Morgunblaðið - 04.02.2006, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 63
MENNING
Í mars 2006 hefst viðbótarnám fyrir tungumálakennara í ensku og dönsku vegna fyrirhugaðra breytinga
á námsskrám í grunnskólum. Uppsetning námsins verður með eftirfarandi hætti:
• Aðfaranám - fyrri hluti, hefst í mars 2006. Áhersla á námsskrár.
Í mars hefst almennt námskeið þar sem farið verður yfir drög að námsskrám og þátttakendum
kynnt upplýsingatækni til að auka færni þeirra í fjarnámi. Staðbundnar lotur verða haldnar í
öllum landsfjórðungum.
•Aðfaranám - síðari hluti, hefst í september 2006.
Áhersla á kennsluaðferðir og tækni.
Að aðfaranáminu loknu verður boðið uppá námskeið í Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands,
Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík sem henta til viðbótarmenntunar í viðkomandi fagi.
Þátttakendur geta valið námskeið í öllum háskólunum og stundað þau í fjarnámi.
Viðbótarnám
fyrir grunnskólakennara
vegna fyrirhugaðra breytinga á námsskrám í dönsku og ensku
Skráning
febrúar 2006
Aðfararnám 1
mars 2006
Aðfararnám 2
3 einingar
Haust 2006
Viðbótarnám
HÍ, HA, HR og KHÍ : Valfög allt
að 12 einingar, vetur 06-09
Skírteini
Vor/Haust 2009
Umsóknir um þátttöku berist í síðasta lagi 24. febrúar til Símenntunarstofnunar Íslands sem hefur umsjón með skráningu og
staðfestingu á þátttöku kennara. Upplýsingar um námskeiðin verða á vef Símenntunar: http://simennt.khi.is
HVAÐ hefur aburðagóður píanó-
kennari til brunns að bera?
Hér á landi er nú staddur einn
snjallasti píanókennari og píanó-
leikari dagsins í dag, og gefur
áhugasömum Íslendingum innsýn í
heim píanósins, píanótónlist-
arinnar og píanókennslunar, með
námskeiði og tónleikum í Salnum.
Þetta er Nelita True, bandarísk
kona um sjötugt, sem á að baki
óvenjuglæstan feril sem píanóleik-
ari, kennari og fyrirlesari.
Árangur nemenda er mældur á
prófum, – en sjaldnar er árangur
kennara lagður undir mælikerið.
Það má þó líta á það sem kvarða á
hennar hæfileika, að fjölmargir
nemenda hennar hafa borið sigur
úr býtum í amerískum og alþjóð-
legum píanókeppnum, og enginn
annar píanókennari hefur náð
þeim árangri að eiga fimm nem-
endur meðal sigurvegara í Píanó-
keppni bandarískra píanókennara,
Music Teacher National Associa-
tion Competitions. Fyrrverandi
nemendur hennar hafa náð langt
sem píanóleikarar og kennarar við
marga bestu tónlistarskóla Banda-
ríkjanna og Evrópu.
Annars var píanónám Nelitu
True sjálfrar sjálfsagt ekkert frá-
brugðið námi annarra óvenjuefni-
legra krakka. Eftir hefðbundið
nám á barnsaldri var Nelita True
svo lánsöm að komast að hjá af-
bragðspíanókennurum; Helen Tit-
us í Michiganháskóla og Sascha
Gorodnitzki í Juilliard-skólanum í
New York. Doktorsprófi í píanó-
leik lauk hún undir leiðsögn Leons
Fleischers við Peabody-tónlistar-
skólann í Baltimore. Þar með var
ekki öll sagan sögð, því sem Ful-
bright-styrkþegi komst hún að hjá
eftirsóttasta píanókennara síðustu
aldar, Nadiu Boulanger í París.
Einleikaraferill hófst reyndar
meðan hún var enn í námi, því hún
var bara sautján ára þegar hún lék
fyrst einleik með Sinfóníuhljóm-
sveitinni í Chicago og með Juilli-
ard-hljómsveitinni í Lincoln Cent-
er í New York. Þaðan tók hún
flugið með tónleikahaldi sem hef-
ur borið hana út um allan heim, og
í allra kræsilegustu tónleikasali.
Nelita True hóf kennsluferil
sinn við Marylandháskóla, en síð-
ustu áratugi hefur hún verið pró-
fessor við virtan tónlistarskóla,
Eastman-skólann í Rochester í
New York-ríki.
Í öllum helstu píanókeppnum
heims þykir sómi að því að hafa
Nelitu True í dómnefnd, og slíkum
störfum hefur hún sinnt um ára-
bil.
Námskeið og
tónleikar í Salnum
Nelita True þykir hafa einstaka
hæfileika til að miðla hvort sem er
músík eða máli. Þess vegna er hún
svo eftirsóttur fyrirlesari sem
raun ber vitni. Fyrirlestrana teng-
ir hún gjarnan tónleikum og nám-
skeiðahaldi, eins og hún gerir hér
á landi. Það segir sína sögu, að
tólf sinnum hefur hún farið til
Kína, til að tala um tónlist, spila
og kenna. Fyrir störf sín hefur
Nelita True hlotið margháttaða
viðurkenningu, bæði frá lands-
samtökum píanókennara í Banda-
ríkjunum, nemendasamtökum há-
skólans í Maryland og frá
Eastman-skólanum. En nú er
komið að okkur Íslendingum að fá
að njóta þess sem Nelita True
kann svo vel að miðla. Í dag ætlar
hún að eiga samverustund með ís-
lenskum píanónemendum og
-kennurum í Salnum. Þar ætlar
hún að hlusta á nokkra nemendur
spila og gefa ráð og leiðbeiningar,
en einnig flytja kennurunum er-
indi um píanókennslu og glímu pí-
anóleikarans við einstök sígild pí-
anóverk. Öllum er heimill
aðgangur að dagskránni gegn
vægu gjaldi, en hún stendur frá kl.
10–14. Nemendur fá frían aðgang,
en námskeiðið er haldið í sam-
vinnu við Íslandsdeild EPTA, Evr-
ópusambands píanókennara og
Listaháskóla Íslands.
Á morgun kl. 16 heldur Nelita
True svo tónleika í Salnum, og
helgar þá minningu afmælisbarns
ársins, Mozarts, en leikur einnig
verk eftir Gabriel Fauré. Eins og
hennar er vandi verður ekki bara
músík á dagskránni, því hún ætlar
líka að tala um tónskáldin tvö og
verkin sem hún leikur.
Á Íslandi er áhugi á ætt-
artengslum rótgróinn. Til gamans
skal þess því getið að Nelita er ís-
lensk í móðurætt. Móðir hennar,
Lillian True (1902–1953), var dótt-
ir Ólafs Benediktssonar (1866–
1908) og Guðrúnar Guðmunds-
dóttur (1870–1903). Ólafur fæddist
á Eiðsstöðum í Blöndudal og flutt-
ist með foreldrum sínum, Benedikt
Ólafssyni og Hólmfríði Bjarna-
dóttur, til Kanada árið 1874 frá
Sauðárkróki. Benedikt bjó síðast á
Markerville-svæðinu við hlið
Stephans G. Stephanssonar og
voru þeir góðir vinir. Guðrún,
amma Nelitu, var fædd á Auðnum
í Sæmundarhlíð í Skagafirði og
fluttist til Kanada með fjölskyldu
sinni árið 1883.
Faðir Nelitu hét Louis True og
bjuggu þau Lillian í Bozeman,
Montana í Bandaríkjunum þar
sem Nelita fæddist 1936.
Tónlist | Nelita True talar, hlustar, kennir, spjallar og spilar
Miðlar músík af snilld
Nelita True
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
BELGÍSKA listakonan Anouk de
Clercq er ekki við eina fjölina felld
í list sinni en hún á að baki bæði
tónlistar- og listnám. Myndbands-
verk hennar rata bæði á kvik-
myndahátíðir og í listasöfn og list-
sýningarsali. Safn sýnir nú þrjú
verk eftir hana, en hið áhrifamesta
þeirra er Building, frá árinu 2003,
en framsetning þess er líka einna
áhrifamest, þó hefði ég gjarnan vilj-
að hafa meira myrkur í rýminu.
Önnur verk í Safni eru myndbandið
Portal sem sýnir ímyndað landslag
og verkið Log, það síðarnefnda má
sjá í glugga Safns allt fram til um
átta á kvöldin. Listræn nálgun de
Clercq er ljóðræn og abstrakt en
einnig frásagnarleg, hún hefur not-
að texta í fyrri verkum sínum en
minna í þeim nýrri.
Myndbandið Building er styrkt
af fyrrverandi stjórnanda Concert-
gebouw í Brugge. Anouk hefur lýst
tilurð þessa verks í viðtali, en þar
kemur fram að tónlistarhúsið er
grunnur myndbandsins. Það var
ekki að ósk framleiðandans heldur
heillaðist Anouk af arkitektúr
byggingarinnar. Hún talaði við
arkitektana, Paul Robberecht og
Hilde Daem, sem meðal annars
sögðust ganga mjög út frá ljósi og
skuggum við hönnun bygginga
sinna. Anouk vann síðan út frá þrí-
víddarmódeli sem hún las inn í
tölvu og myndbandið samanstendur
af svarthvítum hreyfimyndum af
þeim efnivið. Útkoman er hrífandi
tólf mínútna listaverk, með tónlist
eftir Anton Aeki. Í upphafi sér
áhorfandinn hvíta fleti líða yfir
vegginn eins og strangflatar-
málverk á hreyfingu. Síðan kemur
blekking fjarvíddarinnar inn í og
hugurinn skapar þrívíða byggingu
úr myndflötunum, ljós og skuggar
skiptast á. Verkið er dramatískt og
felur í sér tilvísanir í margar áttir,
bæði í persónulegan reynsluheim
áhorfandans en einnig í bók-
menntir, kvikmyndir og myndlist,
t.a.m. ástríðufull málverk René
Daniels af innanhússrými, súrreal-
isma De Cirico, martraðarkenndar
myndir Piranesi frá 18. öld eða
blekkingarleiki Escher. Einnig má
nefna áhrif film-noir og innanhúss-
rými Disney-teiknimynda frá síð-
ustu öld koma einnig upp í hugann,
svo mætti áfram telja. Sjálf nefnir
de Clercq kvikmyndir Gordon-
Matta Clark og myndir japanska
kvikmyndagerðarmannins Kazuhiro
Goshima sem áhrifavalda.
Verkið Building segir sögu að því
marki að uppbygging þess er frá-
sagnarleg, en hver sagan er veltur
síðan á hverjum og einum. Sjón-
rænn einfaldleiki, samspil ljóss,
skugga og tónlistar skapa eft-
irminnilega upplifun sem nær að
snerta áhorfandann á marga vegu.
Hér er á ferðinni óvenjulega fallegt
og sterkt verk sem er sérlega
áhugavert bæði fyrir myndlist-
armenn sem hafa áhuga á mynd-
böndum, kvikmyndagerðarmenn og
arkitekta, – og auðvitað alla list-
unnendur.
Af sýningu Anouk de Clercq.
Ljóðrænt
og abstrakt
MYNDLIST
Safn við Laugaveg
Anouk de Clercq
Safn er opið mið-fös. frá kl. 14-18 og 14-
17 um helgar.
Til 5. febrúar.
Myndbandsverk
Ragna Sigurðardóttir
Í FRÉTT um úthlutun úr
Styrktarsjóði Halldórs Hansen
í blaðinu í gær misritaðist nafn
annars styrkþegans. Hið rétta
nafn er Steinunn Soffía Skjens-
tad, og er beðist velvirðingar á
þessum leiðu mistökum.
Úthlutun úr
Styrktarsjóði
Halldórs Hansen
LEIÐRÉTT