Morgunblaðið - 21.01.2006, Page 46
46 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FYRIR réttu ári, eða hinn 21. jan-
úar 2005, birti Þjóðarhreyfingin –
með lýðræði heilsíðu yfirlýsingu í
bandaríska stórblaðinu The New
York Times „Innrásin í Írak – ekki í
okkar nafni“ þar sem mótmælt var
harðlega stuðningi íslenskra stjórn-
valda (sérstaklega forsætis- og utan-
ríkisráðherra) við innrás Bandaríkj-
anna – og hinna „viljugu“
bandamanna þeirra – í Írak (sjá ís-
lenska þýðingu yfirlýsingarinnar
hér að neðan).
Yfirlýsingin í The New York Tim-
es vakti verðskuldaða athygli, og var
hennar getið í yfir 100 fjölmiðlum
víða um heim. Þá barst Þjóðarhreyf-
ingunni mikill fjöldi bréfa og skeyta
erlendis frá þar sem lýst var yfir ein-
dregnum stuðningi við yfirlýs-
inguna.
Í mars á þessu ári verða 3 ár liðin
frá innrás BNA í Írak með stuðningi
hinna „viljugu“ bandamanna þeirra
– þ.m.t. Íslendinga.
Stuðningur Halldórs Ásgríms-
sonar og Davíðs Oddssonar við inn-
rásina í Írak er svartur blettur á
nafni Íslands. Engin ein ákvörðun
hefur skaðað orðstír Íslands jafn
mikið á alþjóðavettvangi. Ákvörðun
ráðherranna ber öll merki und-
irlægjuháttar og ósjálfstæðis í utan-
ríkismálum.
Þessi undirlægjuháttur kemur
enn og aftur fram þegar íslensk
stjórnvöld tóku ekki einarða afstöðu
gegn fangaflugi CIA um íslenska
lofthelgi – heldur taka gildar skýr-
ingar bandarískra yfirvalda án þess
að kanna þær sérstaklega.
Það er löngu kominn tími til að
forsætisráðherra Íslands, Halldór
Ásgrímsson, biðji þjóðina og al-
þjóðasamfélagið afsökunar á því að
hafa látið blekkjast til liðsinnis við
stríð, sem háð er á fölskum for-
sendum og í bága við samþykktir
Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalög.
Ísland á að sýna styrk sinn með
friðsamlegum aðgerðum í samræmi
við alþjóðalög því að á þann hátt ein-
an getur herlaust Ísland aflað sér
trausts og virðingar í samfélagi
þjóðanna.
F.h. Þjóðarhreyfingarinnar – með
lýðræði
Ár frá yfirlýsing-
unni í The New
York Times
’Stuðningur HalldórsÁsgrímssonar og Davíðs
Oddssonar við innrásina
í Írak er svartur blettur
á nafni Íslands. ‘
Hans Kristján Árnason
viðskiptafræðingur,
Ólafur Hannibalsson rithöfundur,
Valgarður Egilsson prófessor,
Valgerður Bjarnadóttir
viðskiptafræðingur
(ábyrgðarmenn söfnunarinnar).
Við, ríkisborgarar Íslands*,
mótmælum eindregið yfirlýsingu
íslenskra stjórnvalda um stuðning
við innrás Bandaríkjanna og ,,vilj-
ugra“ bandamanna þeirra í Írak í
mars 2003. Með þeirri yfirlýsingu
voru brotin íslensk lög, alþjóðalög
– og íslensk lýðræðishefð.
Ákvörðun um stuðning við inn-
rásina tóku forsætisráðherra og
utanríkisráðherra Íslands einir án
þess að málið fengi fyrst umfjöll-
un í utanríkismálanefnd Alþingis
Íslendinga. Er það þó skylt sam-
kvæmt íslenskum lögum, sem
segja að þar skuli fjalla um öll
meiriháttar utanríkismál. Ákvörð-
un þessi hefur hvorki verið af-
greidd formlega frá Alþingi né
ríkisstjórn Íslands.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hefur lýst
innrás Bandaríkjanna og banda-
manna þeirra brot á Stofnsátt-
mála Sameinuðu þjóðanna og þar
með brot á alþjóðalögum.
