Morgunblaðið - 04.02.2006, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 04.02.2006, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 59 DAGBÓK OPIÐ HÚS- YSTASEL 25 - VEL STAÐSETT EINB. Sérlega fallegt og vandað 227 fm einbýlishús á tveimur hæðum ásamt tvöföldum 42,2 fm bílskúr og fallegum og grónum garði. Eignin sem er á tveimur hæðum skiptist þannig: Efri hæð: Anddyri, hol, borðstofa, eldhús, rúmgóð stofa, fjögur herbergi og baðherbergi. Neðri hæð: Baðherbergi, sauna, þvottahús, tómstundaherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi. Lóðin er stór fullfrágengin og falleg. Húsið var nýlega einangrað og múrað að utan og lítur mjög vel út. Örstutt er í Ölduselsskóla og leikskóla. V. 49,9 m. 5434 Opið hús verður á morgun sunnudaginn 5. febrúar milli kl. 14 -16. Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Vil kaupa myndir eftir gömlu meistarana Áhugasamir sendi til augldeildar Mbl. eða í box@mbl.is merkt: „M - 18154“ Andartak! Norður ♠Á74 ♥D743 ♦ÁD7 ♣Á64 Suður ♠KD10952 ♥-- ♦KG52 ♣D52 Vestur er gjafari og vekur á einu hjarta, en síðan liggur leið NS upp í sex spaða, sem suður stýrir. Útspil vesturs er hjartakóngur. Hvernig er best að spila? Sagnhafi á ellefu toppslagi og efnivið- urinn í þann tólfta eru drottningarnar í hjarta og laufi. Það þýðir hins vegar lít- ið að spila laufás og laufi á drottn- inguna, því vestur á örugglega lauf- kónginn fyrir opnun sinni í byrjun. Þá er betra að spila upp á kóng annan og dúkka lauf. Eða reyna við innkast í endastöðunni – ef spaðinn fellur 2-2 má trompa þrjú hjörtu og senda vestur svo inn á háhjarta til að spila frá laufkóng í lokin. Norður ♠Á74 ♥D743 ♦ÁD7 ♣Á64 Vestur Austur ♠G86 ♠3 ♥ÁKG102 ♥9865 ♦6 ♦109843 ♣KG83 ♣1097 Suður ♠KD10952 ♥-- ♦KG52 ♣D52 En trompið er 3-1 og vestur á lauf- kónginn vel valdaðan, svo hvorug áætl- unin skilar árangri. Vinningsleiðin er fögur – suður hend- ir einfaldlega laufi í fyrsta slaginn í stað þess að trompa. Þannig er réttur taktur byggður upp fyrir þvingun á vestur í hjarta og laufi. Vestur spilar vænt- anlega trompi í öðrum slag. Sagnhafi tekur öll trompin og slagina fjóra á tíg- ul. Í þriggja spila endastöðu á blindur Áx í laufi og hjartadrottningu, en suður einn tígul (eða tromp) og Dx í laufi. Þeg- ar síðasta fríslagnum er spilað neyðist vestur að fara niður á stakan laufkóng og þá verður drottningin slagur. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 O-O 5. Rge2 d5 6. a3 Bd6 7. Rg3 a5 8. Dc2 c5 9. dxc5 Bxc5 10. cxd5 exd5 11. Bb5 Bd7 12. O-O Bxb5 13. Rxb5 Db6 14. Rc3 Rbd7 15. Bd2 Hac8 16. Hac1 Hc6 17. Ra4 Db5 18. Rxc5 Rxc5 19. Rf5 Hc7 20. Dc3 b6 21. De5 Dd7 22. Bc3 Rce4 23. Bd4 Hxc1 24. Hxc1 He8 25. Df4 De6 26. h4 Rh5 27. Df3 g6 28. Rh6+ Kf8 29. g4 Rhf6 30. Df4 Rg8 Staðan kom upp í B-flokki Corus skákhátíðarinnar sem lauk fyrir skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi. Rússneski stórmeistarinn Alexander Motylev (2.638) hafði hvítt gegn ung- verska kollega sínum Zoltan Almasi (2.646). 31. Hc6! og svartur gafst upp þar sem hann yrði mát eftir 31. ... Dxc6 32. Dxf7# og myndi tapa drottningunni eftir 31. ... Dd7 32. Hc7. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Öxlum ábyrgð NÚ HEYRIST oft talað um að axla ábyrgð, þ.e. að taka ábyrgð á e-u, ábyrgjast, vera ábyrgur fyrir e-u. Önnur algeng afbrigði af þessu orðalagi heyrast ekki lengur, a.m.k. í umræðum í sölum hins háa eða háttvirta Alþingis. Í einni síðdegisútsendingu sjón- varps taldi ég 29 sinnum notkun þessa annars ágæta orðalags, 29 sinnum, og þetta kom fyrir hjá öll- um sem í pontuna komu og engin önnur tilbrigði heyrðust. Fór mér að leiðast þetta þrástag. Allir virtust álútir undir þessum bagga ábyrgð- ar. Ef til vill geta hraustir menn eins og Steingrímur J. Sigfússon haldið á þessari ábyrgð, bæði utan húss og innan, enda er hann maður hraust- ur, bæði á Alþingi (háttvirtu) og ut- an þess. En