Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞINGMENN Sam-
fylkingarinnar, þau Jó-
hanna Sigurðardóttir
og Helgi Hjörvar, biðja
viðskiptaráðherra að
bregðast skjótt við og
fá Fjármálaeftirlitinu
meiri og víðtækari
rannsóknarúrræði en
stofnunin hefur í dag.
Þingmennirnir eru
þarna að hlaupa eftir
beiðni frá fyrirsvars-
manni Fjármálaeft-
irlitsins til við-
skiptaráðherra um meiri völd
stofnun hans til handa. Þingmenn-
irnir skamma viðskiptaráðherra fyr-
ir að hafa ekki þegar brugðist við og
komið með frumvarp, sem veitti
Fjármálaeftirlitinu betri, fleiri og
meiri rannsóknarúrræði.
Hafi ég tekið rétt eftir taldi Jó-
hanna Sigurðardóttir að Fjármála-
eftirlitið skorti þessi úrræði ekki síð-
ar en í dag annars væri voðinn vís
vegna þeirrar rannsóknar, sem nú
stendur yfir á viðskiptum með stofn-
bréf í Sparisjóði Hafnarfjarðar.
Nú veit ég ekki hve mikið Jóhanna
Sigurðardóttir og Helgi Hjörvar
hafa kynnt sér það mál, sem Fjár-
málaeftirlitið og ríkislögreglustjóri
eru hvor fyrir sig að rannsaka. Hitt
veit ég, að það vekur ugg í brjósti
mér þegar ég hlusta á ræðustúfa,
eins og þá sem Jóhanna Sigurð-
ardóttir og Helgi Hjörvar fluttu á
Alþingi um mál þetta á fimmtudag-
inn. Þingmenn þessir
virðast hafa gleymt
hlutverki Alþingis og
líta á það sem af-
greiðslustofnun fyrir
erindi frá fram-
kvæmdavaldinu eða
einstökum stjórnsýslu-
stofnunum þess.
Komdu með frum-
varpið, ráðherra, og við
afgreiðum það, hrópa
þingmennirnir.
Það er mín skoðun að
hollast væri fyrir þessa
ágætu þingmenn að
byrja á því að kynna sér til hlítar lög-
in um opinbert eftirlit með fjármála-
starfsemi nr. 87/1998, sem Jóhanna
Sigurðardóttir tók þátt í að setja,
sem þingmaður, án athugasemda
eða breytingatillagna að því er virð-
ist. Við lestur laganna verður þing-
mönnunum vonandi ljóst að Fjár-
málaeftirlitið skortir engar heimildir
til þess að rannsaka einstök mál,
sem varða þá, er valdsvið stofnunar-
innar nær yfir.Telji Fjármálaeft-
irlitið einhvern maðk í mysunni get-
ur stofnunin vísað rannsókn á þeim
hluta til lögreglu til rannsóknar.
Fróðlegt væri að vita hvaða vald-
heimildir og þvingunarúrræði Jó-
hanna Sigurðardóttir og Helgi
Hjörvar telja Fjármálaeftirlitið
skorta, byrjuðu þau á byrjuninni og
greindu hlutverk Fjármálaeftirlits-
ins í samfélaginu og samspil þess við
aðrar stjórnsýslustofnanir, eftirlits-
og rannsóknaraðila, sem löggjafinn
hefur komið á fót til að tryggja að
farið sé að þeim leikreglum, sem
hann setur bæði til verndar al-
mannahagsmunum en ekki síður til
verndar réttindum og frelsi ein-
staklingsins m.a. í samskiptum hans
við handhafa framkvæmdavalds,
hvaða nafni sem valdhafinn nefnist.
Jóhanna Sigurðardóttir og Helgi
Hjörvar ættu að nota komandi sum-
arfrí frá 5. maí til 1. október til þess-
arar rannsóknarvinnu og koma fram
með eigið frumvarp telji þau Fjár-
málaeftirlitið skorta einhverjar vald-
heimildir til að geta gegnt eftirlits-
hlutverki sínu.
Alþingi er ekki staður fyrir af-
greiðsluþingmenn.
Afgreiðsluþingmenn
Sigurður G. Guðjónsson
skrifar um fyrirspurn Jóhönnu
Sigurðardóttur og Helga
Hjörvars til viðskiptaráðherra
’… hollast væri fyrirþessa ágætu þingmenn
að byrja á því að kynna
sér til hlítar lögin um
opinbert eftirlit með
fjármálastarfsemi nr.
87/1998, sem Jóhanna
Sigurðardóttir tók þátt í
að setja … ‘
Sigurður G. Guðjónsson
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
FERÐAMÖNNUM er alltaf að
fjölga á Íslandi. Bæði erlendum
gestum sem koma
hingað vegna funda-
og ráðstefnuhalds eða
í skemmtiferðir, og
einnig fjölgar ávallt
þeim Íslendingum
sem ferðast um eigið
land.
Kópavogur og allt
höfuðborgarsvæðið er
vissulega góður kost-
ur í allri þeirri flóru
staða sem í boði er
fyrir erlenda og inn-
lenda gesti. Óhætt er
að segja að nánast all-
ir þeir sem koma til
landsins með flugi
keyra í gegnum Kópa-
voginn, en alls ekki
allir verða þeirrar
ánægju aðnjótandi að
staldra aðeins við þar
og kynna sér það sem
bærinn hefur í boði
meðal annars í afþrey-
ingu, menningu og
listum.
Enginn vafi er á því
að margt þarf að gera
í ferðamálum í Kópavogi og marka
þarf ákveðna stefnu í þeim málum
og vinna markvisst að því að fjölga
ferðamönnum í bænum. Fjölbreytt
afþreying er nú þegar í boði og
einnig státar bærinn af mjög góðri
aðstöðu til ráðstefnu- og funda-
halds, ásamt því að geta boðið stór-
glæsilega sýningarhöll fyrir stórar
sýningar og ráðstefnur. Tónlistar-
hús og söfn eru einnig fyrsta flokks
í Kópavoginum sem hægt væri að
tengja enn frekar ferðaiðnaðinum.
Til að auka fjölbreytnina mætti
einnig bjóða ferðamönnum að skoða
þær fornminjar sem til eru í Kópa-
voginum. Meðal annars eru söguleg
hús líkt og gamli Kópavogsbærinn
sem gera mætti upp í
sinni upprunalegu
mynd. Það er alveg
ljóst að húsið yrði afar
falleg viðbót við það
frábæra umhverfi sem
er í Kópavogsdalnum
og myndi sóma sér vel
sem viðkomustaður
fyrir alla þá sem leggja
leið sína um dalinn,
hvort heldur sem það
væru gestir eða Kópa-
vogsbúar sjálfir. Með
þessu mætti til dæmis
tengja gamla og nýja
tímann með skemmti-
legum hætti.
Kópavogur hefur
margt að bjóða ; iðandi
mannlíf, falleg útivist-
arsvæði, mikla nátt-
úrufegurð, marga
áhugaverða staði bæði
frá gamla og nýja tím-
anum, og svo mætti
lengi telja. Það eru
mörg spennandi verk-
efni framundan sem
tengjast ferðamálum í
Kópavogi og á öllu höfuðborg-
arsvæðinu. Skemmtileg verkefni
sem munu klárlega laða enn fleiri
ferðamenn til landsins og með
áframhaldandi vinnu í ferðamálum í
Kópavogi munu þeir örugglega
staldra lengur við í Kópavoginum
en þeir gera nú !
Bjóðum ferða-
menn velkomna
í Kópavog
Eftir Gróu Ásgeirsdóttur
Gróa Ásgeirsdóttir
’Það eru mörgspennandi verk-
efni framundan
sem tengjast
ferðamálum í
Kópavogi og á
öllu höfuðborg-
arsvæðinu. ‘
Höfundur starfar sem verkefnastjóri
hjá Flugfélagi Íslands og gefur kost á
sér í 5.–6. sæti í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Kópavogi.
Prófkjör Kópavogur
Í PRÓFKJÖRI Sjálfstæð-
isflokksins nú um
helgina ákveðum við
hverjir skipa framboðs-
lista Sjálfstæðisflokks-
ins í bæjarstjórn-
arkosningunum í
Kópavogi nú í vor.
Flokkurinn hefur nú 5
bæjarfulltrúa af 11 og
hefur svo verið und-
anfarin kjörtímabil.
Frá sjónarhóli sjálf-
stæðismanna skiptir
höfuðmáli, ekki aðeins
fyrir flokkinn heldur
eigi síður fyrir alla
íbúa Kópavogs, að
flokkurinn haldi a.m.k.
núverandi stöðu og
helst bæti hana.
Ef þátttaka í próf-
kjörinu á morgun
verður góð má reikna
með að tæplega 3 þús-
und manns taki þátt.
Flokkurinn hlaut hins
vegar rúmlega 5 þús-
und atkvæði í seinustu
bæjarstjórnarkosn-
ingum og við hljótum að stefna að
6 þúsund atkvæðum í kosning-
unum í vor. Til þess að það gangi
eftir verður kosningabaráttan fyr-
ir sjálfar kosningarnar að telja um
3 þúsund kjósendur, sem ekki
taka þátt í prófkjörinu, á að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn.
Í kosningarbaráttunni í vor mun
flokkurinn leggja fram sína
stefnuskrá og sýna Kópavogsbú-
um að stefna og forysta Sjálfstæð-
isflokksins muni, þegar upp er
staðið, þjóna hags-
munum allra íbú-
anna og tryggja
áfram góða stöðu
Kópavogs á næsta
kjörtímabili. Fram-
boðslistinn verður
því að hafa breiða
skírskotun og höfða
sérstaklega til kjós-
enda í Kópavogi,
sem ekki eru flokks-
bundnir.
Ég skora á alla
sjálfstæðismenn í
Kópavogi og ekki
síst konur í flokkn-
um að kjósa í próf-
kjörinu og hafa
þannig bein áhrif á
það, hvernig fram-
boðslistinn í bæj-
arstjórnarkosning-
unum í vor verður
skipaður. Kosið verð-
ur í félagsaðstöðu
flokksins að Hlíð-
arsmára 19. Ganga
má í flokkinn á
www.xd.is og einnig á kjörstað og
öðlast þannig kosningarétt í próf-
kjörinu.
Fram til sigurs í vor!
Ágætu flokks-
systkin í Kópavogi
Eftir Sigurrós Þorgrímsdóttur
Sigurrós
Þorgrímsdóttir
’Ég skora á allasjálfstæðismenn
í Kópavogi og
ekki síst konur í
flokknum að
kjósa í próf-
kjörinu...‘
Höfundur er bæjarfulltrúi og
býður sig fram í 3. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.
Prófkjör Kópavogur
OFT hafa staðið deilur um hvort
rétti aðilinn hafi hlotið titilinn íþrótta-
maður ársins hverju
sinni. Í ár heyrast eng-
ar efasemdaraddir,
enda enginn vafi á að
valinn var sá, sem verð-
ugastur var. Tilgangur
þessara skrifa er því
ekki að vekja deilur,
heldur vekja athygli á
því óréttlæti, sem ríkir
við þetta val.
Málið er það, að það
sitja ekki allir við sama
borð, og það jafnræði,
sem krafist er í nútíma-
þjóðfélagi, er að engu
virt. Einungis þeir
íþróttamenn, sem eru innan sér-
sambanda ÍSÍ (Íþrótta- og ólympíu-
sambands Íslands) eru gjaldgengir. Í
grunninum eru það þeir íþróttamenn,
sem hafa æfingaaðstöðu í félögum
eða þurfa að vera í félögum til þess að
geta stundað sína íþrótt. Fullt er af
öðrum íþróttamönnum, sem þurfa
ekki að vera í félögum, heldur keppa
sem einstaklingar á eigin reikning, og
þeir eru hafðir utangarðs þótt þar
megi finna marga af fremstu íþrótta-
mönnum þjóðarinnar. Ég nefni í
þessu sambandi þá sem keppa í fittn-
ess, aflraunum, kraftlyftingum og
vaxtarrækt. Þessir íþróttamenn fara í
næstu líkamsræktarstöð og æfa þar
og keppa svo eftir því,
sem áhugi stendur til. Á
síðasta ári kepptu t.d.
langt yfir hundrað
manns í kraftlyftingum
og eftirtekjan var þriðji
besti árangur í heim-
inum á árinu í þyngsta
flokki hjá Aðuni Jóns-
syni; heimsmet í rétt-
stöðulyftu hjá Benedikt
Magnússyni, sett á HM
WPO-heimssambands-
ins, þar sem hann lyfti
440 kg, en sá í heim-
inum, sem næstur
stendur honum, á 426
kg; María Guðsteinsdóttir var NM-
meistari fyrst íslenskra kvenna; Sig-
fús Fossdal NM-meistari unglinga og
Jón Gunnarsson varð heimsmeistari
öldunga í Suður-Afríku. Þetta fólk
fékk ekki stig af því að ÍSÍ hefur gert
eitthvert samkomulag við íþrótta-
fréttamenn um að þetta fólk sé ekki
meðal íþróttamanna þjóðarinnar,
heldur einhver utangarðslýður.
Ég nefni til sögunnar annan
íþróttamann, einn þann glæsilegasta,
sem við eigum, og er það vaxtarrækt-
armaðurinn Magnús Bess, sem tutt-
ugu sinnum hefur orðið Íslandsmeist-
ari í þyngdarflokki, átta sinnum
meistari meistaranna, vann silf-
urverðlaun á síðasta NM-móti og
vann eitt Grand Prix-mót á árinu.
Þá má nefna að ekki fengu Jón Páll
og Magnús Ver þennan eftirsótta titil
þrátt fyrir að báðir sigruðu í keppn-
inni Sterkasti maður heims, hvor um
sig fjórum sinnum.
Fittnessið er í miklum uppgangi
hér, en enginn úr þeirri íþrótt var í
hófi íþróttafréttamanna.
ÍSÍ er barn síns tíma, þegar einka-
aðilar voru ekki farnir að skapa að-
stöðu fyrir íþróttamenn. Nú ríkir fé-
lagafrelsi og á flestum sviðum
þjóðfélagsins er krafist jafnræðis. Er
ekki kominn tími til að það sé einnig
virt og valinn fremsti íþróttamaður
þjóðarinnar allrar hverju sinni?
Kjör íþróttamanns ársins
Ólafur Sigurgeirsson fjallar
um kjör íþróttamanns ársins ’Fittnessið er í miklumuppgangi hér, en enginn
úr þeirri íþrótt var í hófi
íþróttafréttamanna.‘
Ólafur
Sigurgeirsson
Höfundur er hætaréttarlögmaður.
Í DAG göngum við
Kópavogsbúar til próf-
kjörs Sjálfstæð-
isflokksins og veljum
okkur forystusveit fyr-
ir kosningarnar í vor.
Við getum öll verið
stolt af uppgangi bæj-
arins okkar, drifkraft-
urinn blasir alls staðar
við og verkefnin fram
undan spennandi. Frá
árinu 1990 hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn í
Kópavogi markvisst
unnið að því að koma bænum í
fremstu röð sveitarfélaga í landinu.
Marktækasti mælikvarðinn til að
vega og meta hvort þetta hafi tekist
er að skoða þá mannfjöldaaukningu
sem orðin er á þessu tímabili. Árið
1990 voru Kópavogsbú-
ar 16.000, nú í vor verð-
um við yfir 28.000 þús-
und talsins. Jú,
Kópavogur er fram-
sæknasta sveitarfélag-
ið og verður það áfram
ef Sjálfstæðisflokk-
urinn fær aukið og
áframhaldandi umboð
Kópavogsbúa í vor.
Það er gífurlega
mikilvægt að fram-
boðslistinn sem valinn
verður í dag end-
urspegli kynja- og ald-
ursdreifingu bæjarbúa. Glæsilegt
framboð kvenna og nýrra liðsmanna
fyrir Sjálfstæðisflokkinn gefur okk-
ur Kópavogsbúum tilefni til að horfa
bjartsýnum augum til framtíð-
arinnar þar sem Kópavogur verður
bær fjölskyldunnar, athafnalífs og
menningar.
Í dag kjósum við öfluga fram-
varðasveit fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
Kópavogi og í maí næstkomandi
kjósum við vor en ekki vinstra hret.
Framtíðin er í þínum höndum
Eftir Ármann Kr. Ólafsson ’Við getum öll veriðstolt af uppgangi
bæjarins okkar …‘
Ármann Kr. Ólafsson
Höfundur er forseti bæjarstjórnar
Kópavogs og gefur kost á sér í 2. sæti
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi.
Prófkjör Kópavogur