Morgunblaðið - 13.03.2006, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 13. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
LÖGGÆSLAN VERÐI EFLD
Forystumenn stjórnmálaflokka til
borgarstjórnarkosninga í vor vilja
allir sem einn efla löggæslu í hverf-
um borgarinnar, fjölga lögreglu-
mönnum og gera lögregluna sýni-
legri. Þá vilja þeir efla forvarnir
gegn fíkniefnum í grunnskólum
Reykjavíkur.
Lést af völdum hjartaáfalls
Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu
þjóðanna sagði í yfirlýsingu seint í
gærkvöldi að fyrstu niðurstöður
krufningar á líki Slobodans Milosev-
ic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu,
bentu til þess að hann hefði dáið af
völdum hjartaáfalls. Áður hafði lög-
fræðilegur ráðgjafi Milosevic sagt að
hann hefði skrifað bréf daginn áður
en hann dó og þar kæmi fram að
hann óttaðist að eitrað hefði verið
fyrir sig. Niðurstaða eiturefnarann-
sóknar liggur ekki enn fyrir.
Vegið að stöðugleikanum
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingar, gerði íslenska
auðmenn að umtalsefni í ávarpi sínu
á 90 ára afmælisfagnaði jafnaðar-
mannahreyfingarinnar á Íslandi í
gær. Sagði hún mikla auðsöfnun
fárra og erfiðari lífsbaráttu annarra
vega að stöðugleika í samfélaginu.
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrver-
andi formaður Alþýðuflokksins, hélt
einnig ávarp.
Yfir 50 féllu í Bagdad
Að minnsta kosti 52 féllu í árásum
í Bagdad í gær, að sögn innanrík-
isráðuneytis Íraks. Þar af féllu
minnst 36 manns og 104 særðust
þegar þrjár bílsprengjur sprungu á
útimörkuðum í hverfi sjíta í Bagdad.
Lögreglan sagði að fjórða sprengjan
hefði fundist og tekist hefði að af-
tengja hana.
Bachelet í forsetastólinn
Michelle Bachelet sór embættis-
eið forseta Chile á laugardag og varð
þar með fyrsta konan til að gegna
því embætti. Condoleezza Rice, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna, og
forsetar Bólivíu og Venesúela voru
viðstaddir athöfnina.
Hald lagt á stera
Tollstjórinn í Reykjavík hefur lagt
hald á umtalsvert magn af sterum.
Fannst efnið við húsleit í líkams-
ræktarstöð í miðbæ Reykjavíkur í
síðustu viku. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er um að ræða tugi
þúsunda steraskammta í töfluformi.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Minningar 25/27
Vesturland 12 Dagbók 30/32
Viðskipti 13 Víkverji 30
Erlent 14/15 Staður og stund 31
Menning 19 Leikhús 33
Daglegt líf 16/18 Bíó 34/37
Umræðan 22/24 Ljósvakar 38
Bréf 24 Veður 39
Forystugrein 20 Staksteinar 39
Nú bjóðum við til síðustu sætin til Kanarí 21.
mars í 2 vikur á frábærum kjörum. Bókaðu
strax og tryggðu þér sæti og fjórum dögum
fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Kanarí
21. mars
frá kr. 39.990
kr.39.990
Netverð á mann, m.v. hjón með tvö börn,
2-11 ára, í íbúð. Stökktu tilboð í 2 vikur
21. mars. Innifalið flug, skattar, gisting
og íslensk fararstjórn.
kr.49.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/íbúð/
stúdíó. Stökktu tilboð í 2 vikur 21. mars.
Innifalið flug, skattar, gisting og
íslensk fararstjórn.
Munið Mastercard-
ferðaávísunina
2 vikur - síðustu sætin
MIKILL erill var hjá lögreglunni
á Selfossi um helgina og þurftu
lögreglumenn m.a. að hafa afskipti
af ungmennum vegna skemmdar-
verka, og kynferðisafbrots á
skemmtun í bænum.
Á fimmta tímanum aðfaranótt
laugardags var lögregla kölluð á
skemmtistað á Selfossi vegna
ungrar konu sem tilkynnt hafði um
nauðgun. Hún var flutt á neyð-
armóttöku Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss til aðhlynningar og
rannsóknar. Skömmu síðar var
ungur maður handtekinn, grunað-
ur um aðild að málinu, en hann var
látinn laus eftir yfirheyrslur á
laugardag. Lögregla vildi ekki tjá
sig um hvort maðurinn hafi játað
aðild né hvort fleiri væru taldir
viðriðnir málið. Rannsókn heldur
áfram.
Rétt fyrir klukkan hálftvö í gær
valt jeppi á Eyrarbakkavegi
skammt austan við afleggjarann að
Hrauni. Svo virðist sem ökumaður
hafi misst stjórn á bílnum í hálku
með þeim afleiðingum að hann
hafnaði utan vegar. Hjón á áttræð-
isaldri voru flutt til aðhlynningar á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands en
þau hlutu aðeins minniháttar
meiðsl. Bifreiðina þurfti að draga
burtu með dráttarbíl.
Bensínsprengju hent
undir bíl á Selfossi
Í fyrrinótt voru unnin skemmd-
arverk á bifreið í bænum. Stungið
var á dekk bifreiðarinnar og bens-
ínsprengju hent undir hana. Að
sögn lögreglu voru tveir handtekn-
ir í tengslum við málið, piltur og
stúlka á tvítugsaldri, og telst það
upplýst.
Bifreiðin er stórskemmd vegna
bensínsprengjunnar en ekki talin
ónýt. Persónulegar ástæður er
taldar liggja að baki skemmdar-
verkunum.
Kynferðisbrot
til rannsóknar
NORSKA viðskiptablaðið Dagens
Næringsliv var um helgina með fjög-
urra síðna umfjöllun um íslenska
bankakerfið, með yfirskriftinni
„Røde lys på Island“, eða Rauð ljós á
Íslandi. Þar er m.a. rætt við Bjarna
Ármannsson, forstjóra Glitnis,
Hreiðar Má Sigurðsson, forstjóra
Kaupþings banka, Hannes Smára-
son, forstjóra FL Group, og Karl
Wernersson, eiganda Milestone, auk
Paul Rawkins, sérfræðings hjá Fitch
Ratings, sem segir öll viðvörunarljós
vera farin að blikka í íslensku fjár-
málakerfi. Í umfjölluninni er greint
frá erfiðri lánafyrirgreiðslu íslensku
bankanna á evrópskum skuldabréfa-
markaði. Einnig er ítarleg umfjöllun
um eignatengsl íslenskra fyrirtækja
og hvernig þau eru samofin bönk-
unum.
Viðvörunarljós
blikka á Íslandi
FEÐGARNIR Ómar Örn og Viðar
Þór höfðu ákveðna samvinnu og
verkaskiptingu um brettaiðkun á
Miklatúninu í Reykjavík í gær.
Brettakappinn ungi sá um að renna
sér fimlega niður brekkuna og þeg-
ar þangað kom fékk faðirinn það
hlutverk að ýta honum upp á ný.
Það var nefnilega alltof flókið að
eiga við brettafestingarnar og vit-
anlega mun þægilegra að láta ýta
sér upp en ganga sjálfur.
Morgunblaðið/Eggert
Upp og niður á brettinu
TVÆR atkvæðagreiðslur um sameiningu sveitar-
félaga fóru fram sl. laugardag og voru sameining-
arnar samþykktar í þeim báðum. Þannig samein-
ast annars vegar Húnavatnshreppur og
Áshreppur í Austur-Húnavatnssýslu og hins veg-
ar Broddaneshreppur og Hólmavíkurhreppur í
Strandasýslu.
Alls voru 320 á kjörskrá í Hólmavíkurhreppi og
greiddu 134 atkvæði eða 41,8%. Af þeim sögðu 108
já, eða 80,6% greiddra atkvæða, nei sögðu 22 eða
16,4% og auðir seðlar voru 4 eða 2,9%. Í Brodda-
neshreppi voru 47 á kjörskrá og greiddu 27 at-
kvæði eða 55,4%. Já sögðu 22 eða 81,4% og nei
sögðu 5 eða 18,5%.
Aðspurður segir Haraldur V. A. Jónsson, odd-
viti í Hólmavíkurhreppi, almenna sátt ríkja um
sameininguna sem skýri að einhverju leyti nokkuð
dræma kjörsókn. Segir hann þátttökuna svipaða
og í haust en þá var kosið um sameiningu Brodda-
neshrepps, Hólmavíkurhrepps, Kaldrananes-
hrepps og Árneshrepps, en sú tillaga var felld í öll-
um hreppum nema Broddaneshreppi.
„Við óskuðum sjálfir eftir þessari sameiningu
og erum í því ljósi auðvitað sáttir við niðurstöð-
una,“ segir Sigurður Jónsson, oddviti í Brodda-
neshreppi. Aðspurður segir hann engra stórra
breytinga að vænta í ljósi sameiningar enda hafi
þegar verið mikil samvinna milli sveitarfélaganna.
Alls voru 277 á kjörskrá í Húnavatnshreppi og
þar af kusu 153 eða um 55,2%. Já sögðu 124 eða
rétt rúm 80%, nei sögðu 24 eða 15,7% og auðir
seðlar voru 5 eða 3,3%. Í Áshreppi voru 43 á kjör-
skrá og greiddi 41 atkvæði eða 95,3%. Já sögðu 28
eða 68,3% og nei 13 eða tæp 32%. Að sögn Björns
Magnússonar, oddvita í Húnavatnshreppi, varð
hreppurinn til hinn 1. janúar sl. þegar sameining
Bólstaðarhlíðarhrepps, Svínavatnshrepps, Torfa-
lækjarhrepps og Sveinsstaðahrepps tók gildi og
bætist nú Áshreppur í þann hóp.
Aðspurður segist Jón B. Bjarnason, oddviti í
Áshreppi, hafa gert ráð fyrir fyrrgreindri niður-
stöðu þótt hann sjái sjálfur ekki kosti þessarar
sameiningar. „Að mínu mati er þessi sameining of
lítil til þess að hún skili einhverju og því finnst mér
þetta takmörkuð framsýni,“ segir Jón og segist
helst hafa viljað sjá heildarsameiningu í sýslunni
allri. Báðar sameiningarnar taka gildi að afloknum
sveitarstjórnarkosningum hinn 27. maí nk.
Sameiningar samþykktar í
Húnaþingi og á Ströndum
TVÆR breiðþotur á vegum er-
lendra flugfélaga þurftu að lenda
óvænt á Keflavíkurflugvelli í gær.
Þota frá flugfélaginu Emirates Air-
ways lenti vegna farþega sem
kenndi eymsla fyrir hjarta. Var hún
á leið til New York frá Dubai og var
maðurinn skilinn eftir. Á níunda
tímanum lenti þota af gerðinni
Boeing 747 frá flugfélagi Nýja-
Sjálands vegna vélarbilunar.
Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli
var sett í viðbragðsstöðu.
Breiðþotur lentu
óvænt í Keflavík