína Opið hús í Læknagarði við Hringbraut kl. 13 – 15 Allir velkomnir! 60 fyrstu gestirnir eiga kost á ókeypis tannskoðun Eyrarbakki | Meirihluti bæjar- stjórnar Árborgar samþykkti við lokaafgreiðslu aðalskipulags sveitar- félagsins að láta fara fram frekari rannsóknir á flóðahættu á svæðinu mili núverandi byggðar á Eyrar- bakka og þjóðvegarins með tilliti til til þess að skoða möguleika á frekari nýtingu svæðisins. Sveitarstjórn hefur staðfest tillögur að aðalskipu- lagi sem margir Eyrbekkingar og minnihluti bæjarstjórnar gerðu at- hugasemdir við. Óánægja er á Eyrarbakka með þá þróun byggðar þar sem gert er ráð fyrir í skipulagstillögunum. 357 íbú- ar sendu inn formlegar athuga- semdir, auk 25 annarra hagsmuna- aðila, og Eyrbekkingar fjölmenntu á pallana þegar aðalskipulagið kom til lokaafgreiðslu í bæjarstjórn Ár- borgar. Deilurnar snerust einkum um svæðið milli núverandi byggðar og þjóðvegarins. Margir Eyrbekkingar og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn vildu gera þar ráð fyrir meiri byggð en meirihluti bæjar- stjórnar taldi óhætt vegna öryggis íbúa með tilliti til flóðahættu. Meiri- hlutinn hafnaði athugasemdum íbú- anna og felldi tillögur minnihlutans og staðfesti skipulagstillögurnar að mestu óbreyttar. Í tillögu um frekari rannsóknir á umræddu svæði sem fulltrúar meiri- hlutans samþykktu kemur fram að stefnt skuli að því að þeim verði lok- ið tímanlega fyrir næstu lögboðnu endurskoðun aðalskipulagsins. Jafn- framt kemur fram að bæjarstjórn leggur á það áherslu við fram- kvæmd skipulagsins að uppbygging þegar deiliskipulagðra svæða á Eyr- arbakka og svæða í jaðri þorpsins hafi forgang gagnvart uppbyggingu á nýum svæðum vestast í svæðinu. Ráðist í frekari rannsóknir á hættu Vestmannaeyjar | Íþróttamaður Vestmannaeyja fyrir árið 2005 var krýndur á fimmtudagskvöld. Kylf- ingurinn Örlygur Helgi Grímsson varð fyrir valinu en hann náði góð- um árangri á stigamóti Golfsam- bands Íslands í sumar og varð klúbbmeistari Golfklúbbs Vest- mannaeyja. Örlygur var ekki við- staddur athöfnina þar sem hann er um borð í Huginn VE norður af Langanesi á loðnuveiðum. Kom á óvart Örlygur sagði í samtali við fréttaritara að þetta hafi komið honum virkilega á óvart. „Þetta var mitt besta ár í golfinu og það er gaman að sjá uppskeruna af því.“ Örlygur hefur undanfarnar ver- tíðir verið háseti á Huginn VE en á sumrin starfar hann sem vallar- stjóri golfvallarins í Eyjum. Að- spurður hvenær hann hyggst hefja æfingar fyrir komandi sumar segir hann að líklega dusti hann rykið af kylfunum í apríl. „Ég næ sennilega ekki allri ver- tíðinni en golfið gengur fyrir sjó- mennskunni hjá mér. Ég var eitt sumar á sjó og það vil ég ekki gera aftur.“ Örlygur segir að næsta sumar muni hann einbeita sér meira að starfi sínu sem vallarstjóri og keppa minna. „Ég mun þó taka þátt í Íslands- mótinu og svo gefst kannski tíma til að æfa betur. Ég hef aldrei haft tíma til þess, alltaf þurft að skila mínum átta til níu tímum í vinnu þannig að kannski er þetta svolítið í puttunum,“ sagði Örlygur í létt- um tón í lokin. Morgunblaðið/Sigurgeir Eiginkonan Kolbrún Stella Karlsdóttir tók við viðurkenningum Örlygs. „Golfið gengur fyrir sjómennskunni hjá mér“ Eftir Sigursvein Þórðarson Starfshópur | Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að skipa þriggja manna starfshóp til að meta þörf fyrir dagvistarrými leikskólabarna á Akranesi. Gert er ráð fyrir að starfshóp- urinn skili niðurstöðum sínum til bæjarráðs fyrir 1. júlí 2006. Starfs- hópinn skipa þær Ágústa Friðriks- dóttir sem jafnframt stýrir starfinu, Margrét Jónsdóttir og Eydís Að- albjörnsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.