Morgunblaðið - 04.02.2006, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 33
UMRÆÐAN
ÁHUGAFÓLK um fjölbreytni og
framþróun í skólastarfi fagnar
ákvæðum í nýju frumvarpi Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra
um breytingar á
grunnskólalögum,
þar sem staða sjálf-
stæðra skóla er
styrkt. Sjálfstæðir
skólar eru eins og
nafnið bendir til ekki
reknir af hinu op-
inbera heldur af
einkaaðilum, fé-
lagasamtökum, stofn-
unum eða öðrum. Í
frumvarpinu er kveð-
ið á um rétt þessara
skóla til lágmarks-
framlags frá sveit-
arfélögunum en eftir
sem áður er það vita-
skuld háð pólitískum
vilja í viðkomandi
bæjarfélagi hvort
starfsemi slíkra skóla
sé leyfð eður ei.
Í nútímaþjóðfélagi
eru gerðar kröfur til
valfrelsis og fjöl-
breytni á sem flestum sviðum sam-
félagsins og þykir orðið sjálfsagt.
Hvers vegna á það sama ekki við í
skólakerfinu? Hvers vegna fá for-
eldrar ekki að velja skóla fyrir
barnið sitt og þá um leið áherslur í
skólastarfi? Á Norðurlöndunum er
réttarstaða sjálfstæðra skóla
tryggð. Sýna niðurstöður rann-
sókna þar að sjálfstæðir skólar hafa
haft verulega jákvæð áhrif á allt
skólastarf í löndunum og árangur
þeirra er mjög góður. Fái sjálf-
stæðir skólar að blómstra leiða þeir
til fjölbreytni í öllu skólastarfi og
gæðin aukast. Stjórn-
endum þeirra er hæg-
ara um vik að taka upp
ýmsar nýjungar jafnt í
rekstri, kennslu og jafn-
vel kjörum og aðbúnaði
kennara, sem er mjög
mikilvægt atriði.
Sjálfstæðismenn
leggja mikla áherslu á
frelsi og fjölbreytni í
skólastarfi eins og á
öðrum sviðum. Hið nýja
frumvarp mennta-
málaráðherra er mik-
ilvægt skref í því að
tryggja raunverulega
valmöguleika og þróun í
þessum efnum.
Reykjavíkurlistinn og
Samfylkingin hafa
reynst alfarið á móti
hugmyndum sem þess-
um. Og svo sannarlega
sýnt það í verki eins og
atlögurnar að Ísaks-
skóla og Landakots-
skóla eru skýr dæmi um. Athygl-
isverð er líka mjög harðorð bókun
Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur
og Árna Þórs Sigurðssonar á fundi
stjórnar Sambands íslenskra sveit-
arfélaga 25. október sl. en þar voru
drög að umræddu frumvarpi
menntamálaráðherra kynnt. Í bók-
uninni felst algjör andstaða við
ákvæðið um sjálfstæðu skólana og
sagt að Samband íslenskra sveitar-
félaga geti aldrei stutt tillögur sem
þar eru kynntar. Benda má á að í
Svíþjóð, sem er af mörgum Sam-
fylkingarmanninum talið fyr-
irmyndarríkið, eru t.d. 6% allra
barna í sjálfstætt reknum grunn-
skólum, og í Danmörku um 12%
barna, en innan við 1% barna á Ís-
landi.
Einnig hefur núverandi meiri-
hluti Samfylkingarinnar í Hafn-
arfirði hafnað sjálfstæðum grunn-
skóla í bænum með eftirminni-
legum hætti. Skömmu eftir að
flokkurinn komst þar til valda eftir
síðustu sveitarstjórnarkosningar
var Barnaskóla Hjallastefnunnar
synjað um starfsleyfi. Í kjölfarið
tók bæjarstjórn Garðabæjar af
skarið og bauð Barnaskóla Hjalla-
stefnunnar velkominn. Reynslan af
skólanum hefur verið mjög jákvæð
og reyndar hefur Garðabær sýnt
frumkvæði í því að koma á raun-
verulegu frelsi og vali á grunn-
skólastiginu. Þar er jafnframt
tryggt að öll börn hafi jafnan að-
gang að skólunum með því að láta
fé fylgja barni.
Í Hafnarfirði er því ekkert val
fyrir foreldra í þessum efnum og er
það óviðunandi staða. Sjálfstæð-
ismenn í Hafnarfirði leggja mikla
áherslu á að bærinn taki þátt í
framþróun í skólastarfi með þess-
um hætti. Það er í takt við nútíma-
kröfur að gefa foreldrum forræði
og frelsi til að velja þann skóla og
menntun sem þeir vilja börnum sín-
um til handa, allt til að auka gæði
og ánægju í náminu.
Fjölbreyttari skóla
í Hafnarfjörð
Rósa Guðbjartsdóttir fjallar
um væntanlegar sveitarstjórn-
arkosningar í vor
’Í Hafnarfirði erþví ekkert val
fyrir foreldra í
þessum efnum
og er það óvið-
unandi staða.‘
Rósa Guðbjartsdóttir
Höfundur er stjórnmálafræðingur og
skipar annað sætið á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfirði í komandi
sveitarstjórnarkosningum.
Umhverfis- og náttúruvernd-
arsjónarmið eru í sókn í landinu
sem betur fer. Við erum mörg sem
höfum barist fyrir þeim sjón-
armiðum um langt skeið og við get-
um verið þess fullviss að sú barátta
og þrautseigja er ekki til einskis.
Fyrir skemmstu sam-
þykkti borgarstjórn
Reykjavíkur að
Reykjavíkurborg
skyldi sem 45% eign-
araðili í Landsvirkjun
leggjast gegn öllum
frekari virkj-
unarframkvæmdum í
Þjórsárverum og að
fallið verði frá gerð
Norðlingaölduveitu. Í
borgarstjórn höfum
við Vinstri græn
ásamt fulltrúa F-list-
ans staðið náttúru-
vaktina og barist gegn ásókn virkj-
anapostulanna í helstu gersemar
íslenskrar náttúru.
Fallvaltir mið- og
hægri flokkar
Af þjóðfélagsumræðunni að und-
anförnu er orðið sýnt að það er
býsna breiður pólitískur stuðningur
við það að leggja til hliðar öll áform
um gerð Norðlingaölduveitu og
forða þannig eyðileggingu frið-
landsins í Þjórsárverum. En sá
stuðningur getur verið fallvaltur,
dæmin sanna að í hugum rík-
isstjórnarflokkanna er ekki rými
fyrir annað en meiri álvæðingu og
þar með fleiri stórvirkjanir með
þeim náttúruspjöllum sem þeim
fylgja. Samfylkingin hefur raunar
tekið afstöðu með verndun Þjórs-
árvera en hafði áður stutt Norð-
lingaölduveitu og margir í þeirra
röðum einnig stutt Kárahnjúka-
virkjun, m.a. formaðurinn.
Eftir að umhverfisráðherra
ákvað að fallast ekki á tillögu sam-
vinnunefndar um skipulag miðhá-
lendisins sem vildi þyrma Þjórs-
árverum hafa ýmsir lýst því yfir að
málið sé komið á byrjunarreit á
nýjan leik. En sannleikurinn er sá
að það er óþarfi að hefja þennan
leik að nýju. Málið er til enda geng-
ið og réttast fyrir aðila málsins að
horfast í augu við það.
Það á því að vinda
bráðan bug að því að
breyta miðhálend-
isskipulaginu og skil-
greina Þjórsárver sem
friðlýst svæði.
Stórbrotið landslag
Í umfjöllun Um-
hverfisstofnunar um
drög að náttúruvernd-
aráætlun segir um
Þjórsárverin: „Stór-
brotið landslag, fjall-
lendi, jökull, votlendi
og áreyrar. Fjölbreyttar búsvæð-
agerðir, mýrar, flár, flæðiengi, vötn,
tjarnir og sífreri á hálendi allt upp í
1.100 m hæð. Þjórsárver eru ein-
stakt vistkerfi á heimsvísu enda af-
ar tegundaríkt og eitt helsta varp
heiðagæsar í heiminum. Þjórsárver
eru ein stærsta og jafnframt ein
einangraðasta gróðurvin á miðhá-
lendi landsins, afar fjölbreytt gróð-
ursamfélag en þar hafa fundist yfir
180 tegundir háplantna, yfir 220
mosategundir og greindar hafa ver-
ið um 150 fléttutegundir. Innan
svæðisins eru í Þjórsá fossarnir
Kjálkaversfoss, Hvannagiljafoss,
Dynkur og Gljúfurleitarfoss, hver
um sig er sérstakur og saman eru
þeir afar áhugaverðir sem röð fossa
í stórfenglegu landslagi.“ Ég spyr,
þarf að hafa fleiri orð? Segir þessi
lýsing ekki allt sem segja þarf um
þetta stórfenglega svæði sem
Þjórsárverin eru? Afstaða mín og
míns flokks ætti að vera öllum ljós.
Við teljum ekki nóg að þyrma
Þjórsárverunum innan þeirra frið-
landsmarka sem eru í gildi í dag
heldur viljum við stækka friðlandið
svo það nái yfir hina vistfræðilegu
og landfræðilegu heild sem Þjórs-
árverin eru. Þingflokkur Vinstri-
grænna hefur raunar haft forgöngu
um tillöguflutning á Alþingi þar að
lútandi.
Sterk staða VG höfuðatriði
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur
sent Landsvirkjun og ríkisstjórn-
inni skýr skilaboð. Það á að leggja
áformin um Norðlingaölduveitu
endanlega á hilluna og kveða skýrt
upp úr að friðlandið verði stækkað
og látið í friði. Því miður hafa svör
stjórnar Landsvirkjunar verið loð-
in. Þar er talað um að leggja Norð-
lingaölduveitu „til hliðar“. Stjórn-
armaðurinn Álfheiður Ingadóttir,
úr VG, lagði til að fallið yrði frá
Norðlingaölduveitu en þeirri tillögu
vísaði meirihluti stjórnarinnar frá,
að tillögu formannsins, Jóhannesar
Geirs Sigurgeirssonar fyrrv. þing-
manns Framsóknarflokksins. Það
getur því vel verið að stjórn Lands-
virkjunar hyggist á síðari stigum
endurvekja Norðlingaölduveit-
umálið. Það er því deginum ljósara
að náttúruverndarfólk getur fyrst
og fremst reitt sig á staðfestu
Vinstri-grænna í þessu stóra bar-
áttumáli. Sterk útkoma VG í sveit-
arstjórnarkosningunum í vor er því
afar þýðingarmikil. Þjórsárver eru
þjóðargersemi – því má aldrei
gleyma!
Þjórsárver eru
þjóðargersemi
Árni Þór Sigurðsson
fjallar um Þjórsárver
’Náttúruverndarfólkgetur fyrst og fremst
reitt sig á staðfestu
Vinstri grænna í þessu
stóra baráttumáli.
Sterk útkoma VG í
sveitarstjórnarkosning-
unum í vor er því afar
þýðingarmikil.‘
Árni Þór Sigurðsson
Höfundur er borgarfulltrúi og skipar
2. sæti á V-listanum í Reykjavík. FYRIR Alþingi ligg-
ur fyrir í þriðja skipti
tillaga Guðrúnar Ög-
mundsdóttur til þings-
ályktunar um að taka
upp styrki til foreldra
sem ættleiða börn frá
útlöndum. Frumvarp
þetta er mikið jafnrétt-
ismál sem ekki hefur
fengið þær viðtökur og það braut-
argengi sem við mætti búast, svo
sjálfsagt sem það virðist. Málið
snýst um jafnræði til ættleiðinga
óháð efnahag og tekur á þeirri
brýnu þörf að jafna möguleika fólks
til að eignast barn burtséð frá því
hvort það teljist til hátekjufólks eða
ekki. Um er að ræða afar hóflega
styrki sem þó skipta sköpum fyrir
þá sem eru að ættleiða barn.
Það hlýtur að teljast sanngjarnt
og eðlilegt að íslenska ríkið styrki
kjörforeldra til að ættleiða börn til
samræmis við við það sem gerist hjá
öðrum Norðurlandaþjóðum og
stuðli þar með að jafnrétti þegn-
anna til barneigna. Ættleiðingar á
Íslandi eru ekki það margar að
styrkir af þessum toga setji rík-
isfjármálin úr skorðum, en slíkur
styrkur getur skipt verulegu máli
fyrir væntanlega kjörforeldra.
Að ættleiða barn að utan er mjög
dýrt, kostnaðurinn er frá 1,2 til 1,5
milljóna miðað við að hjón fari sam-
an út að sækja barnið. Mörgum vex
þessi kostnaður í augum, einkum
þeim sem lakari kjör hafa. Dæmi
eru um að fólk hafi ekki séð sér fært
að láta drauminn um að eignast
barn rætast vegna þess að það hef-
ur ekki ráð á því og ekki í digra
sjóði að sækja. Hvað þá að láta sig
dreyma um að sækja sitt annað
barn.
Við sem höfum orðið þeirrar gæfu
aðnjótandi að hafa ættleitt barn vit-
um hvílík hamingja það er að fá sína
æðstu ósk uppfyllta og sú lífsfylling
og ánægja sem í kjölfarið kemur
verður ekki til fjár metin. Þeir fjár-
munir sem varið yrði til þessa máls
kæmu því margfalt til baka, því
hvað er betra fyrir þjóðarbúskapinn
er ánægðir þegnar?
Til upplýsingar og samanburðar
eru hér tölur frá nágrannalöndum
okkar um þá skattfrjálsu opinberu
styrki sem greiddir eru til verðandi
kjörforeldra.
Danmörk: 400.000 kr.
Svíþjóð : 320.000 kr.
Finnland: 140.000–340.000 kr.
Færeyjar: 500.000 kr.
Noregur : 350.000 kr.
Við skorum á okkar ágætu alþing-
ismenn að taka þessu þingmáli vel
og veita því þann stuðning sem sómi
er að. Þetta er alltof mikilvægt mál
til að daga uppi í skotgröfum flokka-
drátta. Styrkir til ættleiðinga eru
þverpólitískt mál og ber að vinna
sem slíkt. Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra hefur tekið afar vel
í málið. Ekki stendur á þingmönn-
um stjórnarandstöðuflokkanna,
stjórnarþingmenn eru á meðal
flutningsmanna á máli Guðrúnar.
Vonum að alþingismenn allir
verði við ákalli þessu og skorum á
þá að koma málinu í höfn á vor-
þinginu.
Jafnrétti til barneigna
Jóhann Sigurðsson
og Margrét R.
Kristjánsdóttir
fjalla um
kjörforeldra
Jóhann
Sigurðsson
’Vonum að alþingis-menn allir verði við
ákalli þessu og skorum
á þá að koma málinu í
höfn á vorþinginu.‘
Höfundar eru kjörforeldri og
verðandi kjörforeldri.
Margrét R.
Kristjánsdóttir
ALLIR sem eiga börn vita hvað
það er dýrt að borga fyrir dagfor-
eldri. Þetta er sem nemur afborgun
af íbúð! Það verður til þess í yf-
irgnæfandi mörgum til-
fellum að fólk fer á at-
vinnuleysisbætur þegar
að orlofi lýkur. Ég veit
þess dæmi að margir
foreldrar eru á atvinnu-
leysisbótum alveg frá
því að fæðingarorlofi
lýkur þar til barnið nær
leikskólaaldri. Þetta
gera þeir til þess að
geta verið meira með
barninu en líka vegna
þess að allur sá pen-
ingur sem þeir myndu
vinna sér inn færi í að
borga dagforeldri.
Þetta er vandamál sem við getum
ekki lengur lokað augunum fyrir.
Það vita allir af þessu en enginn hef-
ur hátt um þetta því að þetta er svo
mikill skuggaleikur.
Tökumst á við vandann?
Mér dettur í hug einhvers konar
foreldralaun. Fólk gæti þá sótt um
þau eftir að orlofi lýkur og fengju í
takmarkaðan tíma. Annað foreldrið í
einu, lágmarksupphæð. Sérstök
nefnd gæti séð um þetta og tekið á
móti umsóknum.
Þetta yrði borgað af sveitarfélög-
unum en Svæðisvinnumiðlun myndi
svo borga þeim á móti.
Því eins og staðan er í
dag þá er Svæðisvinnu-
miðlun hvort eð er að
borga þennan pening, af
hverju ekki að borga þá
upphæð í svona verk-
efni? Foreldrar slyppu
þá við þennan hulduleik
og gætu notið þess að
vera heima með
barninu.
Það gefur auga leið að
aðeins foreldrar með
takmarkað fjármagn
milli handanna myndi
nýta sér þetta þar sem um algjöra
lágmarksupphæð væri að ræða. Á
móti þessu væri hægt að lækka leik-
skólaaldurinn þannig að þessi for-
eldralaun yrðu aðeins fáanleg í
skamman tíma.
Svo er auðvitað líka til í stöðunni
að lengja fæðingarorlofið en þó svo
að það væri lengt í ár, þá yrði samt
tímabil í lausu lofti þar til barnið
kemst inn á leikskóla.
Tökumst á við vandann; núna.
Foreldralaun
– af hverju ekki?
Margrét Kristín Helgadóttir
fjallar um dagvistarkostnað
Margrét Kristín
Helgadóttir
’Fólk gæti þá sótt um þau eftir að orlofi
lýkur og fengju í
takmarkaðan tíma.‘
Höfundur skipar 5. sæti á lista Sam-
fylkingarinnar á Akureyri til bæjar-
stjórnarkosninga 2006.