Morgunblaðið - 04.02.2006, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 57
KIRKJUSTARF
Meðvirkni
í Grensáskirkju
FIMMTUDAGINN 9. febrúar 2006
verður fræðsla um meðvirkni á veg-
um vina í bata og 12 sporafara and-
lega ferðalagsins í Grensáskirkju kl.
20– 22.
Boðið verður upp á fræðslu, fyr-
irspurnir og umræður. Margrét
Eggertsdóttir verður með
fræðsluna en hún er einn upphafs-
og forvígismaður hins öfluga 12
spora starfs sem nú er unnið í mörg-
um kirkjum. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Á undan fræðslunni er hversdags-
messa í Grensáskirkju kl. 19–19.45,
einföld og hlýleg helgistund þar
sem Þorvaldur Halldórsson leiðir
tónlist. Þangað eru einnig allir vel-
komnir.
Leyfðu þér að njóta upp-
byggilegrar kvöldstundar.
Aðalfundur
Safnaðarfélags
Grafarvogskirkju
AÐALFUNDUR Safnaðarfélags
Grafarvogskirkju verður haldinn
mánudaginn 6. febrúar kl. 20 í safn-
aðarsal kirkjunnar. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf: Skýrsla
stjórnar. Endurskoðaðir reikn-
ingar. Kosning stjórnar. Önnur mál.
,,Mín trú er mitt einkamál“. Sr.
Anna Sigríður Pálsdóttir ræðir um
hugmyndir er hún velti fyrir sér í
námsdvöl sinni í Uppsölum sl. vetur.
Kaffiveitingar og fyrirspurnir. Allir
velkomnir.
Stjórnin.
Fundur með
fermingarbörnum
Selfosskirkju
ÞRIÐJUDAGINN 7. febrúar kl. 17
verður haldinn í Selfosskirkju fund-
ur með fermingarbörnum vorsins
2006.
Unnur Ýr Kristjánsdóttir,
fræðslu- og skólastjóri Tollskóla
ríkisins, sendir til okkar tollvörð,
sem ræðir um voðann af völdum
fíkniefna og raunhæfar vímuefna-
varnir. Í fylgd með tollverðinum er
fíkniefna-leitarhundur og er ekki að
efa, að þessi samvera í kirkjunni
verður öllum viðstöddum lærdóms-
rík og eftirminnileg.
Ég hvet öll þau börn, sem ganga
til spurninga í Selfosskirkju í vetur,
til þess að koma á fundinn.
Sr. Gunnar Björnsson.
Léttmessa
í Árbæjarkirkju
Í FYRSTU léttmessu þessa árs,
sunnudaginn 5. febrúar kl. 20, syng-
ur gospelkór Árbæjarkirkju. Undir-
leik annast: Egill Antonsson á píanó,
Sigurjón Alexandersson á gítar og
Benedikt Brynleifsson á trommur.
Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari
og flytur hugvekju. Eftir messuna
verða síðan veitingar í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Ekki van-
rækja andlegu hliðina. Láttu sjá þig
í léttmessu.
Æðruleysismessa í
Hafnarfjarðarkirkju
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 5. febrúar
kl. 20.00 fer fram æðruleysismessa í
Hafnarfjarðarkirkju. Prestar eru
sr. Gunnþór Þ. Ingason og sr. Ólafur
Jens Sigurðsson. Ingólfur Steinsson
ritstjóri segir frá reynslu sinni og
les frumsamin ljóð. Tónlistarflutn-
ingur verður á léttum og björtum
nótum hljómsveitarinnar Gleði-
gjafa.
Þrír A-hópar sækja nú vikulega
fundi í Vonarhöfn, safnaðarheimili
Strandbergs, og eru mjög ánægðir
og þakklátir fyrir þá aðstöðu og all-
an stuðning kirkjunnar við þýðing-
armikið mannræktarstarf AA-
samtakanna. Þess er vænst að AA-
menn, fjölskyldur þeirra og velunn-
arar sæki æðruleysismessuna á
sunnudagskvöldið kemur í Hafn-
arfjarðarkirkju. Hún er öllum opin
og eftir hana er boðið upp á kvöld-
hressingu í safnaðarheimilinu
Strandbergi.
