Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 45 UMRÆÐAN ÁGÆTI sjálfstæðismaður í Kópavogi. Ég skora á þig að taka afstöðu og velja þá sjö sem þú telur best til þess fallna að leiða flokkinn til sigurs í komandi kosningum. Valið snýst einnig um þá einstaklinga sem þú kjósandi góður telur að hafi til að bera þá reynslu, mennt- un og elju til að sinna þeim fjöl- breytilegu störfum sem fara fram í sveitarstjórnum. Ég vil leysa til frambúðar dag- vistunarmálin í Kópavogi og stuðla að því að Kópavogur veiti starfs- mönnum sveitarfélagsins betri kjör. Ég vil að börnum okkar sé tryggð sú umönnun sem þau þarfnast. Maneklu verður að upp- ræta og draga verður úr starfs- mannaveltu á leikskólum. Ég hef áhuga á að vinna að auknu framboði á dagvistun barna að fæðingarorlofi loknu og jafn- framt styrkja rekstrargrundvöll dagforeldra og stuðla að fjölgun í þeirri stétt. Dagforeldrar eru og verða órofa hlekkur í umönnun barna okkar eftir að fæðingarorlofi lýkur og þangað til barnið kemst í leikskóla. Tryggja þarf að til stað- ar séu dagforeldrar sem taki að sér gæslu fram yfir 17 á daginn. Öldruðum fer fjölgandi og vil ég að Kópavogur verði til fyr- irmyndar í þjónustu við þá. Styrkja þarf stoðir heimahjúkr- unar og heimilisaðstoðar og sjá til þess að stöðugildi séu næg. Eins og er, eru þessir tveir þjón- ustuþættir undir sitt hvorri eining- unni þ.e. heimahjúkrun undir Heilsugæslunni sem er á ábyrgð ríkisins og heimilisaðstoð undir Félagsþjónustunni sem er á ábyrgð sveitarfélagsins. Kópavog- ur á að sýna frumkvæði í að stuðla að samræmingu þessara þjón- ustuþátta í bænum. Í Kópavogi eigum við að veita gæðaþjónustu við eldri borgara m.a. með því að efla heimahjúkrun og heimilishjálp þannig að aldraðir geti verið sem lengst á eigin heimili. Heimilis- aðstoð er meira heldur en bara þrif, í henni felast einnig líka akst- ur til og frá staða, sendiferðir, létt viðhald eigna, öryggishnappar, snjómokstur, garðvinna og aðstoð við þá þætti sem varða þátttöku í húsfélagi. Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöldum kemur fram að af þeim Kópavogsbúum sem nú þegar bíða eftir vistun á hjúkrunarheimilum gætu um helmingar verið heima ef heima- hjúkrun og heimilisaðstoð gæti annað meiru. Svo er ekki í dag. Ég vil efla sjálfstæði grunnskóla og ýta undir frumkvæði skóla- stjórnenda í kennsluaðferðum og námsefni. Ég tel að fjölbreytni á því sviði sé af hinu góða og stuðli að virkni fleiri nemenda í skóla- starfinu. Fjölskyldumálin eru mér hugleikin og vil ég að mörkuð verði heildræn stefna í íþrótta- og æskulýðsmálum. Tónlistar- og annað tómstundastarf þarf að færa í meira mæli inn í skólana þannig að vinnudegi fjölskyldunnar ljúki fyrr en hann gerir nú. Það er mik- ilvægt að reyna að nýta skólahúsin fyrir íþróttaþjálfun og tómstundir yngstu barnanna. Það er betra fyr- ir alla, börnin sjálf og tekur álag af fjölskyldunni sem verður vegna tíðra ferða í og úr tómstundum. Kópavogur hefur staðið sig vel í uppbyggingu íþróttamannvirkja. Ég vil að haldið verði áfram á þeirri braut. Ég leg jafnframt mik- ið upp úr því að áfram verði lagður metnaður í að ráða til starfa vel- menntaða þjálfara enda er farsælt og faglega unnið íþróttastarf besta forvörnin sem völ er á. Einnig finnst mér mikilvægt að leggja áfram metnað í almenna heilsu- rækt í bænum, nú þegar eru tvær almenningssundlaugar í okkar bæjarfélagi og góð aðstaða fyrir skokk og kraftgöngu. Þrjú dansfélög eru starfandi í bænum og vildi ég gera þeirri íþrótt hærra undir höfði. Ég sé fyrir mér möguleika á að tengja saman menningu, íþróttir aðrar tóm- stundir og atvinnu- rekstur í gegn um dansíþróttina. Mætti sjá fyrir sér danshús í Kópavogi sem myndi veita þeim fjölmörgu sem stunda dans- íþróttina aðstöðu til æfinga auk þess sem Kópavogur myndi á þann hátt geta laðað til sín at- burði tengda dansi svo sem danskeppnir og danssýningar. Slíkt hús mætti reisa í samvinnu sveitarfé- lagsins, fjárfesta og dansfélaganna og þá nýta sem aðstöðu til tómstunda fyrir börn og eldri borgara á virkum dögum á dag- inn á meðan að ætla má að dansæfingar og danssýningar væru fremur á kvöldin eða um helgar. Það er mik- ilvægt að veita brautargengi frum- legum hugmyndum sem stuðlað geta að aukinni atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu, t.d. fleiri sameig- inlegum verkefnum einkaaðila og sveitarfélagsins á borð við knatt- spyrnuakademiuna sem mun verða sett á laggirnar í Vatnsenda. Að lokum vil ég að haldið verði áfram góðum rekstri bæjarins og áfram- haldandi niðurgreiðslu skulda en tryggt verði jafnframt að þegnar Kópavogs fái þá þjónustu sem þeim ber og aðbúnaður og kjör starfsfólks sveitarfélagsins séu til sóma. Ég óska eftir stuðningi þínum ágæti sjálfstæðismaður í 4.-5. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kópavogi sem fram fer í dag. Ágæti sjálfstæðismaður í Kópavogi Eftir Ragnheiði Kristínu Guðmundsdóttur ’Ég óska eftir stuðningiþínum, ágæti sjálfstæð- ismaður, í 4.–5. sæti í prófkjöri sjálfstæðis- manna í Kópavogi …‘ Ragnheiður Kristín Guðmundsdóttir Höfundur er markaðsstjóri og býður sig fram í 4.–5. sæti í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Kópavogi. Prófkjör Kópavogur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.