Íslendingar hafa aldrei haft eig-
in her. Alþingi Íslendinga neitaði
að lýsa yfir stríði á hendur Þýska-
landi og Japan árið 1945, sem var
þá skilyrði fyrir stofnaðild að
Sameinuðu þjóðunum. Með stofn-
aðild að NATO árið 1949 tóku Ís-
lendingar sérstaklega fram að
þeir myndu ekki lýsa yfir stríði á
hendur annarri þjóð.
Ákvörðun íslensku ráðherranna
um að styðja innrásina í Írak er til
vansæmdar íslenskri stjórnmála-
sögu og hnekkir fyrir lýðræðið.
Gengið er í berhögg við hefðir Al-
þingis Íslendinga, elsta löggjafar-
þings heims. Allar skoðanakann-
anir hafa sýnt að yfirgnæfandi
meirihluti íslensku þjóðarinnar er
mótfallinn stuðningi íslensku ráð-
herranna við innrásina í Írak (84%
í síðustu skoðanakönnun).
Við biðjum írösku þjóðina af-
sökunar á stuðningi íslenskra
stjórnvalda við innrásina í Írak.
Við krefjumst þess að nafn Ís-
lands verði umsvifalaust tekið út
af lista hinna ,,viljugu“ innrásar-
þjóða.
Ísland hefur átt vinsamleg sam-
skipti við Bandaríkin um langa
hríð. Þau samskipti hafa byggst á
gagnkvæmu trausti og hrein-
skilni.
Því teljum við skyldu okkar að
koma þessum skoðunum á fram-
færi – bæði við Bandaríkjamenn
og aðrar þjóðir.
Þjóðarhreyfingin –
með lýðræði
Reykjavík, Íslandi
www.thjodarhreyfingin.is
Yfirlýsing
Innrásin í Írak
– ekki í okkar nafni
* Yfir 4.000 Íslendingar studdu með fjárframlögum birtingu þessarar yfirlýsingar. Sem
íbúahlutfall jafngildir þetta að 4 milljónir Bandaríkjamanna tækju þátt í kostnaðinum.
SIGURSTEINN Másson, for-
maður Öryrkjabandalagsins, pré-
dikaði í Fríkirkjunni í
Reykjavík sunnudag-
inn 15. janúar og
eggjaði þingmenn lög-
eggjan að beygja sig
ekki fyrir biskupi í
þeirri alvarlegu deilu
sem nú stendur um
eðli hjónabandsins.
Fyrir alþingi liggur
stjórnarfrumvarp um
réttarstöðu samkyn-
hneigðra sem tryggir
þeim sömu kjör og
gagnkynhneigðum
varðandi „almanna-
tryggingar, lífeyr-
isréttindi, skattalega meðferð
tekna og eigna, skipti dánarbúa
o.fl.“ sem víðtæk sátt er um í sam-
félaginu. Í athugasemdum með
frumvarpinu kemur fram að nefnd-
in sem vann að gerð þess klofnaði í
tvennt í afstöðunni til ættleiðinga
barna af erlendum uppruna og
tæknifrjóvgana. Andmæli voru
ekki tekin til greina en að fullu
gengið að kröfum samkynhneigðra.
Þau tvö skulu verða eitt hold
Annað atriði í athugasemdakafla
frumvarpsins sem vekur athygli
varðar öll hjón í landinu. Þar er
birt, flestum að óvörum, ný skil-
greining á hjónabandinu og beðist
afsökunar á því að enn sé víða í
löggjöfinni „talað um hjón sem vís-
ar samkvæmt hefðbundinni orða-
notkun eingöngu til karls og konu í
hjúskap“. Síðan segir: „Hugtakið
hjón í lagatexta ber ætíð að skýra
svo að það taki bæði til karls og
konu í hjúskap og tveggja ein-
staklinga í staðfestri samvist.“
Þetta er hin nýja skilgreining al-
þingis á hjónabandinu sem biskup
hefur andmælt sem forystumaður
þjóðkirkjunnar af því hún gengur í
bága við hið fornhelga band sem
fram á okkar daga hefur bundið
saman karl og konu og lagt þeim
þá sameiginlegu skyldu á herðar
að viðhalda mannkyninu. Sá hjóna-
bandsskilningur er sannarlega
ekki bundinn við íslensku þjóð-
kirkjuna og biskup hennar, heldur
sameiginlegur öllum trúarbrögðum
heims í grundvallaratriðum. Hjón
sem gengið hafa upp að altarinu í
íslenskri kirkju hafa flest hlýtt á
eftirfarandi orð höfð eftir Jesú:
„Hafið þér eigi lesið, að skaparinn
frá upphafi gjörði þau
karl og konu, og
sagði: Fyrir því skal
maður yfirgefa föður
og móður og búa við
eiginkonu sína, og þau
tvö skulu verða eitt
hold?“ (Matt 19,4-6).
Fram hjá þessum fyr-
irmælum verður ekki
komist. Á þeim er
hjónabandið reist í
kristnum sið.
Innsta eðli
hjónabandsins
„Það virðist ætla að
verða hlutskipti samkynhneigðra á
nýrri öld að afhjúpa innsta eðli
hinnar íslensku þjóðkirkju líkt og
er að gerast víða annars staðar í
veröldinni,“ er haft eftir Sig-
ursteini Mássyni í Morgunblaðinu í
frásögn af sunnudagsprédikun
hans. Sigursteinn og félagar eiga
marga fyrirrennara í þeirri grein
að afhjúpa gamlar valdastofnanir
eins og kirkjuna, þ.á m. Lúther,
sem afhelgaði hjónabandið að
hluta. En þeir sem vilja afhjúpa
innsta eðli kirkjunnar geta ekki
vikist undan því að afhjúpa innsta
eðli hjónabandsins sem grunnein-
ingar mannfélagsins. Hjónabandið
er hinn ævaforni rammi utan um
æxlunarhlutverk mannsins. Til
þess að koma hægþroska af-
kvæmum sínum á legg þurfti mað-
urinn varanlega stofnun. Þegar
kristni kom til sögunnar talaði Jes-
ús gegn því að karlmenn gætu
með auðveldum hætti skilið við
konur sínar og látið þær einar eft-
ir. Það er í því samhengi sem hann
mælti tilvitnuð orð. Til varnar kon-
um og börnum. Hjónabandið er
elsta tryggingarfélag konunnar
sem frá því líf kviknar í kviði
hennar gengur í gegnum langa
meðgöngu, þjáningarfulla fæðingu,
langa brjóstagjöf og langt umönn-
unar- og uppeldisskeið afkvæm-
isins. Fleyg orð Simone de
Beauvoir: „Maður fæðist ekki
kona, maður verður kona“, og
„fæðing er ekki sköpun, brjósta-
gjöf ekki starf,“ hljóma eins og
hver önnur öfugmæli í eyrum mik-
ils meirihluta kvenna jarðarinnar.
Ævistarf genginna kynslóða
kvenna hefur snúist um þetta
ranglega stimplaða „ekki-starf“,
„ekki-sköpun“ sem oftast var unn-
ið innan hjónabandsins. Þær marg-
háttuðu breytingar sem orðið hafa
á samfélaginu og tilhögun barna-
uppeldis á rúmlega hálfrar aldar
tímabili hafa ekki breytt innsta
eðli hjónabandsins sem sáttmála
eins karls og einnar konu sem
gangast undir „æxlunarlögmálið“.
Hjónabandinu bylt?
Réttur samkynhneigðra para til
þess að gera ástarsambönd sín op-
inber og fá þau lögvernduð er að
fullu tryggður með umræddu
frumvarpi. Óskum þeirra um að fá
blessun trúfélags yfir gagnkvæm
heit og skuldbindingar hefur verið
vel tekið og nokkrir prestar hafa
þegar veitt slíka þjónustu þótt
formið sé enn í mótun. Krafan um
sömu hjónavígslu og gildir fyrir
karl og konu er hins vegar krafa
um breytta merkingu hjónabands-
ins, krafa um að klassískir textar
verði máðir út, krafa um að kyn og
kynhlutverk skipti ekki máli í
hjónabandi. Það jafngildir kröfu
um að leggja hjónabandið niður
sem hinn forna sáttmála karls og
konu. Varla er það markmiðið.
Endurskilgreining löggjafans á
hjónabandinu hefur ekki hlotið al-
menna umræðu í samfélaginu ef
síðustu vikur eru frátaldar. Breyt-
ing á hugtakinu hefur varla verið
rædd nema í þröngum hópum.
