Morgunblaðið - 04.02.2006, Side 72
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
FYRIR BÍLA
TILBOÐIÐ sem Búnaðarþing hafn-
aði fyrr í vikunni í Hótel Sögu og
Hótel Ísland hljóðaði upp á 4.255
milljónir. Þegar búið hefði verið að
borga allar skuldir sem hvíla á fast-
eignunum hefðu staðið eftir um 2.400
milljónir króna. Tilboðið, sem var
með bankatryggingu frá Lands-
banka Íslands, var frá Jóhannesi
Sigurðssyni athafnamanni.
Tillagan sem Búnaðarþing hafnaði
gerði ráð fyrir að söluandvirðið yrði
notað annars vegar til að kaupa nýtt
húsnæði undir skrifstofur Bænda-
samtakanna og hins vegar til að
stofna sjúkrasjóð fyrir bændur. | 8
Bauð um 4,3 milljarða
króna í bæði hótelin
ÞAÐ getur verið hressandi fyrir líkama og
sál að kasta sér til sunds í skammdeginu.
Þeir sem eru að leita að endurnæringu fara
gjarnan í Bláa Lónið sem er þekkt fyrir
lækningamátt sinn. Ekki er ólíklegt að kon-
an á myndinni hafi sótt kraft í lónið, að
minnsta kosti er ljóst að hún hefur notið
stundarinnar og skemmt sér vel af svipnum
að dæma.
Morgunblaðið/RAX
Með bros á vör í Bláa Lóninu
KAFFIHÚSAFERÐIN reyndist held-
ur betur ferð til fjár hjá krökkunum í
7.G.S. í Lækjarskóla í Hafnarfirði í
gær, en krakkarnir fundu í ferðinni
umslag með 158 þúsund krónum í
peningum fyrir utan Hafnarborg í
miðbæ Hafnarfjarðar. Þeim tókst
með smávegis rannsóknarvinnu að
koma peningunum til rétts eiganda.
Krakkarnir voru að tínast út af
kaffihúsinu sem þau fóru á með
dönskukennaranum sínum þegar
þau rákust á umslag, segir Sunneva
Björk Grettisdóttir. Hún segir að vin-
kona sín, Linda Ósk Gunnarsdóttir,
hafi stigið ofan á umslagið, og þegar
þær áttuðu sig á því að það væri eitt-
hvað í því tóku þær það upp. Þá hafi
seðlabunkinn komið í ljós.
„Okkur brá, það voru allir að segja
að við ættum bara að taka pen-
ingana, en við vildum fara með þá til
kennarans,“ segir Sunneva. Um-
slagið var ekki með nafni eða heim-
ilisfangi, en þar sem það var með
merki KB banka ákvað kennarinn að
fara með hópnum í bankann til þess
að athuga hvort starfsfólkið þar
kannaðist við peningana.
Í bankanum kannaðist glöggur
starfsmaður við peningana, og
hringdi í eigandann og lét vita að
peningarnir hefðu fundist. Svo hélt
allur bekkurinn, með dönskukenn-
arann með í för, heim til eigandans,
sem reyndist vera ung kona, segir
Linda. Þar skiluðu nemendurnir
týnda seðlabúntinu, og varð eigand-
inn að vonum ánægður með heið-
arleika unga fólksins og gaf þeim
fundarlaun.
Fundu seðlabúnt
á förnum vegi
Morgunblaðið/ÞÖK
Linda Ósk Gunnarsdóttir (t.v.) og
Sunneva Björk Grettisdóttir komu
seðlabúntinu sem þær fundu til skila.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
fengi hreinan meirihluta borgarfull-
trúa ef kosið yrði til borgarstjórnar í
dag, samkvæmt skoðanakönnun sem
Félagsvísindastofnun Háskóla Ís-
lands gerði fyrir Morgunblaðið.
Sjálfstæðisflokkurinn mældist
með 48,8% fylgi, sé einungis reiknað
með þeim sem tóku afstöðu í könn-
uninni. Það myndi skila flokknum
átta borgarfulltrúum af fimmtán.
Samfylkingin mældist með 33%
fylgi, og fengi sex borgarfulltrúa.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
fengi 10,5% fylgi, og einn borgarfull-
trúa.
Framsóknarflokkurinn mældist
með 5,3% fylgi, sem dygði ekki til að
koma manni í borgarstjórn. Frjáls-
lyndi flokkurinn kæmi
heldur ekki manni að,
yrðu þetta niðurstöður
kosninga, en flokkurinn
mældist með 2,2% fylgi.
Fylgi Sjálfstæðisflokks,
Samfylkingar og Fram-
sóknarflokksins hefur
aukist frá því í sambæri-
legri könnun sem gerð var
í október 2005, en dregið
hefur úr fylgi við VG og
Frjálslynda flokkinn.
Sjálfstæðisflokkurinn
bætir við sig 2,9 prósentustigum frá
því í október, Samfylkingin 2,2 pró-
sentustigum og Framsóknarflokkur
2,4 prósentustigum. Fylgi VG lækk-
ar hins vegar um 4,3 prósentustig á
sama tíma, og fylgi Frjálslynda
flokksins um 1,7 prósentustig.
Samkvæmt niðurstöðum könnun-
arinnar munar litlu á því
að Sjálfstæðisflokkurinn
nái inn níunda manninum
á kostnað Samfylkingar,
en sjötti maður Samfylk-
ingarinnar stendur tæpt.
Einnig vantaði ekki mikið
til þess að VG næðu inn
sínum öðrum manni, né
heldur vantaði mikið til
þess að fyrsti maður á
lista framsóknarmanna
næði kjöri.
Um var að ræða síma-
könnun sem unnin var af Félagsvís-
indastofnun Háskóla Íslands fyrir
Morgunblaðið, dagana 31. janúar til
2. febrúar. Alls var hringt í 1.000
Reykvíkinga á aldrinum 18–80 ára,
og var svarhlutfallið 64,1%.
(
0
./
"##&
@ Hvorki Framsókn né Frjálslyndir ná manni í borgarstjórn
samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar HÍ
Sjálfstæðisflokkur | 4
Sjálfstæðisflokkur-
inn með meirihluta
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
á „Brúna“ í stórleik umferðarinn-
ar í ensku úrvalsdeildinni, en fyrir
leiki helgarinnar eru Englands-
meistararnir með 15 stiga forskot
á toppnum en Liverpool er í þriðja
sæti með tvo leiki til góða.
„Við búum okkur undir erfiðan
leik en við ætlum okkur að sigra.
Svo mikið er víst,“ segir Eiður
Smári. | Íþróttir
EIÐUR Smári Guðjohnsen, fyrir-
liði landsliðsins í knattspyrnu og
leikmaður Chelsea, segir í viðtali
við Morgunblaðið að með sigri á
Liverpool á morgun sé nánast orð-
ið öruggt að Englandsmeistaratit-
illinn verði áfram í höndum
Chelsea.
Eiður Smári og félagar fá Evr-
ópumeistara Liverpool í heimsókn
Titillinn nánast í höfn
ef við sigrum Liverpool
Eiður Smári um meistaraslaginn á Englandi
AP
SIGURÐUR A. Magnússon segir að það sé
ekkert sældarbrauð að komast á efri ár og
teljast „hetja fortíðarinnar“. Í grein í Les-
bók í dag segir hann frá kjörum sínum eftir
að hafa starfað sem rithöfundur í sextíu ár.
„Ráðstöfunartekjur ársins voru þannig kr.
863.510 eða 71.950 krónur á mánuði,“ segir
Sigurður þegar hann hefur talið upp
greiðslur úr lífeyrissjóði, Tryggingastofnun
ríkisins og önnur laun.
„Telja má kraftaverk að ellilífeyrisþegar
holt og bolt fái lifað mannsæmandi lífi með
þeirri glæpsamlegu skattheimtu sem þeir
verða að sæta, á sama tíma og hátekjuskatt-
ur hefur verið afnuminn,“ segir Sigurður og
bætir við: „Eins og gefur að skilja á ég bágt
með að sætta mig við þessa afarkosti á efstu
árum, þó ég sé að eðlisfari sparneytinn og
leyfi mér fátt í seinni tíð annað en bóka-
kaup.“
Tilefni greinar Sigurðar er að tveir rit-
höfundar söfnuðu undirskriftum undir
áskorun til menntamálanefndar Alþingis
um að Sigurði yrðu veitt heiðurslaun.
Áskorunin var hins vegar aldrei lögð fyrir
þingheim.
„Ekkert
sældarbrauð
að komast
á efri ár“
Sigurður A. Magnússon
Lesbók