Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÞAÐ ER eignað Nóbelsskáldinu okkar að hafa sagt efnislega eitthvað á þá leið að almennt talað væri dýrt að vera Íslendingur. Undirrituðum hefur orðið hugsað til þessara spaklegu ummæla vegna um- ræðna undanfarinna vikna um hátt matvælaverð á Íslandi. Fyrst er ástæða til að staldra aðeins við hug- takanotkun og það hvernig einstakir þátt- takendur umræðunnar hafa valið að setja mál sitt fram og fjalla um hlutina. Samtök verslunar og þjónustu biðu ekki boð- anna eftir að skýrsla norrænu samkeppn- iseftirlitanna kom út um matvörumarkaðinn á Norðurlöndum og sam- anburður við Evrópu- sambandið kom fram. Þar er skuldinni alfarið skellt á landbúnaðarstefnuna og þeir hvítþvo sig og sína félagsmenn af allri ábyrgð á háu matvælaverði í landinu. Vissulega fjallaði nefnd skýrsla um matvörumarkaðinn og Samtök verslunarinnar hafa það sér til afsökunar. En skýrslan leiðir svo sannarlega í ljós að fleira þarf til að skýra hátt matvælaverð almennt í landinu heldur en innlenda fram- leiðsluþáttinn einan og það er átak- anlegt að verslunin skuli ekki horfast í augu við eigin ábyrgð á háu verði þess hluta matvæla sem fluttur er inn án nokkurra takmarkana eða tolla og er innlendum landbúnaði og landbún- aðarstefnunni með öllu óviðkomandi. Reyndar er of vægt að tala um katt- arþvott Samtaka verslunarinnar því svo átakanlega augljóst er að samtök- unum virðist þarna henta að skella skuldinni alfarið á landbúnaðinn – þar er fundinn blóraböggullinn. Annar aðili sem tjáð hefur sig um þetta mál að undanförnu er forsætis- ráðherra, Halldór Ásgrímsson, m.a. í áramótaávarpi sínu. Og forsætisráð- herra hefur boðað skipun nefndar til að greina upplýsingar um mat- vælaverð á Íslandi í samanburði við okkar nágrannalönd. Það vekur veru- lega athygli mína að forsætisráðherra skuli með þessum hætti velja að beina kastljósinu ekki að vöruverði almennt í landinu og kryfja það til mergjar og bera saman við vöruverð í nágranna- löndunum heldur gengur hann í lið með þeim sem einangra umræðuna, og þ.m.t. væntanlega verksvið nefnd- arinnar, við matvælaverðsþáttinn ein- an. Hvers vegna er þetta gert? Er minna upplýsandi að skoða og leita skýringa á því af hverju t.d. fatnaður, skór, húsgögn, suðrænir ávextir og ný- lenduvörur eru dýrari á Íslandi en í nágrannalöndunum heldur en kjöt, fiskur, mjólk eða grænmeti? Ef eitthvað í skipulagi og við- skiptaháttum verslunarinnar í landinu kemur hér við sögu er þá ekki jafn nauðsynlegt að skoða allar vöruteg- undir? Er nokkur ástæða til að ætla að ónóg samkeppni komi meira fram í formi yfirverðlagningar á einni vöru- tegund en annarri? Er það að mati for- sætisráðherra tilfinnanlegra vandamál fyrir fjölskyldurnar að matvara sé dýr heldur en t.d. föt eða hús- gögn eða kýs hann einfald- lega að berast með straumnum og leggjast á árar með þeim sem gera landbúnaðinn að alls- herjar blóraböggli fyrir hátt verðlag í landinu og skilja varaformann sinn og landbúnaðarráðherra eftir fáklæddan á berangri? Þriðji aðilinn sem kvatt hefur sér hljóðs að und- anförnu um þessi mál er Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, m.a. í grein í Morg- unblaðinu 11. jan. sl. Um- fjöllun hennar er af skyldum toga og því sem hér að ofan greinir; hún minn- ist ekki einu orði á það að aðrar vörur en matvæli séu hlutfallslega jafn dýrar á Íslandi í samanburði við nágranna- löndin. Framsetning Ingibjargar er einnig óheppileg eða villandi að því leyti að annars vegar er talað um Ís- land eða Ísland og Noreg saman og svo afganginn af Evrópu eða Evrópu- sambandslöndin hinsvegar eins og þau væru eitt. Þetta er í samhljómi við þekktan málflutning um „evrópskt matvælaverð“, rétt eins og til sé eitt- hvert eitt verð á matvælum í fyr- irheitna landinu innan tollmúra Evr- ópusambandsins. Reyndin er sú að samanburður við t.d. Norðurlöndin eða Írland er bæði nærtækari, sanngjarnari og meira upplýsandi en þessi samanburður við óskilgreint Evrópuverð eða evrópsk meðaltöl. Þetta sýnir ágæt samantekt Egils Ólafssonar í Mbl. 15. jan. sl. ein- mitt vel. Þá gætir einnig verulegs mis- skilnings í grein Ingibjargar Sólrúnar um beingreiðslur sem hún segir mik- ilvægt að taka upp í stað tollverndar og/eða framleiðslutengdra styrkja. Staðreyndin er sú að beingreiðslur, í skilningnum beinar greiðslur til bænda eða framleiðenda, voru teknar upp með búvörusamningnum frá árinu 1991 í stað niðurgreiðslna á bú- vöruverði á smásölustigi sem áður voru við lýði. Beingreiðslurnar eru hins vegar í reynd framleiðslutengdar; með beinum hætti í mjólkurframleiðsl- unni og að stofni til í sauðfjárræktinni. Þær eru án nokkurs vafa skilvirkari aðferð við að koma slíkum stuðningi til skila en greiðslur til milliliða eða á smásölustigi. Það sem skiptir máli hér er fyrst og fremst hvernig samhengi greiðslnanna við framleiðsluna er. Þingflokkur Vinstri-grænna hefur undanfarin ár, einn þingflokka, lagt fram mótaðar hugmyndir um að færa hinn opinbera stuðning yfir í það sem við köllum nýjan grundvöll búvöru- framleiðslunnar. Yrð ingsins við búvörufr eða atvinnulíf og bús formi búsetutengds sem væri óframselja ekki búsetu á jörðinn leið meira jafnræði m hér nefna málarekst framleiðenda sem ek framt mjólkurframle krefjast þess að njót aðra framleiðendur Hátt vöruverð vissulega vandam Ofanritað er ekki gera lítið úr því að ve vöru er hátt á Ísland menn í staðinn viður framleiðslu sem sten það besta sem þekki vörugæði, úrval, holl Það er að sjálfsög munamál fyrir íslens leita allra leiða til að vælaverð. En það er mikið hagsmunamál innfluttum nauðsynj ilanna eins og það er innlendrar búvöru. É móti séð að það sé m skór og föt séu 35% Danmörku en að t.d 8% dýrari. Hvorki Samtök ve Halldór Ásgrímsson rún Gísladóttir geta halda fyrir því að þa snúa að háu verðlagi á Íslandi einskorðist þá eingöngu innlend Staðreyndir tala ein öðru máli. Heilmikil náðst í því að hagræ leiðslu á Íslandi og d lega úr beinum stuðn til landbúnaðarins. Árið 1990 runnu u heildarútgjöldum he búnaðarmála en þett komið undir 4% og f Þegar horft er til þ heildarútgjöldum se skyldur verja til kau niðurstaðan svipuð o unum eða 12,5% skv Þetta undirstrikar a slíta verð eins vörufl við almennt verðlag félaginu. Sjálfsagt dreymir Verðlag, vöruverð, matvæ pólitísk og/eða villandi hu Eftir Steingrím J. Sigfússon ’Sjálfsagt drear þjóðir um a ina þannig að eins og í Nore