Morgunblaðið - 19.04.2006, Síða 25

Morgunblaðið - 19.04.2006, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006 25 OLÍUVERÐ á heimsmarkaði var í hæstu hæðum í gær þegar það fór í 72,64 dollara fatið í London og í 71,60 dollara í New York. Er ástæðan sögð ótti við hugsanleg átök milli Bandaríkjamanna og Ír- ana vegna kjarnorkuáætlana þeirra síðarnefndu. Óttast er, að verð- hækkunin muni kynda undir auk- inni verðbólgu og draga úr hag- vexti. Verð á olíu af Brent-svæðinu í Norðursjó fór í gær í 72,64 dollara í London og í New York komst verð- ið hæst í 71,60 dollara, sem er 75 sentum hærra en það var fyrst eftir fellibylinn Katrínu og þær skemmdir, sem þá urðu á olíu- mannvirkjum í Mexíkóflóa. Verðið nú jafnast þó ekki enn á við það, sem sást eftir íslömsku byltinguna í Íran 1979, en þá svaraði verðið til 80 dollara á núgengi. Átök við Írana hefðu alvarlegar afleiðingar Simon Wardell, sérfræðingur í olíumarkaðsmálum hjá Global In- sight, sagði í gær, að hugsanleg átök milli Bandaríkjanna og Írans yllu áhyggjum og spáði því, að verðið gæti farið í 75 dollara fyrir fatið. Bætti hann við, að kæmi í raun til átaka milli Bandaríkjanna og Írans, myndi verðið rjúka upp fyrir 150 dollara. Væri ástæðan sú, að Íranar gætu hæglega truflað og jafnvel hindrað alveg umferð um Hormuz-sund í mynni Persaflóa en það er ein helsta lífæð olíuflutninga í heiminum. OPEC, Samtök olíu- útflutningsríkja, sögðu í gær, að nægt framboð af olíu væri á öllum mörkuðum og lýstu áhyggjum af verðhækkuninni, sem ásamt hækk- andi vöxtum gæti dregið verulega úr hagvexti. Spá samtökin því, að hægja muni á hagvexti í Bandaríkj- unum síðar á árinu og þá muni efnahagslífið almennt verða háðara eftirspurn í Evrópu og Asíu. Ekkert má út af bera Sérfræðingar segja, að þótt framboðið sé nægt í svipinn þá sé staðan mjög viðkvæm vegna þess, að framleiðslan geri ekki meira en halda í við vaxandi eftirspurn. Þess vegna megi ekkert út af bera og áhyggjur af Íransdeilunni og ókyrrð í Nígeríu séu því meira en næg ástæða fyrir verðhækkun á ol- íunni. Þar við bætist sívaxandi olíu- þörf í Kína og á Indlandi og sumar á norðurhveli. Þá eykst olíunotk- unin og því eru mestar líkur á, að verðið verði mjög hátt á næstu mánuðum að minnsta kosti. Eftirspurnin jókst um eina millj. fata á dag Í yfirlýsingu OPEC sagði, að eft- irspurnin eftir olíu hefði aukist um eina milljón fata á dag á síðasta ári og því er spáð, að hún muni aukast um 1,4 millj. fata á dag á þessu ári. Er það minni aukning en spáð var í mars og að mestu vegna þess, að olíunotkun í Bandaríkjunum var allmiklu minni á fyrsta fjórðungi ársins en spáð var. Verð á olíu líklega mjög hátt áfram Er komið yfir 70 dollara fatið og farið að ógna hagvexti að mati sérfræðinga AP Það var mikill handagangur í öskjunni í kauphöllinni í New York í fyrra- dag en þá fór olíuverðið yfir 70 dollara fatið í fyrsta sinn í nær átta mánuði. $%  &&'( ) ,-#./012 34""13(  $ 5( $  (                R      /01261078319,-#.#:   BA  1& 0 D ;  < 5&&1 A , =  > S%&  2'& !+ ' 0  !0 A! T   ( A;  (  S% &+ ; > U1  1 A &&/  !0  A .1+ / $A ?? 5&&1 , A )%  ?? 8 ' /  ;2!+ && 7  ??@??'( $ A$ !  4;02/  &    ; <   ;&&  0 & 0 & >  0 0   ,  (  A& B * CD Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is Auk iðnaðarmanna kemur góður hópur sjálfboðaliða að verkinu, segir Þorsteinn. „Fólk úr sókninni leggur þessu lið,“ segir hann. Margir gefi einnig til verksins. Hann áætlar að framkvæmdirnar kosti sjö til tíu millj- ónir. ð. Hann segir að sama teppið hafi verið í r vígð árið 1971. Upphaflega átti aðeins að í eitt ár, en það hefur dugað fram að þessu, gir að tækifærið verði einnig notað nú til að gn, bæta við hjólastólalyftu og fleira. gt. Morgunblaðið/Ómar Hitalagnir lagðar í gólf anddyris Bústaðakirkju. salagt BLÓÐGJÖF er hluti af ímyndar- sköpun þeirra sem gefa blóð og þeir vilja alls ekki fá greiðslu fyrir gjöf- ina. Þetta er meðal þess sem fram kemur í rannsókn Marínar Þórs- dóttur, Ég get og ég geri; hvers vegna gefa blóðgjafar blóð?, en Mar- ín útskrifast með MA-gráðu í mann- fræði frá Háskóla Íslands í júní. Rannsókn Marínar er eigindleg og hefur hún tekið viðtöl við fimmtán manns á blóðgjafaraldri, bæði blóð- gjafa og aðra. Þá lagði hún meg- indlegan spurningalista fyrir blóð- gjafa og honum svöruðu tæplega 800 manns. „Ég skoða þetta sérstaklega með tilliti til þess að í raun og veru fá gjafarnir ekkert greitt fyrir viðvikið nema kannski kaffi og kleinu,“ segir Marín. „Ég hef spurt blóðgjafana hvort þeir vildu fá greitt fyrir blóð- gjöf en þeir eru alfarið á móti því og sumir segjast jafnvel myndu hætta að gefa blóð ef greitt væri fyrir gjöf- ina. Þetta hefur verið kallað freak- anomics eða furðuhagfræði, því þetta er á skjön við alla hagfræði.“ Marín segir að svo virðist sem blóðgjöfin snúist um að vera heilsu- hraustur, góður samfélagsþegn og að skila meiru af sér til samfélagsins en skylda segir til um. „Þetta snýst um að leggja sitt af mörkum til þess að samfélagið virki sem best og svo eru fórnfýsi og frið- þæging meðal þátta sem ég hef greint hjá blóðgjöfunum,“ segir Marín. „Þetta er ekki meginatriði varðandi það hvernig gjafarnir skapa sína sjálfsmynd en þetta leik- ur hlutverk.“ Blóðbankinn hinn þakkláti þiggjandi Marín segir að sér hafi ekki að- eins komið á óvart að gjafarnir vildu ekki fá greitt fyrir blóðgjöf heldur einnig að þeir hugsi lítið um hver fái blóðið. Það ýti undir þáttinn um ímyndarsköpunina því markmiðið sé ekki endilega að bjarga einhverjum ákveðnum. Fræðimaðurinn Marcel Mauss hélt því fram á þriðja áratug síðustu aldar að enginn gæfi neitt nema að fá eitthvað til baka; engin gjöf væri hrein. Árið 1979 gagnrýndi fræði- maðurinn Richard Titmus þessa kenningu og sagði blóðgjöf vera einu hreinu gjöfina, því fyrir hana fengist aldrei neitt til baka. „Ég er að gagnrýna Titmus og segja að með blóðgjöfinni fái gjaf- arnir ákveðið tæki í hendurnar til að skilgreina sjálfa sig sem góða og nýta þjóðfélagsþegna,“ segir Marín. „Auk þess eru gjafarnir ekki að gefa þegunum blóð heldur frekar Blóð- bankanum og samband myndast milli bankans og gjafans þannig að bankinn er hinn þakkláti þiggjandi. Þeginn hins vegar gerir kröfu á blóð eins og til dæmis lyf eða aðra með- ferð og getur ekki þakkað gjafanum beint fyrir.“ MA-verkefni í mannfræði um hvers vegna blóðgjafar gefi blóð Blóðgjafar vilja ekki fá greitt fyrir blóðgjöf Morgunblaðið/ÞÖK Blóðgjöf er hluti af ímyndarsköpun þeirra sem gefa blóð samkvæmt rannsókn Marínar Þórsdóttur. Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is ru að koma núna,“ segir Herdís og bætir ið að þátttakendur séu úr ólíkum hópum amfélagsins og töfrum líkt þegar þær komi aman úti í guðsgrænni náttúrunni á Bifröst. Þess má að lokum geta að skráning fer ram á heimasíðu Bifrastar á slóðinni: www.bifrost.is. Verð fyrir þátttöku á ráð- tefnunni, þar sem allt er innifalið nema isting, er 14 þúsund krónur, en að sögn Herdísar er verðinu haldið í algeru lágmarki l að gera sem flestum kleift að sækja ráð- tefnuna. STRÁLSKI rithöf- ndurinn og kvenrétt- dakonan Germaine reer er eitt af stóru öfnunum í kvenfrels- hreyfingunni. Greer egndi lengst af pró- ssorsstöðu í enskum kmenntum við Há- ólann í Warwick á nglandi og er ötull g beittur penni. rægasta bók hennar, he Female Eunuch, m út kom 1969, afði mikil áhrif á venfrelsishreyfinguna upp úr 1970, en í kinni heldur hún því fram að hinum nna persónuleika kvenna sé haldið niðri gildismati karla. Af öðrum verkum Greer á nefna Sex and Destiny sem út kom árið 84, en þar heldur hún því fram að þjóð- lög Vesturlanda séu fjandsamleg börnum g frelsið í kynferðismálum þar sé mann- um óeðlilegt. Fyrir sex árum má segja að reer hafi fylgt The Female Eunuch eftir eð útgáfu bókarinnar The Whole Woman ar sem hún heldur því fram að aftur sé ominn tími fyrir konur að reiðast sökum ss hversu sorglega hægt hafi miðað í venréttindabaráttunni. Germaine Greer eitt af stóru nöfnunum á Bifröst dagana 1.–2. júní að vera iðir“ lja@mbl.is Germaine Greer

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.