Morgunblaðið - 04.02.2006, Qupperneq 31
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
Afgreiðslugjöld á flugvöllum.
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og
minibus, 9 manna, og rútur með/án
bílstjóra.
Höfum bíla með dráttarkrók og smárútur,
allt að 14 manna. Smárútur fyrir
hjólastóla.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum
stærðum - frá 2ja manna og upp í 30
manna hallir. Valið beint af heimasíðu
minni. - Þið takið húsið frá í 3 daga án
greiðslu og við staðfestum síðan og
sendum samning og greiðsluseðla. Einnig
má greiða með greiðslukorti.
LALANDIA
Útvegum sumarhús í Lalandia, einhverju
skemmtilegasta orlofshverfi Danmerkur.
Lágmarksleiga 2 dagar.
Húsbílar, hjólhýsi fyrir VM 2006
Höfum nokkra húsbíla fyrir VM 2006 í
Þýskalandi til afgreiðslu frá Kaupmanna-
höfn og Flensborg. Getum útvegað
hjólhýsi og bíla með dráttarkrók.
Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu;
www.fylkir.is
Fylkir.is ferðaskrifstofa
sími 456 3745
Eina ferðaskrifstofan á Vestfjörðum sem
ekki nýtur styrkja frá opinberum aðilum
Bílaleigubílar
Sumarhús í
Danmörku
Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 31
DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR
Nýjar ferðir á
Vestfjörðum næsta sumar
Í sumar verða nýjar ferðir í boði á
Vestfjörðum á vegum Vesturferða á
Ísafirði. Helst
ber að nefna
refa- og nátt-
úruskoð-
unarferðir á
Hornstrandir.
Annars vegar
er um að ræða
dagsferðir að
ræða í Jök-
ulfirði og síðan fjöldægraferð í Látra-
vík og gist verður í Hornbjargsvita.
Þetta er í fyrsta skiptið sem refaskoð-
unarferðir vera í boði fyrir erlenda og
innlenda ferðamenn; hópa jafnt sem
einstaklinga.
Fyrirhugað er að fara þrisvar sinnum
næstkomandi sumar.
Leiðsögumaður í þessum ferðum
verður Ester Rut Unnsteinsdóttir en
hún er líffræðingur að mennt og hefur
mikla þekkingu á refnum og lífríki
Hornstranda. Hefur rannsakað heims-
skautsrefinn ítarlega og þá sér-
staklega á Hornströndum.
Heimskautarefurinn er talinn hafa ver-
ið eina villta landspendýrið á Íslandi
við landnám og í Hornstrandafriðland-
inu fær hann að lifa óáreittur. Heim-
skautarefurinn er með sjaldgæfari
refategundum í heiminum. Aðlögun
hans að fimbulkulda norðuheim-
skautsins hefur gert hann sérstakan
að mörgu leyti. Hreinræktaður heim-
skautarefur er orðin sjaldgæf sjón.
Skáleyjar á Breiðafirði
Fyrir tveimur árum var byrjað að bjóða
upp bátsferðir með leiðsögn í Skál-
eyjar í Breiðafirði. Siglt er frá Stað á
Reykhólum út í eyjarnar og tekur sigl-
ingin um það bil hálfa klukkustund.
Þegar komið er í land er farið í göngu-
ferð með ábúendum sem segja frá
staðháttum. Bornar eru fram léttar
veitingar, jafnvel selkjöt ef vel gefur.
Grímsey á Ströndum er önnur áhuga-
verð eyja til að heimsækja. Um er að
ræða 3ja tíma ferð með leiðsögn, en
aðeins tekur stutta stund að sigla frá
Drangsnesi.
Vesturferðir eru með margar dags-
ferðir í boði frá Ísafirði yfir sumarið og
má þar nefna daglegar skoðunarferð í
Vigur, gönguferð frá Aðavík til Hest-
eyrar með leiðsögn og kaffiferðir á
Hesteyri. Auk þess eru vinsælar dags-
ferðir í Hornvík í júlí með leiðsögu-
manni.
Mótorhjólaævintýri
íHimalaya
Hollenski ferðaskrifstofueigandinn,
ævintýramaðurinn og Íslandsvinurinn
Paul Duijf ætlar að halda kynningu á
nítján daga mótorhjólaferð í indverska
hluta Himalayafjalla, sem hann ætlar
að efna til frá og með 20. júní næst-
komandi.
Duijf er eigandi hollensku ferðaskrif-
stofunnar Travel2Explore og hefur
hann í gegnum tíðina ferðast mikið
með hollenska göngugarpa um Ísland
og Grænland, en undanfarin ár hefur
hann einbeitt sér að fjarlægari lönd-
um. Duijf segist vera sérlega áhuga-
samur um að fá Íslendinga með í för
þar sem þeir séu svo „skemmtilega
brjálaðir“.
Nánari upplýsinga er að finna á
vef Vesturferða www.vestur-
ferdir.is eða í síma 456-5111.
Fyrir áhugasama má benda á að
kynningin verður haldin í Salnum á
Farfuglaheimilinu í Reykjavík,
Sundlaugavegi 34, laugardaginn
11. febrúar kl. 16.00.
www.travel2explore.com
VEFURINN www.florens.is, er
fyrir Íslendinga, sem eru á leið til
Toskana á Ítalíu og hafa áhuga á
að dvelja þar til lengri eða
skemmri tíma. Boðið er uppá
íbúðir eða hús til leigu ýmist í
Flórens eða í sveitum Toskana.
Það er Bergljót Leifsdóttir,
sem sér um útleiguna en hún hef-
ur búið á Ítalíu frá árinu 1986.
Hún nam ferðamálatækni í al-
þjóðlegum ferðamálaskóla í Flór-
ens og hefur starfað við útleigu
sumarhúsa fyrir fasteignasölu frá
1996.
FERÐALÖG
Sumarhús
til leigu í
Toskana
www.florens.is
Morgunblaðið/Ómar