Morgunblaðið - 13.03.2006, Síða 11
haga sér við skákborðið til að vera
nokkuð viss um sigur. Maður átti að
stilla svo til að andstæðingurinn
tefldi á móti sól og svo ef allt um
þryti þá mátti sparka í lappirnar á
honum. En þetta eru ekki við-
urkenndar aðferðir lengur,“ sagði
Bragi að lokum brosandi.
Mikill áhugi almennings
Meðal þeirra sem fylgdust áhuga-
samir með því sem fram fór á efstu
borðunum var Guðmundur G. Þór-
arinsson, fyrrverandi forseti Skák-
sambands Íslands. Hann kvaðst
ennþá fylgjast spenntur með.
„Það er geysilega gaman að þessu
og það eru eiginlega að verða þátta-
skil núna varðandi það hvað það er
mikið af áhorfendum,“ sagði hann.
„Það hefur ekki verið mjög mikið af
áhorfendum á undanförnum mótum
en eftir þessa skákvakningu sem
orðið hefur með Hróknum, kennslu í
skólum og allri þessari auglýsingu
um að skák sé skemmtileg, þá hefur
áhugi greinilega vaknað og almenn-
ingur er hérna svo miklu meira en
verið hefur.“
Guðmundur keppti á sínum tíma í
heimsmeistarakeppni stúdenta og
hefur enn gaman af tafli í klúbbum.
Hann segir þó langt síðan hann
keppti í skák og kveðst ekki nýta sér
tæknina og tefla á netinu.
„Mér finnst miklu skemmtilegra
að hafa félagsskapinn og vil hafa
andstæðinginn á móti mér,“ sagði
hann.
Guðmundur sagði mikla spennu í
loftinu. „Hér eru skemmtilegar
skákir tefldar og margir keppendur.
Ég man ekki eftir svo mörgum er-
lendum meisturum á þessu móti áð-
ur og heldur ekki svona mörgum
konum,“ sagði hann en tók undir orð
annarra viðmælenda og sagði ís-
lensku keppendurna eiga undir högg
að sækja. „Maður er samt að vona að
þeir nái sér upp í síðustu umferð-
unum. Í svona Monrad kerfi er svo
vont að átta sig á hvernig þetta end-
ar, þetta getur allt breyst á enda-
sprettinum. Það skiptir svo miklu
máli hvernig andstæðing maður fær
í síðustu umferðinni og þegar það
eru svona margir keppendur en fáar
umferðir er líklegt að það geti orðið
nokkrir jafnir í efsta sæti.“
Guðmundur var ekki reiðubúinn
að spá fyrir um úrslit en nefndi þó
Mamedyarov meðal annarra. Hann
væri nefndur arftaki Kasparovs og
væri nú hæstur að stigum.
Blaðamaður spurði að lokum
hverju hann teldi að mót sem þetta
skilaði.
„Ég held að þetta mót skili mjög
auknum áhuga og auknum styrk og
stigum, sérstaklega fyrir ungu kyn-
slóðina. Svo sýnist mér augljóst að
þetta efli skákhreyfinguna mjög
mikið. Það er gaman að skipuleggja
svona mót þegar svo vel tekst til.
Það eru margir erlendir keppendur,
mikill áhugi meðal almennings og
það er komið eitthvað í gang sem
virkilega vekur athygli.“
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MARS 2006 11
FRÉTTIR
ÍSLENSKI og norski fáninn blöktu
hlið við hlið í byggðinni í Sandeid sl.
laugardag þegar Geir H. Haarde ut-
anríkisráðherra vitjaði þar norskra
ættingja sinna. Enginn í ættinni
nema Karin Östbö hafði heimsótt
hann í Reykjavík og var þetta því í
fyrsta sinn sem þeir heilsuðu upp á
þennan háttsetta stjórnmálamann
frá Íslandi.
„Þetta hefur verið skínandi dagur
og fullur af gleði,“ sagði íslenski ut-
anríkisráðherrann. „Þú ert alveg
eins og fleiri í ættinni,“ staðhæfði
einn þremenningurinn, Gertrud Sör-
nes frá Odda.
Þetta var hlýlegt stefnumót.
Systkinabarn föður Geirs, Marta
Helgevold, sagði frá hinum óvenju-
lega föður hans, Tomas Haarde.
Hann gekk á höndum neðan frá
Haarde-býlinu og að ánni og til
baka, sagði hún. „Viltu gera það líka
fyrir okkur?“ spurðu fjölmiðlamenn
þegar Geir og kona hans, Inga Jóna
Þórðardóttir, og ættingjarnir stóðu í
snjónum á bæjartóttum Haarde-
bæjarins og horfðu yfir Steinsland.
Ættingjarnir voru fljótir að benda
á að rútubílstjórinn, Björn Johan
Haarde frá Stumo, sem er rétt við
Haarde, væri sá ættingi sem væri
líkastur hinum íslenska frænda sín-
um. „Við litum bara hárið hans
svart, þá eru þeir alveg eins,“ sögðu
þeir þremenningarnir í spaugi.
Á Stughaug snæddi fjölskyldan
hefðbundinn norskan mat og lefsur
með kaffinu. Fólk hóf upp raust sína
í almennum söng þegar sveitarstjór-
inn Thordheim og utanríkisráðherr-
ann gerðust forsöngvarar í lagi Siss-
el Kyrkjebö, „Vestland, Vestland“.
Kyrkjebö er meðal uppáhalds-
söngvara Geirs.
„Eftir því sem árin líða verða ræt-
urnar og ættin mér sífellt mikilvæg-
ari. Ég gleymi ekki Sandeid eftir að
hafa séð byggðina á þessum fallega
laugardegi, skreytta með norskum
og íslenskum fánum,“ sagði Geir
Haarde utanríkisráðherra.
Í samtali við blaðamann Morg-
unblaðsins í gær sagðist utanríkis-
ráðherra mjög ánægður með heim-
sóknina.
Hafði mikil áhrif
„Hún hafði heilmikil áhrif á mig
og það var mjög sérstakt að koma að
leiði ömmu minnar sem ég hef ekki
haft tækifæri til áður,“ sagði Geir og
fannst vænt um hversu hlýlegar
móttökur Norðmannanna voru.
„Það á bæði við ráðamenn í Sandeid
og ekki síður þessa fjarskyldu ætt-
ingja mína og gaman að hitta þarna
fólk sem ég hef ekki hitt áður.“ Geir
kvaðst einnig sammála því að þeir
Björn Johan Haarde væru líkir enda
hefði sér orðið starsýnt á hann þegar
þeir hittust.
Eftir heimsóknina héldu þau hjón-
in á hótel sitt í Haugesund til að hvíl-
ast áður en haldið yrði til Danmerk-
ur í opinbera heimsókn sem þar
stendur í dag, mánudag, og á morg-
un.
Á dagskrá utanríkisráðherra í dag
er heimsókn til Margrétar drottn-
ingar og viðræður bæði við varn-
armálaráðherra og utanrík-
isráðherra Danmerkur.
Geir H. Haarde utanríkisráðherra vitj-
aði ættingja sinna í Sandeid í Noregi
Öll ættin
gladdist
Eftir Sigmund Hansen og
Jóhannes Tómasson
Ljósmynd/Alf-Robert Sommerbakk
Í Stughaug hélt Reidar Håvås, einn forvígismanna byggðarinnar, tölu um íslenska arfinn. Frá vinstri: Marta
Helgevold, Reidar Håvås, Gudrun Håvås, Inga Jóna Þórðardóttir, Geir H. Haarde og Johannes Helgevold.
Við leiði ömmu Geirs, Brita Helgevold. Frá vinstri frændinn Erik Østbø sem var leiðsögumaður, Inga Jóna Þórð-
ardóttir, Geir H. Haarde og Marta Helgevold.
Marta Helgevold, sem er systk-
inabarn föður Geirs Haarde, tók vel
á móti frænda sínum í Sandeid.
UM helgina voru tefldar tvær um-
ferðir á Reykjavíkurskákmótinu,
sem haldið er í Skákhöllinni, Faxa-
feni 12. Baráttan harðnar með hverri
umferð og þegar tvær umferðir eru
eftir, er armenski stórmeistarinn,
Garbriel Sargissian, einn í efsta sæti,
með 6 v. í sjö skákum. Í 2.–6. sæti
koma stórmeistararnir, Magnus
Carlsen (Noregi), Hamdouchi (Mar-
okkó), Erenburg (Ísrael), Mamedya-
rov (Azerbasjan) og Harikrishna
(Indlandi), með 5 ½ v. hver.
Hannes Hlífar Stefánsson stór-
meistari er efstur Íslendinga, með 5
v., en Henrik Danielsen stórmeistari
og Héðinn Steingrímsson, alþjóðleg-
ur meistari, hafa 4½ v.
Við skulum nú sjá skemmtilega
skák úr 6. umferð, þar sem Berg-
steinn Einarsson sigrar ungversku
skákkonuna Anitu Gara.
Hvítt: Bergsteinn Einarsson
Svart: Anita Gara
Hollensk vörn (breytt leikjaröð)
1.d4 e6 2.c4 b6 3.Rc3 Bb7 4.e3 f5
5.Rf3 Rf6 6.Bd3 Bb4 7.0–0 Bxc3
8.bxc3 0–0 9.Rd2 c5 10.f3Rc6
11.De2De7 12.Ba3 d6 13.Hae1 Hae8
14.Rb3 g6 15.e4 Rh5 16.e5!? –
(Einfaldara hefði verið að
leika16.exf5!?gxf5 17.De3 o.s.frv.)
16...dxe5 17.dxc5 Rf4 18.De3 Hd8
19.Bc2 Ba6 20.g3 Rh5 21.Dc1 b5
22.cxb5 Bxb5 23.Hf2 Hd7 24.Rd2
Hfd8 25.Bb3 Rf6 26.Rc4 e4?!
(Svartur hefði betur drepið ridd-
arann á c4.)
27.Rd6 Bd3 28.Dg5 Kg7 29.Bc1
Re5 30.fxe4 Rfg4
(Ekki gengur að leika30...Rxe4,
vegna 31.Hxe4!Bxe4 32.Rxe4 og
hvítur hefur tvo menn á móti hrók
andstæðingsins.)
31.exf5 –
Stöðumynd
31...Rxf232.Dh6+ Kh8 33.Hxe5
Rg4 34.Df4 Bxf5
(Ekki gengur að leika34...Rxe5,
vegna 35.Dxe5+ Dg7 36.f6 og hvítur
vinnur.)
35.He1 Hf8 36.c4? –
(Betra er 36.h3! e5 37.Dc4 Rf6
38.Bh6 og hvítur á mun betra tafl.)
36...Rf6?
(Eftir 36...e5!hefði svartur getað
varist, t.d. 37.Dg5 (37.Bb2Kg8
38.Dd2 Be6)Be6 o.s.frv.)
37.Bb2 Kg8 38.Be5 Rh5 39.Dd4
Bh3 40.c6 40...Hdd8 41.c5 a5 42.De3
Bg4 43.c7 Ha8 44.c8DHaxc8 45.Rxc8
Hxc8 46.Bd6 Dd7 47.Dg5 Bh3
48.Dh4 Bf5 49.g4 a4 50.Bc4 Rg7
51.gxf5 Rxf5 52.Hxe6! –
(Einfaldur og skemmtilegur vinn-
ingur.)
52.--Rxh4 53.Hxg6+
og svartur gafst upp: 53...Kh8
54.Be5+ Dg7 55.Bxg7+ mát.
Áttunda og næstsíðasta umferð
hefst í Faxafeni 12 kl. 17 í dag, en sú
síðasta á sama stað kl. 13 á morgun.
Sargissian efstur þegar
tvær umferðir eru eftir
Eftir Braga Kristjánsson
bragikr@hotmail.com