Morgunblaðið - 04.02.2006, Page 66
66 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
N ý t t í b í ó
VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM****
WALK THE LINE kl. 5.30. 8 og 10.30 B.i. 12 ára
FUN WITH DICK AND JANE kl. 5.20, og 8
MEMOIRS OF A GEISHA kl. 10
CHEAPER BY THE DOZEN kl. 3.40
DRAUMALANDIÐ kl. 3.40
WALK THE LINE kl. 5, 8 og 11 B.I. 12 ÁRA
WALK THE LINE LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 11 B.I. 12 ÁRA
ZATHURA FORSÝND kl. 1.50 m./íSL. tALI
FUN WITH DICK AND JANE kl. 1.40, 3.45, 5.50, 8 og 10.10
THE FOG kl. 8 B.I. 16 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 2, 4 og 6
HOSTEL kl. 10.10 B.I. 16 ÁRA
DRAUMALANDIÐ kl. 2 B.I. 16 ÁRA
F
U
N
Vinsælasta myndin
á Íslandi í dag!
6tilnefningar tilóSkarSverðlauna beSta tónliStin,John WilliamS
Golden Globe
verðlaun
walk the line
„Enginn ætti að láta Walk the Line framhjá
sér fara því myndin er auðgandi fyrir
augun, eyrun og hjartað.“
V.J.V Topp5.is
STórkoSTLEg VErðLaunamynd um æVi Johnny CaSh.
nEW york FiLm CriTiCS´ CirCLE
BoSTon SoCiETy oF FiLm CriTiCS
SCrEEn aCTorS guiLd (Sag)
naTionaL Board oF rEViEW
BESTa mynd árSinS, BESTi
LEikari og LEikkona árSinS
Ein besta
mynd ársins.
magnaður
leikur hjá
Joaquin
Phoenix
og reese
Witherspoon
Fór beint á toppinn
í bandaríkjunum!
the
fog
eee
Kvikmyndir.is
eee
Kvikmyndir.com
eee
Topp5.is
eee
Rolling Stone
eeee
Dóri DNA / DV
eeee
HJ / MBL
ÍSLENSKA söngkonan Katy Winter syngur
lagið „Meðan hjartað slær“ í undankeppni
Evróvisjón í kvöld. Katy er búsett í Sviss og
komst þar í úrslit Idol-söngkeppninnar, auk
þess að gefa út geisladisk, leika í kvikmynd og
stunda háskólanám í sálfræði.
Bjó á Íslandi í tvö ár
Katy er 22 ára, fædd 15. mars árið 1983 í
Corroux í Sviss. Móðir hennar er íslensk,
Helga Guðmundsdóttir, og faðir hennar Sviss-
lendingur, Pierre Winter. Þau kynntust þegar
Pierre eða Pétur eins og Katy kallar hann kom
til Íslands að vinna og læra íslensku. „Hann var
22 ára þegar hann ákvað að koma til Íslands,“
segir Katy. „Hann vildi einfaldlega ekki gera
það sama og allir aðrir heldur prófa eitthvað
nýtt. Þess vegna kom hann hingað. Hér kynnt-
ist hann móður minni og hún flutti síðan með
honum til Sviss, þar sem ég fæddist.“
Katy er nýflutt til Aarau með kærasta sínum
Baschi, sem einnig er vinsæll söngvari í Sviss,
og þar leggur hún stund á háskólanám. „Ég
veit ekki hvort ég geri hlé á náminu, því það er
svo mikið að gera í tónlistinni.“
Katy hefur búið tvö ár ævinnar á Íslandi, en
þá var hún 10 og 11 ára. „Foreldrar mínir voru
að skilja og mömmu langaði aftur til Íslands,“
segir hún. „Og það bara gerðist. Svo fluttum
við til Suður-Afríku, af því að mamma hafði
eignast vini þar, og bjuggum þar í eitt ár. Þá
fluttum við aftur til Sviss, en að þessu sinni í
þýskumælandi hlutann.“
Kuldinn gleymist alveg
Og hún á hlýjar minningar frá Íslandi, þó að
það hafi verið svolítið kalt. „Íslendingar eru
opnir og vinalegir og kuldinn gleymist alveg;
það er góð tilfinning að vera á Íslandi. Ég hitti
stundum bestu vinkonu mína úr barnaskóla,
hringi stundum þegar ég er á Íslandi og við för-
um út saman.“
En þó að Katy líki vel á Íslandi stefnir hún
ekkert endilega að því að flytja hingað. „Mér
líkar ekki veðrið, hvorki hér á Íslandi né í
Sviss. Ef þú hefur búið í Suður-Afríku, þá viltu
helst búa í heitara loftslagi. Þar er svo dásam-
legt að una sér á ströndinni og geta baðað sig í
sjónum. En ég myndi gjarnan vilja búa á Ís-
landi vegna fólksins. Mér líkar betur lífsstíllinn
hér en í Sviss, lífsmátinn er annar. Fólk er svo
afslappað og ef maður þarf eitthvað, þá stekkur
það til og hjálpar þér. Því er ekki sama, hvort
sem þið þekkist eða ekki. Í Sviss er þetta mun
flóknara.“
Geisladiskur fékk góðar viðtökur
Katy gaf út geisladiskinn Private í janúar
2005. Hún samdi sjálf textana og eitt lag, en
stefnir að því að semja fleiri lög á næsta disk
sem hún gefur út og vinna meira að tónlistinni
sjálf. „Ég hafði tekið þátt í Idol-keppninni í
Sviss og komist í átta manna úrslit, þannig að
ég vildi ekki bíða lengi með diskinn,“ segir hún.
