Morgunblaðið - 13.03.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MARS 2006 15
ERLENT
Sheer Driving Pleasure
BMW X5
www.bmw.is
AÐ MINNSTA kosti 52 féllu í
árásum í Bagdad í gær, flestir í
þremur bílsprengjutilræðum, að
sögn innanríkisráðuneytis
Íraks.
Að minnsta kosti 36 manns
féllu og 104 særðust þegar þrjár
bílsprengjur sprungu á úti-
mörkuðum í hverfi sjíta í Bag-
dad. Lögreglan sagði að fjórða
sprengjan hefði fundist og tek-
ist hefði að aftengja hana.
Saddam verði hengdur
Sextán manns til viðbótar
biðu bana og 25 særðust í öðr-
um sprengjutilræðum og skot-
árásum í Bagdad.
Réttarhöld hófust að nýju í
gær yfir Saddam Hussein, fyrr-
verandi forseta Íraks, og sjö
samstarfsmönnum hans. Aðal-
saksóknarinn í málinu lét þau
orð falla að Saddam yrði hengd-
ur án tafar yrði hann fundinn
sekur um glæpi gegn mannkyn-
inu.
„Verði dauðadómur kveðinn
upp yfir einhverjum sakborn-
inga í málinu, þá kveða lög
skýrt á um að taka verði þá af
lífi ekki seinna en 30 dögum eft-
ir áfrýjun,“ sagði saksóknarinn,
Jaafar Mussawi, við íraska rík-
issjónvarpið skömmu áður en
réttarhöldin hófust að nýju.
Yfir 50 féllu í
árásum í Bagdad
AP
Írösk kona huggar ungt barn
sitt sem særðist í sprengju-
tilræði í Bagdad í gær.
Sprengjutilræði
á útimörkuðum
MICHELLE Bachelet sór embættiseið
forseta Chile á laugardag og varð þar
með fyrsta konan til að gegna því emb-
ætti. Condoleezza Rice, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, og forsetar
Bólivíu og Venesúela voru viðstaddir at-
höfnina. Bachelet er 54 ára gömul,
vinstrisinnuð, einstæð móðir, læknir að
mennt og fyrrverandi varnarmálaráð-
herra. Hún var fangelsuð og pyntuð á
tímum einræðisstjórnar Augusto Pino-
chet.
Bachelet kveðst ætla að minnka bilið
milli ríkra og fátækra í landinu og rétta
hlut kvenna.
Bachelet veifar hér til stuðnings-
manna sinna eftir að hafa svarið emb-
ættiseiðinn.
Reuters
Fyrst kvenna í
embætti forseta Chile
NÆSTUM 20% jarðarbúa búa enn við það að
hafa ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni, að því
er fram kemur í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóð-
anna. Eru orsakirnar tengdar misheppnaðri við-
leitni ríkja heims til að bregðast við vandanum, að
því er fram kemur í skýrslunni, en enn fremur
skipta hér máli loftlagsbreytingar og aðrar um-
breytingar í umhverfinu.
Tuttugu og fjórar stofnanir SÞ komu að gerð
skýrslunnar, en hún er sögð umfangsmesta úttekt
sem gerð hefur verið á stöðu vatnsbirgða í heim-
inum. Kom fram í frétt BBC að niðurstöður
skýrslunnar yrðu kynntar á ráðstefnu, World
Water Forum, í Mexíkó í vikunni. Segir þar einn-
ig að í skýrslunni sé kallað eftir því, að stjórn-
málamenn beiti sér af auknum krafti, ella verði
aldrei hægt að ná því markmiði að helminga fyrir
árið 2015 þann fjölda jarðarbúa sem ekki hefur
aðgang að hreinu drykkjarvatni.
Fram kemur í skýrslunni að einn milljarður
jarðarbúa hafi ekki aðgang að hreinu drykkjar-
vatni, að 2,6 milljarðar manna búi ekki við við-
unandi hreinlætisaðstæður, að þéttbýlismyndun
hafi aukið mjög þrýsting á vatnsbirgðir jarðar og
að 30–40% drykkjarvatns „tapist“ vegna leka og
ólöglegra undanskota.
Næstum 20% jarðarbúa án
aðgangs að hreinu drykkjarvatni