ósköp hlýtur þetta ábyrgðarhlass að vera þreytandi fyrir suma sæla og launfeita ný- græðinga og jafnvel hinar veik- byggðari konur. Einhvern veginn virðist þessi sí- notkun á sömu orðum ekki bera þessum háttvirtu þingmönnum vott um frumleika í hugsun. Annað orðalag vil ég nefna sem áður var algengt. Að eitthvað stefndi í þá áttina, e-ð virtist benda í þá átt að … Hann talaði í þá átt að halda mætti að … Þetta heyrist ekki lengur, a.m.k. ekki í tali hæstvirtra alþingismanna, sem allir virðast apa hver eftir öðrum „í þessa veru“. Hann sagði eitthvað í þá veru að … Þetta síðasta orðalag á ákaflega illa við í íslensku máli og er kjánalegt að mínu mati. Hvaða „veru“ er átt við? Heimspekilega veru, skuggaveru eða óveru? Nei, leggjum þessa veru niður og bendum hver öðrum í hina og þessa áttina eins við á hverju sinni. Kæru háttvirtu þingmenn. Ég ætla nú að axla ábyrgð og ljúka þessu spjalli en býst frekar við að halda áfram að rogast kengboginn undir ábyrgðinni eins og þeir heyr- ast sammála um. Þetta er víst þver- pólitísk afstaða með leyfi hæstvirts forseta. Sókrates í Breiðholti. Köttur í óskilum í Hafnarfirði ÞESSI köttur elti dóttur mína heim úr skólanum á mánudaginn og hefur verið hjá okkur síðan. Þetta er hvít- ur og rauðbröndóttur ungur fress, ógeldur og ómerktur. Hann er mjög gæfur og kelinn og mjög barngóður. Hann fannst í Norðurbænum í Hafnarfirði. Upplýsingar í síma 555 3775. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Japanska er nú kennd við Háskóla Íslandsþriðja árið í röð. Námið er undir leiðsögnKaoru Umezawa, lektors við Hugvís-indadeild, sem haft hefur umsjón með japönskukennslunni frá upphafi. „Um er að ræða aukafag til 30 eininga og skipt- ist námið í kennslu í japanskri tungu fyrir 20 ein- ingar annars vegar og japanskri menningu fyrir 10 einingar hins vegar,“ segir Kaoru. „Náms- leiðin er ætluð algjörum byrjendum en eftir árs- nám hafa nemendurnir öðlast grunnhæfni til að tala á japönsku, skrifa einfaldan texta og lesa ein- faldari rit. Námskeiðin um japanska menningu veita síðan nemendum innsýn inn í japanskra sögu og siði sem og bókmenntir og kvikmynda- hefð landsins.“ Kaoru getur ekki tekið undir þá goðsögn að japanska sé erfitt mál: „Málið er vissulega mjög frábrugðið því íslenska, en ég hef komist að raun um það að íslenskir nemendur eru mjög metn- aðarfullir og áhugasamir og hafa umfram allt gaman af að læra japanska tungu og því hafa þeir staðið sig vel í náminu.“ Háskóli Íslands hefur gert samstarfssamninga við nokkra háskóla í Japan og stendur nemendum til boða að sækja um skiptinám við þessa háskóla. Strax eftir fyrsta ár japönskukennslu við HÍ fóru 8 nemendur utan til náms. „Þeir virðast allir hafa kunnað vel við vistina og margir hafa hug á að snúa aftur til Japans til frekari dvalar og starfa,“ segir Kaoru. Japönskunámið má tvinna saman við annað nám í Háskólanum og þannig er til námsleið við Viðskipta- og hagfræðiskor þar sem taka má jap- önsku með viðskiptanámi. „Margir þeirra nem- enda sem hafa lagt stund á japönsku hingað til hafa gert það mest af brennandi áhuga á landi og þjóð frekar en af hagkvæmnissjónarmiðum. Ég geri þó ráð fyrir að margir muni sjá sér hag í að læra japönsku af hagnýtum ástæðum, til dæmis tengt viðskiptum.“ Einnig hafa þeir nemendur sem stundað hafa eins árs viðbótarnám í Japan átt þess kost að sækja um að útskrifast með japönsku sem aðalfag og segir Kaoru að nú séu fimm nemendur að vinna að lokaritgerðum og að í sumar verði vænt- anlega fyrstu nemendurnir útskrifaðir með grunnháskólagráðu í japönsku frá Háskóla Ís- lands. Aðsókn er ágæt í japönskunám við HÍ og liggur fyrir dyrum samstarf við Háskólann á Akureyri þar sem boðið verður upp á kennslu í kínversku. Standa vonir til að bjóða, með sameiginlegu fram- taki, upp á BA-nám í asískum fræðum. Menntun | Samstarf HÍ og HA um kennslu í asískum fræðum í burðarliðnum Japönskunám í framþróun  Kaoru Umezawa er fædd 1965. Hún lauk BA-prófi í ensku frá Kobe Kaisei-kvennahá- skólanum í Kobe 1988, MA-gráðu í kennslu- fræðum frá Inter- national Christian Uni- versity í Tókýó 1992 og MA-gráðu í hljóðfræði frá University College í Lundúnum 1991. Hún gegndi rannsóknarstöðu við Háskólann í Tók- ýó 1993 og hlaut doktorsgráðu í hljóðfræði frá University College í Lundúnum 2001. Kaoru hefur fengist við kennslustörf og þýð- ingar, síðast við Institute of International Education í Lundúnum frá 2002 til 2003, og loks gegnt lektorsstöðu við félagsvísindadeild HÍ frá 2003. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Félag breiðfirskra kvenna | Aðal- fundur félags breiðfirska kvenna verður 6. feb. kl. 20 í Breiðfirð- ingabúð. Dalbraut 18 - 20 | Skráning stend- ur yfir á myndlistarnámskeið. Leið- beinandi Selma Jónsdóttir. Alltaf eitthvað um að vera; framsögn á mánudögum, félagsvist á þriðjudög- um, leikfimi á mánudögum og mið- vikudögum, postulínsnámskeið á föstudögum! Handverkstofa Dal- brautar 21-27 opin frá 8-4 alla virka daga. Sími 588 9533. FEBÁ, Álftanesi | Æfum boccia undir leiðsögn Denna, í íþróttahús- inu alla laugardaga kl.12-13. Allir eldri borgarar velkomnir, engin kunnátta nauðsynleg. Boccia-kúlur á staðnum. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Sælu- dagar á Hótel Örk vikuna 26.-31. mars n.k. Skráning er hafin á skrif- stofu félagsins í síma 588 2111. Námskeið í framsögn og upplestri hefst 7. febrúar, leiðbeinandi Bjarni Ingvarsson, skráning og uppl. í síma 588 2111. Félag kennara á eftirlaunum | Fræðslu- og skemmtifundur í Ás- garði, Stangarhyl 4. Hefst kl. 13.30. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Myndskreytt ljóðasýning stendur yf- ir í Garðabergi á ljóðum Magnúsar Hagalínssonar og Sólveigar Öldu Pétursdóttur. Sýning stendur til og með 16. febrúar. Opið er alla virka daga nema þriðjudaga kl. 12.30- 16.30. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13-16 „Ort í ull“, listsýning Sigrúnar Björg- vins, listakonan er á staðnum. Fös- tud. 10. febr. kl. 13.30 er opnuð á Hrafnistu í Hafnarfirði myndlist- arsýning þáttakenda í myndlist á vegum Félagsstarfsins, umsjón Nanna S. Baldursdóttir, m.a. syngur Gerðubergskórinn. Á mánud. 6. febr. þorrahlaðborð í hádeginu. Glæsibær | Þorrablót SÁÁ verður haldið í Glæsibæ laugardaginn 4. febrúar. Lúdó sextett leikur fyrir dansi, fjölbreytt skemmtiatriði, veislustjóri séra Gunnar Sigur- jónsson. Húsið opnað kl. 19. Borð- hald hefst kl. 20. Félagsstarf SÁÁ. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið opið öllum. Líttu við einhvern daginn, kíktu í blöðin, fáðu þér kaffisopa og kynntu þér dagskrána. Það er morg- unsopi kl. 10 alla morgna og alltaf eitthvað gott með síðdegiskaffinu kl. 15. Þú getur fengið dagskrána senda heim! Síminn okkar er 568 3132. asdis.skuladott- ir@reykjavik.is Kirkjustarf Áskirkja | Safnaðarfélag Áspresta- kalls verður með aðalfund og þorra- blót miðvikudaginn 8. febrúar kl. 19. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til kirkjuvarðar í síma 581 4035 fyrir kl. 15, mánudaginn 6. febrúar. Háteigskirkja | Aðalfundur Kven- félags Háteigssóknar verður þriðju- daginn 7. febrúar kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf. Bingó. Kaffiveit- ingar. Munið félagsgjöldin. „MITT innra landslag“ nefnist sýn- ing á málverkum eftir Sigurþór Jakobsson myndlistarmann sem opnuð verður í Gallerí Ófeigi, Skólavörðustíg 5 í dag kl. 16. Sigurþór hefur haldið 5 einka- sýningar og tekið þátt í nokkrum samsýningum. Á sýningunni nú eru olíumálverk, flest eru unnin árið 2005. Málverk eftir Sigurþór Jak- obsson eru í eigu ýmissa stofnana og einkaaðila hér á landi og erlend- is. Sýningin verður opin virka daga frá kl. 10–18 og laugardaga frá kl. 11–16. Mitt innra landslag Morgunblaðið/RAX
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.