Morgunblaðið - 04.02.2006, Side 2
2 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsu af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar
til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið
Vectavir á frunsusvæðið á 2 klst fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við ofreynslu,
kvef eða inflúensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfið ef að áður hefur komið fram ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum
innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar
sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Vectavir
Virkar á öllum stigum frunsunnar
- aldrei of seint!
MEÐ MEIRIHLUTA
Samkvæmt nýrri könnun Fé-
lagsvísindastofnunar á fylgi flokk-
anna í Reykjavík fengi Sjálfstæðis-
flokkurinn 48,8% eða átta menn í
borgarstjórn, Samfylkingin 33% og
sex menn en Vinstri-grænir 10,5% og
einn mann. Hvorki Framsóknar-
flokkur né Frjálslyndi flokkurinn
næðu inn manni.
Hundruð fórust í ferjuslysi
Óttast er að mörg hundruð manns
hafi farist þegar egypsk farþegaferja
sökk í slæmu veðri á Rauðahafi að-
faranótt föstudags. Seint í gærkvöld
var sagt að hátt á þriðja hundrað
manns hefði verið bjargað en alls
voru um 1.400 manns um borð. Ferj-
an var af gerð sem oft hefur verið
breytt með því að hækka skipið til að
hægt sé að taka fleiri farþega.
Varnarviðræðum lokið
Samningafundum um framtíðar
tilhögun varnarsamstarfsins lauk í
Washington í gærkvöldi, en þær fóru
fram í mikilli vinsemd. Ragnheiður
Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður ut-
anríkisráðherra, segir að það hafi
þokast í rétta átt varðandi kostn-
aðarskiptinguna en samninganefnd-
irnar muni hittast fljótlega aftur,
sennilega á Íslandi.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 36
Fréttaskýring 8 Minningar 40/51
Úr verinu 14 Messur 56
Viðskipti 16 Kirkjustarf 57
Erlent 18/20 Myndasögur 58
Minn staður 22 Dagbók 58/61
Akureyri 24 Víkverji 58
Landið 24 Velvakandi 59
Árborg 26 Staður&stund 60/61
Suðurnes 27 Leikhús 62
Menning 28, 61/69 Bíó 66/69
Daglegt líf 30/32 Ljósvakamiðlar 70
Umræðan 32/38 Staksteinar 71
Íslenskt mál 38 Veður 71
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir
kynningarblaðið Gleðilegt ár. Ár
hundsins – Kínversk áramót.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók | Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
LAGT er til í frumvarpi Björns Bjarnasonar
dómsmálaráðherra um nýskipan lögreglumála,
að við embætti ríkislögreglustjóra starfi grein-
ingardeild sem rannsaki landráð og brot gegn
stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess
og leggi mat á áhættu vegna hryðjuverka og af
skipulagðri glæpastarfsemi.
Auðvelda samstarf við
lögregludeildir í öðrum löndum
Dómsmálaráðherra kynnti efni frumvarpsins á
ríkisstjórnarfundi í gær. Samkvæmt frumvarp-
inu verður dómsmálaráðherra heimilt að stofna
greiningardeild við önnur embætti lögreglu-
stjóra, ef sérstök rök standa til þess.
Deildin á að endurspegla þróun hjá lögreglu-
embættum nágrannalandanna og auðvelda þar
með íslenskum lögregluyfirvöldum samstarf við
slíkar deildir annars staðar, það er að segja lög-
regludeildir, sem gegna því hlutverki að greina
og meta hættu á afbrotum, sem oftast teygja sig
til margra landa og kennd eru við skipulagða eða
alþjóðlega glæpastarfsemi og hryðjuverk.
Lagaákvæði um greiningardeild á að tryggja,
að þannig sé um hnúta búið hér, að þeir, sem fal-
ið er að gæta öryggis borgaranna, hafi sambæri-
legar lögheimildir og starfsbræður þeirra erlend-
is til að sinna störfum sínum.
Með ákvæðinu um greiningardeild við embætti
ríkislögreglustjóra er verið að leggja lögreglu-
yfirvöldum til tæki, sem síðan verði beitt í sam-
ræmi við heimildir í lögum um meðferð saka-
mála.