Engar ráðstefnur hafa verið haldn-
ar um hjónabandið, engin könnun
gerð á vilja hjóna til að breyta
skilgreiningu þess. Hjón eiga
kröfu til slíks ef um er að ræða
merkingarlega umbyltingu á þús-
und ára undirstöðustofnun íslensks
samfélags.
Um eðli hjónabandsins
Steinunn B. Jóhannesdóttir
fjallar um frumvarp um rétt-
arstöðu samkynhneigðra ’Hjónabandið er hinnævaforni rammi utan
um æxlunarhlutverk
mannsins.‘
Steinunn B.
Jóhannesdóttir
Höfundur er rithöfundur.
Í DAG verður kosið í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.
Samhliða því að hvetja allt sjálf-
stæðisfólk til að
taka þátt í próf-
kjörinu minni ég
á að mestu skipt-
ir að við samein-
umst um að velja
á listann það fólk
sem er líklegast
til að skila okkur
sigri í sveit-
arstjórnarkosn-
ingunum á kom-
andi vori. Með
því getum við
haldið áfram að
vinna að því und-
ir öflugri forystu Sjálfstæðisflokks-
ins að gera Kópavog að sveitarfé-
lagi sem önnur sveitarfélög hafa að
fyrirmynd.
Kópavogur í örri
uppbyggingu
Síðustu tvö kjörtímabil hef ég
starfað sem varabæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Á
þessum tíma hef ég setið í skipu-
lagsnefnd og umferðarnefnd, auk
þess sem ég hef verið formaður
umhverfisráðs á líðandi kjör-
tímabili. Ég hef haft mikla ánægju
af öllum þessum störfum og tel
það forréttindi að starfa í þágu
Kópavogsbúa. Það er líka eitt af
stærstu verkefnunum sem völ er á
í sveitarstjórnarmálum á
Íslandi, að takast á við
uppbyggingu Kópavogs og
auka lífsgæði þeirra sem
hér búa. Á undanförnum
árum hefur uppbygging í
bæjarfélaginu verið örari
og meiri en hjá öðrum
sveitarfélögum. Allir mála-
flokkar bæjarfélagsins
gegna þar veigamiklu máli,
því að við byggjum upp til
framtíðar fyrir okkur með
hag komandi kynslóða að
leiðarljósi.
Ég sækist eftir
stuðningi ykkar
Í þessu prófkjöri leita ég eftir
áframhaldandi stuðningi ykkar og
umboði til að vinna markvisst að
öllum þeim mikilvægu málum sem
skila bænum okkar þeim árangri
sem við getum verið stolt af. Mig
langar að fá tækifæri til að gera
góðan bæ enn betri og er sannfærð
um að það tekst með áherslum
Sjálfstæðisflokksins og trú á vilja
og verk bæjarbúa sjálfra.
Ég gef kost á mér í 3. sæti
framboðslistans og hef fundið fyrir
miklum og góðum stuðningi fólks.
Ég er innilega þakklát ykkur öll-
um sem lagt hafið hönd á plóginn í
framboði mínu til að vinna að
þessu markmiði.
Ég vona að sjálfstæðisfólk veiti
mér stuðning til áframhaldandi
starfa í þágu Kópavogs með því að
greiða mér atkvæði í 3. sætið þeg-
ar við göngum til prófkjörs. Ég
minni á að markmið okkar er sam-
eiginlegt. Það er að stilla upp öfl-
ugu sigurliði Sjálfstæðisflokksins
sem getur tekist á við þau verkefni
sem framundan eru.
Saman til sigurs
í þágu Kópavogs
Eftir Margréti Björnsdóttur ’Ég hef haft miklaánægju af öllum þessum
störfum og tel það for-
réttindi að starfa í þágu
Kópavogsbúa.‘
Margrét Björnsdóttir
Höfundur er varabæjarfulltrúi,
formaður Umhverfisráðs og gefur
kost á sér í 3. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.
Prófkjör Kópavogur
TENGLAR
..............................................
www.margretb.is
Útsala
Opið virka daga kl. 10-18
laugardaga kl. 10-16
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi
sími 554 4433
Fréttir
í tölvupósti