Morgunblaðið - 19.04.2006, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn fær það verkefni að koma
ferhyrndum pinna fyrir í hringlaga
holu. En reyndar er það ekkert mál.
Annaðhvort slíparðu pinnann eða
breytir löguninni á holunni. Þú getur
leyst hvað sem er.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Tilviljunin sem þú verður fyrir núna er
reyndar engin tilviljun. Hún er vís-
bending um að þú eigir að halda áfram
á þeirri leið sem þú hefur verið á.
Sendu skriflegt svar við boði him-
intunglanna um að þú ætlir að taka
næsta skref.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þegar tvær viljasterkar manneskjur í
lífi tvíburans láta til sín taka hristist
veröld hans eins og tvær meginlands-
plötur hafi rekist saman. Umhverfið
skiptir sköpum fyrir hugarró þína í
augnablikinu svo kannski ættirðu að
forðast viðkomandi einstaklinga.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Úlfarnir ganga lausir. Álitaefni tengd
heilindum og siðferði koma upp. En
krabbinn er svo heillandi að honum
gæti tekist að leiða flokki sínum van-
metna eiginleika á borð við þakklæti og
kærleika fyrir sjónir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þögnin sem ríkir á milli ljónsins og
makans í augnablikinu er nánast ær-
andi. Samskiptin fara fram með fjar-
skynjun og augnaráðið er svo hlaðið að
orð reynast alger óþarfi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan hefur gefið sig alla einhverjum
öðrum. Stundum veltir hún því fyrir
sér hvort gjöfin sé einhvers metin, en
það er aukaatriði. Ekkert mun jafnast
á við hlutverkið sem viðkomandi mann-
eskja gegnir í leið þinni til uppljóm-
unar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin nýtur daglegrar ánægju á borð
við mat og þess háttar. Í stað þess að
spá í næringargildi þess sem hún lætur
ofan í sig veltir hún sælunni sem bragð-
laukarnir eiga eftir að upplifa fyrir sér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er ekki ýkja auðvelt að ganga í
augun á sporðdrekanum en einhver á
eftir að fylla hann lotningu í dag vegna
hæfileika sinna, visku eða ráðstafana
vegna þess að það er ósvikið. Í þínum
huga er það aðalatriðið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn er í aðstöðu til þess að
dæma aðra eða sjálfan sig – hann tekur
þá skyldu sína mjög alvarlega, eins og
vera ber. Gerðu ferlinu jafn hátt undir
höfði og útkomunni og gefðu skapandi
viðleitni háa einkunn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin hefur valið og það er ekkert
pláss fyrir iðrun og eftirsjá. Hún stend-
ur ekki bara við ákvörðun sína heldur
gerir gott úr öllu. Trúfesti er kjarninn í
yfirburðum hennar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hljóð vekja tilfinningar og ef þú hlust-
ar opnast hjarta þitt. Gefðu þér tíma til
þess að heyra músíkina í nið umferð-
arinnar, regndropum sem falla á rúðu
eða suði tölvunnar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Föt ýmist bæla eða auðvelda sjálfstján-
ingu. Ef það sem maður klæðist er
nógu þægilegt til þess að dansa í,
faðma í eða daðra, getur það ekki verið
annað en í lagi.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Alheimurinn fagnar með
lúðrablæstri, þegar hennar
hátign, sólin, flytur sig yfir í
ríki nautsins. Orka nautsins jarðbindur
hugmyndir og sáir þeim í frjóan svörð svo
þær megi vaxa. Hugsum í litlum skref-
um. Nautið vill taka hlutina rólega og
smíða réttar undirstöður svo draumar
okkar megi verða að veruleika.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 hál, 4 skyggnist
til veðurs, 7 snagar, 8
endar, 9 upplag, 11 vel
látna, 13 bein, 14 hland,
15 álka, 17 skrifaði, 20
ílát, 22 fara laumulega
með, 23 sárum, 24 kven-
fuglinn, 25 kaka.
Lóðrétt | 1 sök, 2 upp-
lagið, 3 ávöxtur, 4 mæli-
eining, 5 milda, 6 rugga,
10 plokka, 12 keyra, 13
skjól, 15 stökkva, 16
kögguls, 18 bál, 19 lengd-
areining, 20 hafði upp á,
21 agasemi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 forherðir, 8 lesta, 9 ósjór, 10 puð, 11 sýkna, 13
arnar, 15 hjörs, 18 skúra, 21 tóm, 22 raupi, 23 eflir, 24
hlægilegt.