„En næst tek ég meiri tíma í útgáfuna. Ég
hafði ekki stóran útgefanda og því urðum við að
nýta vel fjármunina, sem þýddi að við kynntum
hann fyrst og fremst með því að komast í frétt-
ir og viðtöl í fjölmiðlum. Viðtökurnar voru mjög
góðar, ekki síst miðað við að þetta var minn
fyrsti diskur. Það var líka gott að fá tækifæri til
að syngja á mörgum tónleikum; þar fékk ég
mikla hvatningu.“
Tónlistin verður með öðru yfirbragði á
næsta diski, að sögn Katy. „Ég kynntist því á
tónleikunum hvernig ég vil að hljómurinn sé;
hann má vera aðeins hrárri og meiri sál í tón-
listinni.“
Hlutverk í kvikmynd
Í október síðastliðnum lék Katy í kvikmynd-
inni Crazy Story. „Hún fjallar um fólk sem býr
utan alfaraleiðar í veiðimannasamfélagi fyrr á
öldum. Þetta er lítil saga um mann sem reynir
að bjarga fjölskyldu sinni, sem hefur verið
rænt. Það er mikil karlhetja í aðalhlutverkinu
og ég er önnur af mótleikkonunum.“
Og giftist þið í lokin?
„Nei, hann byrjar með hinni!“
Skemmtilegt tækifæri
Þegar Katy frétti af undankeppni
Evróvisjón á Íslandi fylgdist hún með því
hvaða lagahöfundar urðu fyrir valinu og bauð
síðan fram krafta sína. „Við náðum tali af Tóm-
asi og hann var einmitt að leita að söngkonu.
Mér líkaði lagið vel og fannst þetta skemmti-
legt tækifæri. Svo væri líka sniðugt ef lagið
kæmist áfram, því þá fengjum við áreiðanlega
stuðning frá Sviss,“ segir hún og hlær.
„Ég sá fyrstu keppnina á netinu og hlakka
mikið til, því að þetta er frábær sjónvarps-
þáttur og gott tækifæri til að syngja fyrir ís-
lenska áhorfendur. Svo væri auðvitað frábært
að komast áfram!“
Höfundur lagsins „Meðan hjartað slær“ er
Tómas Hermannsson og textann samdi Ragn-
heiður Gröndal, en hún syngur einnig bakradd-
ir með Karli Sigurðssyni baggalút. Þess má
geta til gamans að þetta er fimmta lagið sem
Tómas á þátt í sem valið er í undankeppni
Evróvisjón.
Tónlist | Íslensk söngkona búsett í Sviss tekur þátt í undankeppni Evróvisjón
Gaman að syngja fyrir Íslendinga
Katy hefur gefið út geisladisk, leikið í kvik-
mynd og stundar nú sálfræðinám í Sviss.
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
BÓKABÚÐ Máls og menningar við Laugaveg
býður gestum og gangandi upp á tónleika
klukkan 15 í dag þar sem tveir sóló-
listamenn, 701 og Mr. Silla stíga á stokk og
fremja tónlist, hvor með sínum hætti.
701 er annað sjálf Jóhanns nokkurs sem
gerði þá merku uppgötvun á yngri árum,
þegar hann var að leika sér með vasareikni,
að hann gæti stafað nafn sitt með tölustöf-
unum 701. Þar með voru örlög hans ráðin.
701 hefur þegar gefið út þrjár plötur sem all-
ar hafa fengið ágætis dóma og renna víst út
eins og heitar lummur á netinu. Von er á hans
fjórðu plötu innan tíðar en vert er að fylgjast
vel með þessu nafni því 701 er tvímælalaust
best geymda leyndarmál íslenskrar tónlistar
þessa stundina.
Mr.Silla vakti mikla athygli síðasta sumar
þegar hún kom fram í Nürnberg í Þýskalandi
og þaðan kom hún fram á helstu tónleikastöð-
um í Reykjavík og heillaði gesti upp úr skón-
um. Hún spilaði á Airwaves hátíðinni í haust,
hitaði upp fyrir Daníel Ágúst, tók nokkur lög
í einkapartíi Kiefer Sutherland rétt fyrir jól-
in og svo mætti lengi telja. Hún starfar einnig
með hljómsveitunum FRÆ og the Gimmicks
en kemur oftast fram ein með gítar og far-
tölvu.
Tónlist | Bókabúð Máls og
menningar býður til tónleika í dag
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Mr. Silla hefur vakið verðskuldaða athygli
undanfarið.
Mr. Silla
og 701