Morgunblaðið - 13.03.2006, Side 28
28 MÁNUDAGUR 13. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Atvinnuauglýsingar
Óskum eftir að ráða
starfsmenn
á lager og í almenn störf í starfsstöð okk-
ar. Einnig sumarafleysingafólk.
Upplýsingar gefur
Þorsteinn í síma 897 4441 frá kl. 17-19
netfang: steini@isfugl.is.
Raðauglýsingar 569 1100
Kennsla
Study Medicine and Dentistry
in Hungary 2006
For further details contact:
Tel.:+ 36 209 430 492.
Fax:+ 36 52 439 579
E-mail: omer@hu.inter.net
internet: http://www.meddenpha.com
Tilboð/Útboð
Auglýsing um
deiliskipulag
í Hvalfjarðarstrandarhreppi
Borgarfjarðarsýslu
Samkvæmt ákvæðum 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir
athugasemdum við nýtt deiliskipulag fyrir
íbúðarbyggð í Hlíðarbæ, Hvalfjarðarstrandar-
hreppi. Skipulagstillagan gerir ráð fyrir 30 ein-
býlishúsalóðum ásamt bílageymslum auk 8
íbúðarhúsa og einu parhúsi sem þegar eru
byggð. Tillagan ásamt byggingar- og skipu-
lagsskilmálum liggur frammi á skrifstofu sveit-
arfélagsins frá 13. mars 2006 til 10. apríl 2006
á venjulegum skrifstofutíma.
Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila
fyrir 24. apríl 2006 og skulu þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemd innan til-
greinds frests teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags- og
byggingafulltrúi.
Tilkynningar
VELKOMIN TIL HAFNARFJARÐAR!
Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar um
Hafnarfjörð og margvíslega starfsemi á vegum sveitar-
félagsins hjá þjónustuveri bæjarins í síma
585 5500 og á heimasíðunni www.hafnarfjordur.is.
Auglýsing um tillögu að
deiliskipulagi Ásland 3. áfangi,
Hafnarfirði.
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar
samþykkti á fundi sínum þann 23.
september 2005 að auglýsa til kynningar
tillögu að deiliskipulagi Áslands 3. áfanga í
Hafnarfirði í samræmi við 26. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Skipulagssvæðið er alls um 29 ha að stærð.
Samtals er þar gert ráð fyrir 248 – 260
íbúðum; 85 íbúðum í einbýlishúsum, 47
íbúðum í par- og raðhúsum og 116 – 128
íbúðum í fjölbýli.
Deiliskipulagið verður til sýnis í þjónustu-
veri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, frá
13. mars – 10. apríl 2006. Nánari upplýs-
ingar eru veittar á umhverfis- og tækni-
sviði.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta, er gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við breytinguna og skal þeim skilað
skriflega til umhverfis- og tæknisviðs
Hafnarfjarðarbæjar eigi síðar en 24. apríl
2006. Þeir sem ekki gera athugasemd við
breytinguna teljast samþykkir henni.
Umhverfis- og tæknisvið
Hafnarfjarðar.
Breyting á deiliskipulagi
Suðuröxl Setbergshamars,
Hafnarfirði
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á
fundi sínum hinn 14. febrúar 2006, að auglýsa til kynn-
ingar breytingu á deiliskipulagi Suðuröxl Setbergsham-
ars í Hafnarfirði í samræmi við 26. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Breytingin felur í sér, að heimilt verður að reisa 20 ný
einbýlishús, í stað 18 einbýlishúsa og parhúss, en heildar-
fjöldi íbúða verði óbreyttur. Gert er ráð fyrir einni nýrri
lóð við Háaberg, en aðrar lóðir eru við Hólsberg.
Deiliskipulagið verður til sýnis í þjónustuveri Hafnar-
fjarðarbæjar, Strandgötu 6, frá 13. mars-10. apríl 2006.
Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og tækni-
sviði.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn
kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal
þeim skilað skriflega til umhverfis- og tæknisviðs Hafnar-
fjarðarbæjar, eigi síðar en 24. apríl 2006. Þeir sem ekki
gera athugasemd við breytinguna teljast samþykkir
henni.
Umhverfis- og tæknisvið Hafnarfjarðar.
VELKOMIN TIL HAFNARFJARÐAR!
Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar um
Hafnarfjörð og margvíslega starfsemi á vegum sveitar-
félagsins hjá þjónustuveri bæjarins í síma
585 5500 og á heimasíðunni www.hafnarfjordur.is
Félagslíf
MÍMIR 6006031319 II
HEKLA 6006031319 VI
GIMLI 6006031319 III
I.O.O.F. 19 1863138
SÍMANUM er heimilt að
innheimta útskriftargjöld af
útsendum símareikningum
samkvæmt úrskurði úrskurð-
arnefndar fjarskipta- og
póstmála. Póst- og fjar-
skiptastofnun (PFS) hafði áð-
ur komist að sömu niður-
stöðu eftir kvörtun frá
Reykjaprenti ehf. í október
2005 yfir meintri ólögmætri
gjaldtöku Símans. Reykja-
prent kærði ákvörðun PFS
sem úrskurðarnefndin hefur
nú staðfest. Af hálfu Reykja-
prents var þess krafist að úr-
skurðarnefndin felldi ákvörð-
un PFS alfarið úr gildi og
lýsti töku Símans á útskrift-
argjaldi óheimila. Til vara
var þess krafist að fjárhæð
útskriftargjaldsins yrði úr-
skurðuð órökstudd og of há.
Úrskurðarnefndin tók að svo
komnu máli ekki efnislega af-
stöðu til upphæðar gjaldsins,
segir í úrskurðarorðum. Af
hálfu Símans hf. var þess
krafist að kröfum kæranda
yrði hafnað og að nefndin
staðfesti ákvörðun PFS.
Málavextir eru þeir að í
október 2005, kvartaði
Reykjaprent yfir meintri
ólögmætri gjaldtöku Símans
hf. til PFS. Fram kom að á
reikningum Símans vegna
talsímaþjónustu hefði um
langt skeið verið tilgreint
sérstakt útskriftargjald, nú
að fjarhæð 190 kr. PFS tók
ákvörðun í málinu 14. desem-
ber 2005 og hafnaði kröfu
Reykjaprents um að útskrift-
argjald Símans yrði talið
brjóta í bága við fjarskipta-
lög. PFS skoðaði ekki fjár-
hæð útskriftargjalds Símans
sérstaklega í tengslum við
kvörtunina. Reykjaprent
kærði svo ákvörðun PFS með
kæru 6. janúar 2006.
Áhrif lagabreytingar
könnuð
Í úrskurði nefndarinnar er
rifjað upp að 6. september
2001 hafi nefndin kveðið upp
þann úrskurð (mál nr. 4/
2001) að Landssíma Íslands
væri heimilt að taka útskrift-
argjald af útsendum sím-
reikningum. Síðan hafi
nokkrar breytingar orðið á
lagaumhverfi í fjarskiptavið-
skiptum hér á landi. Niður-
staða í málinu valt að mati
nefndarinnar á því hvort sú
breyting hefði þau áhrif að
úrskurða bæri á annan hátt
en í fyrrgreindu máli.
Stóð ágreiningur málsaðila
að mati nefndarinnar aðal-
lega um túlkun á 1. mgr. 38.
gr. fjarskiptalaga þar sem
segir: „Áskrifendur talsíma-
þjónustu eiga rétt á að fá
reikninga fyrir fjarskipta-
notkun sína sundurliðaða eft-
ir þjónustu og skulu áskrif-
endur alþjónustu eiga rétt á
slíkum reikningum án þess
að greiðsla komi fyrir.“
Skilningur Reykjaprents
er að þar sé ætlunin að veita
neytendum rétt á að fá reikn-
inga í hendur án þess að
greiða fyrir það sérstaklega
en skilningur Símans hf. og
PFS er að þar sé aðeins átt
við að sundurliðun reikning-
anna sé áskrifendum alþjón-
ustu að kostnaðarlausu.
Nokkur lögskýr-
ingarsjónarmið
Svo virðist sem málfræði-
lega geti báðir skýringar-
kostirnir gengið en nokkur
lögskýringarsjónarmið eiga
við málinu, að mati nefndar-
innar. Í niðurstöðu hennar
kemur fram að hún telji ekki
efni til þess að álykta að
breytingin sem orðið hefur á
fjarskiptalögum réttlæti það
að banna Símanum að inn-
heimta kostnað við útsend-
ingu reikninga. Aðalkröfu
kæranda, að felld sé úr gildi
ákvörðun PFS og svokallað
útskriftargjald gert óheimilt,
er því hafnað.
Vegna varakröfu kæranda
skal áréttað það hlutverk
PFS að hafa eftirlit með
þessu gjaldi sem öðrum á
sviði fjarskipta en nefndin
hefur hvorki nægileg gögn né
forsendur til þess að taka
efnislega afstöðu til fjárhæð-
ar þeirrar sem um er að
ræða.
Úrskurðarnefnd fjar-
skipta- og póstmála skipa
Ólafur Garðarsson hrl. for-
maður og meðnefndarmenn-
irnir Heimir Haraldsson end-
urskoðandi og Guðjón
Kárason verkfræðingur.