Frumvarp Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra um nýskipan lögreglumála
Greiningardeild rannsaki land-
ráð og brot gegn stjórnskipan
Á að greina og meta hættu
á afbrotum, sem oftast
teygja sig til margra landa
„ÉG ÓTTAST að þetta geti orðið til
þess að ýta undir fordóma í garð
múslíma hérlendis,“ segir Einar
Skúlason, framkvæmdastjóri Al-
þjóðahúss, er hann er inntur eftir því
hvaða áhrif umræðan um hinar
umdeildu skopmyndateikningar af
Múhameð spámanni sem upphaflega
voru birtar í danska blaðinu
Jyllands-Posten muni hafa.
„Á sama tíma finnst mér ég hins
vegar finna fyrir auknum skilningi
líka. Skilningi á því að tabú hinna
mismunandi samfélaga séu misjöfn
og misjafnt hvað telst vera leyfilegt
og hvað ekki,“ segir Einar og bendir
í því samhengi á að ekki sé langt síð-
an hörð viðbrögð og gagnrýni komu
fram við skopþætti Spaugstofunnar
um kristna trú í sjónvarpsþætti
hennar.
Aðspurður segir Einar þó nokkra
hafa hringt og viljað ræða við starfs-
menn Alþjóðahússins um teikning-
arnar umræddu. „Fyrst og fremst er
fólk áhyggjufullt um það hvaða þýð-
ingu þetta geti haft hérlendis og
langar að vita hvort og hvað það geti
gert. Einnig velta margir því fyrir
sér hver þróunin geti verið hér á
landi.“
Að mati Einars er býsna heppilegt
að nú í vikunni var haldinn fundur í
tilvonandi samstarfsráði trúfélaga,
sem hann segir vera góðan vettvang
til að ræða slík mál, en þess má geta
að samsvarandi samstarfsráð í Nor-
egi sendi nýverið frá sér ályktun þar
sem birtingu teikninganna var mót-
mælt og minnt á að öllu frelsi fylgi
ábyrgð. „Og ef þú særir tilfinningar
annarra eða trú þá ber þér að stíga
varlega til jarðar af virðingu fyrir
manneskjunni.“
Skopteikningar af Múhameð
Fólk áhyggjufullt
FERÐAKAUPSTEFNAN Mid-Atlandic var sett í
gærkvöldi, en kaupstefnan er haldin á vegum
Icelandair til þess að tengja saman kaupendur
og seljendur ferðaþjónustu í Bandaríkjunum og
Evrópu. Kaupstefnan, sem haldin er árlega, er
stór viðburður í ferðaþjónustunni og er hún
haldin til að viðhalda og auka ferðamanna-
straum til Ísland.
Um 500 fulltrúar frá 17 löndum verða á kaup-
stefnunni í ár og fjölgar þeim jafnt og þétt frá
ári til árs. Auk fulltrúa frá löndum sem hafa
sterk ferðaþjónustutengsl við Ísland koma
fulltrúar frá fjarlægari löndum á borð við Kína
og Japan og fulltrúar frá San Fransisco munu
einnig verða áberandi en beint flug til borg-
arinnar frá Íslandi hófst fyrir tæpu ári síðan.
Þátttakendur eru fulltrúar ferðaskrifstofa, hót-
ela, bílaleigna, skemmtigarða og margvíslegra
annarra ferðaþjónustufyrirtækja.
Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair, segir að
sífelld aukning á kaupstefnuþátttakendum sé til
marks um aukinn árangur stefnunnar. Hann
sagði að Ísland væri miðpunktur í ferðaþjónustu-
starfi Norður-Evrópu, þar sem Bandaríkjamenn
kæmu á stefnuna til að kaupa ferðaþjónustu frá
Norður-Evrópu og selja hana áfram í sínu landi.
Auk þess sagði Gunnar að ánægjulegt væri að
sjá fulltrúa Eystrasaltsríkjanna markaðssetja
ferðaþjónustu sína hér í fyrsta skiptið.
Kaupstefnan, sem haldin er í anddyri nýju og
gömlu Laugardalshallarinnar, lýkur á sunnu-
dag.
Fulltrúar frá 17 löndum á ferðakaupstefnu
Morgunblaðið/Sverrir