Morgunblaðið - 21.04.2006, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
af sameiningu Actavis og
PLIVA verður til þriðja
stærsta samheitalyfjafyr-
irtæki heims, með sterka
stöðu í Bandaríkjunum,
stærstu mörkuðum Evr-
ópu og í Asíu. Félagið yrði
með um 400 lyf í þróun,
starfsemi í 40 löndum og
starfsmenn um 16 þúsund
talsins.
Róbert Wessman, for-
stjóri Actavis, segist telja
að tilboðið nú fái fullnægj-
andi stuðning til að gera
Actavis kleift að hefja
áreiðanleikakönnun á fé-
laginu.
„Við teljum endurskoð-
að tilboð okkar áhugavert
og vonumst til að geta
hafið viðræður við stjórn-
endur PLIVA á næstu
dögum. Viðræður eru
hinsvegar ekki formlega
hafnar og alls óvíst hvort
af kaupunum verður eða
hvort formlegt yfirtökutil-
boð verður gert til hlut-
hafa félagsins,“ segir Ró-
bert.
ACTAVIS Group hefur í
kjölfar viðræðna við hlut-
hafa króatíska samheita-
lyfjafyrirtækisins PLIVA
ákveðið að hækka óform-
legt yfirtökutilboð sitt í
allt hlutafé félagsins, sem
skráð er í kauphöllinni í
Króatíu og London. Frá
síðasta tilboði þann 13.
mars sl., hefur tilboðið
hækkað um 11% og er yfir
því gengi sem viðskipti
hafa verið á í kauphöllum
undanfarið.
Í tilkynningu frá Actav-
is frá í gær segir að kaup-
verð félagsins, að teknu
tilliti til yfirverðs, sé um
1,85 milljarðar dollara, eða
um 145 milljarðar króna.
Um er að ræða lokatilboð
Actavis í félagið, og er það
gert með fyrirvara um
áreiðanleikakönnun. Verði
Actavis hækkar
tilboðið í PLIVA
Róbert Wessmann
Kaupverðið um 145 milljarðar króna
ef af viðskiptunum verður
STEFÁN Þór Stefánsson hef-
ur tekið við starfi fram-
kvæmdastjóra hjá TM Softw-
are – Custom Development
(áður Origo) af Einari Gunn-
ari Þórissyni sem tekið hefur
við nýju starfi hjá TM Softw-
are Healthcare.
Hjá TM Software stýrir
Stefán 34 starfsmönnum sem
vinna að þróun sérhæfðra
hugbúnaðarkerfa, vef- og við-
skiptalausna fyrir netið fyrir
mörg af stærstu fyrirtækjum
og stofnunum landsins. Stef-
án ber ábyrgð á stjórnun og
rekstri einingarinnar, stefnu-
mótun og áætlanagerð. Auk
þess sinnir hann samskiptum
við viðskiptavini, samn-
ingagerð, sölu- og markaðs-
málum.
Stefán, sem fæddist 1969,
er með BA-gráðu í alþjóð-
legum samskiptum frá Met-
hodist College í Norður-
Karólínu í Bandaríkjunum og
hefur sótt fjölda námskeiða í
tengslum við starf sitt, segir í
tilkynningu. Áður en Stefán
tók við hinu nýja starfi var
hann sölu- og markaðsstjóri
TM Software – Origo ehf.
2001–2005. Þar áður var
hann markaðsstjóri Concorde
Axapta Ísland ehf., sérfræð-
ingur og ráðgjafi við-
skiptalausna hjá Hug hf. og
loks fjármála- og skrif-
stofustjóri Icewear – Drífu
ehf.
Stefán Þór yfir TM Software
Stefán Þór Stefánsson
LÁNASÝSLAN stóð fyrir útboði á ríkisbréfum
síðasta vetrardag. Alls bárust 20 gild tilboð fyrir
8,1 milljarð króna að nafnverði og var tilboðum
tekið fyrir 1,5 milljarða. Lánasýslan hefur því
gefið út bréf í umræddum flokki fyrir alls þrjá
milljarða það sem af er ári en ekki hafa verið
gefin út bréf í flokknum síðan í janúar þar sem
Lánasýslan hafnaði öllum tilboðum í síðastliðnum
tveimur útboðum.
Markaðsvirði ríkibréfanna í flokki RIKB10
stendur nú í tæpum 22 milljörðum en í Hálffimm
fréttum KB banka segir að Lánasýslan stefni á
að stærð flokksins verði komin í um 32 milljarða
fyrir árslok.
Hækkandi ávöxtun
Meðalávöxtunarkrafa tekinna tilboða nam
9,8% sem er nánast sama krafa og er nú á eft-
irmarkaði.
Krafa flokksins hefur aldrei verið hærri en
flokkurinn var gefinn út um miðjan mars árið
2004 þegar krafan stóð í tæpum 7%.
Ríkisbréf fyrir 1.500 milljónir