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og
póstmála staðfesti ákvörðun PFS
Símanum heim-
ilt að innheimta
útskriftargjald
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur
dæmt karlmann á þrítugsaldri til
tveggja mánaða fangelsis, skilorðs-
bundið til þriggja ára, fyrir stórfellda
líkamsárás sem átti sér stað 2. apríl
2005. Ákærða var jafnframt gert að
greiða fórnarlambi sínu 150 þúsund
krónur í bætur og 538 þúsund krónur í
sakarkostnað, þar með talin 300 þúsund
króna málsvarnarlaun skipaðs verjanda
síns og 175 þúsund króna þóknun skip-
aðs réttargæslumanns fórnarlambsins.
Ákærða var gefið að sök að hafa sleg-
ið karlmann hnefahögg í andlitið þann-
ig að hann féll aftur fyrir sig og skall
með höfuðið í götuna með þeim afleið-
ingum að hann hlaut skurð á hnakka,
nefbrot, brot í höfuðkúpubotni, heila-
mar beggja vegna í fremsta hluta heila,
heilablæðingu, glóðarauga á vinstra
auga og bólgur yfir vinstra kinnbeini.
Í dómi héraðsdóms kemur fram að
verknaður ákærða, einn og sér, teljist
ekki sérstaklega hættuleg líkamsárás
en vegna álits sérfræðings um alvar-
leika höfuðáverka fórnarlambsins,
einkum heilamarsins, var fallist á að
háttsemi ákærða yrði heimfærð í
ákæru undir stórfellda líkamsárás.
Hins vegar voru afleiðingar árásarinn-
ar aðeins taldar ákærða til sakar vegna
gáleysis.
Fórnarlambið krafðist einnar millj-
ónar í bætur en þar sem það þótti sann-
að að hann hafi átt nokkra sök á atburð-
arrásinni, þóttu 150 þúsund krónur
hæfilegar.
Jónas Jóhannsson héraðsdómari
kvaddi upp dóminn. Sigríður Elsa
Kjartansdóttir, fulltrúi ríkissaksókn-
ara, flutti málið en verjandi ákærða var
Örn Clausen hrl.
Hlaut mar á heila
eftir líkamsárás
AÐALFUNDUR Landssambands bakarameistara,
sem haldinn var 4. mars sl., mótmælir harðlega
þeirri miklu hækkun sem orðið hefur á verði á raf-
orku til bakaría frá því ný orkulög tóku gildi.
„Ný raforkulög tóku gildi í byrjun árs 2005. Við
það breyttust taxtar sem orkufyrirtæki á öllu land-
inu innheimta eftir. Stærstur hluti raforkunotkunar
í bakaríum fer fram á þeim tíma sólarhrings þegar
almenn orkunotkun er í lágmarki. Bakarí hafa hing-
að til notið betri kjara af þeim sökum gegn því að
hægt væri að rjúfa rafmagn til þeirra á öðrum tím-
um sólarhringsins. Við breytingar á orkulögum var
þeim samningum rift með einu pennastriki og við
það hækkaði rafmagnsverð til bakaría um allt að
50%. Þessar hækkanir hafa smám saman verið að
koma í ljós frá því nýju orkulögin tóku gildi og
enda óhjákvæmilega í hærra vöruverði.
Bakarameistarar telja þessa hækkun ekki vera í
samræmi við vilja stjórnvalda til að lækka verð á
matvælum og hvetja orkusala til að koma til móts
við óskir bakara um að leita leiða til að lækka orku-
verð.“
Bakarar mótmæla
háu orkuverði
F-LISTINN, listi framfarasinnaðra kjósenda í
Garðinum, hélt fund 28. febrúar sl., þar sem
framboðslisti vegna sveitarstjórnarkosning-
anna 27. maí nk. var ákveðinn.
Einnig kom fram að Sigurður Jónsson verður
bæjarstjóraefni F-listans.
Listann skipa eftirtaldir:
1. Ingimundur Þ. Guðnason tæknifræðingur
2. Einar Jón Pálsson tæknifræðingur
3. Ágústa Ásgeirsdóttir þjónustufulltrúi
4. Gísli Heiðarsson framkvæmdastjóri
5. Gísli Kjartansson byggingaiðnfræðingur
6. Einar Tryggvason vinnuvélastjórnandi
7. Skúli Þórarinsson umdæmisstjóri
8. Hulda Matthíasdóttir fiskverkandi
9. Helga Sif Jónsdóttir listamaður
10. Knútur Rúnar Jónsson nemi
11. Brynjar Þór Magnússon nemi
12. Ásta Arnmundsdóttir kennari
13. Hannes Tryggvason rafvirki
14. Guðrún S. Alfreðsdóttir stuðningsfulltrúi
F-listinn í
Garðinum