Morgunblaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 31
SNORRAVERKEFNIÐ í Vestur-
heimi, Snorri West, fer fram í
sjötta sinn í sumar og rennur um-
sóknarfrestur út 18. mars næst-
komandi.
Verkefnið vestra er sambæri-
legt við Snorraverkefnið hér á
landi. Það byrjaði sumarið 2001 og
veitir ungu fólki frá 18 ára aldri
tækifæri til þess að dvelja í Mani-
toba í Kanada í sex vikur og kynn-
ast menningu og sögu Nýja Ís-
lands.
Fyrsta sumarið fóru tvær stúlk-
ur vestur, síðan fjórar og þá fimm
en 2004 og 2005 voru átta þátttak-
endur á hvoru ári. Það hefur verið
talinn heppilegur fjöldi.
Wanda Anderson, verkefnis-
stjóri vestra, segir að örlitlar
breytingar verði á verkefninu í
sumar. Meira verði lagt upp úr
ferðalögum um Nýja Ísland en áð-
ur og þá verði enskukennslu hætt
enda ekki talin þörf á henni. Hún
verði með þátttakendum í Winni-
peg fyrstu vikuna og síðan hafi
hópurinn bækistöð hjá sér í River-
ton þá næstu. Síðustu fjórar vik-
urnar verði krakkarnir síðan hjá
fjölskyldum í Nýja Íslandi.
Að þessu sinni stendur ferðin yf-
ir frá 30. júní til 12. ágúst. Gjaldið
er 2.200 kanadískir dollarar eða
um 120.000 krónur. Innifalið í þátt-
tökugjaldi er flug fram og til baka,
fyrst til Minneapolis og svo áfram
til Winnipeg, fullt fæði og húsnæði,
námskeið, allar ferðir innan Mani-
toba, og fleira. Nánari upplýsingar
er að fá hjá Ástu Sól Kristjánsdótt-
ur á skrifstofu Norræna félagsins
(www.snorri.is) og hjá Wöndu
Anderson (tander@mts.net).
Snorraverkefnið
vestra í sjötta sinn
Morgunblaðið/Ómar
Frá kynningu á Snorra West-verkefninu í Hinu húsinu. Frá vinstri
Linda Björk Ómarsdóttir, Ásthildur Gunnarsdóttir og Ásta Sól Krist-
jánsdóttir. Linda Björk og Ásthildur eru fyrrverandi þátttakendur.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 31
ÚR VESTURHEIMI
RÚMLEGA 20 ungmenni af íslensk-
um ættum í Norður-Ameríku sóttu
um að taka þátt í Snorraverkefninu
hér á landi í sumar og hafa 15 þeirra
verið valin. „Þetta var einstaklega
frambærilegur hópur og valið var
erfitt,“ segir Ásta Sól Kristjánsdóttir
verkefnisstjóri.
Snorraverkefnið er samstarfs-
verkefni Norræna félagsins og Þjóð-
ræknisfélags Íslendinga. Það hófst
sumarið 1999 og hafa 104 ungmenni
tekið þátt í því til þessa eða 15 á ári
nema einu sinni þegar einn forfall-
aðist á síðustu stundu.
Að þessu sinni sóttu fleiri strákar
um en stelpur og hefur það ekki
gerst áður. Ennfremur eru í fyrsta
sinn þátttakendur frá Utah, Georgíu
og Chicago.
Tilgangurinn með þessu verkefni
er fyrst og fremst að gefa ungmenn-
um af íslenskum ættum í Norður-
Ameríku tækifæri til þess að kynnast
uppruna sínum og hvetja þau til að
varðveita og rækta íslenskan menn-
ingar- og þjóðararf sinn. Ásta Sól
segir að alltaf sé erfitt að þurfa að
gera upp á milli hæfs fólks. Hún hafi
rætt við alla umsækjendur í síma áð-
ur en endanlegt val hafi farið fram en
því miður sé ekki hægt að taka á móti
öllum í einu.
Sex vikna dvöl
Hópurinn kemur til landsins
sunnudaginn 11. júní og heldur aftur
til síns heima 22. júlí. Dagskráin
verður með hefðbundnum hætti.
Fyrstu tvær vikurnar verða krakk-
arnir í Reykjavík þar sem þeir
stunda íslenskunám og sækja fyrir-
lestra um land og þjóð. Þessi dagskrá
er unnin í samvinnu við stofnun Sig-
urðar Nordals og hefur verið síðan
2001. Eftir dvölina í Reykjavík dreif-
ast þátttakendurnir um landsbyggð-
ina og dvelja hjá ættingjum og starfa
jafnvel á viðkomandi svæði. Reyndar
er útlit fyrir að margir verði á höf-
uðborgarsvæðinu að þessu sinni. Um
miðjan júlí safnast allir þátttakendur
saman aftur og fara í viku ævintýra-
ferð sem endar með útskrift í Hafn-
arfirði.
Þátttakendur í Snorraverkefninu í
sumar eru Layne Douglas Fingland
frá Lundar, Manitoba; Kristján Þór
Kornmayer frá Alpharetta í Georgíu;
Kristin Graholm frá Toronto; Mel-
issa Anderson frá Coquitlam í
Bresku Kólumbíu; Tarak Kjartanson
Oswald frá Winnipeg; Joseph Schol-
berg frá Chicago; Erica Graholm frá
Toronto; Lacey Williams frá Provo,
Utah; Daniel Gange frá Winnipeg;
Kristjan Sigfusson frá Winnipeg;
Olivia Ortega frá Vacaville í Kali-
forníu; Leanne Roed frá Winnipeg;
Megan Williams frá London Ontario;
Kristin Lilja Emilsson frá Urbana,
Illinois og Bryan Hermannsson frá
Redwood í Kaliforníu.
Morgunblaðið/Kristinn
Fimmtán ungmenni frá Kanada og Bandaríkjunum tóku þátt í Snorraverkefninu á Íslandi 2003.
Fleiri piltar í fyrsta sinn
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
FYRIR um þremur árum var ákveð-
ið að bjóða upp á sambærilegt en
styttra Snorranámskeið á Íslandi
fyrir eldra fólk, Snorri plús, og hafa
26 manns tekið þátt í því síðan 2003.
Á undanförnum misserum virðist
áhugi hafa aukist á Íslandi og öllu
því sem íslenskt er á meðal fólks af
íslenskum ættum í Norður-Ameríku
rétt eins og Íslendingar hafa í aukn-
um mæli sýnt áhuga á afkomendum
vesturfaranna og heimkynnum
þeirra vestra. Snorraverkefnin fyrir
ungmennin sýna meðal annars þenn-
an áhuga og á þjóðræknisþinginu í
Minneapolis 2002 var rætt um mögu-
leika á að koma á sambærilegum
verkefnum fyrir eldri en 30 ára.
Snorri plús verkefnið á Íslandi
spratt upp úr þessum umræðum. Um
er að ræða tveggja vikna dagskrá
sem er byggð upp á svipaðan hátt og
Snorraverkefnið fyrir ungmennin.
Námskeiðið er ætlað fyrir fólk af ís-
lenskum ættum vestra eða aðra
áhugasama. Þátttakendur fara á
fyrirlestra um land og þjóð, farið er
með þá á ýmsa sögustaði og þurfi
þeir á að halda eru þeir aðstoðaðir
við að komast í samband við ætt-
ingja.
Fyrsta námskeiðið fyrir eldri en
30 ára fór fram síðsumars 2003 með
átta þátttakendum. 2004 voru þátt-
takendur 10 og átta í fyrra.
Næsta námskeið verður 18.–31.
ágúst í sumar og frestur til að sækja
um þátttöku rennur út 1. apríl.
Morgunblaðið/Ásdís
Fyrsti Snorri plús hópurinn í heimsókn í forsætisráðuneytinu 2003.
Þriðja verkefnið fyrir
eldri og reyndari só
fa
r
Sófar
s e m s a m e i n a f e g u r ð o g þ æ g i n d i
kr. 87.000
svartur og ljósbrúnn
St. 215x100 cm
Leðursófi
kr. 148.000
Drappl. og vínr.
St. 250x300 cm
Leðurhornsófi