Morgunblaðið - 21.01.2006, Síða 43

Morgunblaðið - 21.01.2006, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 43 UMRÆÐAN Í APRÍLMÁNUÐI 1964, þegar undirritaður átti í fyrsta sinni leið inn á Alþingi, var uppi umræða um að að því gæti komið að Þjórs- árverum yrði sökkt undir miðl- unarvatn vegna virkjana í Þjórsá. Skrifari þessa pistils hafði frá frumbernsku verið frá sér numinn af fuglum himinsins; hafði enda lesið sér til um rannsóknir fræði- manna á þessum heimkynnum heiðagæsarinnar, sem eru einstæð í veröldinni. Því var það að hann lét þess get- ið við þáverandi iðnaðarráðherra, Jóhann Hafstein, að hann myndi aldrei eiga hlut að eyðingu Þjórs- árvera. Sú afstaða hefir ekkert breytzt, með öllu óbifanleg. Eins og nú er komið málum, er illskiljanlegt að ráðamenn skuli enn þann steininn klappa að leggja undir sig Þjórsárver til orkufram- leiðslu. Varla getur verið, að þeir séu svo skyni skroppnir, eða svo sambandslausir við almenning, að þeir átti sig ekki á að það mun þeim héðan af aldrei takast. Fyrir því velta menn nú fyrir sér hvað þeim gangi til, og leiða hug- ann að því hvort ráðamenn kjósi að sviðsljós beinist fremur að Þjórs- árverum og frá Kárahnjúkum. Þegar fram líða stundir koma svo hinir skilningsríku landsfeður og færa þjóð sinni af örlæti sínu og framsýni hin miklu náttúruundur Þjórsárver; reiknandi með að fljót- lega fenni yfir í hugum kjósenda fyrri ásælni þeirra og axarsköft í málinu. Þeir eiga nefnilega eftir að bíta úr nálinni með Kára- hnjúka, enda ruðst í þá stórframkvæmd af óforsjálni en þeim mun meiri bægsla- gangi. Það kemur þeim nú líka í koll að mjög skorti á um rannsóknir á virkj- unarsvæðinu. Asinn, sem réð ferð, var vegna þess að tjalda þurfti öllu til vegna alþingiskosn- inga, sem í hönd fóru. Þegar Norðmenn gengu úr skaftinu, bauð Colin Powell Alcoa hingað eftir ósk þáverandi utanrík- isráðherra, sem bað auðjöfrana að gera svo vel og vera vesgú. Og nú undrast landslýðurinn yfir stórhækkandi raforkuverði. For- svarsmenn iðnaðarins upplýsa um óbærileg orkukaup og ofbýður, enda blekktir með áróðri um nýja samkeppni fyrirtækja í orkugeiranum, enda þótt Landsvirkjun deili og drottni þar ein. Spurning: Hvernig má það vera, að Ís- lendingar skuli ekki njóta þess í lækkandi orkuverði að álfurstar heims hafa samið um stórkostleg kaup á ís- lenzkri orku? Svarið er ofur ein- falt: Íslendingar hafa í mörgu falli borgað með þeirri orku sem seld hefir verið. Þó kastar fyrst tólfunum vegna orkusölu til Alcoa. Eða halda menn kannski að auðjöfrarnir hafi ekki nýtt sér að vera beðnir að koma til skjalanna? Auðvitað er gjafasamningurinn við Alcoa kallaður ríkisleyndarmál til að reyna í bili að skjóta skildi fyrir afglöpin. En upp komast svik um síðir, og mætti þó öllum þegar vera ljóst, að ráðstjórnin býr sig undir stór- felldan taprekstur á Kára- hnjúkavirkjun, og að ekki er seinna vænna en að láta landsmenn strax byrja að borga álbrúsann. Það hefði enda verið óþægilegt fyr- ir læðupokana að stórhækka orku- verð til landsmanna um leið og Kárahnjúkavirkjun byrjar að mala ál-gull fyrir auðhringinn. Sverrir Hermannsson fjallar um stóriðju og orkuverð ’Hvernig má það vera,að Íslendingar skuli ekki njóta þess í lækk- andi orkuverði að ál- furstar heims hafa sam- ið um stórkostleg kaup á íslenzkri orku?‘ Sverrir Hermannsson Höfundur er fv. iðnaðarráðherra. Álbrúsinn Sigríður Halldórsdóttir skrif- ar um bækur Lizu Marklund sem lýsa heimilisofbeldi. Marteinn Karlsson: Ég sat uppi með nýjan bát í dauða- dæmdu kerfi en aflareynslan á mínar tvær hendur kom á bát- inn sem ég seldi. Verðmæti hans fór úr 6 milljónum í 40 milljónir við kvótasetninguna. Hulda Guðmundsdóttir: „Ég tel að það liggi ekki nægilega ljóst fyrir hvernig eða hvort hinn evangelísk-lútherski vígsluskilningur fari í bága við það að gefa saman fólk af sama kyni …“ Birgir Ásgeirsson: Opið bréf til vígslubiskups Skálholtsstift- is, biskups Íslands, kirkjuráðs og kirkjuþings. Jakob Björnsson skrifar um álvinnsl á Íslandi . Prófkjörsgreinar á mbl.is www.mbl.is/profkjor Helga Guðrún Jónasdóttir hvetur fólk til að kjósa konur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Hildigunnur Lóa Högnadóttir hvetur Kópavogsbúa til að kjósa konur í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Kópavogi. Margrét Björnsdóttir mælir með Gunnari I. Birgissyni í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi. Ólafur Örn Haraldsson mælir með Gesti Kr. Gestssyni í 2. sæti í prófkjöri Framsóknar- flokksins í Reykjavík. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar Dalvegi 28 – Kópavogi Sími 515 8700 BLIKKÁS –

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.