vælaverðið ein Grikklandi en einfaldlega ek Steingrímur J. Sigfússon EFTIRLITSHEIMILDIR FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS Valgerður Sverrisdóttir við-skiptaráðherra kynnti á Al-þingi í fyrradag áform um að styrkja heimildir Fjármálaeftir- litsins (FME) til eftirlits með fjár- málamarkaðnum. Ráðherra boðaði frumvarp um þetta efni á vor- þinginu. Það skiptir miklu máli að Fjár- málaeftirlitinu verði fengin þau tæki, sem nauðsynleg eru til að fylgjast með því að farið sé eftir lögum og reglum á fjármálamark- aðnum. Forsendan fyrir því frelsi, sem gildir nú á fjármálamarkaðn- um, er að þar starfi eftirlitsstofnun, sem hefur bolmagn og heimildir til að rannsaka grun um að farið sé á svig við reglurnar og jafnframt úr- ræði, sem duga til að taka á fyr- irtækjum og einstaklingum, sem uppvísir verða að slíkum brotum. Óvissan um heimildir Fjármála- eftirlitsins virðist snúa að nokkrum þáttum og hafa þeir allir komið upp í rannsókn stofnunarinnar á við- skiptum með stofnfé í Sparisjóði Hafnarfjarðar. FME krafðist upp- lýsinga frá nýjum stofnfjáreigend- um í sjóðnum, m.a. til að reyna að leiða í ljós hvort virkur eignarhlut- ur hefði myndazt í sjóðnum og hvort stofnfjárhlutir hefðu verið keyptir fyrir aðra en þá, sem skráð- ir voru fyrir þeim. Í fyrsta lagi hefur komið fram í fréttum Morgunblaðsins að sumir stofnfjáreigendurnir neituðu að veita umbeðnar upplýsingar, með vísan til þess að í lögum um FME væri ekkert um heimildir þess til að hafa eftirlit með einstaklingum, sem ættu hluti í fjármálafyrirtækj- um. Þegar löggjöfin er skoðuð, virðist hún óljós að þessu leyti. Það er full ástæða til að hnykkja á þess- um heimildum Fjármálaeftirlits- ins. Allir, sem fylgjast með íslenzk- um hlutabréfamarkaði, þekkja þann felu- og blekkingarleik, sem stundaður er varðandi raunveru- legt eignarhald á hlutum í fyrir- tækjum. Það á ekki síður við um fjármálafyrirtæki en önnur fyrir- tæki. Stundum hefur verið sagt að Fjármálaeftirlitið sé eini aðilinn, sem geti haft sæmilega yfirsýn um það hverjir séu raunverulegir eig- endur fyrirtækja í gegnum safn- reikninga, framvirka samninga, eignarhaldsfélög, íslenzk fjármála- fyrirtæki í útlöndum o.s.frv. Það er áhyggjuefni út af fyrir sig. En stundum á meira að segja FME greinilega í vandræðum með að fá skýr svör um það hverjir séu raun- verulegir eigendur í fjármálafyrir- tækjum. Slíkri óvissu verður auð- vitað að eyða. Í öðru lagi er hægt er að kæra ýmsar ákvarðanir FME til kæru- nefndar, sem starfar samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Þegar einn stofnfjáreigendanna í SPH svaraði ekki ítrekuðum fyrirspurnum FME, lagði stofnunin á hann dag- sektir. Sú ákvörðun var kærð til kærunefndarinnar. Nefndin komst reyndar að þeirri niðurstöðu að FME hefði ótvírætt heimild til að krefjast upplýsinga frá viðkomandi um það, hvort stofnfjárhlutur hans teldist hluti af virkum eignarhlut í sparisjóðnum. Hins vegar yrði ekki ráðið af lögskýringargögnum eða lögum að ætlun Alþingis hefði verið að veita FME heimild til að beita einstaklinga, sem eiga hluti í fjár- málafyrirtækjum, dagsektum. Slík óvissa er auðvitað líka alveg fráleit – að menn geti gefið FME langt nef, eins og stofnunin orðaði það sjálf í bréfi til viðskiptaráðherra í nóvember síðastliðnum. Fjármála- eftirlitið verður auðvitað að hafa þau úrræði, sem nauðsynleg eru til að fá fram upplýsingar við rann- sókn mála. Í þriðja lagi veittu stofnfjáreig- endur í öðrum tilvikum FME svör, sem stofnunin taldi ófullnægjandi. M.a. neitaði stofnfjáreigandi að upplýsa um viðsemjanda sinn vegna kaupa á stofnfjárhlutum, hvert kaupverðið hefði verið og hvort um milligöngumenn hefði verið að ræða. Þessi svör taldi kærunefndin fullnægjandi miðað við lagabókstafinn. Hér hlýtur að koma til skoðunar hvort tilgreina þurfi skýrar í lögum hvers konar upplýsinga FME sé heimilt að afla við rannsókn mála. Fram hefur komið í Morgun- blaðinu að FME fór aðra leið að upplýsingunum í þessu máli og fékk a.m.k. í einu tilfelli dómsúr- skurð, sem skyldaði banka til að veita aðgang að upplýsingum um færslur á bankareikningi lög- mannsstofu eins stofnfjáreigend- anna. Fjórða atriðið, sem Fjármálaeft- irlitið hefur farið fram á að við- skiptaráðherra leysi úr, er mál- skotsréttur vegna niðurstaðna kærunefndarinnar. Sem stendur er ekki hægt að láta reyna á úrskurði hennar að neinu leyti, hvorki form né efni. Stefán Svavarsson, stjórn- arformaður FME, benti á það í ræðu á síðasta ársfundi stofnunar- innar, að úrlausnarefni kærunefnd- arinnar gætu haft „slíka grundvall- arþýðingu fyrir starfsemi Fjármálaeftirlitsins, stefnu þess og þróun fjármálamarkaðar, að óeðli- legt verður að teljast að þær geti ekki sætt endurskoðun dómstóla“. Stefán benti jafnframt á að núver- andi fyrirkomulag hvetti málsaðila til að kæra ákvarðanir Fjármála- eftirlitsins, „þar sem þeir hafa engu að tapa, en geta treyst því að hagstæð niðurstaða í kærunefnd sætir ekki endurskoðun dómstóla“. Í því umhverfi, sem til er orðið á íslenzkum fjármálamarkaði, er augljóslega þörf á að skýra löggjöf- ina um Fjármálaeftirlitið hvað alla ofangreinda þætti varðar. Vonandi lítur frumvarp viðskiptaráðherra dagsins ljós sem fyrst. NÝ heilsugæslustöð fyrir Voga- og Heimahverfi í Reykjavík tekur til starfa á mánudag en hún var form- lega opnuð á fimmtudag. Stöðin er til húsa á nýrri hæð í Glæsibæ við Álfheima 74. Yfirlæknir stöðv- arinnar er Kristján G. Guðmundsson og hjúkrunarforstjóri Sigrún K. Barkardóttir. Hverfið sem stöðin á að þjóna markast af svæðum austan Dal- brautar, norðan Laugardals og norð- an Miklubrautar frá Grensásvegi að Elliðaárvogi. Á þessu svæði búa um níu þúsund manns. Á stöðinni verður veitt almenn læknis- og hjúkr- unarþjónusta, slysa- og bráðaþjón- usta, símaráðgjöf og síðdegisvakt auk almennrar heilsuverndar. „Hér verður einnig veitt mæðra- og ung- barnavernd sem hefur til þessa verið veitt á Barónsstíg og verða nokkur stöðugildi tengd því en læknir kem- ur frá miðstöð ungbarnaverndar,“ segir Kristján í samtali við Morg- unblaðið. að fjórði læknirinn og sá fimmti á næs er í stöðinni fyrir s Auk hans munu læknarnir Guðrún Hreinsdóttir og Björn Gunnlaugsson starfa við stöðina. Gert er ráð fyrir Ný heilsugæslustöð fyrir níu þúsu Kristján G. Guðmundsson er yfirlæknir stöðvarinnar og Sigrú ardóttir er hjúkrunarforstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.