Lóðrétt: 2 orsök, 3 hrapa, 4 rjóða, 5 iðjan, 6 glás, 7 frír,
12 nær, 14 rok, 15 horf, 16 ötull, 17 sting, 18 smell, 19
útlæg, 20 aðra.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Félagsheimilið Logaland Reykholtsdal |
Freyjukórinn og Söngfélag Þorlákshafnar
troða upp með fjölbreytta tónlist undir
stjórn Zsuzsönnu Budai og Róberts A. Dar-
ling laugardaginn 22. apríl kl. 17. Allir vel-
komnir – inngangseyrir.
Langholtskirkja | Skagfirska Söngsveitin í
Reykjavík heldur vortónleika í Langholts-
kirkju sumardaginn fyrsta, 20. apríl og laug-
ardaginn 22. apríl, báða dagana kl. 17.
Stjórnandi: Björgvin Þ. Valdimarsson. Ein-
söngvarar: Jóhann Friðgeir Valdimarsson,
tenór og Baldvin Júlíusson, bassi. Aðgangs-
eyrir kr. 1800.
Myndlist
Anima gallerí | Helga Egilsdóttir, huginn.
Sýningin stendur til 23. apríl.
Café Karólína | Þorvaldur Þorsteinsson – Ís-
landsmyndir. Til 5. maí.
Eden, Hveragerði | Ingunn Jensdóttir með
myndlistarsýningu til 23. apríl.
Energia | Kristín Tryggvadóttir – Rauður
þráður. Til 19. maí.
Gallerí Galileó | Ljósenglar. Myndlistar-
konan Svala Sóleyg sýnir olíumálverk sem
eru að uppistöðu englamyndir og verk með
trúarlegu ívafi í tilefni páskanna. Til 26. apríl.
Gallerí Humar eða frægð! | Við krefjumst
fortíðar! sýning á vegum Leikminjasafns Ís-
lands um götuleikhópinn Svart og syk-
urlaust.
Gallerí Húnoghún | Þorvaldur Óttar Guð-
laugsson með sýningu sína á fjöllum úr áli.
Til 5. maí.
Gallerí Sævars Karls | Pétur Halldórsson til
19. apríl. Abstrakt, meta–náttúra, veðruð
skilaboð, plokkaðir fletir, mjötviður mær
undir.
Gallerí Úlfur | Torfi Harðarson er með sýn-
ingu á hestamálverkum til 7. maí.
Gerðuberg | Tískuhönnun Steinunnar Sig-
urðardóttur, myndbönd frá tískusýningum,
ljósmyndir o.fl. Til 30. apríl.
Gerðuberg | Margræðir heimar – Alþýðu-
listamaðurinn Valur Sveinbjörnsson sýnir
málverk í Boganum. Til 30. apríl.
Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum
Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí.
i8 | Tumi Magnússon sýnir ljósmyndir og
myndbandsverk út apríl.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines.
Þetta er hluti af myndaröð sem enn er í
vinnslu. Til 6. okt.
Ketilhúsið Listagili | Soffía Sæmundsdóttir
myndlistarmaður sýnir málverk á tré, striga
og pappír unnin á undanförnum árum.
Listasafn ASÍ | Í Ásmundarsal er Anna Jó-
elsdóttir með innsetningu stórra, lítilla, ör-
smárra, ferhyrndra, sporöskjulaga og þrí-
víðra verka. Ásta Ólafsdóttir sýnir í Gryfju
og Arinstofu ljósmyndir, myndbandsverk
o.fl. frá ferðalagi sínu um Afríkuríkið Malí.
Listasafnið á Akureyri | Spencer Tunick –
Bersvæði, Halla Gunnarsdóttir – Svefnfarar.
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
12–15.
Listasafn Íslands | Gunnlaugur Blöndal –
Lífsnautn og ljóðræn ásýnd og Snorri Ar-
inbjarnar – Máttur litarins og spegill tímans.
Ókeypis aðgangur. Kaffistofa og Safnbúð
opin á opnunartíma.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Tær-
leikar – Samsýning listamannanna Elinu
Brotherus, Rúrí og Þórs Vigfússonar. Opið
kl. 11–17 þrið.–sun. Til 23. apríl.