Gestaprédikari í Kefas
SUNNUDAGINN 5. febrúar verður
Steven L. Shelley gestaprédikari í
Kefas. Hann er mikill Ísraelsvinur
og ætlar að fjalla um hebreskar ræt-
ur trúar okkar. Lofgjörðin verður á
ísraelskum nótum í samræmi við
þema ræðunnar. Samkoman hefst
kl. 14.00. Barnastarf á samkomu-
tíma og kaffisala á eftir. Allir vel-
komnir.
Fyrirlestur í Landakoti
um helgimyndlist
AUÐUR Ólafsdóttir, listfræðingur
og dósent við Háskóla Íslands, flyt-
ur erindi mánudaginn 6. febrúar í
safnaðarheimili kaþólskra á Há-
vallagötu 16:
Kristur; dómari, frelsari eða
mannssonur? – Kristsmyndin og
þróun hennar í myndlist frá tákn-
myndum í neðarjarðargrafhýsum
Rómar til 20. aldar listaverka.
Fyrirlestur Auðar mun aug-
ljóslega vekja mikla athygli þar sem
hún notar ríkulegt myndefni til að
gefa áhugasömum innsýn í sögu og
þróun helgimyndlistarinnar.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20.00 og
er aðgangur ókeypis og öllum heim-
ill.
Logos – námskeið
LOGOS opnar þér nýja sýn! er níu
vikna námskeið sem hefst 6. febrúar
og lýkur 27. mars. Námskeiðið verð-
ur á mánudagskvöldum í Kross-
inum, Hlíðasmára 5–7 í Kópavogi.
Markmið námskeiðisins er að fólk
öðlist þekkingu og dýpri skilning á
þeim viðfangsefnum sem fjallað er
um, átti sig betur á hvar við erum
stödd í tímanum og kynnist mik-
ilvægum atriðum sem tengjast á
einn eða annan hátt kristinni trú.
Námskeiðið er uppbyggjandi,
fræðandi, skemmtilegt og opnar
mönnum nýja sýn.
Kennarar á námskeiðinu eru: Sr.
Þórhallur Heimisson, Snorri Ósk-
arsson, Hafliði Kristinsson, Gunnar
Þorsteinsson, Kjartan Jónsson, dr.
Sveinbjörn Gizurarson og Halldór
Lárusson.
Efnisflokkarnir sem fjallað er um
eru: Er Guð til? Spádómar Biblíunn-
ar, Þróun/Sköpun, Spíritismi, Bibl-
ían vs. Kóraninn, Ísrael, Villitrúar-
reglur, Er Helvíti heitt? Síðustu
tímar.
Þátttaka á námskeiðinu er öllum
opin. Skráning er á www.kross-
inn.is/logos, netfangið er logos-
@krossinn.is og skráningarsíminn
er 694 4150.
Stoppleikhópurinn í
Seltjarnarneskirkju
FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA
kl. 11. Mikill söngur, biblíusaga og
bæn. Organisti Pavel Manasek.
Stoppleikhópurinn kemur í heim-
sókn með eina af sínum frábæru
sýningum. Sýnt verður brúðu-
leikritið „Sigga og skessan í fjall-
inu“ sem fjallar um vináttu og kær-
leika. Sagan er eftir Herdísi
Egilsdóttur en leikgerðin er í hönd-
um Stoppleikhópsins. Leikarar:
Eggert Kaaber og Katrín Þorkels-
dóttir. Sýningin er kirkjugestum að
sjálfsögðu að kostnaðarlausu.
Sr. Arna Grétarsdóttir og leiðtog-
ar sunnudagaskólans. Verið hjart-
anlega velkomin.
Sorgarhópur
í Grafarvogskirkju
FYRIRLESTUR um sorg og sorg-
arviðbrögð verða þriðjudaginn 7.
febrúar kl. 20. Fyrirlesari er séra
Guðrún Eggertsdóttir sjúkra-
húsprestur. Eftir fyrirlesturinn
verður skráning í hóp sem mun
starfa næstu þriðjudaga fram til 11.
apríl. Hóparnir eru í umsjón séra
Önnu Sigríðar Pálsdóttur.
Grafarvogskirkja.
Kvöldguðsþjónusta
í Grafarvogskirkju
KVÖLDGUÐSÞJÓNUSTA með
léttu ívafi verður í Grafarvogs-
kirkju sunnudagskvöldið 5. febrúar
kl. 20. Prestur séra Lena Rós Matth-
íasdóttir. Hjónin Eyþór Gunnarsson
og Ellen Kristjánsdóttir munu sjá
um tónlistina.
Grafarvogskirkja.
Gestir í Vídalínskirkju
MIKIÐ verður um að vera í kirkjum
Garðasóknar um helgina. Í fjöl-
skylduguðsþjónustunni í Vídalíns-
kirkju kl. 11 kemur Leikbrúðuland í
heimsókn og sýnir ævintýrið um
Selinn Snorra sem flestir þekkja.
Helga Steffensen stjórnar. Sunnu-
dagaskólinn verður með í guðsþjón-
ustunni, en einnig kemur Skólakór
Hofsstaðaskóla í heimsókn og syng-
ur undir stjórn Unnar Þorgeirs-
dóttur. Nýtt efni fyrir sunnudaga-
skólann var tekið í notkun eftir
áramót, en Rannveig Káradóttir og
Hjördís Rós Jónsdóttir stjórna
sunnudagaskólanum af röggsemi,
enda mikil gleði ríkjandi meðal
þátttakenda, barna og fullorðinna.
Að lokinni fjölskylduguðsþjónust-
unni verður hollustan höfð í fyr-
irrúmi og boðið upp á hressingu í
anda „orkuátaks Latabæjar“ í safn-
aðarheimilinu.
Fyrir þá sem frekar kjósa hefð-
bundið helgihald verður messa í
Garðakirkju kl. 14. Þar leiðir kór
Vídalínskirkju safnaðarsönginn að
venju. Organisti í báðum athöfnum
er Jóhann Baldvinsson, en sr. Frið-
rik J. Hjartar sér um prestsþjón-
ustuna. Þá er einnig vert að minna á
sunnudagaskólann í Bessa-
staðasókn, sem er hvern sunnudag
kl. 11 í sal Álftanesskóla.
Friðrik J. Hjartar.
Fræðslumorgnar
hefjast að nýju
í Hallgrímskirkju
NÆSTKOMANDI sunnudag, 5.
febrúar kl. 10, hefjast að nýju
fræðslumorgnar í Hallgrímskirkju,
eftir áramótahlé.
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson mun
þá ræða efnið: Hvað er kristinn
trúarskilningur? Hugtakið trú og
merking þess að kristnum skilningi
virðist oftar en ekki óljós og notkun
hugtaksins þar af leiðandi fljótandi
bæði í samræðum manna á milli og
einnig í fjölmiðlum.
Dr. Sigurjón Árni mun í fyr-
irlestri sínum ræða um sérstöðu
trúarhugtaksins að kristnum skiln-
ingi með áherslu á evangelísk-
lútherskan skilning á hugtakinu. Á
stórmarkaði trúarbragðanna á
Vesturlöndum er mikilvægt fyrir
kristna menn að gera sér grein fyrir
grundvallaratriðum eins og hér um
ræðir.
Kl. 11 hefst síðan messa í umsjá
séra Sigurðar Pálssonar og barna-
starf í umsjá Magneu Sverrisdóttur
djákna. Organisti við messuna er
Björn Steinar Sólbergsson og fé-
lagar úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju munu leiða sönginn.
Virk hlustun í sambúð
ÁSTÆÐA er til að vekja athygli á
sérstöku hjóna- og sambúð-
arnámskeiði sem haldið verður í
Laugarneskirkju sunnudaginn 12.
febrúar milli kl. 13 og 16. Þar munu
hjónin Vigfús Bjarni Albertsson
sjúkrahúsprestur og Valdís Ösp Ív-
arsdóttir, fíkni- og fjölskylduráð-
gjafi, halda námskeið og kynningu á
sérstöku vinnukerfi sem hannað er
til þess að gera góð sambönd betri.
Stofnaðir verða parahópar sem
hittast í heimahúsum með 6–8 vikna
millibili og vinna tiltekin verkefni.
Um er að ræða verkefnakerfi sem
var búið til fyrir 25 árum í Minesota-
ríki í BNA af tveimur fagaðilum,
þar sem pör eru æfð í virkri hlustun
og samtali um helstu viðfangsefni
sambúðar og hjónabands.
Hér er ekki á ferðinni „krísu-
vinna“, eða tæki til að bjarga fólki
úr einhverjum rústum, heldur að-
ferðir til að dýpka og auka gæði í
samskiptum sem þegar eru heil-
brigð. Tekið skal fram að aldur og
kynhneigð er aukaatriði.
Kynningarnámskeiðið verður
haldið í safnaðarheimili Laugarnes-
kirkju. Farið verður yfir fram-
kvæmd námskeiðisins og tilgang
efnisins sem er verið að nota og út-
skýrt hvaða hugsun liggur að baki.
Þar munu hópar sem þegar eru að
störfum mæta og greina frá reynslu
sinni auk þess sem boðið verður upp
á léttar veitingar. Aðgangur er
ókeypis og þau sem langar að nýta
sér þetta vinnukerfi fá leiðsögn um
framhaldið. Hinir fara heim reynsl-
unni ríkari og með margar góðar
hugmyndir og umræðuefni í far-
teskinu.
Bæn og bænheyrsla
dags og að kvöldi í Frí-
kirkjunni í Reykjavík
BARNAGUÐSÞJÓNUSTA kl. 14.
Þema dagsins er bænin. Helgisaga,
söngvar og Biblíumyndir. Barn bor-
ið til skírnar. Anna Sigga og Carl
Möller sjá um tónlistina, en Hjörtur
Magni Jóhannsson leiðir stundina.
Andabrauð í lokin ásamt kaffi og
djús í anddyrinu hjá Nöndu kirkju-
vörðu.
Kvöldmessa kl. 20.00. Þema
kvöldsins er bænin, bænheyrsla og
kraftaverk. Við syngjum mikið með
Önnu Siggu, Carli Möller og Frí-
kirkjukórnum. Altarisganga.
Stundina leiðir Ása Björk Ólafs-
dóttir.
Messukaffi eftir messuna í safn-
aðarheimilinu að Laufásvegi 13, í
umsjá Lovísu okkar. Njótum heild-
arsamveru í kirkjustarfinu.
Morgunblaðið/Arnaldur
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á 12 borðum fimmtu-
daginn 2. febrúar. Meðalskor 220.
NS
Elís Kristjánsson - Páll Ólason 293
Eysteinn Einarsson - Jón Stefánsson 256
Jóna Kristjánsdóttir -Sveinn Jensson 249
Aðalbjörn Benedikts. - Leifur Jóhanness
243
AV
Sigurður Gunnl.s. - Sigurpáll Árnason 275
Sigm. Stefánsson - Stefán Friðbjarnars. 274
Sigtryggur Ellertss -Ernst Backmann 245
Gróa Guðnadóttir - Unnar Guðm.s. 243
Spilað alla mánu- og fimmtudaga
kl. 13.
