Morgunblaðið - 04.02.2006, Síða 35

Morgunblaðið - 04.02.2006, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 35 UMRÆÐAN BÆJARL IND 12 - S : 544 4420 201 KÓPAVOGUR Opið um helgina: lau 10:00-17:00 - sun 13:00-17:00 -30% RIO LEÐUR TUNGUSÓFI Verð áður: 212.000 -30% Verð nú: 148.400 -30% TUNGUSÓFI óhreinindavarið microfiber áklæði - einnig hægt er að taka af öllum sófanum og þurrhreinsa Verð: 128.000 -30% Tilboðsverð nú: 89.600 -30% Eikarborð (190x90) og sex stólar Verð áður: 128.000 -30% Verð nú: 89.600 -30% Stakur stóll -30% Verð nú: 8.750 -30% Stakur stóll -30% Verð nú: 8.750 afsláttur10-50% ÚTSÖLULOK -50% Skenkur(140cm) Verð áður: 59.000 -50% Verð nú: 29.500 -30% Náttborð Verð áður: 19.500 -30% Verð nú: 13.650 -40% TV skenkur Verð áður: 32.000 -40% Verð nú: 19.200 IÐNAÐARRÁÐHERRA, Val- gerður Sverrisdóttir, hefur skipt um skoðun. Fyrir ári síðan upp- lýsti hún Alþingi um að ,,... Ef heildarútstreymi frá stóriðju sem fellur undir íslenska ákvæðið yrði meira en sem svarar til þeirra heimilda sem þar er að finna, eða 1.600 þús. tonna CO2 [á ári] yrðu einstök fyrirtæki sem færu fram úr heimildum sínum að kaupa kvóta eða stuðla að bindingu kol- efnis sem svaraði umframlosun fyrirtækisins.“ Sjá þingskjal 532 — 298. mál, 131. löggjafarþing 2004– 2005. Nýlega brá hins vegar svo við að iðnaðarráðherra viðraði nýja túlk- un á fyrrgreindu ákvæði í ræðustól Alþingis. Nefnilega ,,.... að jafnvel þótt litið sé til allra ýtrustu áforma um stækkun álvera eða byggingu nýrra hér á landi og ef miðað er við þær tímaforsendur sem að framan greinir munu Íslendingar standa við skuldbindingar sínar í Kyoto-bókuninni gagnvart út- streymi gróðurhúsalofttegunda vegna stóriðju.“ Ráðherrann hefur þannig endur- skoðað útreikninga sína og fundið út að þar eð stækkað álver Alcan í Straumsvík og nýtt álver í Helgu- vík hefji ekki framleiðslu fyrr en 2010 megi deila tveggja ára út- streymi gróðurhúsalofttegunda frá þessum álverum yfir fyrsta skuld- bindingartímabil Kyoto-bókunar- innar sem hefst 2008 og lýkur 2012. Og simsalabimm, útstreymið minnkar um helming þegar því er þannig dreift yfir fjögur ár, 2008 – 2012. Ennfremur – bendir iðn- aðarráðherra á – mun álver á Norðurlandi ekki taka til starfa fyrr en 2012 og yfir allt tímabilið 2008 – 2012 verði því meðaltals- losun þaðan fjórðungur af á fjögur ár aftur í tímann. Þessi talnaleikur gengur þvert gegn markmiðum Kyoto-sáttmálans sem miðar að að draga úr losun – ekki auka hana stórlega. Útstreymi í lok árs 2012 Iðnaðarráðherra gerir nú heyr- inkunnugt að lítið sé vitað um hvað taki við eftir að fyrsta skuldbind- ingartímabili Kyoto-bókuninnar lýkur 2012. Það sé með öllu óljóst hvað taki við í framhaldinu (2013– 2017) og ekki ástæða til að gera sér rellu út af frekari mengun frá nýjum eða stækkuðum álverum. Viðhorf ráðherrans takmarkast við næstu kosningar og væntingar kjósenda í hennar kjördæmi um nýtt álver. Áður en 1. janúar 2013 rennur upp munu fara fram tvenn- ar kosningar til Alþingis og svo langt hugsar hún ekki. Samkvæmt útreikningum iðnaðarráðherra verður þó útstreymi koltvísýrings frá álverum á Íslandi í upphafi árs 2012 orðið 1971 þúsund tonn á ári en ekki 1600 þúsund tonn eins og íslenska undanþáguákvæðið kveður á um. Það er nærri 20% meiri ár- leg losun. Þá er eftir að telja áhrif auk- innar álframleiðslu á almenna skuldbindingu Íslands frá Kyoto um að aukning í útstreymi gróð- urhúsalofttegunda á Íslandi verði innan við 10% á tímabilinu 2008– 2012. Þau áhrif gætu orðið umtals- verð því við álframleiðslu myndast PFC (flúorkolefni) en eitt tonn af PFC er á við 6500 tonn af koltví- sýringi. Þessi aukning álfram- leiðslu gæti því sprengt skuldbind- ingar Íslands bæði hvað varðar sérstaka undanþágu Íslands frá Kyoto-bókuninni og almenna skuldbindingu um að takmarka aukningu hér á landi við 10%. Stefna Íslands? Ekki liggur fyrir skýr stefna ís- lenskra stjórnvalda um hvernig skuli minnka útstreymi gróð- urhúsalofttegunda önnur en sú að standa við þær skuldbindingar sem Íslands hefur gengist undir gagn- vart Kyoto. Nú hefur iðn- aðarráðherra túlkað þær svo að í raun skipti þær engu ,,... jafnvel þótt litið sé til allra ýtrustu áforma um stækkun álvera eða byggingu nýrra hér á landi.“ líkt og iðn- aðarráðherra fullyrti á Alþingi 30. janúar sl. Ef marka má þessa yf- irlýsingu miðast stefna ráðherrans við að George W. Bush verði kjör- inn forseti Bandaríkjanna í þriðja sinn og að andstaða hans við Kyoto-bókunina verði ofan á. Það sem mestu máli skiptir er að Ísland var eitt þeirra ríkja sem stóðu að og lýstu yfir stuðningi við þá niðurstöðu fyrsta fundar aðild- arríkja Kyoto-bókunarinnar í Montreal í desember sl. að hefja þegar á þessu ári samninga- viðræður um mun meiri samdrátt í útstreymi gróðurhúsalofttegunda en kveðið var á um í fyrsta áfanga Kyoto-samningsins. Trúverðugleiki Íslands í þeim samningaviðræðum byggist á framsýnni stefnu um samdrátt í útstreymi gróðurhúsa- lofttegunda um alla framtíð. Hvað gerist 2013? Árni Finnsson fjallar um stefnu íslenskra stjórnvalda um hvernig skuli minnka útstreymi gróðurhúsalofttegunda ’Iðnaðarráðherra gerirnú heyrinkunnugt að lítið sé vitað um hvað taki við eftir að fyrsta skuld- bindingartímabili Kyoto-bókunarinnar lýkur 2012.‘ Árni Finnsson Höfundur er formaður Náttúru- verndarsamtaka Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.