Morgunblaðið - 04.02.2006, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 04.02.2006, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR ÁRBORGARSVÆÐIÐ Selfoss | „Þetta byrjaði nú þannig að ég var á þorrablóti í Þorlákshöfn þar sem komu 500 manns og varð djúpt snortinn yfir þeirri samkomu og þeim krafti sem henni fylgdi. Þá ákvað ég að láta reyna á að halda svona þorra- blót á Selfossi. Ég viðraði hugmynd- ina og margir sögðu að það þýddi ekkert það færu allir í sína sveit á svona blót. Þá spurði ég: Hvert á ég þá að fara? Selfoss er mín sveit. Svo dreif ég mig bara í þetta, á fyrsta blótið komu um 350 manns og núna voru þetta eitthvað ríflega 500 sem mættu og ég held að það sé komin hefð á þetta núna eftir 5 ár,“ segir Kjartan Björnsson hárskeri og þorra- blótshaldari á Selfossi sem hefur þró- að Selfossblótið sem fór fram 21. jan- úar og sett mikinn metnað í blótshaldið með skemmtiatriðum og föstum dagskrárliðum. Einn þessara dagskrárliða er af- hending Selfosssprotans, menningar- og tónlistarverðlauna Selfoss- þorrablótsins, sem hefur það mark- mið að vekja athygli á því sem vel er gert í tónlistar og menningarmálum. Þorsteinn Guðmundsson, Steini spil, fékk sprotann í fyrra en í ár var það Björgvin Valdimarsson tónlistar- maður sem fékk sprotann. „Hann hefur verið undirleikari hjá Karlakór Selfoss og verið stjórnandi Samkórs Selfoss og er góður liðsmaður okkar hér á Selfossi varðandi tónlist,“ segir Kjartan og vill halda því á lofti að lag- ið Undir dalanna sól sé eitt af hans þekktustu lögum. Á hverju blóti eru heiðursgestir og núna kallaði Kjartan fram nágranna sína úr vesturbænum á Selfossi, Þóri Gunnarsson og Margréti Valdimars- dóttur. Með því vildi hann þakka góð kynni sín af þeim og þeirra nærveru við ungt fólk á þeim tíma sem Kjartan var að alast upp. Auk þeirra var Gunnar Egilsson pólfari heiðurs- gestur og var hann hylltur eins og hinir heiðursgestirnir af blótsgestum. Held þessu áfram „Það er enginn bilbugur á mér með Selfossþorrablótið, ég er alveg stað- ráðinn í því að halda þessu áfram. Það sem drífur mig áfram er að sanna það að við getum gert stóra hluti hér á Selfossi og í Flóanum. Svo þarf vax- andi bær á sterkum bæjarbrag að halda og hefðum, á því byggist stað- armenningin. Ég hef mikinn stað- armetnað fyrir hönd Selfoss og tek ofan fyrir öllum sem hafa metnað fyr- ir sínum heimabæjum. Í allri sam- þjöppun sveitarfélaga má ekki tapa sérkennum hvers staðar, þar liggur nefnilega mikil menning,“ sagði Kjartan Björnsson. Ljósmynd/Magnús Hlynur Hreiðarsson Sprotinn afhentur Kjartan Björnssson afhendir Björgvini Valdimarssyni tónlistarmanni Selfosssprotann fyrir framlag til tónlistarmála. Mikil menning felst í sérkennum hvers staðar Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | Geir Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og utanrík- isráðherra, hélt nýlega vel sóttan fund á Selfossi með trúnaðarmönn- um flokksins þar sem hann fór yfir áherslur ríkisstjórnarinnar í helstu málum. Einnig ræddi hann um áherslur flokksins í tengslum við komandi sveitarstjórnarkosningar og undirbúning fyrir alþingiskosn- ingarnar á næsta ári. Áður en fundurinn hófst bauð Gunnar Egilsson, pólfari og eigandi fyrirtækisins Icecool, Geir og Ingu Jónu Þórðardóttur, konu hans, í bíl- túr um götur Selfoss. Með í för voru einnig alþingismennirnir Guðjón Hjörleifsson og Kjartan Ólafsson. Í bíltúrnum sagði Gunnar frá ferð sinni á suðurpólinn og lét mynda- sýningu renna yfir tölvuskjá í bíln- um sem er sams konar bíll og hann notaði í heimsmetsferðinni á suð- urpólinn. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Ráðherra í bíltúr með Gunnari pólfara Selfoss | Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra fagnaði áformum um lagningu heilsársvegar um Kjöl á fundi í Hótel Selfossi þar sem kynntar voru hugmyndir Sunnlend- inga og Norðlendinga um að leggja slíkan veg í einkaframkvæmd. Sturla sagði ekki líklegt að fjár- munum yrði varið frá ríkinu til þess að byggja upp slíkan veg á næstu 12 árum og því væri það fagnaðar- efni að áhugamannahópur beindi sjónum sínum að veginum og lýsti hann sig reiðubúinn að starfa með hópnum. Ráðherra sagði að nú væri unnið að endurskoðun samgönguáætlunar þar sem væru stór áform í vegagerð svo sem að fullbyggja veginn milli Reykjavíkur og Selfoss með nýrri brú á Ölfusá. Mikill áhugi fyrir Kjalvegi Á fundinum kom fram að mikill áhugi er fyrir lagningu Kjalvegar í einkaframkvæmd og unnið er að því að sunnlenskir aðilar gangi inn í Norðurveg ehf. með nýtt hlutafé og það félag muni standa að frekari undirbúningi málsins. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra lagði áherslu á að byggðatengingar væru nauðsynlegar og nefndi Hval- fjarðargöngin sem dæmi. Halldór Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri KEA og stjórnarfor- maður Norðurvegar, sagðist vonast til að unnt væri að hefja undirbún- ing framkvæmda sem fyrst. Páll Gíslason hjá Fannborgum í Kerl- ingarfjöllum lýsti viðhorfi ferða- þjónustunnar varðandi gagnsemi vegarins og sagði hann skipta sköp- um fyrir rekstur í Kerlingarfjöllum og myndi færa skíðasvæðið þar nær notendum. Páll Bjarnason verk- fræðingur hjá Verkfræðistofu Suð- urlands lýsti mögulegum vegstæð- um yfir Kjöl en talið er nauðsynlegt að sneiða framhjá Bláfellshálsi af veðurfarsástæðum og fara austur fyrir Bláfell. Einnig benti Páll á mögulega leið austan Hvítár að Kerlingarfjöllum. Bætir búsetuskilyrði Nína Guðbjörg Pálsdóttir útibús- stjóri Landsbankans á Selfossi fór yfir helstu atriði fjármögnunar verkefnisins sem hún sagði áhuga- vert og falla vel að hugmyndum um endurfjármögnun og væri að því leyti sambærilegt við Hvalfjarðar- göngin. Friðrik Pálsson hjá Hótel Rangá fjallaði um áhrif vegarins á ferðaþjónustuna og hvernig mögu- leikar hennar ykjust þegar aðgengi batnaði að afþreyingu og nýjar leið- ir sköpuðust í rekstri. Tækifæri myndu aukast og hálendið opnast fyrir almenningi. Örn Þórðarson hjá Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands semunnið hefur að undirbúningi verkefnisins sagði verkefnið raun- hæft og áhugavert og ástæða til að vinna það áfram. Megintilgangurinn væri að tengja saman Norðurland og Suðurland og ljóst væri að lagn- ing Kjalvegar myndi flýta fyrir öðr- um samgöngubótum í báðum lands- hlutum. Ljóst væri að tenging landshlutanna bætti atvinnu- og bú- setuskilyrði á Norður- og Suður- landi. Kjartan Ólafsson alþingis- maður sem stýrði fundinum fagnaði áhuga manna á verkefninu og sagði ljóst að það væri á góðum skriði og það væri gott að vita til þess að grænt ljós væri á það hjá sam- gönguráðherra. Hann sagðist gera ráð fyrir að verkefnið færi á fulla ferð á næstu mánuðum. Samgönguráðherra styður einkaframkvæmd á Kjalvegi Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Yfir Kjöl Kjartan Ólafsson alþingismaður í ræðustól á fundinum um Kjal- veg, fjær sjást frummælendur fundarins. Eftir Sigurð Jónsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.