Morgunblaðið - 13.03.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MARS 2006 31
DAGBÓK
SÉRBÝLI Í LAUGARNESI ÓSKAST
Erum að leita eftir góðu sérbýli, einbýlishúsi, raðhúsi eða
parhúsi fyrir traustan kaupanda í Laugarneshverfi.
Nánari upplýsingar gefur Brynjólfur Jónsson.
SÉRBÝLI ÓSKAST Í GARÐABÆ
Erum að leita eftir vönduðu og vel staðsettu sérbýli á góðum
stað í Garðabæ fyrir fjársterkan kaupanda.
Nánari upplýsingar gefur Brynjólfur Jónsson.
Íþróttafræðasetur Kennaraháskóla Íslands áLaugarvatni mun í samstarfi við Háskóla Ís-lands bjóða upp á nýtt meistaranám ííþrótta- og heilsufræði næsta haust. Þrjár
mismunandi námsleiðir eru í boði þar sem tekið er
mið af stærð rannsóknar- eða lokaverkefna: rann-
sóknartengt meistaranám (M.S) þar sem rann-
sóknarverkefni er ýmist 45 eða 30 einingar, og
starfstengt meistaranám (M.Ed.) þar sem loka-
verkefni er 10–15 einingar.
„Meistaranám af þessu tagi hefur ekki verið í
boði við íslenska háskóla til þessa og bæði mjög
mikilvægur áfangi og mikill fengur fyrir starfs-
stéttir á vettvangi íþrótta og heilbrigðis,“ segir dr.
Erlingur Jóhannsson, forstöðumaður Íþrótta-
fræðasetursins.
Fræðileg áhersluatriði námsins eru þrenn: Far-
aldursfræði hreyfingar og þjálfunarlífeðlisfræði,
íþróttasjúkraþjálfun, og næringar- og lýðheils-
unæringarfærði: „Áherslurnar í náminu eru byggð-
ar á þeirri reynslu sem fengist hefur við rannsóknir
á heilsufari nútímamannsins og lífstílssjúkdómum,
sem margir eiga rætur að rekja til síaukins hreyf-
ingarleysis og óhollara mataræðis. Í náminu er
fjallað ítarlega um áhrif þjálfunar og hreyfingar til
bættrar heilsu fólks, og áhersla einnig lögð á nær-
ingarfræði. Loks er lögð áhersla á íþrótta-
sjúkraþjálfun, ekki hvað síst með tilliti til end-
urhæfingar og breytts lífsstíls,“ segir Erlingur.
„Kennsla er í höndum íslenskra fræðimanna sem
allir hafa áralanga reynslu af rannsóknum og birt
hafa fjölda vísindagreina á sínu sviði. Þess er gætt
að hafa námsfyrirkomulagið sveigjanlegt svo fólki
gefist kostur á að stunda námið óháð því hvar það
er búsett á landinu. Þannig verður boðið upp á
kennslu bæði í staðbundnum lotum og einnig með
fjarnámi.“
Erlingur bætir við að nemendum gefist kostur á
að taka hluta af námi sínu erlendis, en samstarfs-
samningar hafa verið gerðir við átta háskóla í jafn-
mörgum löndum.
Þær forkröfur eru settar á námsbrautinni að um-
sækjendur hafi grunn-háskólagráðu í íþróttafræð-
um, sjúkraþjálfun, líffræði eða skyldum greinum.
Íþróttafræði hefur verið kennd á Laugarvatni
frá árinu 1941 og þar boðið upp á fjölbreytt íþrótta-
nám: „Á hverju ári hefja nám um 40–45 nemendur
og í heildina um 125 í námi að staðaldri,“ segir Er-
lingur. „Aðstaða til háskólanáms að Laugarvatni er
til fyrirmyndar; mjög góð aðstaða til verklegrar
kennslu í íþróttum og gott og tæknivætt húsnæði
fyrir starfsmenn og nemendur.“
Umsóknarfrestur fyrir hið nýja mastersnám í
íþrótta- og heilsufræði er til 1. apríl. Umsókn og
nánari upplýsingar má finna á vef Kennaraháskóla
Íslands: www.khi.is.
Menntun | Ný námsleið í boði hjá Íþróttafræðasetri KHÍ að Laugarvatni
Meistaranám í íþrótta- og heilsufræði
Dr. Erlingur Jóhanns-
son fæddist í Reykjavík
1961. Hann lauk dokt-
orsgráðu í íþróttalífeðl-
isfræði frá Norska
Íþróttaháskólanum
1995 og starfaði í rúm
tvö ár sem vís-
indamaður við lækna-
deild Óslóarháskóla.
Erlingur var settur
skólastjóri Íþrótta-
kennaraskóla Íslands 1997 og forstöðumaður
íþróttafræðaseturs og dósent við Kennarahá-
skóla Íslands frá 1998. Erlingur hefur verið
leiðandi í rannsóknum á heilsufari, hreyfingu,
líkamsástandi og lífsstíl íslenskra barna og
unglinga á undanförnum árum. Maki Erlings er
Lára Hreinsdóttir grunnskólakennari og eiga
þau þrjú börn.
70 ÁRA afmæli. Í dag, 13. mars, ersjötugur Knut Sletteröd. Mót-
taka fyrir vini 17. marz klukkan 18 í
Vesturtúni 55b.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Suðurlandsdobl.
Norður
♠ÁDG6
♥ÁG74 A/NS
♦52
♣762
Vestur Austur
♠K7 ♠1098532
♥9653 ♥2
♦G87 ♦ÁKD3
♣ÁK103 ♣DG
Suður
♠4
♥KD108
♦10964
♣9854
Þegar horft er til allra átta er ekki
óeðlilegt að sagnir endi í fjórum spöð-
um í austur. Og sú varð niðurstaðan á
flestum borðum þegar spilið kom upp
síðasta þriðjudagskvöld í að-
alsveitakeppni Bridsfélags Reykjavík-
ur. Spaðinn liggur illa, svo geimið fór
1-2 niður – og lítið meira um það að
segja.
Ómar Olgeirsson fór yfir spilin dag-
inn eftir og rak þá augun í skrýtna tölu
– 760 í NS fyrir eitt grand redoblað! Við
nánari skoðun kom í ljós að Gunnlaugur
Karlsson í sveit Sölufélags garðyrkju-
manna var sagnhafi í þessum furðulega
samningi og Ómar leitaði skýringa hjá
Gunnlaugi.
Sagnir gengu víst þannig:
Vestur Norður Austur Suður
– – 1 spaði Dobl !
Redobl Pass Pass 1 grand
Dobl Pass Pass Redobl
Pass Pass Pass
Gunnlaugur var í suður og segir svo
frá:
„Þegar austur opnaði á spaða ákvað
ég að beita vopni sem áður hafði reynst
mér vel – hinu svokallaða Suðurlands-
dobli. Því var fyrst beitt á Suðurlands-
móti fyrir nokkrum árum, en þá doblaði
ég opnun með engan punkt en góða
skiptingu og uppskar stóra sveiflu. Hér
redoblaði vestur og ég flúði í eitt grand
með það í huga að SOS-redobla síðar til
að láta makker velja lit.
Allt gekk þetta eftir áætlun, en
makker var einfaldlega alltof ánægður
með spilin sín til að taka út úr redoblinu
í tvö hjörtu (sem vinnast) og sagði pass.
Mér leist ekki á blikuna, en fékk
draumaútspil Íslandssögunnar – spaða-
kóng – og þar með var málið dautt. Sjö
slagir og 760.“
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Kæra ríkisstjórn
og aðrir landsmenn
ÉG HEF verið að fylgjast með
fréttum undanfarnar vikur og mér
sýnist allt vera að stefna í að álver
verði reist á Norðurlandi. Ef það
verður gert mun eflaust þurfa að
virkja einhverja stórbrotna jökulá
landsins. Er einhver ástæða fyrir
því að þið viljið breyta Íslandi í ríki
sem keppir við þróunarlönd í stað
iðnvæddra ríkja þegar kemur að
framleiðslu innanlands og útflutn-
ingi? Finnst ykkur virkilega sem
náttúra landsins sé einskis virði?
Ég er 16 ára gömul og mér
blöskrar framferði ykkar. Þið eruð
að ræna mig þjóðararfinum fyrir
skjótfenginn gróða. Ég mun aldrei
geta farið með mína afkomendur til
að sjá einn fallegasta stað á jarðríki,
Kárahnjúka, ef fram gengur sem
horfir. Ég mun aldrei getað farið úr
landi og sagt stolt: „Ég er Íslend-
ingur“, því það virðast allir sjá
hversu rangt það er að eyðileggja
Ísland.
Vinsamlegast segið mér svo ekki
að annað sé ekki hægt að gera til að
byggja upp atvinnu á landsbyggð-
inni, en að virkja og byggja álver.
Að við munum ekki fara fram úr
mengunarkvóta okkar samkvæmt
Kyoto-bókuninni, af því að hún gild-
ir einungis til ársins 2012. Að þessar
framkvæmdir styrki efnahaginn til
langframa og að ég viti hreinlega
ekki hvað ég er að tala um. Því að
með stóriðjuframkvæmdum ykkar
síðustu ár og afleiðingum þeirra haf-
ið þið sent úr landi flest öll fyrirtæki
sem byggja á þekkingu og menntun
Íslendinga. Þannig hafið þið eytt
álíka mörgum og mun fjölbreyttari
störfum en þið skapið. Aðflutt
vinnuafl streymir inn í landið, alls
ekki slæmt í sjálfu sér, nema hvað
þið sögðuð að þetta myndi skapa
störf fyrir fólkið í landinu. Hvað er
að því að við eflum þekkingariðnað,
ferðaþjónustu og stefnum á að vera
fremst í flokki hvað varðar mennta-
mál?
Gerist ferðamenn á Íslandi í viku
og segið mér svo að náttúran sé
einskis virði, en hvað sem þið gerið
þá er eitt víst. Þið fáið ekki mitt at-
kvæði í næstu alþingiskosningum.
Agnes Eva Sandholt Sigurðardóttir,
fyrsta árs nemi við MH.
Kanínuplágan í
kirkjugarðinum
ÉG VIL taka heilshugar undir með
konunni sem skrifaði í Velvakanda
miðvikudaginn 8. mars þar sem hún
kvartaði undan kanínum í Fossvogs-
kirkjugarði. Ég tek heilshugar undir
með henni og skora á kirkjugarðs-
yfirvöld að stöðva þessa hörmung,
og það strax. Ég hef sjálf orðið fyrir
barðinu á þessum ófögnuði. Ég varð
mjög sorgbitin þegar ég kom í
kirkjugarðinn einn daginn og sá
hvernig kanínurnar voru búnar að
tæta allt á leiði móður minnar. Ég
hafði gróðursett blóm þarna og þær
voru búnar að eyðileggja blómabeð-
ið og voru hlaupandi þarna um allt.
Þetta er hræðileg plága. Ég er á
báðum áttum með það hvort það
þýði nokkuð að setja niður blóm í
vor. En það er ljóst að það verður að
bregðast hart við þessu. Maður
borgar kirkjugarðsgjöld og hlýtur
að geta gert þá kröfu að leiði ástvina
fái að vera í friði. Það verður taf-
arlaust að gera eitthvað í málunum
fyrir vorið svo að fólk geti sett niður
blóm í garðinn.
Jóhanna.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. cxd5
cxd5 5. Rf3 Rc6 6. Bg5 e6 7. e3 Be7
8. Bd3 h6 9. Bh4 0–0 10. 0–0 Bd7
11. De2 Hc8 12. Hac1 a6 13. Bg3
Rh5 14. e4 Rxg3 15. fxg3 dxe4 16.
Bxe4 f5 17. Bxc6 Hxc6 18. Hfe1 Bf6
19. Re5 Bxe5 20. dxe5 De7 21.
Hcd1 Hcc8 22. Hd6 Hfd8 23. g4 g6
24. gxf5 gxf5
Staðan kom upp á Norðurlanda-
mótinu í skólaskák sem lauk nýver-
ið í Espoo í Finnlandi. Svanberg
Pálsson (1.765) hafði hvítt í stöð-
unni gegn Jakob Aperia (1.688).
Hvítur freistaðist til að leika 25.
Rd5 enda lítur sá leikur vel út en
eins og hið fornkveðna segir er ekki
allt gull sem glóir. 25. … exd5 26.
Hg6+ Kh7 hefði svarti kóngurinn
vikið sér á f-línuna hefði hvítur leik-
ið De2-h5 og þá ræður svartur eng-
an veginn við hvítu sóknina. 27.
Dh5 Df8? Svartur gat leikið 27. …
Dc5+! 28. Kh1 Dc1! og þar sem
drottningin er friðhelg, hótar máti
og valdar h6-reitinn veldur hún því
að svartur er með manni minna án
þess að hafa nægar bætur fyrir. Í
stað þessa gafst svartur upp eftir
28. Hf6 en lokastaðan er jafntefli
þar sem eftir 28. … Dc5+ 29. Kh1
De3! endar taflið með þráskák eftir
30. Hf7+ Kh8 31. Hh7+! Kxh7 32.
Df7+. Svona er skákin kúnstug og
skákáhugamenn geta kynnst því
enn frekar með því að fylgjast með
8. umferð Reykjavíkurmótsins sem
hefst kl. 17 í dag í skákmiðstöðinni í
Faxafeni 12.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
Fréttir
í tölvupósti