Morgunblaðið - 19.04.2006, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
OFANLEITI 2, 103 REYKJAVÍK • HÖFÐABAKKA 9, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 599 6200 www.ru.is
MEISTARANÁM Í
VIÐSKIPTAFRÆÐI
við Háskólann í Reykjavík
Framúrskarandi kennarar
– alþjóðleg þekking og reynsla
• M.Sc. Endurskoðun og reikningshald
(Accounting and Auditing)
• M.Sc. Fjármál fyrirtækja
(Corporate Finance)
• M.Sc. Fjárfestingarstjórnun
(Investment Management – MSIM)
MINNI SKEMMDIR
Íslenskur vísindamaður hefur
þróað nýja aðferðafræði við rann-
sóknir á glerungseyðingu tanna af
völdum súrra drykkja og fastrar
fæðu á borð við sælgæti. Sælgætis-
risinn Toms Group A/S hefur sótt
um einkaleyfi á aðferðafræðinni.
Toms hyggst einnig hefja fram-
leiðslu á nýrri tegund sælgætis á
grundvelli rannsóknanna. Það verð-
ur súrt á bragðið og örvar munn-
vatnsflæði, en skemmir ekki glerung
tanna. Varan er nánast tilbúin og
kemur væntanlega á markað síðar á
þessu ári eða á því næsta.
Minnst 25 farast í Perú
Að minnsta kosti 25 létust og 23
slösuðust þegar farþegarúta steypt-
ist niður 400 metra af fjallvegi í hér-
aðinu Ayacucho í fyrradag. Vegna
þess hve afskekktur slysstaðurinn
er barst yfirvöldum ekki tilkynning
um slysið fyrr en í gær.
Deilt um Tsjernóbyl-slysið
Samtök Grænfriðunga gagnrýndu
í gær harðlega skýrslu Sameinuðu
þjóðanna um Tsjernóbyl-kjarn-
orkuslysið í Hvíta-Rússlandi og
sögðu, að allt of lítið væri gert úr af-
leiðingum þess. Eftir viku, 26. apríl,
verða liðin 20 ár frá slysinu.
Áfram eldi í Mjóafirði
Oddeyri, dótturfélag Samherja,
hefur ákveðið að draga minna úr
umsvifum sínum í fiskeldi en áður
hafði verið ákveðið. Það er gert í
kjölfar þeirra ákvarðana, sem tekn-
ar hafa verið í ríkisstjórn Íslands
varðandi aðgerðir tengdar fiskeldi.
Mun Oddeyri í gegnum Sæsilfur í
Mjóafirði taka yfir tilraunafram-
leiðslu Síldarvinnslunnar á sviði
þorskeldis.
Í kjölfarið verður sú starfsemi
flutt til Mjóafjarðar og efld. Þannig
verður samdráttur í laxeldinu minni
en áður hafði verið áætlað.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 26
Fréttaskýring 8 Bréf 28
Viðskipti 14 Minningar 29/32
Erlent 15/16 Myndasögur 36
Minn staður 17 Dagbók 36/39
Höfuðborgin 18 Víkverji 36
Akureyri 18 Staður og stund 38
Landið 19 Leikhús 40
Daglegt líf 20 Bíó 42/45
Menning 21 Ljósvakamiðlar 46
Umræðan 22/28 Veður 47
Forystugrein 24 Staksteinar 47
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
! " #
$ % &
' ()*+ ,---
MAÐURINN sem lést í slysi í
gönguferð á portúgölsku eyjunni
Madeira á sunnudag hét Árni G.
Stefánsson, til heimilis í Brautar-
landi 15 í Reykjavík. Hann fæddist 3.
nóvember 1932 og lætur eftir sig eig-
inkonu og fjögur börn.
Lést í slysi
á Madeira
SKRIFSTOFA Morgunblaðsins á
Akureyri er flutt í húsnæði Hölds á
Tryggvabraut 12 og hefur Höldur
tekið að sér afgreiðslu og dreifingu
blaðsins á Akureyri.
Sími ritstjórnar, afgreiðslu og
auglýsingamóttöku er nú 569-1100
en einnig verður áfram tekið á móti
minningargreinum og auglýsingum
á skrifstofu blaðsins á Akureyri.
Blaðamaður Morgunblaðsins á
Akureyri er Skapti Hallgrímsson.
Netfang hans er skapti@mbl.is og
beinn sími 669-1114.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tryggvabraut 12, þar sem skrifstofa Morgunblaðsins á Akureyri er til húsa.
Morgunblaðið á Akureyri
flytur á Tryggvabraut 12
TVEIR menn voru handteknir í gær í
tengslum við rannsókn á innflutningi
á rúmlega tveimur tugum kílóa af
fíkniefnum og var þeim sleppt að yf-
irheyrslum loknum. Fjórir menn
voru sl. föstudag úrskurðaðir í
þriggja vikna gæsluvarðhald vegna
málsins.
Að minnsta kosti tveir þeirra hafa
kært gæsluvarðhaldsúrskurði sína til
Hæstaréttar. Sá þriðji hefur ekki
kært og óljóst er með þann fjórða.
Búist er við dómi Hæstaréttar vegna
kærumálanna á næstu dögum, en
gæsluvarðhaldsúrskurðirnir voru
kveðnir upp í héraðsdómi á föstudag-
inn langa og er varðhaldinu markað-
ur tími til 5. maí.
Lögreglan í Reykjavík lætur ekki
uppi hversu mikið magn af fíkniefn-
um hefur verið lagt hald á en málið á
rætur að rekja til mánudagsins 3.
apríl þegar Tollgæslan í Reykjavík
fann mikið magn af fíkniefnum falið í
notuðum fólksbíl sem fluttur hafði
verið inn frá Evrópu. Tollgæslan
gerði viðeigandi ráðstafanir og lét
m.a. lögregluna vita og hófst strax
rannsókn á málinu.
Bíllinn var tollafgreiddur og af-
hentur innflytjanda þriðjudaginn 11.
apríl og þremur dögum síðar handtók
lögreglan í Reykjavík mennina fjóra.
Fékk lögreglan aðstoð frá sérsveit
ríkislögreglustjóra við fyrri handtök-
una. Þrír hinna handteknu höfðu þá
fært bílinn í iðnaðarhúsnæði í aust-
urborginni og voru gripnir þar sem
þeir voru að losa fíkniefnin úr bílnum.
Var fjórði maðurinn handtekinn síðar
um nóttina. Tveir til viðbótar voru svo
handteknir vegna málsins í gærdag.
Lögreglan segir rannsókn málsins
vera á byrjunarstigi og ótímabær
fréttaflutningur af því hafi þegar
komið sér illa fyrir rannsóknina.
Vegna rannsóknarhagsmuna verði að
svo komnu máli ekki veittar frekari
upplýsingar, hvorki um magn né teg-
und efnanna, eða aðrar staðreyndir
málsins. Um er að ræða verulegt
magn fíkniefna og með því mesta sem
lagt hefur verið hald á í einu lagi hér á
landi að sögn lögreglu.
Fjórir enn í haldi í tengslum við fíkniefnamálið í Sundahöfn
Tveir kæra gæslu-
varðhaldsúrskurði
LANGAR raðir mynduðust við dekkjaverkstæði á höf-
uðborgarsvæðinu strax í gærmorgun, og ljóst að marg-
ir hafa ákveðið að bíða þar til eftir páska með að skipta
út vetrardekkjunum. Á Gúmmívinnustofunni í Skip-
holti var mikið að gera þegar blaðamaður Morg-
unblaðsins leit í heimsókn, og fór biðtíminn í um tvær
klukkustundir þegar mest var í gær.
Sturla Pétursson, eigandi Gúmmívinnustofunnar,
segist reikna með því að nóg verði að gera á öllum
dekkjaverkstæðum næstu þrjár vikurnar. Lítið hafi
verið um að fólk léti setja sumardekkin undir fyrir
páska, enda víða kalt og snjór á landsbyggðinni, og því
óhemjufjöldi dekkja sem enn eigi eftir að skipta um
undir bílaflota íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Morgunblaðið/Ómar
Örtröð á dekkjaverkstæðum
UNGT fólk á Íslandi er almennt já-
kvætt í garð hnattvæðingar, alþjóð-
legrar samkeppni og framtíðar Ís-
lands. Þetta kemur fram í könnun
sem Samtök atvinnulífsins gerðu
meðal 19–20 ára ungmenna.
Langflestir vilja starfa hjá einka-
fyrirtæki eða fara út í sjálfstæðan
atvinnurekstur, eða 78%. 13% vilja
helst starfa hjá ríki eða sveit-
arfélögum. Áhugi á störfum hjá hinu
opinbera er talsvert meiri meðal
kvenna en karla eða 23% á móti 6%.
Þá kom fram í könnuninni að jeppi
er það farartæki sem unga fólkinu
hugnast best (47%) en næst á eftir
koma góðir skór (24%) og þá einka-
þota (12%). Meðal ungra kvenna
skora jeppinn (51%) og góðir skór
(29%) áberandi hæst en ívið lægra
meðal ungra karla (45% og 20%) þar
sem einkaþotan kemur sterk inn
(18%). 8% nefna reiðhjól, sem og
mótorhjól, sem höfðar mun meira til
karla en kvenna.
Könnun PSN-samskipta fyrir SA
var símakönnun, gerð dagana 31.
mars til 9. apríl. Safnað var svörum
615 ungmenna eftir tilviljunarúrtaki
úr þjóðskrá, sem var kvótaskipt eftir
kyni og búsetu til að tryggja rétta
dreifingu. Könnuninni verður dreift
á aðalfundi SA 25. apríl.
Jákvætt
ungt fólk
sem vill aka
um á jeppa