Listasafn Reykjanesbæjar | Sýningin Nátt-
úruafl er samsýning 11 listamanna þar sem
viðfangsefnið er náttúra Íslands. Málverk,
skúlptúrar, vefnaður og grafíkmyndir. Verkin
eru í eigu Listasafns Íslands. Opið kl. 13–
17.30.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Ásmundur Sveinsson – Maður og efni. Sýn-
ing á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir,
stein, brons, og aðra málma – og hvernig
sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Til
30. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Á sýn-
ingunni má sjá ýmis verk Erró frá barnsaldri
þar til hann hélt sína fyrstu einkasýningu á
Íslandi í Listamannaskálanum árið 1957. Öll
verkin á sýningunni eru úr Errósafni Lista-
safns Reykjavíkur og gefa áhugaverða
mynd af hæfileikaríkum og vinnusömum
ungum manni. Til 23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | AF-
sprengi HUgsunar – Sprengiverk Guðjóns
Bjarnasonar. Guðjón er kunnur fyrir öflug
verk sín þar sem hann sprengir sundur stál-
rör og stillir brotunum saman á nýjan leik. Á
sýningunni getur að líta nýja nálgun Guðjóns
við viðfangsefni sitt sem hann vinnur í ólíka
miðla. Til 23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning fyrir unga listunnendur sem sett er
upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar Eddu
útgáfu um myndlist fyrir börn þar sem
kynnt eru verk úr safneign Listasafns
Reykjavíkur. Til 3. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Innsetningar eftir Joseph Kosuth og Ilja &
Emiliu Kabakov sem eru fremstu kons-
eptlistamenn heimsins í dag. Á sýningunni
vinna þau með ólík þemu úr ævintýrum
sagnaskáldsins mikla, H.C. Andersen. Hluti
sýningarinnar fer einnig fram í porti Hafn-
arhússins. Sýningin stendur til 5. júní.
Nýlistasafnið | „Our House is a house that
moves“ er alþjóðleg sýning 12 listamanna.
Sýningarstjóri er Natasa Petresin. Lista-
mennirnir eru að fjalla um hreyfingu og
hvernig hún umbreytir heiminum stöðugt.
Til 30. apríl.
Saltfisksetur Íslands | Fríða Rögnvalds-
dóttir með málverkasýninguna Vinir og
vandamenn til 1. maí. Saltfisksetrið er opið
alla daga frá 11–18.
Seltjarnarneskirkja | Málverkasýning Kjart-
ans Guðjónssonar er opin alla daga kl. 10–17,
nema föstudaga og stendur til 7. maí.
Skaftfell | Sýning á afrakstri hinnar árlegu
vinnustofu á vegum Listaháskóla Íslands og
Dieter Roth Akademíunnar stendur nú yfir í
Menningarmiðstöðinni Skaftfelli. Þátttak-
endur sýningarinnar eru útskriftarnem-
endur frá myndlistardeild LHÍ ásamt erlend-
um listnemum. Til 29. apríl.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldukon-
ur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk
tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síð-
ari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra forrétt-
inda að nema myndlist erlendis á síðustu
áratugum 19. aldar og upp úr aldamótum.
En engin þeirra gerði myndlist að ævistarfi.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir hol-
lenska ljósmyndarans Rob Hornstra eru af-
rakstur af ferðum hans um Ísland.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga kl. 10–17, nema
mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðl-
unarsýning, minjagripir og fallegar göngu-
leiðir í næsta nágrenni. Sjá nánar á
www.gljufrasteinn.is
Hafnarborg | Í Hafnarborg stendur nú yfir
25 ára afmælissýning á verkum félags-
manna Leirlistafélagsins. Opið alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17, og frá 11 til 21
á fimmtudögum. Til 24. apríl.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Sigríður
Bachmann í Skotinu, nýjum sýningarkosti
hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Myndunum
er varpað á 150 x 190 cm stóran vegg. Sýnir
Sigríður myndir sem hún hefur tekið af
börnum. Til 7. júní.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 10–
18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum sög-
una frá landnámi til 1550. www.sagamu-
seum.is
Veiðisafnið – Stokkseyri | Uppstoppuð
veiðidýr ásamt skotvopnum og veiðitengd-
um munum. Opið alla daga kl. 11–18. Sjá nán-
ar: www.hunting.is
Þjóðmenningarhúsið | Samsýning 19 mynd-
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða