Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 65
DAGBÓK
Ísfirðingafélagið í Reykjavík heldur sitt ár-lega Sólarkaffi á Broadway við Ármúla nk.föstudag. Húsið verður opnað um kl. 19.30en forsala aðgöngumiða fer fram á Broad-
way á milli kl. 14 og 16 í dag og síðan á skrifstofu
Ísfirðingafélagsins.
„Sólarkaffi er eiginlega svona þjóðhátíð heima á
Ísafirði. Það er efnt til þessarar hátíðar síðast í
janúar þegar sólin nær að skína niður á eyrina eft-
ir nærri tveggja mánaða fjarveru,“ segir Ólafur
Hannibalsson, en hann er formaður Ísfirðinga-
félagsins. Segir hann að þegar Ísfirðingafélagið
var stofnað í Reykjavík fyrir rúmlega 60 árum hafi
verið ákveðið að blása lífi í þennan sið og kalla að-
alhátíð félagsins Sólarkaffi.
Veislustjóri á hátíðinni þetta árið verður Ólafur
Helgi Kjartansson, fyrrverandi sýslumaður á Ísa-
firði og núverandi sýslumaður í Árnessýslu, en
meðal skemmtiatriða má nefna að brottflutti Ís-
firðingurinn Bjarni Ara tekur lagið, sem og annar
brottfluttur Ísfirðingur, leikarinn og söngvarinn
Helgi Björnsson, Elín Alma Arthúrsdóttir er
ræðumaður kvöldsins en fyrir dansi leikur Reynir
Guðmundsson og hljómsveit hans, Saga Class.
Ólafur segir aðsókn á Sólarkaffihátíðina hafa
verið góða, jafnan mæti á milli 400 og 500 manns. Í
fyrra hafi um 700 manns mætt en þá hafi verið um
stórafmæli að ræða, Ísfirðingafélagið hafi verið að
halda upp á sextíu ára afmæli sitt.
Ólafur segir að um 900 manns séu nú skráðir
meðlimir Ísfirðingafélagsins. Félagið heldur þrjár
hátíðir á ári; Kirkjuhátíð sem haldin er í maí og
Sólkveðjuhátíð sem haldin er við vetrarsólhvörf í
Hveragerði. Þá gefur félagið út ársrit, Vest-
anpóstinn, en Ólafur segir að nýjasta hefti þess sé
einmitt nýkomið út.
Mörg átthagafélög eru starfandi sunnanlands
en þau eru hins vegar misvirk eins og gengur, að
sögn Ólafs. Hann nefnir sem dæmi að félög að
austan hafi verið ansi lifandi, sum jafnvel rekið
kóra og annað þess háttar. Ísfirðingafélagið sé
sjálfsagt með þeim virkari. „Og það sem helst er
tíðinda af starfsemi félagsins um þessar mundir er
að við erum að festa kaup á íbúð á Spáni. Við rek-
um hús á Ísafirði, sem heitir Sóltún, og það hefur
verið mjög eftirsótt svona tólf vikur á sumrin en
lítið á veturna. Nú viljum við gefa félagsmönnum
tækifæri á að gista á einhverjum hlýjum stað allt
árið um kring. Þetta hús er nálægt Alicante á
Spáni og hefur fengið nafnið Sólströnd. Ég geri
ráð fyrir að við munum kynna þessa nýbreytni á
Sólarkaffinu,“ sagði Ólafur Hannibalsson.
Félagsstarf | Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins haldið á Broadway nk. föstudagskvöld
Kaupa sér hús á Spáni
Ólafur Hannibalsson
fæddist árið 1935 á Ísa-
firði. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum á
Laugarvatni og fór það-
an í háskólanám í
Bandaríkjunum og
Tékkóslóvakíu. Ólafur
hefur starfað við
kennslu, blaða-
mennsku, bændastörf,
ritstörf og einnig sem skrifstofustjóri ASÍ.
Hann er kvæntur Guðrúnu Pétursdóttur og
eiga þau saman tvær dætur. Fyrir átti hann
þrjú börn.
Smith-reglan.
Norður
♠DG65
♥8752 A/Allir
♦10
♣ÁDG8
Vestur Austur
♠1043 ♠987
♥ÁD6 ♥10943
♦K9653 ♦G42
♣73 ♣K54
Suður
♠ÁK2
♥KG
♦ÁD87
♣10962
Um vörnina í spili dagsins er eft-
irfarandi að segja: hún er einföld á
opnu borði, en illfinnanleg í reynd.
Spilið er frá 5. umferð Reykjavík-
urmótsins og þetta var algeng sagnröð
upp í þrjú grönd:
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 tíglar
Pass 3 grönd Allir pass
Vestur á nokkuð sjálfgefið tíg-
ulútspil og suður fær fyrsta slaginn á
drottninguna. Hann svínar strax í lauf-
inu og þegar austur kemst inn verður
hann að skipta yfir í smátt hjarta. En
sú vörn reyndist of erfið, því flestir – ef
ekki allir – svöruðu makker upp í tígli.
Sagnhafi komst þá að til að taka níu
slagi.
Þetta spil er vatn á myllu þeirra sem
nota Smith-regluna í vörn gegn grandi.
Þegar sagnhafi spilar út í öðrum slag
geta báðir varnarspilarar tjáð sig um
útspilslitinn. Makker útspilarns setur
hátt spil til að lýsa yfir ánægju með
byrjunarlitinn, en sá sem spilaði út set-
ur hins vegar hátt spil ef hann vill fá
annan lit.
Í þessu tilfelli myndi vestur láta
sjöuna í laufi fyrst. Ef austur dúkkar
til að leita betri upplýsinga, kemur
laufþristurinn næst frá makker og þá
liggur fyrir að vestur vill annan lit – og
ekkert annað en hjarta kemur til
greina.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
a6 5. Bd3 Bc5 6. Rb3 Be7 7. c4 d6 8.
Rc3 b6 9. 0-0 Bb7 10. f4 Rd7 11. De2
Rgf6 12. Bd2 0-0 13. Hae1 He8 14.
Bb1 g6 15. f5 exf5 16. exf5 Bf8 17.
Df2 Hxe1 18. Dxe1 Dc7 19. fxg6 hxg6
20. Dh4 Bg7 21. Bh6 Bxh6 22. Dxh6
Dxc4 23. Hf4 De6 24. Bxg6 fxg6 25.
Dxg6+ Kf8 26. Dh6+ Ke7 27. Rd4
De3+ 28. Kf1
Staðan kom upp á minningarmóti
Keresar sem lauk fyrir skömmu í
Tallinn í Eistlandi. Um sterkt at-
skákmót var að ræða hafði sænski
stórmeistarinn Evgeny Agrest (2.571)
hér svart í fyrstu umferð gegn landa
sínum og kollega Emanuel Berg
(2.540). 28. … Dc1+?! svartur gat
mátað hvítan með því að leika
28. … Bxg2+! 29. Kxg2 Hg8+ og
hvítur getur eingöngu framlengt
skákina um þrjá leiki áður en hann
verður mát. Þrátt fyrir að hafa sést
yfir þetta er svartur enn með gjör-
unnið tafl. 29. Ke2 Dc2+?? Ótrúlegur
afleikur. 29. … Dxb2 hefði tryggt
svörtum unnið tafl en í stað þess
gafst hann upp eftir 30. Rxc2 enda
hafði hann leikið drottningu sinni
beint ofan í dauðann. Þessi skák hef-
ur sjálfsagt haft slæm áhrif á Agrest
þar eð hann hlaut eingöngu einn og
hálfan vinning af níu skákum á
mótinu.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Nagladekk - eða ekki?
ÞAÐ er í athugun hjá borginni, að
setja skatt á bíla sem aka á nagla-
dekkjum.
Það eru samt allir á sama máli
um það, að naglar eru bestir,
svona alhliða. Og við eigum rétt á
að nota bestu fáanlegu dekk, sem
hægt er, til að firra okkur og far-
þega okkar slysum. Svo ég tali
ekki um aðra sem verða á vegi
okkar í umferðinni.
Ekki væri gaman að lenda í
árekstri við bíl, og vera í rétti,
(eða ekki í rétti) en hinn aðilinn
hefði ekki haft efni á að borga
naglaskattinn!
Gott mál að athuga slit á götum.
En ég vil þá sjá allar staðreyndir.
Er ekkert slit, ef ekki eru notuð
nagladekk? Getur verið að saltið
hafi óæskilegri áhrif á bundna slit-
lagið, meira en nagladekkin gera.
Það er notað salt á göturnar
hérna, geta þá bíleigendur farið
fram á að bærinn borgi eigendum
bíla endurryðvörn? Svona á 2 ára
fresti? Saltið eyðileggur bíla =
nagladekk eyðileggja götur.
Ekki alltaf vera með ofbeldis-
aðgerðir á hendur íbúunum. Sýnið
sanngirni, svona stundum.
Jóna Sigrún Sigurðardóttir.
Stundvísi
HIÐ virta BBC (útvarp–sjónvarp)
á Bretlandi hefur alltaf haft
klukku sem telur niður síðustu
sekúndur fyrir fréttir með mikilli
nákvæmni – og á réttum tíma.
Nú bregður svo við að RÚV
(sjónvarp) hefur tekið upp þessa
nýbreytni, sem er góðra gjalda
verð. En böggull fylgir skammrifi
á þann hátt að ef auglýsingar eru
lengri en réttur fréttatími á að
hefjast á er klukkan engu að síður
notuð og talið niður síðustu sek-
úndur sem fyrr segir. Þetta kalla
ég ekki vandvirkni.
Gott væri, að þetta yrði tekið til
athugunar hjá tæknideild RÚV
svo búast megi við meiri stundvísi
en verið hefur undanfarið, en ekki
villt um fyrir fólki, um réttan
tíma.
Virðingarfyllst,
Svanur Jóhannsson.
Gulgrænn gári
(kk) í óskilum
GULGRÆNN (kk) gári fannst í
Þingholtunum á sunnudaginn.
Eiganda hans er bent á að hafa
samband við dýralæknastofu Dag-
finns í síma 552 3621 sem fyrst.
Ljóni er týndur
KISINN okkar hann Ljóni hvarf
frá Ljósheimum 1 7.jan. sl. Hann
sást síðast þá síðdegis og síðan
hefur hann
ekkert komið
heim. Hann
verður tveggja
ára 7. mars
næstkomandi.
Hann er eyrna-
merktur
0H4106, brún-
bröndóttur og
svaka sætur.
Hans er sárt
sárt sárt saknað. Fólk er beðið að
kíkja í læstar geymslur, hjóla-
geymslur, bílskúra og já bara hafa
augun opin. Vinsamlega hafið
samband ef þið vitið eitthvað um
hann í síma 567 2316, 861 3716 eða
866 3772.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
er flutt á Laugaveg 56.
Útsala og fjöldi opnunartilboða!
Verið velkomin.
Laugavegi 56
VERSLUNARPLÁSS ÓSKAST
Höfum kaupanda að 200-300 fm verslunarplássi
á Laugaveginum. Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veita Sverrir og Óskar.
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Jón Stefánsson óskast
Óska eftir að kaupa olíumálverk
eftir Jón Stefánsson
Tilboð sendist á auglýsingadeild Mbl. eða á box@mbl.is
merkt: „JS — 18130“.
Meðal skemmtiatriða
verður ásláttarglaður geðlæknir og hundur
í óskilum. Íslands eina von með Eyjólfi
Kristjánssyni stjórnar dansi ásamt gesti
þeirra Stefáni Hilmarssyni
Miðasala og borðapantanir
á Læknadögum að Hotel Nordica og á
Broadway dagana 18.-20. janúar.
Miðaverð
6.900 kr (unglæknar 4.900 kr)
Athugið: Árshátíðin er reyklaus
Árshátíð
Laugardagskvöldið 21. janúar
Læknafélags
Reykjavíkur 2006
Fréttir á SMS