Morgunblaðið - 13.03.2006, Qupperneq 17
Er miki› álag
í vinnunni?
LGG+ er
fyrirbyggjandi vörn!
Oft koma fyrstu einkenni
streitu fram sem stöðug
þreyta og óþægindi í
maganum og ónæmis-
kerfið starfar af minni
krafti en áður. Rannsóknir
sýna að LGG+ vinnur gegn
þessum neikvæðu
áhrifum og dagleg neysla
þess tryggir fulla virkni.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MARS 2006 17
DAGLEGT LÍF Í MARS
Umbo›s- og sölua›ili
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
Yamaha píanó.
Yamaha píanó og flyglar
með og án SILENT búnaðar.
Veldu gæði – veldu Yamaha!
Samick píanó.
Mest seldu píanó á Íslandi!
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 357.000 kr.
Goodway píanó.
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 238.000 kr.
15 mán. Vaxtalausar greiðslur.
Estonia flyglar.
Handsmíðuð gæðahljóðfæri.
Steinway & Sons
Fyrir þá sem vilja aðeins það besta.
Til sýnis í verslun okkar.
H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð
Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350
Spurning: 31 árs kona spyr: Ég fæ oft hjartslátt-
arköst með skjálfta og svita og á jafnvel erfitt með
að anda.
Það er samt ekkert að hjá mér og ég fæ þessi
köst algjörlega upp úr þurru. Vakna jafnvel upp við
þetta. Er þetta eitthvað alvarlegt, er ég hjartveik?
Svar: Nei, þú ert líklega ekki hjartveik og þetta er
ekkert alvarlegt. Þetta eru dæmigerð einkenni
kvíðaröskunar eða felmtursröskunar sem þú lýsir
(panic disorder). Um það bil 1% fólks er með þenn-
an kvilla, sem byrjar oft á unglingsárum eða
skömmu síðar þegar það er að koma sér fyrir, ný-
gift, að útskrifast úr skóla, eignast sitt fyrsta barn
o.s.frv. Byrjar stundum eftir eitthvert álag. Lík-
lega eru einhverjir erfðaþættir sem skipta máli því
oft er fjölskyldusaga og einnig benda rannsóknir á
tvíburum til þess. Þessi köst sem þú lýsir eru
óþægileg enda eru oft ýmis önnur einkenni með
svo sem náladofi, munnþurrkur, yfirliðatilfinning,
ógleði, verkir fyrir brjósti, köfnunartilfinning,
hræðsla, jafnvel ótti við að deyja.
Þessi köst eru aldrei lífshættuleg og líða venju-
lega hjá á nokkrum mínútum. Þetta eru í rauninni
einkenni eins og þegar við verðum hrædd (öll
þekkjum við það) en mjög ýkt og ekki í neinu sam-
ræmi við það sem maður er að gera. Þetta er ekk-
ert alvarlegt í þeim skilningi að þetta sé merki um
einhvern alvarlegan líkamlegan sjúkdóm en hins-
vegar getur þetta haft veruleg áhrif á líf og hegðun
ef ekkert er að gert. Fólk fer jafnvel að forðast að-
stæður þar sem þetta hefur gerst áður, svo sem í
versluninni, í bílnum, í bíó og verður fælið, fer ekki
út, einangrar sig, hættir að keyra. Sumir leita á
náðir Bakkusar eða róandi lyfja. Kvíðaköstin eru
mjög óþægileg og óttinn við þau fer að hafa áhrif á
hegðun fólks.
Fyrsta skref að leita sér hjálpar
Ef þú hefur fengið nokkur köst (fleiri en 4) tal-
aðu þá við lækni eða sálfræðing sem þú treystir.
Venjulega þarf ekki flóknar eða yfirgripsmiklar
rannsóknir til að greina kvillann heldur nægir oft-
ast greinargóð lýsing. Allir sem eru með kvíð-
aröskun ættu að geta lifað eðlilegu lífi ef þeir fá við-
eigandi meðferð. Flestir eru sammála um það í dag
að einhver atferlismeðferð t.d. hugræn atferlis-
meðferð er líklega kjörmeðferð. Fyrsta skrefið er
að leita sér hjálpar. Bæði getur verið um ein-
staklingsmeðferð að ræða en námskeið eða hóp-
meðferð nýtur vaxandi vinsælda og gefur góða
raun. Sjálfhjálparbækur (t.d. Mind over Mood eftir
D. Greenberger & C. Padensky og Feeling Good
eftir D. Burns) hafa reynst vel erlendis, en því mið-
ur vitum við ekki um neina góða enn á íslensku. Í
upphafi meðferðarinnar er leitast við að útskýra
einkennin og bara það að fá skýringar og skilja
hvað er í gangi er oft mikill léttir. Síðan er reynt að
breyta hugsunum á jákvæðar brautir til að milda
eða koma í veg fyrir einkennin. Ef úrleysandi þætt-
ir finnast er meðferð beitt til að draga út styrk
þeirra. Kvíði og fælni geta fylgst að. Stundum er
atferlismeðferð beitt við fælni, t.d. enda námskeið
við flughræðslu oft á flugferð. Í sumum tilvikum er
lyfja- og viðtalsmeðferð beitt. Notuð eru kvíðalyf
eða svonefnd SSRI-lyf ( þunglyndislyf ) og virka
þau oft prýðilega.
Stundum eru líka notaðir svokallaðir beta-
blokkarar sem draga úr einkennum eins hjart-
slætti og hjartsláttaróreglu.
Í stuttu máli, þetta er nokkuð algengt, óþægilegt
en ekki hættulegt. Ýmiss konar meðferð stendur
konunni til boða sem hún ætti hiklaust að nýta sér.
HVERJU SVARA LÆKNARNIR? Björgvin Á. Bjarnason og Kristjana S. Kjartansdóttir
læknar svara fyrirspurnum lesanda
Kvíðaköst ekki lífshættuleg
Morgunblaðið/ÞÖK
Kvíðaköstum fylgja oft ýmis önnur einkenni svo sem náladofi, munnþurrkur, yfirliðstilfinning,
ógleði, verkir fyrir brjósti, köfnunartilfinning, hræðsla og jafnvel ótti við að deyja.
Hægt er að koma fyrirspurnum til læknanna
með því að hringja í síma 5691225.
ÞEIM sérfræðingum fer nú fjölg-
andi sem sannfærast um að insúlín
sé jafn mikilvægt heilastarfsem-
inni og það er líkamanum, sem
þarfnast insúlíns til að umbreyta
sykri í blóðrásinni í orku. Það fólk,
sem ekki framleiðir nógu mikið in-
súlín eða vinnur ekki rétt úr því,
þróar með sér sykursýki 1 eða 2
sem leitt getur til dæmis til lélegs
blóðstreymis, og nýrnabilana, að
því er fram kemur í Herald Trib-
une. Minna er vitað um hlutverk
insúlíns í mannsheilanum, en vitað
er að heilasellur deyja fái þær
ekki nóg insúlín. Og nú hafa sér-
fræðingar uppgötvað að ónóg in-
súlínframleiðsla í heila tengist
geðsjúkdómum sterkum böndum.
Til dæmis megi hæglega flokka
Alzheimer sem
sykursýki 3 og
geðklofa megi
sömuleiðis
flokka sem heila-
sykursýki.
Þótt rannsak-
endur séu enn
að reyna að átta
sig á eiginlegu
hlutverki insúlíns í geðsýki hafa
þeir náð umtalsverðum árangri.
Hingað til hafa sérfræðingar, sem
hafa verið að fást við Alzheimer,
beint sjónum að sterkjumyndun,
sem byggist upp í heila eftir því
sem sjúkdómurinn ágerist á meðan
kollegar þeirra hafa útskýrt geð-
hvarfasýki sem heilabilun þegar
heilavefir deyja. Fórnarlömb lifi
þá í sjáfsblekkingu og séu haldin
hugarórum, sem ekki standist.
Þessi vísindi gætu orðið að
aukaatriði ef hægt er að renna
styrkum stoðum undir nýjustu
kenningar insúlínsérfræðinga um
að rétt úrvinnsla insúlíns sé heila-
sellum mikil nauðsyn til að við-
halda krafti þeirra og vernda gegn
dauða.
„Við vitum ekki ennþá hvort
skortur á insúlíni framkallar geð-
sjúkdóma að öllu leyti, eigi aðeins
hlut að máli eða hvort insúlínvönt-
unin sé svar heilans við hugs-
anlegum skaða,“ segir dr. Jesse
Roth, sérfræðingur í New York,
sem rannsakað hefur áhrif insúlíns
á heila í um aldarfjórðung. Rann-
sóknir hafa sýnt að sykursjúkir
eru líklegri en aðrir til að fá Alz-
heimer og geðhvarfasjúklingar
eiga frekar á hættu að þróa með
sér sykursýki 2 en aðrir.
HEILSA
Getur insúlínskortur valdið geðsjúkdómi?
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn