Morgunblaðið - 21.04.2006, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Á þriðja tug kg affíkniefnum semlögreglan í
Reykjavík lagði hald á í
nýjasta „stóra“ fíkniefna-
málinu er með allra viða-
mestu afhjúpunum á fíkni-
efnasmygli hér á landi.
Fjórir menn sitja í gæslu-
varðhaldi vegna rannsókn-
ar málsins, en lögreglan
upplýsir ekki fjölmiðla
nánar um málið. Þó er vit-
að að málið kom upp 3.
apríl þegar tollgæslan
fann hið mikla magn fíkni-
efna vandlega falið í bíl sem hafði
verið fluttur inn frá Evrópu.
Líklega þarf að fara aftur til
ársins 1999 til að finna fíkniefna-
mál á jafnstórum mælikvarða,
nefnilega hið svokallaða Stóra
fíkniefnamál. Þar voru hátt á
þriðja tug kílóa af fíkniefnum tek-
in og þá eins og nú höfðu smygl-
ararnir valið sjóleiðina til landsins.
Málin tvö eiga fleira sameiginlegt
því sá sem þyngstan dóm fékk af
níu sakborningum í fyrra málinu,
er einn hinna fjögurra sem nú
liggja undir grun.
Þótt ekki sé gefið upp hversu
mikið magn nákvæmlega af fíkni-
efnum hafi verið haldlagt í þessu
máli er ekki óvarlegt að ætla að
það sé um og yfir 20 kg. Tegundir
eru óljósar en til samanburðar
hefur lögregla tekið um 8 kg af
amfetamíni að meðaltali á árs-
grundvelli undanfarin fimm ár.
Þegar skoðað er það magn sem
lögreglan hefur klófest þessi fimm
ár blasa við staðreyndir sem segja
mikla sögu um þróunina í þessum
efnum. Þannig tók lögreglan um
og yfir 16 kg hvort ár 2005 og 2004
en árin þar á undan (2001–2003)
voru tekin frá 1 og upp í 7 kg. Það
er síðan alltaf sígild spurning
hvort þessi aukning 2004 og 2005
endurspegli stóraukinn innflutn-
ing eða aukna grimmd fíkniefna-
lögreglunnar. Hvað sem því líður,
ber lögreglunni og sérfræðingum
skemmtanaheimsins í Reykjavík
saman um það að neyslan hafi auk-
ist mikið. Hörðu efnin, amfetamín
og kókaín, eru einkum notuð á
„djamminu“ og löngu er upplýst
að amfetamínsprengjan á Íslandi
sprakk á árunum 1996–1997 og
fram undir 1999 jókst neyslan, en
stóð í stað næstu þrjú árin þar til
hún jókst enn á ný. Innlagnir á
Sjúkrahúsið Vog hafa á liðnum ár-
um endurspeglað ástandið og nú
er svo komið að yfir 60% þeirra
sem koma á Vog eru háðir örvandi
efnum.
Brot af heildarinnflutningi
Þótt 10 kg af amfetamíni í einni
sendingu sé gífurlega mikið magn,
jafnvel þótt kílóin væru 20, er það
þó ekki nema brot af því sem klár-
lega er flutt inn til landsins á ári
hverju. Þörfin virðist vera óskap-
leg. Í grein frá 11. apríl sl. á heima-
síðu SÁÁ um örvandi fíkniefna-
neyslu (e-pillu, kókaín og
amfetamín) segir að kókaín- og
amfetamínneyslan aukist stöðugt.
Meira og meira af örvandi ávana-
lyfjum (ritalín og amfetamín
kemst inn á ólöglega markaðinn
og gengur þar kaupum og sölum).
65% sjúklinga 20–29 ára greinast
með þennan vanda og út frá fjölda
amfetamínfíkla megi álykta að
landsmenn noti 640 kg af amfeta-
míni á ári. Varðandi kannabisefnin
stendur neyslan í stað og hefur
aldrei verið hlutfallslega meiri.
Daglegar kannabisreykingar eru
meginvandi þeirra sem eru 19 ára
og yngri og koma á Vog. Út frá
fjölda kannabisfíkla megi álykta
að landsmenn noti 1.100 kg af
kannabis á ári. Samtals gerir þetta
hátt í tvö tonn af amfetamíni og
kannabisefnum sem flytja þarf inn
árlega til að fullnægja þörfinni.
Verðmætið er á fimmta milljarð
króna miðað við götuverð á þess-
um efnum.
Þá var fyrir stuttu skýrt frá
könnun Rannsóknar og greiningar
fyrir menntamálaráðuneytið þar
sem fram kom að framhaldsskóla-
nemendur hafa aukið fíkniefna-
neyslu sína síðustu fimm árin en
minnkað reykingar og haldið
drykkjunni stöðugri. Þetta segir
sína sögu um þróun mála. Ekki má
heldur gleyma því að tollgæslan í
Reykjavík kemst yfir að skoða 1%
af öllum vörusendingum með gám-
um til landsins og því þarf engan
að undra þótt smyglarar velji sjó-
leiðina framar öðrum flutnings-
leiðum. Það hefur enda sýnt sig að
sjóleiðin hefur verið sífellt meira
notuð.
Í skýrslu Europol um fíkniefna-
framleiðslu og -smygl á árunum
2003–2004 segir að fíkniefnum sé í
auknum mæli smyglað með skip-
um en síður sé notast við burðar-
dýr. Lögreglan segir líka alveg
ljóst að stærstu sendingarnar
komi með skipum til landsins.
Hlýtur það að vekja spurningar
um hvort auka þurfi viðbúnað við
hafnir landsins.
En hvernig hefur verðþróunin á
kannabis og amfetamínmarkaðin-
um verið undanfarið? Grammið af
amfetamíni kostar nú 4.380 kr.
miðað við könnun SÁÁ og gramm-
ið af hassi 2 þúsund kr. Hassið hef-
ur hækkað stöðugt í verði síðasta
árið. Hvað varðar amfetamínið,
kostaði grammið rúmar 5 þúsund
kr. fyrir ári og hefur fram til þessa
dags hækkað og lækkað á víxl en
virðist hafa hækkað frá áramót-
um.
Fréttaskýring | Stórar afhjúpanir brot af því
magni fíkniefna sem kemst inn í landið
Fíkniefni í
tonnatali
Tollgæslan kemst yfir að skoða 1% allra
vörusendinga með gámum til landsins
Hass og spítt: Tæp fimm kg á dag.
Ársvelta á amfetamíni og
kannabis 5 milljarðar
Þörfin fyrir amfetamín og
kannabisefni er gríðarlega mikil.
Árlega þarf að smygla hátt í
tveim tonnum af þessum efnum
samanlagt til að fullnægja þörf-
um landsmanna. Og síðan þarf
að komast í meðferð þegar allt
fer úr böndunum. Tveir af hverj-
um þremur sjúklingum á Vogi
eru á örvandi efnum og fram-
haldsskólanemar hallast æ meir
að fíkniefnum en minnka reyk-
ingar.
Eftir Örlyg Stein
Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ÓLAFUR Vilhjálmsson, formaður Rauðufjaðr-
arnefndar Lionshreyfingarinnar, veitti nýlega tveim-
ur sérútbúnum Renault Trafic viðtöku fyrir hönd
nefndarinnar. Síðasta landssöfnun Rauðu fjaðrarinnar
var tileinkuð langveikum börnum og mun Lionshreyf-
ingin fá vistheimilunum Rjóðrinu í Kópavogi og
Skammtímavistun Akureyri bílana til afnota.
Að sögn Ólafs Vilhjálmssonar, formanns Rauðufj-
aðrarnefndarinnar, gerir skortur á sérútbúnum bílum
langveikum börnum og fjölskyldum þeirra víða lífið
leitt. Af þeim sökum munu bílarnir koma ekki aðeins
starfsfólki vistheimilanna að góðum notum, heldur
einnig fjölskyldum barnanna, sem eiga margar hverj-
ar í erfiðleikum með að leyfa börnum sínum að njóta
jafn einfaldra hluta og bíóferðar eða heimsóknar til
vina og vandamanna. Rauðufjaðrarnefndin úthlutaði
báðum bílum í samráði við regnhlífasamtök lang-
veikra barna. Fjöldi fyrirtækja lagði Rauðufjaðr-
arnefndinni lið vegna bílanna tveggja eða B&L, SP
fjármögnun, TM tryggingar, Orkan, Frank og Jói
merkingar og J. Eiríksson ehf., en það síðastnefnda
leggur til sérbúnaðinn fyrir hjólastóla. Búnaðurinn
samanstendur í stórum dráttum af hjólastólafest-
ingum og afar handhægum rampi, sem leggst saman
aftast við hurðarhlera og leggja má niður með einu
handtaki. Auk þess sem tveir hjólastólar komast fyrir
í hvorum bíl eru í þeim sæti fyrir fimm farþega auk
bílstjóra. Þá má auðveldlega koma fyrir þriðju og öft-
ustu sætaröðinni, svo að þeir rúmi hvor um sig níu
manns.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bíllinn afhentur: Magnús Guðjónsson, SP fjármögnun, Haraldur Ólafsson, markaðsstjóri SP fjármögnunar, Ólafur
Vilhjálmsson, formaður Rauðu fjaðrarnefndarinnar, Geir Hauksson, fjölumdæmisstjóri Lions hreyfingarinnar,
Daníel Björnsson og Þórunn Gestsdóttir frá Rauðu fjaðrarnefnd og Erna Gísladóttir, forstjóri B&L.
Tveir sérútbúnir bílar í
þágu langveikra barna