Eldri borgarar Gjábakka
Ágæt þátttaka var sl. föstudag en
betur má ef duga skal. Spilað var á
7 borðum og urðu úrslitin þessi í
N/S:
Auðunn Guðmss. - Bragi Björnsson 187
Lárus Hermannss. - Ólafur Lárusson 185
Helga Helgad. - Einar Einarsson 172
A/V:
Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddsson 213
Magnús Halldórss. - Oliver Kristóferss. 190
Katarinus Jónss. - Unnar A. Guðm.s. 175
Karl Karlss. - Ólafur Ingvarsson 175
Bridsfélag Siglufjarðar
Siglufjarðarmót í sveitakeppni
hófst mánudaginn 23. janúar. Átta
sveitir mættu til leiks, þar af ein ný-
liðasveit þar sem spilarar úr Brids-
skólanum mættu með sveit. Spilaðir
eru tveir tólf spila leikir á kvöldi,
allir við alla, tvöföld umferð. Að
loknum fjórum leikjum er staða
efstu para þessi.
Sveit Þorsteins Jóhannssonar 76 stig
Sveit Hreins Magnússonar 71 stig
Sveit Guðlaugar Márusdóttur 67 stig
Þriðjudaginn 27. desember fór
fram árlegt minningarmót um
Benedikt Sigurjónsson. Spilaður var
barometer tvímenningur, alls 15
umferðir og 2 spil á milli para. Til
leiks mættu 18 pör. Fljótlega kom í
ljós að bræður myndu berjast, þar
sem þeir bræður Sigurður og Dagur
Gunnarssynir og Anton og Bogi Sig-
urbjörnssynir tókust á. Framan af
leiddu þeir Sigurður og Dagur mót-
ið, en um mitt mót náðu Anton og
Bogi forustunni af frændum sínum
og létu hana ekki af hendi eftir það.
Úrslit efstu para urðu þessi:
Anton Sigurbjörnss. – Bogi Sigurbj.s. 103
Sigurður Gunnarss. – Dagur Gunnarsson 72
Sigurður Hafliðason – Björn Ólafsson 50
Jóhann Stefánss. – Stefanía Sigurbjörnsd.
28
Baráttan um bronsstigin heldur
áfram og þar er barist sem aldrei
fyrr, en sá sem fær flest bronsstig
yfir starfsárið hlýtur sæmdarheitið
besti spilari félagsins. Núna á miðju
starfsári er staðan þessi.
Anton Sigurbjörnsson 165 stig
Bogi Sigurbjörnsson 159 stig
Þorsteinn Jóhannsson 135 stig
Hreinn Magnússon 104 stig
Sigurður Hafliðason 95 stig
Guðlaug Márusdóttir 86 stig
Nú er lokið námsskeiði sem
Bridsfélag Siglufjarðar stóð fyrir í
samvinnu við Bridsskólann í
Reykjavík. Yfirumsjón með kennsl-
unni hafði Sigurður Hafliðason.
Mjög vel tókst til með framkvæmd
kennslunnar og nú þegar hefur hún
borið þann árangur að ein sveit er
þátttakandi í Siglufjarðarmótinu í
sveitarkeppni Ekki er nokkur vafi á
því að hér eru á ferð spilarar sem
eiga eftir að láta til sín taka við
græna borðið í framtíðinni.
Bridsfélagið Muninn
og Bridsfélag Suðurnesja
Lokið er fjórum umferðum af níu
í aðalsveitakeppni félaganna og hef-
ir sveit Grethe Íversen tyllt sér á
toppinn. Með Grethe spila Sigríður
Eyjólfsdóttir, Kristján Kristjánsson
og Garðar Garðarsson.
Staða efstu sveita:
Grethe Íversen 79
Sparisjóðurinn í Keflavík 75
Erla Sigurjónsdóttir 73
Svala Pálsdóttir 70
Grindavíkursveitin 68
Spilaðir eru tveir 14 spila leikir á
kvöldi. Spilað er á miðvikudags-
kvöldum í félagsheimili bridsspilara
á Mánagrund og hefst spilamennsk-
an kl. 19.30.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson