Morgunblaðið - 19.04.2006, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ HreggviðurHermannsson
fæddist í Hrísey á
Eyjafirði 22. júlí
1931. Hann lést á
Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi í
Fossvogi laugardag-
inn 8. apríl síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Sigfús Her-
mann Jónasson, sjó-
maður í Hrísey á
Eyjafirði, f. 8. des-
ember 1888, d. 4.
ágúst 1973 og Anna María Jóns-
dóttir, húsfreyja í Hrísey á Eyja-
firði, f. 14. desember 1896, d. 5.
apríl 1980. Föðurforeldrar voru
Jónas Þórður Sigfússon, bóndi á
Borg og Ási í Glæsibæjarhreppi,
Eyjafirði, sjómaður og skipstjóri í
Syðstabæ í Hrísey, f. 16. ágúst
1866, d. 25. desember 1930, og Dýr-
leif Friðbjarnardóttir húsfreyja, f.
14. maí 1858, d. 25. desember 1907.
Móðurforeldrar voru Jón Jónas-
son, sjómaður og húsmaður í
Syðstabæ í Hrísey, í Uppsalakoti í
Svarfaðardal, Eyjafirði, síðast á
Siglufirði, f. 8. september 1864, d.
12. október 1898, og Elín Kristín
Pálsdóttir, húskona, síðar vinnu-
kona víða á Árskógsströnd og í
Hrísey, f. 10. ágúst 1862, d. 8. júlí
1946. Alsystkini Hreggviðs eru
Jónas, f. 1919, d. 2003, Dýrleif, f.
1921, d. 1993, Laufey, f. 1923, Guð-
rún, f. 1927, d. 2000 og Óskar, f.
1929, d. 2004. Hálfbróðir Hregg-
12. desember 1951. Foreldrar
hennar eru Jóhann Dalberg Sig-
urðsson, f. 3. nóvember 1920, d. 30.
september 1994, og Helga Margrét
Sigtryggsdóttir, f. 5. ágúst 1916.
Stjúpsynir Hreggviðs (synir Lilju)
eru: 1) James William Sandridge, f.
3. október 1973. 2) Jóhann Dal-
berg, f. 19. mars 1975, maki Kristín
Ruth Helgadóttir, f. 22. febrúar
1980.
Hreggviður var aðstoðarlæknir
héraðslæknisins í Keflavíkurhéraði
í ágúst 1963. Aðstoðarlæknir svæf-
ingarlæknis á Landspítalanum
september–október 1963. Kandí-
dat á Landakotsspítala frá desem-
ber 1963 til mars 1964, á Slysavarð-
stofu Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur apríl–maí 1964 og á
Landspítalanum, fæðingardeild,
lyflækningadeild og handlækn-
ingadeild maí–desember síðasta
kandídatsárið. Héraðslæknir í
Ólafsfjarðarhéraði frá janúar 1965
til september 1971 og í Ólafsvík-
urhéraði frá september 1971 til
ágúst 1973. Starfaði sem læknir í
Keflavík frá 1973 og skipaður
heilsugæslulæknir við Heilsugæslu
Suðurnesja í Keflavík frá 1. mars
1979 þar sem hann starfaði til 22.
júlí 2001.Eftir það var hann sjálf-
stætt starfandi. Auk þess gegndi
hann trúnaðarlæknisstöðu fyrir ís-
lenska starfsmenn varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli.
Hreggviður var bæjarfulltrúi
fyrir Alþýðuflokkinn á Ólafsfirði
1966–1971, varafulltrúi í bæjar-
stjórn Keflavíkur um skeið og for-
maður Alþýðuflokksfélags Kefla-
víkur.
Útför Hreggviðs verður gerð frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
viðs sammæðra var
Knud Herner, f. 1916,
d. 1984.
Hreggviður kvænt-
ist 22. júlí 1956, Krist-
björgu Gísladóttur, f.
17. nóvember 1927, d.
7. október 1980. For-
eldrar hennar voru
Gísli Davíðsson, bú-
fræðingur, verka-
maður á Eyrarbakka
og síðar í Keflavík, f.
25. nóvember 1891, d.
23. apríl 1937, og
Margrét Torfadóttir, f. 23. október
1895, d. 11. nóvember 1965. Börn
þeirra Hreggviðs og Kristbjargar
eru: 1) Margrét, f. 5. mars 1958,
maki Bjarni Guðjónsson, f. 19. sept-
ember 1955. 2) Hermann Torfi, f.
30. september 1967, maki Ágústa
Hildur Gizurardóttir, f. 11. septem-
ber 1968. 3) Elín Kristín, f. 30. sept-
ember 1967, maki Júlíus Sigurðs-
son, f. 28. desember 1962. 4)
Guðmundur Páll, f. 23. nóvember
1970, maki Sólveig Silfá Karlsdótt-
ir, f. 9. september 1977. Stjúpsynir
Hreggviðs (synir Kristbjargar)
eru: 5) Björn Blöndal, f. 14. maí
1946, maki Ásdís Anna Gísladóttir
Johnsen, f. 6. febrúar 1949. Þau
skildu. 6) Gísli Blöndal, f. 8. júlí
1947, maki I Guðrún Hlín Þórarins-
dóttir, f. 17. apríl 1947. Þau skildu.
Maki II Sólveig Leifsdóttir, f. 21.
september 1951.
Hreggviður kvæntist 22. desem-
ber 1984, Lilju Jóhannsdóttur, f.
Þá er hann farinn frá okkur,
bjargvætturinn mikli. Já, Hreggvið-
ur tengdafaðir minn er horfinn úr
þessu jarðneska lífi eftir stutt en
ströng veikindi. Mín kynni af Hregg-
viði hófust þegar sonur hans Gísli
keyrði með mig til Keflavíkur á jóla-
dag 1973 þar sem við vorum boðin í
mat, ég kveið afskaplega mikið fyrir
og bað hann að snúa við svona þrisv-
ar sinnum, en við komum í Smárat-
únið á endanum. Í dyrunum tók á
móti okkur ein sú glæsilegasta kona
sem ég hef séð, svona mjög kvenleg
útgáfa af syninum sem með mér var
og ekki var ásýnd föðurins síðri, eins
og frægur leikari úr Hollywood í
mínum huga. Faðmur hans var opn-
aður þá og fann ég fyrir hlýju, vin-
áttu og kærleika sem aldrei brast.
Hreggviður var víðlesinn og hafði
mjög gaman af allri sögu, las mikið
af ljóðum og kunni ógrynni af þeim.
Tónlistaráhugi hans var mikill og má
nefna írska hálandamúsik sem var
þar efst á blaði. Hreggviður lærði
læknisfræði og starfaði við það, fyrst
á Ólafsfirði, síðan á Ólafsvík og til
Keflavíkur kom hann haustið 1973
og hefur starfað sem læknir þar síð-
an eða þar til um síðustu áramót
þegar veikindi hans fóru að segja
verulega til sín.
Hreggviður var læknir af Guðs
náð og ekki var það sjaldan sem við
hringdum, hvort sem var að nóttu
eða degi til að fá ráðleggingar við
alls konar kvillum. Ef börnin voru
lasin þá var viðkvæðið: „Pabbi,
hringdu bara í afa-læknirinn“, því þá
vissu þau að öllu var bjargað.
Ekki get ég látið hjá líða að minn-
ast hans smitandi hláturs og glað-
værðar sem kom öllum í gott skap.
Einnig símtölum Gísla og hans þar
sem þeir gátu talað um pólitík,
landsins gagn og nauðsynjar og hlát-
urinn sem tók helming símtalsins.
Já, bjargvættinn og vin minn kveð
ég með sorg í hjarta en ljúfar minn-
ingar verða mér að leiðarljósi um
ókomna tíð.
Elsku Lilju, sem stóð eins og
klettur við hlið eiginmanns síns til
hinstu stundar og börnunum öllum
sendi ég mínar einlægustu samúðar-
kveðjur og megi góður guð vera með
ykkur öllum á erfiðri stund.
Þín tengdadóttir,
Sólveig Leifsdóttir.
Með sárum söknuði kveð ég nú
hjartfólginn vin, Hreggvið Her-
mannsson. Okkar vinátta, sem aldrei
bar skugga á, var einlæg og traust í
yfir 40 ár. Hreggviður var hjartahlýr
og heiðarlegur vinur sem vildi leysa
hvers manns vanda eftir bestu getu.
Hreggviður var einnig glæsi-
menni, skarpgreindur og mikill
húmoristi. Fáa hef ég þekkt sem
kunnað hafa annan eins aragrúa af
kvæðum og ljóðum. Það runnu upp
úr honum heilu kvæðabálkarnir fyr-
irhafnarlaust, öllum til mikillar
ánægju.
Hreggviður og Kristbjörg fyrri
kona hans voru höfðingjar heim að
sækja og voru heimsóknir til þeirra
ávallt ógleymanlegar stundir. Þær
standa upp úr í minningum mínum,
hvort heldur sem heimsótt var á
Ólafsfjörð, Ólafsvík eða Keflavík, en
á öllum þessum stöðum starfaði
Hreggviður sem héraðslæknir.
Kristbjörg lést langt fyrir aldur
fram og varð hún öllum mikill harm-
dauði. Hreggviður og Kristbjörg
áttu sex börn; Björn, Gísla, Mar-
gréti, Elínu, Hermann og Guðmund.
Þrjú yngstu börnin voru ófermd
þegar móðir þeirra lést og má því
nærri geta hvað sorgin var nístandi
hjá Hreggviði og börnunum, að sjá á
eftir elskandi móður og ástkærri eig-
inkonu.
Eftir andlát Kristbjargar kom
Lilja sem ráðskona á heimilið ásamt
tveimur sonum sínum. Þeim Hregg-
viði tókst að sameina allan barna-
skarann og þau giftu sig ári síðar.
Þau hafa því verið saman í yfir 20 ár.
Lilja reyndist Hreggviði afar vel og
vildi allt fyrir hann gera til að honum
mætti líða sem best miðað við að-
stæður.
Ég kveð þig nú kæri vinur. Farðu í
Guðs friði. Minning þín lifir.
Hanna Gísladóttir.
Hreggviður vinur minn er látinn.
Ég var um fermingaraldur þegar
Kristbjörg föðursystir mín, sem var
mér mjög náin og kær, kynnti mig
fyrir Hreggviði. Það gerði hún með
stolti og bliki í auga eins og alltaf
þegar hún talaði um Hreggvið. Þau
höfðu þá hafið búskap nýlega. Hann
var læknanemi og sat við lestur.
Strax við fyrstu kynni fékk ég mikið
traust á þessum manni. Alla tíð síðan
hef ég leitað til Hreggviðs með mín
vandamál. Á mínum erfiðustu tímum
hringdi ég iðulega í hann og alltaf
fékk ég styrk frá honum og nýja sýn
og bjartari á lífið og tilveruna.
Hreggviður var ákaflega heill
maður, hvort sem var í einkalífi eða
starfi. Hann hafði þessa nærveru og
traust sem læknir sem gefur bata
framyfir það sem lyf og verklegar
aðgerðir gera. Það er guðsgjöf sem
einungis fáum er gefið en hana hafði
Hreggviður í ríkum mæli, eins og
svo fjölmargir sjúklingar hans fengu
að njóta.
Hreggviður var mikill fjölskyldu-
faðir. Hann var góður uppalandi og
hafði sérstakt lag á börnum. Krist-
björg andaðist um aldur fram rúm-
lega fimmtug. Hreggviður kvæntist
Lilju sinni nokkrum árum seinna.
Báðum þessum konum var Hregg-
viður einstakur og þær honum. Í
veikindum Hregga síðustu vikurnar
hef ég orðið vitni að því hve innilegt
og traust samband hans og Lilju var.
Hún var hjá honum dag sem nótt og
gerði allt sem hún hugsanlega gat til
að gera honum baráttuna við hið
óumflýjanlega léttari. Æðruleysi
beggja á þessum síðustu dögum lífs
hans er aðdáunarvert.
Ég hef misst einn minn besta vin
og sálusorgara úr þessu lífi, en hans
lífsgleði og uppörvun lifir áfram
innra með mér.
Blessuð sé minning hans.
Magnús Torfason.
HREGGVIÐUR
HERMANNSSON
Fleiri minningargreinar
um Hreggvið Hermannsson bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Jón Að-
alsteinn Jóhannsson; Baldur Odds-
son; Guðni Jónsson; Anna Lilja og
Reynir; Konráð Lúðvíksson; Ásdís
M. Sigurðardóttir.
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir,
dóttir og amma,
SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR
lyfjafræðingur,
lést aðfaranótt föstudagsins langa 14. apríl á
líknardeild LSH í Kópavogi.
Útförin verður auglýst síðar.
Jóhannes Halldórsson,
Hanna Dóra Jóhannesdóttir, Skúli Edvardsson,
Páll Jóhannesson, Hulda Guðný Kjartansdóttir,
Kristín Þóra Jóhannesdóttir, Sigurjón V. Eiríksson,
Signý Jóhannesdóttir,
Kristín Þ. Gunnsteinsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞORSTEINN JÓN ÞORSTEINSSON
vélstjóri,
Nesbala 62,
Seltjarnarnesi,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 13. apríl.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju
föstudaginn 21. apríl kl. 10.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minn-
ast hans er bent á Minningarsjóð hjúkrunarþjónustu Karitas í síma 551
5606 milli kl. 9.00 og 11.00.
Hlöðver Þorsteinsson, Hanna Fríða Jóhannsdóttir,
Anna María Þorsteinsdóttir, Hörður Valdimarsson,
Helga Kristín Þorsteinsdóttir, Guðni Diðrik Óskarsson
og afabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÁRNI G. STEFÁNSSON,
Brautarlandi 15,
Reykjavík,
lést af slysförum sunnudaginn 16. apríl.
Aðalbjörg Árnadóttir,
Gerður Aagot Árnadóttir, Alfons S. Kristinsson,
Elín Huld Árnadóttir,
Kristín Sif Árnadóttir, Páll Sveinsson,
Stefán Baldur Árnason, Ásdís G. Sigmundsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi,
langafi og bróðir,
GÚSTAF SIGURJÓNSSON,
Hólagötu 46,
Vestmannaeyjum,
lést að kvöldi sunnudagsins 16. apríl, páskadags,
á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja.
Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn
22. apríl kl. 10.30.
Aðalheiður Hjartardóttir,
María Gústafsdóttir, Kristján Birgisson,
Aðalheiður Kristjánsdóttir,
Jóna Dís Kristjánsdóttir, Steingrímur Jóhannesson,
María Ýr Kristjánsdóttir,
Gústaf Kristjánsson, Silja Rós Guðjónsdóttir,
Kári Kristján Kristjánsson, Kristjana Ingibergsdóttir,
Kristjana María Steingrímsdóttir,
Gaukur Sigurjónsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJÖRN GUÐMUNDSSON
frá Víkingavatni,
til heimilis á
Dalbraut 16,
Reykjavík,
andaðist föstudaginn langa 14. apríl.
Jónína Sigurborg Jónasdóttir,
Sigurbjörg Björnsdóttir, Páll R. Pálsson,
Guðmundur Björnsson, Guðrún W. Jensdóttir,
Björg Björnsdóttir, Sveinn B. Hreinsson,
Sigrún Þóra Björnsdóttir, Kristinn Halldórsson,
og barnabörn.