Morgunblaðið - 14.03.2006, Síða 28

Morgunblaðið - 14.03.2006, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Þ ar er ok sá staðr er Glitnir heitir ok eru veggir hans ok stoðir allar ok stólpar af rauðu gulli, en þak hans af silfri.“ Manni verður það stundum á að verða þvers án þess að ástæða sé til – gefa sér niðurstöður fyrirfram af fyrri reynslu – niðurstöður sem engin rök reynast svo fyrir. Þannig var það, þegar búið var að rífa nið- ur Íslandsbankamerkið af bygg- ingum bankans úti um alla borg, og spurðist að bankinn hygðist breyta um nafn að það fyrsta sem mér datt í hug var að nú væri einhver fjárans grúpp að fæðast – eitthvert dæmigert íslenskt minnimátt- arfyrirbæri, sem þyrði ekki að standa stolt með sínu nafni. Ég get því ekki annað en dáðst að hug- rekki Íslandsbankafólks fyrir að þora að láta fyrirtækið bera fallegt íslenskt nafn sem á sér rætur í nor- rænni goðafræði og langa sögu. Glitnir var bústaður Forseta, framan við Ásgarð, en Forseti miðlaði málum þeirra er deildu. Engir komu ósáttir frá heimsókn sinni í Glitni og hjá Forseta réð réttsýni í allra garð. Lýsingin á Glitni hér að ofan og lesa má í Gylfaginningu ætti að hæfa fyr- irtæki sem víxlar með gull og silfur í formi peninga, og vissulega verð- ur það freistandi að kalla banka- stjórann sem vildi ekki láta kalla sig bankastjóra, Bjarna Ármanns- son, Forseta hér eftir. Nafngiftinni Glitni fylgir reisn sem er til fyrirmyndar, en þá reisn vantar sorglega í nafngjöfum ís- lenskra stórfyrirtækja í dag. Af einhverjum óskiljanlegum heim- óttarskap er komið í tísku að taka upp alþjóðleg nöfn – Icelandair, til dæmis – er orð sem maður nennir varla að taka sér í munn, það er svo hallærislegt, þegar maður getur sagt Flugleiðir. Rök Bjarna Ár- mannssonar fyrir nafnbreyting- unni sem hann setti fram í Kast- ljósi á sunnudagskvöld, snerust um það að auðvelt yrði fyrir útlenda viðskiptavini að bera nafnið fram, og eru vissulega réttmæt. Auðveld- asta leiðin hefði eflaust verið að taka upp útlent nafn og láta okkur Íslendingsræflana klæmast á því eins og Flugleiðir gera, til þess að misbjóða ekki aumingja útlending- unum. Þeim mun meiri ástæða er til að hrósa Glitni fyrir nafnið. Ég er ekki frá því að það ætti að breyta hlutverki mannanafna- nefndar. Í stað þess að vera úr- skurðarvald um hvað fólk „má“ heita, ætti nefndin að vera til ráð- gjafar um val á nöfnum – ekki bara á fólk, heldur líka – og kannski ekki síður, á fyrirtæki. Mér sýnist ekki veita af í þeirri grein. Enn bendi ég þó á nafn Betrunarhúss- ins sem eins besta nafns á íslensku fyrirtæki. Betrunarhúsið er lík- amsræktarstöð – nafnið svo full- komlega við hæfi, og með sterk tengsl við sögu og hefð. Hvaða snillingur átti hugmyndina að þessari nafngift? Nöfn fólks hafa svo miklu til- finningalegra gildi fyrir þá sem gefa það og þá sem bera það en nöfn fyrirtækja – og ástæðurnar fyrir sérkennilegum mannanöfn- um geta verið margar. Allir eiga ættingja með skrýtin nöfn, eða bera þau jafnvel sjálfir. Ég hef verið að velta fyrir mér nafninu Satanía, sem fékk ekki náð fyrir augum mannanafnanefndar. Mannanafnanefnd styðst við fimm atriði í úrskurði um nöfn. 1. Þau þurfa að geta tekið íslenskri eign- arfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. 2. Þau mega ekki brjóta í bág við íslenskt mál- kerfi. 3. Þau skulu rituð í samræmi við íslenskar ritvenjur nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. 4. Þau mega ekki vera þannig að þau geti orðið þeim sem bera þau til ama. 5. Stúlku má aðeins gefa kvenmannsnafn og dreng aðeins karlmannsnafn. Þessar kröfur ætti nafnið Satanía allar að standast, en mig grunar – án þess að muna fyr- ir víst, að nafninu hafi verið hafnað á forsendu fjórða liðarins: að talið hafi verið að nafnið gæti orðið barninu sem átti að bera það, til ama. Ég er sannfærð um, að með því að gefa opinberri nefnd vald til að úrskurða um nöfn á þeim grunni hvað gæti hugsanlega vald- ið einhverjum ama, séu grundvall- armannréttindi brotin. Hvernig í ósköpunum á þetta fólk að vera þess umkomið að meta slíka hluti. Fjöldi fólks ber nöfn sem vísast er að einhverjum þætti ami af að bera. Hrappur og Ljótur eru prýðileg nöfn, en hafa neikvæða merkingu í hugum margra, jafnvel þótt ljótur geti líka þýtt bjartur. Yrði karlmannsnafninu Heiðinn hafnað, þótt Kristinn sé leyft? Ekki er víst að aðstandendur Sat- aníu séu kristnir. Varla er það kvenmyndin af Satan sem vefst fyrir nefndinni, þegar Erlar, Lilj- ar, Annar og Fjólar eru allt gjald- geng karlmannsnöfn. Oftar en ekki finnst manni mannanafnanefnd á hálum ís í úr- skurði sínum um nöfn sem engin ástæða ætti að vera til að hafna af málfræðilegum ástæðum eða á grundvelli íslensks ritháttar. Nýtt dæmi er Engifer. Hvað er það öðru vísi en Kristófer? Er það kryddjurtin sem fer fyrir brjóstið á mannanafnanefnd? Þarf jurtin að vera falleg, eins og sóley, til að megi nota hana sem mannsnafn? Varla snýst það um hvort plantan er æt, því bæði Hvönn og Fífill eru leyfileg mannanöfn. Starfræksla mannanafna- nefndar í núverandi mynd er á villigötum og reglur þær sem farið er eftir gætu vel stangast á við mannréttindaákvæði stjórn- arskrár. Það yrði farsælla ef hún fengi það hlutverk að aðstoða fólk og fyrirtæki, gefa ráð, og sýna frumkvæði og hugmyndaauðgi í nýnefnum í stað þess að úrskurða um nöfn á afar hæpnum grunni. Kristinn og Heiðinn skul- ið þið heita Ég er sannfærð um, að með því að gefa opinberri nefnd vald til að úrskurða um nöfn á þeim grunni hvað gæti hugs- anlega valdið einhverjum ama, séu grundvallarmannréttindi brotin. begga@mbl.is VIÐHORF Bergþóra Jónsdóttir „ÓLÍKT því sem margir halda er heppni ekki meðfædd heldur áunn- in. Rannsóknir hafa sýnt að ákveð- in hegðun, hugs- un og viðhorf ýta undir heppni,“ segir Árelía Ey- dís Guðmunds- dóttir, lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og sérfræðingur í stjórnun. Hún gaf nýlega út bókina Móti hækkandi sól, sem fjallar um það hvernig læra má að virkja kraft vonar og heppni í lífinu. „Hjá þeim sem hafa lítið sjálfs- traust dregur úr von og heppni. Streita og það að kunna ekki að setja mörk hindrar líka heppni. Þetta eru þættir sem hver og einn ætti að skoða reglulega hjá sjálfum sér, út allt lífið. Þeir sem segja alltaf já, jafnvel þegar þeir vilja segja nei, eða kunna með öðrum orðum ekki að setja mörk, þeir verða óánægðir og það kemur nið- ur á sjálfstraustinu. Þeir sem eru mjög stressaðir eiga erfitt með að njóta augnabliksins og þess sem þeir hafa. Þar sem stjórnunarfræði er mitt sérsvið ákvað ég að nota þá kunn- áttu mína til að kenna fólki að yf- irfæra fyrirtækisstjórnun á sjálft sig til að stjórna eigin lífi. Þetta gengur út á það að fá fólk til að segja og hugsa: „Ég er mitt eigið fyrirtæki.“ Þá þarf fólk að venja sig á að hugsa um sjálft sig út frá forsendum fyrirtækjarekstrar og velta reglulega fyrir sér: Hvað geri ég vel núna og hvað get ég gert betur? Þeir sem stjórna fyr- irtæki eru alltaf að spyrja spurn- inga eins og: Hvar stendur fyr- irtækið núna? Hvert vil ég stefna með það? Hvernig ætla ég að kom- ast þangað? Þetta er grunnurinn í stefnumörkun. Til að yfirfæra þetta á sjálfan sig þarf einhver tæki til að styðjast við og þess  BÓK | Árelía Guðmundsdóttir kennir fólki að taka ábyrgð á eigin lífi Að stjórna sjálfum sér eins o Morgunblaðið/Árni Sæberg Árelía með dóttur sinni Kristínu Sigrúnu Áss Sigurðardóttur. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is K onan mín tók eftir því að ég horfði oft löng- unar- og öfundar- augum á ræðarana sem reru tvíæringum hljóðlaust og tignarlega á miklum hraða um ána,“ segir Einar Örn Sig- urdórsson róðrarkappi um áhugamál sitt, róður. „Hún gaf mér þess vegna í afmælisgjöf róðrarnámskeið við Northeastern-háskólann í Boston.“ Einar Örn og eiginkona hans, Bryn- hildur Davíðsdóttir, bjuggu á þess- um tíma nálægt ánni Charles, sem rennur á milli Boston og Cambridge. Þrátt fyrir einlægan vilja Einars Arnar til að róa einn var óhjá- kvæmilegt fyrir hann að byrja að róa með sjö öðrum byrjendum. „Það reynist mörgum erfitt að byrja að róa á þessum bátum,“ segir hann. „Botninn á þeim er eiginlega u-laga, þannig að þeir eru mjög óstöðugir og fyrst af öllu þarf að læra að ná jafn- væginu. Það er gert með því að sitja beinn og beita árunum líkt og línu- dansari beitir jafnvægisstöngunum.“ Þegar allir átta ræðararnir hafa náð nauðsynlegu jafnvægi er fyrst hægt að spá í að auka hraðann. Eftir að Einar Örn hafði verið á námskeiðum í tvö ár var hann kom- inn með algjöra dellu. „Þá fór ég að æfa með róðrarklúbbi og nú vil ég miklu frekar róa með öðrum en einn.“ Var lítill íþróttamaður Róður eins og þessi er mjög góður fyrir líkamann. „Sætin í bátunum eru á sleða og átakið dreifist nokkuð jafnt á allan líkamann, þannig að þetta er hörkugóð líkamsrækt, frá tám og upp úr,“ segir Einar Örn og hann heldur áfram. „Þetta styrkir hjartað og vöðvana. Róður er ólíkur hlaupum að því leyti að í stað þess að hlaup geta verið slæm fyrir liðamót- in styrkir róðurinn þau.“ Einar segir að þar sem vertíðin í róðrinum sé yfir sumartímann sé Að róa sig í toppform  ÁHUGAMÁLIÐ | Árar gegna sama hlutverki og jafnvægisstöng línudansara mars Daglegtlíf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.