Morgunblaðið - 13.03.2006, Blaðsíða 16
Daglegtlíf
mars
Reynslan af þessu fyrra árihefur verið alveg frábær.Bæði fjölskyldur hér ásvæðinu sem hafa notfært
sér þessa þjónustu sem og við starfs-
fólkið á Heilsugæslunni hér í Graf-
arvogi, erum mjög ánægð,“ segir
Inga María Vilhjálmsdóttir fé-
lagsráðgjafi um tilraunaverkefni á
vegum heilbrigðisráðuneytis sem
heitir meðferðarteymi barna. Verk-
efnið stendur yfir í tvö ár og fór af
stað í janúar árið 2005. „Hlutverk
þessa verkefnis er að veita börnum
og barnafjölskyldum í Grafarvogi og
Bryggjuhverfi geð- og sálfélagslega
þjónustu.“
Náin samvinna skiptir máli
„Við veitum fyrsta stigs þjónustu
og hún er í formi ráðgjafar, með-
ferðar og eftirfylgdar. Þetta snýst
um að grípa inní áður en vandinn er
orðinn mjög alvarlegur og leiðbeina
fólki með hvert það getur farið áfram
ef þess er þörf. Þegar fjölskylda leit-
ar til síns heimilislæknis hér á heilsu-
gæslustöðinni með einhvern fé-
lagslegan, geðrænan eða sálrænan
vanda hjá barni, þá metur læknirinn
hvort barnið og fjölskyldan þurfi að
koma í viðtöl til okkar þriggja sem
störfum í meðferðarteyminu. Auk
mín starfa í teyminu sálfræðingur og
iðjuþjálfi og við vinnum mjög náið
saman. Þannig fæst góð heildarsýn
og það auðveldar að meta vandann og
leysa hann.“
Margir hafa ekki efni
á einkaþjónustu úti í bæ
Inga María segir að nærþjónustan
sem felst í því að bjóða upp á þessa
þjónustu í íbúðahverfi, skipti miklu
máli fyrir þá sem þurfa á aðstoð að
halda í þessum málaflokki með börn
sín. „Þetta verður allt miklu persónu-
legra. Að geta komið á heilsugæsluna
í sínu íbúðahverfi og þurfa ekki að
borga fyrir það, er náttúrulega allt
annar kostur en að þurfa að sækja
sér þessa þjónustu á stofum úti í bæ
og borga heilmikið fyrir hvern tíma.
Fjölmargar fjölskyldur hafa ekki efni
á því. Og krakkarnir geta labbað
hingað beint úr skólanum án þess að
fá á sig einhvern stimpil. Við vinnum
þetta fjölskyldumiðað, við erum ekki
eingöngu með börnin í viðtölum held-
ur fá foreldrarnir líka uppeldis-
ráðgjöf.
En ef vandinn er djúpstæður þá
vísum við á aðrar stofnanir.“
Inga María segir að meðferð-
arteymið sinni líka konum á með-
göngu og fyrst eftir barnsburð,
vegna fæðingarþunglyndis og ann-
arra skyldra vandamála.
Styttir biðlista á BUGL
Meðferðarteymið er fyrst og
fremst fyrir börn á aldrinum 0–10 ára
og athyglisvert er að skoða mun á
kynjunum hjá þeim hópi sem þau
hafa fengið til meðferðar. „Kvíði og
sjálfstraustsvandi virðist miklu al-
gengari hjá stúlkum en drengjum.
Drengirnir eru frekar með úthverfari
vandamál eins og ofvirkni og uppeld-
istengdan vanda. Kvíðavandi stúlkna
er ekki nærri eins sýnilegur og fer oft
leynt og því er meðferðarteymið að
mæta þörf stúlkna sem áður hefur
verið að mestu ósvarað. Meðferð-
arteymið hefur líka sinnt þó nokkrum
skjólstæðingum, sem að öðrum kosti
hefðu lent á löngum biðlista eftir
þriðja stigs þjónustu, eins og til
dæmis hjá BUGL.“
Inga María segir fjölskyldur vera
mjög þakklátar fyrir þessa þjónustu
vegna tímabundins vanda sem getur
komið upp hjá hverjum sem er. „Von-
andi verður þessi góða reynsla okkar
til þess að svona þjónusta verði tekin
upp á sem flestum heilsugæslu-
stöðum, því þetta á að vera eðlilegur
hluti af þeirri þjónustu sem þar er í
boði.“
TILRAUNAVERKEFNI | Geð- og sálfélagsleg þjónusta fyrir börn á heilsugæslustöð hverfisins
Gripið inn í áður en
vandi verður alvarlegur
Reuters
Geðræn og
félagsleg
vandamál eru
misjafnlega
sýnileg.
Morgunblaðið/Ásdís
Inga María segir að nærþjónustan skipti miklu máli.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Sinadráttur er kröftugur, sársaukafullur sam-dráttur í vöðva eða vöðvum. Algengt er að hansverði vart í kálfum í vöku eða svefni. Hann getureinnig komið vegna mikillar vinnu, meiðsla eða
vegna einhæfra hreyfinga eða hreyfingarleysis. Vökvatap
eykur hættu á sinadrætti, sem m.a. er algengur hjá
íþróttafólki, sem reynir mikið og lengi á sig og tapar við
það vökva.
Daglegt líf leitaði orsaka og ráða gegn sinadrætti á Net-
inu og fann m.a. eftirfarandi fróðleik gegn vandamálinu.
Orsakir sinadráttar eru yfirleitt skortur á magnesíum
eða ójafnvægi á kalki og magnesíum í líkamanum og/eða
skortur á E-vítamíni. Blóðleysi, reykingar, hreyfing-
arleysi, vefjagigt, liðagigt og jafnvel kransæðastífla geta
einnig stuðlað að sinadrætti. Ofþornun, sólstingur, ofvirk-
ur skjaldkirtill eða æðahnútar geta einnig stuðlað að sina-
drætti. Lyfjanotkun gegn háum blóðþrýstingi og hjarta-
sjúkdómum, sem hafa þvagdrífandi áhrif, geta leitt til
ójafnvægis í söltum í líkamanum sem valdið geta vöðva-
krampa. Lélegt blóðstreymi getur sömuleiðis valdið
vöðvaóþægindum á borð við sinadrátt.
Mælt er með hreyfingu og teygju á vöðvum geri sina-
dráttur vart við sig auk þess sem gott er að kreista og
nudda viðkomandi vöðva með olíum. Sumum hugnast vel
að fara í heitt eða kalt bað. Til að forðast sinadrátt er rétt
að hafa í huga að forðast vökvatap og ofreynslu og gera
teygjuæfingar fyrir og eftir áreynslu.
Kalk og magnesíum eru mikilvægustu steinefnin fyrir
fólk, sem fær sinadrætti. Magnesíumríkar fæðutegundir á
borð við hnetur, möndlur, avókadó, þurrkaðar apríkósur,
maís, hveiti, rúgur, hveitikím, hveitiklíð, linsur, sojabaun-
ir, hafragrjón, sesamfræ, söl og grænt grænmeti eru góð-
ar gegn sinadrætti. Regluleg vatnsneysla hjálpar einnig
og inntaka kalíum ef viðkomandi er á þvagdrífandi lyfjum.
HEILSA | Hvers vegna fáum við sinadrátt?
Hreyfingarleysi og vökvatap
Morgunblaðið/ÞÖK
Mælt er með hreyfingu og teygju á vöðvum geri
sinadráttur vart við sig auk þess sem gott er að
kreista og nudda viðkomandi vöðva með olíum.
MARGIR foreldrar við-
urkenna ekki að barnið
þeirra sé of þungt en ný
rannsókn leiðir í ljós að þótt
þeir noti ekki þau orð, sjái
þeir sannleikann. Á heilsuvef
MSNBC
kemur
fram að
fyrri rann-
sóknir hafi
leitt í ljós
að það get-
ur haft góð
áhrif að
hjálpa for-
eldrum að
horfast í augu við offitu
barna sinna og breyta hegð-
unarmynstri því þá fær barn-
ið frekar meðferð.
Rannsóknin sem vitnað er
til í byrjun fór fram við
Northwestern-háskólann í
Chicago og m.a. kom í ljós að
það voru oftast mæður ungra
barna sem orðuðu hlutina
ekki eins og þeir voru. Þær
lýstu feitum börnum sínum
sem „um það bil í kjör-
þyngd“. 223 börn voru skoð-
uð, 20% þeirra voru of þung
og 19% áttu á hættu að þjást
af offitu. 60% barnanna voru
undir sex ára aldri en þátt-
takendur voru á aldrinum 2–
17 ára. Þegar foreldrarnir
voru beðnir að lýsa börnum
sínum með orðum kom áð-
urnefnt ósamræmi fram og
aðeins 36% lýstu börnum sín-
um rétt. En þegar þeir áttu
að benda á myndir þar sem
vaxtarlag var sýnt með teikn-
ingum var samræmið meira,
eða um 70%, sem valdi teikn-
ingu sem lýsti vaxtarlaginu
nokkuð réttilega.
Forsvarsmenn rannsókn-
arinnar ráðleggja foreldrum
að sýna gott fordæmi þegar
kemur að matarvenjum,
hreyfingu og notkun frítíma.
Einnig að leika við börnin í
hreyfileikjum en fækka þeim
tilvikum þar sem frítíminn er
notaður í kyrrsetu.
HEILSA
Erfitt fyrir
foreldra að
viðurkenna
ofþyngd
barna sinna